Morgunblaðið - 24.12.1998, Side 46

Morgunblaðið - 24.12.1998, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 Elska skaltu náunga þinn / Utrýma verður þeirri meinsemd úr þjóðfélaginu strax að jjárráð geti ráðið því hvort fólk sendir börn sín til lœknis eða ekki. Börnin eru framtíðin. Öll börn, ekki bara sum. Eftir Skapta Hallgrímsson Jólahátíðin er oft kennd við ljós og frið. Kristnir menn minnast frelsara síns, margir með því að njóta hvíldar í hópi ástvina, borða mikið af góðum mat, gefa og þiggja ýmislegt misjafnlega þarft - sumir sækja jafnvel kirkju. Svo hefur verið víða um lönd í áraraðir, og sókn í messur mun hafa aukist verulega hérlendis hin síðari ár. A Islandi eru jólin reyndar einnig haldin hátíðleg með því að gefnar eru út bækur og hljómdiskar... Jólin eru líka oft réttilega nefnd hátíð barnanna, því þau njóta líklega mest allra þessarar afmælishátíðar Jesú Rrists. Sum. Böm eru VIÐHORF dýrmætasta eign sérhvers foreldris, en misjafnlega er að þeim búið eins og löngum hefur verið vitað, bæði hér á landi sem annars staðar. Jól eru vitaskuld ekki nauðsynleg til að minna á þá staðreynd og trúarbrögð skipta ekki máli í þessu sambandi. Veröldin er því miður svo grimm. Þekking og tækni eykst hröðum skrefum en mannskepnan virðist samt sem áður lítið breytast að sumu leyti. Grimmd og græðgi víða söm og áður. Mörgum, sem náð hafa völdum hér og þar um heimsbyggðina, virðast engin takmörk sett í því sambandi. Um fíkn virðist nánast að ræða; völd kalla á meiri völd, fé á meira fé. Kúga þarf heilu þjóðirnar, andlega og jafnvel líkamlega. Tilgangurinn helgar ætíð meðalið og allt er þetta gert í „þágu málstaðarins“ auðvitað. Það er með ólíkindum hversu maðurinn - þessi viti borna vera, sem af öllum öðrum dýrum ber (að eigin áliti) - er í raun kvikindislegur. Það sem honum dettur í hug er á stundum svo óhugnanlegt að varla er hægt að tala um það. I umfjöllun Morgunblaðsins um ástandið í írak 25. október sl., í framhaldi af ferð eins ljósmyndara blaðsins til landsins, kom fram hve mikil eymd ríkir þar, ekki síst hve viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna hefur bitnað illa á bömum og sjúku fólki. Astandið á þessu sviði er hroðalegt og sagði ljósmyndarinn sláandi að koma inn á barnasjúkrahús í Bagdad. í greininni segir: „Það sem ljósmyndari Morgunblaðsins upplifði sterkast á sjúkrahúsunum er vonleysi fólks og maðurinn að vestan fær erfiðar spurningar: Af hverju er verið að þessu? Af hverju megum við ekki flytja inn meira af sjúkragögnum? Hvers vegna ekki læknatímarit og skýrslur? Af hverju er okkur ekki gert kleift að sinna sjúklingum og gamalmennum?" Þessar spurningar eru skiljanlegar. Fólkinu finnst það ekkert hafa til saka unnið. Það vill geta lifað með reisn, vill geta líknað gömlu fólki og sjúku. Vegna stefnu æðsta manns landsins hefur alþjóða samfélagið hins vegar niðurlægt íbúa þess. Stundum hefur verið talað um forgangsröðun í íslenska heilbrigðiskeifinu og það orð er einnig þekkt í írak. Þar hefur það reyndar aðra merkingu. í greininni segir að þar forgangsraði læknar í stórum stfl. „Á hverjum degi er valið hverjir eiga að lifa og hverjir verða að deyja. Grimmur veruleikinn hljóðar svo: stundum er hægt að bjarga tveimur með sama kostnaði og hægt væri að bjarga einhverjum einum. Og þá verður þessi eini að deyja. Stundum geta læknar bjargað fimm fyrir einhvern einn. Og þá verður þessi eini að deyja.