Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 65
Safnaðarstarf
Jólamessa
Kvennakirkj unn-
ar í Neskirkju
JÓLAMESSA Kvennakirkjunnar
verður í Neskirkju sunnudaginn
27. desember kl. 20.30. Séra Auðm-
Eir Vilhjálmsdóttir prédikar.
Dagný Sigurðardóttir úr Borgar-
firði syngur einsöng. Kór Kvenna-
kirkjunnar leiðir almennan söng
við undirleik Ingunnar Hildar
Hauksdóttur. Kaffi á eftir í safnað-
arheimilinu.
Bænastund í
kirkjugarði
Vestmannaeyja
MARGIR leggja leið sína í kirkju-
garðinn í Vestmannaeyjum á að-
fangadag að huga að leiðum ást-
vina sinna. Þennan dag kl. 14.30
verður stutt samvera úti undir ber-
um himni með ritningarlestri og
bænastund fyrir aðstandendur
þeirra sem hvíla þar í friði. Allir
eru velkomnir og líka þeir sem
minnast vilja látinna ástvina sinna
er hvíla annars staðar fjarri Eyj-
um. Fólk er beðið að klæða sig vel
eftir veðri.
Helgihald í Landakirkju um jól-
in.
Aðfangadagur jóla, 24. desem-
ber: Kl. 14:30. Bænastund í
kirkjugarðinum. Kl. 18. Aftan-
söngur með hátíðarsöng. Jólanótt,
24. desember: Kl. 23:30. Guðs-
þjónusta með hátíðarsöng. Jóla-
dagur, 25. desember: Kl. 14. Há-
tíðarguðsþjónusta. Lúðrasveit
Tónlistarskólans leikur frá kl.
13:30. Annar dagur jóla, 26. des-
ember: Kl. 14. Skírnar- og fjöl-
skylduguðsþjónusta. Kl. 15:10.
Hátíðarguðsþjónusta í Hraunbúð-
um. Miðvikudagur 30. desember:
Kl. 16. Jólatréssamkoma í safnað-
arheimilinu í umsjá starfsmanna
kirkjunnar og ýmissa þátttakenda
í reglulegu starfí hennar. Allir vel-
komnir. Guð gefi ykkur gleðiríka