“ Þetta er staðreynd í mjög frjósömu og auðugu ríki árið 1998. En vanþróuð ríki eru ekki þau einu þar sem börn hafa það ekki eins og best verður á kosið. Sláandi upplýsingar koma t.d. fram í samtali hér í blaðinu sl. sunnudag við Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlækni. Ekki tengjast þær jólunum sérstaklega, heldur daglegu líf fólks - staðreyndin er nefnilega sú að marktækur munur er á heiisufari stétta, skv. viðamikilli norrænni könnun. Hulunni var svipt af slíkum vanda árið 1982 við útkomu Svörtu skýrslunnar svokölluðu í Bretlandi, en þar í landi er þjóðfélagið einmitt mjög stéttaskipt. Síðar kom svo í ljós - sem menn höfðu ekki búist við - að ástandið var engu skárra í norrænu velferðarríkjunum. Matthías sá um framkvæmd könnunar vegna umi-æddrar rannsóknar á Islandi. „Eftir að ég hafði unnið úr niðurstöðunum með aðstoð nokkurra erlendra séríræðinga sást greinilegm- stígandi í einkennum langvinnra sjúkdóma, fotlunar og minniháttar kvilla, niður í lægstu þrep þjóðfélagsins,“ segir Matthías. „Mestm- var munurinn á heilbrigði barna í fjölskyldum með minnstu menntunina og næstminnstu menntunina. Hið sama var upp á teningnum þegar spurt vai' hvort fólk hefði dregið að fara til sérfræðings vegna peningaleysis. Verst setti hópurinn skar sig áberandi úr og sérstaklega 1 tengslum við komur til tanniæknis. Foreldrar sögðust síður di’aga að fara til sérfræðings vegna barna en eigin þarfa.“ Ástandið sem Matthías lýsir þarna er auðvitað óþolandi. Að böm skuli ekki njóta nauðsynlegrar læknisþjónustu vegna fjárskorts fjölskyldunnar ætti að heyra sögunni til. Velferðarríkið ísland á að sjá sóma sinn í að útrýma þessu vandamáli og það strax. Boðað var fyrir margt löngu að elska ætti náungann eins og sjálfan sig; stjórnvöld eiga að búa svo um hnúta að allir eigi rétt á nauðsynlegri þjónustu, til að mynda heilbrigðiskerfisins. Það eru mannréttindi. Fólk sem fæðist með gullskeið í munni getur leyft sér ýmislegt umfram aðra, sem ekki búa við sömu aðstæður, en fjárráð fólks mega ekki ráða því hvort það sendir börn sín til læknis eður ei. Börnin eru framtíðin. Öll börn, ekki bara sum. MINNINGAR ÁSGEIR ARNGRÍMSSON + Ásgeir Arn- gríinsson, fram- kvæmdasijóri Fisk- miðlunar Norður- lands á _ Dalvík fæddist í Ólafsfirði 5. október 1954. Hann lést 8. desem- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrar- kirkju 18. desem- ber. Þriðjudaginn 8. des- ember síðastliðinn barst út sú harmafregn að Ásgeir Ai-ngrímsson, okkar kæri vinur og frændi, hafi látið lífið í hræðilegu bflslysi rétt norðan Akur- eyi-ar fyrr um morguninn. Þessir atburðir gerast svo óhugnanlega snöggt að aðstandendur eru lamaðir á sál og líkama á eftir. Ásgeir, eða Geiri Helgu eins og hann var kallað- ur hér á Ólafsfirði þar sem hann fæddist og ólst upp. Við frændurnir vorum alltaf mjög nánir vinir á þessu alltof stutta æviskeiði, fyrst þegar við vorum litlir snáðar sem áttum ófáar gleðistundimar í for- eldrahúsum og hjá ömjnu Gunn- laugu og afa Asgeiri í Ámahúsinu hér í Ólafsfirði. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur sjö ára gamall með fósturforeldram mínum kom Geiri oft í heimsókn til okkar og urðu þá miklir fagnaðarfundir hjá litlu frændunum, en Geiri var þá að koma til föður síns Arngríms Mar- teinssonar en hann var ættaður frá Ystafelli í Köldukinn, en þar var Geiri ófá sumur í sveit hjá ömmu sinni Köra og afa sínum Marteini sem nú era bæði látin. Þegar hausta tók kom Geiri loksins heim til að byrja í skól- anum og biðu margir vinirnir eftir komu Geira úr sveitinni enda fjöragur og frískur strákur. Móðir Geira Helga Ásgeirsdóttir bjó honum gott heimili á Ólafsfirði ásamt stjúpföður hans Bjarna Sigmarssyni. Helga og Bjarni eignuðust fjög- ur börn saman, Guð- rúnu, Margreti, Sigur- björgu og Sigurð, varð það mikið áfall þegar Helga féll frá árið 1985 aðeins 51 árs. Geiri kláraði barna- og gagn- fræðaskólann hér á Ólafsfirði og gekk honum ætíð mjög vel í námi. Síðan lá leiðin í Menntaskólann á Akureyri þaf sem hann kynntist fyrst Örnu Hrafnsdóttur sem síðar varð eiginkona hans. Síðan flytja þau til Hafnarfjarðar þar sem þau leigðu meðan Geiri var að klára námið sem gerði hann að útgerðar- tækni. Það var í Hafnarfirði sem Geiri og Arna eignuðust fyrsta son- inn Baldvin Hermann, f. 30.10.1976. Þegar Geiri lauk náminu réðst hann til starfa á Suðureyri við Súganda- fjörð og voru þau þar í fáein ár. Þá fóra heimahagarnir að kalla og flytja þau þá til Akureyrar en þar réðst Geiri til starfa hjá Utgerðar- félagi Akureyrar og var þar vinnslustjóri í mörg ár. Á þeim ár- um fæddust synimir Bjarni Hrafn, f. 10.5. 1979, og Brynjar Helgi, f. 6.4.1981. Geiri og Arna réðust fljót- lega eftir endurkomuna til Akureyr- ar í að byggja glæsilegt einbýlishús þar sem alltaf var gaman að koma í KRISTJAN PÁLSSON + Kristján Páls- son fæddist á ísafirði 24. septem- ber 1916. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á fsafírði 30. nóvember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Isa- íjarðarkirkju 5. des- ember. Okkur langar til að minnast ástkærs afa okkar sem lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Isafirði eftir erf- ið veikindi. Mikið eigum við eftir að sakna hans afa okkar en hann er örugglega feginn að vera leyst- ur frá erfiðum veikindum. Alltaf var jafn gaman að koma í Hrannargötuna til afa og ömmu. Við sjáum afa fyrir okkur þar sem hann sat á stólnum við ofninn og reykti pípuna sína í rólegheitum. Þegar hann heyrði dyrnar opnast leit hann við og sagði brosandi „Eruð þið nú komnar elskurn- ar“. Ætíð fundum við hversu velkomnar við vorum og ekki voru þær fáar ferðirnar sem við áttum til afa og ömmu. Stundum var hlegið af því að við áttum það til að koma inn og rétt sögðum halló og bless, en það var þessi vani hjá okkur að heilsa alltaf upp á afa og ömmu hvern dag. Þessar minningar eru okkur mjög dýrmætar og eigum við eftir að segja börnum okkar og von- andi bamabörnum frá því hve gott var að finna þessa hlýju og fá að umgangast afa eins mikið og við gerðum í uppvextinum. Ailtaf hafði afi nógan tíma til að tala við okkur og oft dansaði hann við okkur og seinna dansaði hann við ASLAUG PÁLSDÓTTIR + Áslaug Pálsdóttir, fyn-ver- andi fulltrúi Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar, fæddist í Reykjavík 30. maí 1923. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 25. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dóm- kirkjunni 4. desember. Elsku amma. Við eigum eftir að sakna stundanna sem við sátum sam- an að borða snúð og drekka mjólk. Hvað þá þegar einhver okkar kom í heimsókn til þín eftir skóla og spilað var olsen olsen. En allar þær minn- ingar ætlum við ávallt að geyma. Okkur langaði til að fá þig aftur ef það væri hægt en svo er ekki. Við ætlum að senda þér sáim sem við grófum upp. Ég hef augun raín tii fjallanna: hvaðan kemur mér hjálp. Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Amma, þú munt alitaf lifa í hjarta okkar allra og í hjartanu geymum við minningar okkar um þig. Og við vonum að þér líði vel þar sem þú ert og verður. Þínar dótturdætur, Alexandra Sif, Isabel Petra og Viktoría Sabína. MORGUNBLAÐIÐ heimsókn og var þá gantast og gert að gamni sínu. Geiri hafði mikinn áhuga á félagsmálum og íþróttum enda góður frjálsíþróttamaður, skíðamaður og liðtækur í flestar boltagreinar á sínum yngri áram. í félagsmálum kom hann víða við m.a. félagi í Oddfellow á Akureyri, ný- lega tók hann að sér formennsku Júdódeildar KA, en þar æfir yngsti sonurinn Biynjar Helgi júdó og er mjög efnilegur. Þegar Geiri lét af störfum hjá ÚA réðst hann til starfa sem framkvæmdastjóri Kaldbaks á Grenivík og var þar í stuttan tíma þar til hann tók að sér starf hjá Fiskmiðlun Norðurlands á Dalvík þar sem hann starfaði til hinstu stundar er hann var á leið til vinnu sinnar en hann bjó á Akureyri. Oft höfðum við samband hvor við annan og hafði Geiri alltaf frá mörgu að segja enda ferðaðist hann mikið og fór víða í sínu starfi. Oft var talað um hljómsveitina sem við stofnuð- um í Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar á skólaárum okkar og endurvöktum nokkmm sinnum með vini okkar Hauki og spiluðum við aðallega fyr- h’ okkur sjálfa, vini og ættingja. í síðasta samtali sem við áttum sam- an var ákveðið að byrja æfingar í byrjun næsta árs fyrir ættarmótið sem halda á nk. sumar. Geiri og Arna skildu fyrir tveimur áram og bjó hann með drengina hjá sér í fal- lega húsinu sínu en stutt var til Örnu sem bjó í nágrenni við þá. Nú þegar ég, kona mín og börn kveðj- um minn kæra vin og frænda bið ég guð að blessa og hugga Ömu og synina Baldvin, Bjarna og Brynjar, einnig Bjarna fósturpabba og hálf- systkinin Guðrúnu, Margreti, Sig- urbjörgu og Sigurð. Föður Geira Arngrím og hálfsystkinin Köra, Auðbjörgu, Kára og Svein og fjöl- skyldur þeirra. Guð blessi minningu þína, okkar kæri vinur, far þú í friði. Sigurður Pétur, Margrét og börnin. börnin okkar á sama hátt. Alltaf fórum við vel saddar úr Hrannar- götunni því það var vel passað upp á það að við borðuðum vel af því sem var á boðstólum. Hafra- grauturinn var alltaf góður og sagði afi okkur að lýsið ætti alltaf að fylgja grautnum og við ættum að borða vel til að verða stórar og sterkar. Einnig sagðir hann okkur oft sögur af hans uppvexti og telj- um við að það hafi verið mjög gott fyrir okkur því þá vissum við hve vel við máttum vel una við það sem við höfðum. Selma man mjög vel eftir því þegar afi var að gefa henni magamjólk og sagði alltaf að svona væri að vera veikur í maga en að magamjólkin lagaði mjög fljótt magaverkin. Lína minnist þess þegar hún fór í göngutúr niður í bæ með dúkku- vagninn sinn og ein skrúfan í hon- um gaf sig, þá var að sjálfsögðu gengið upp í Hrannargötu og afi gerði við vagninn og hafði mikla ánægju af því. I dag notar langa- fastelpan hans vagninn og heldur skrúfan honum enn saman. Við minnumst þess þegar afí gaf okkur kringlu og kaffi, þá kenndi hann okkur hvernig ætti að borða kringlu á réttan hátt. Það var þannig að hann sat með sykurkar- ið og kaffibollann, dýfði síðan kringlunni í kaffibollann og svo beint í sykurkarið. Þetta fannst okkur alveg frábært því alltaf var verið að tala um hve óhollur sykur væri en afi hélt nú ekki þess vegna sparaði hann aldrei sykurinn. Við minnumst allra ullasokkanna sem afí prjónaði og útsaumuðu mynd- anna sem hann saumaði eftir að hann hætti að vinna. Elsku afa þökkum við fyrir langa og góða samfylgd og mun- um alltaf minnast hans með gleði í hjarta því minningarnar um hann eru svo góðar. Ömmu þökkum við fyrir hversu vel hún stóð með afa í veikindum hans enda hefur hún verið afa ómetanlegur styrkur. Við biðjum góðan Guð að vera með ömmu og Boggu. Selma og Dagbjört Lína Kristjánsdætur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.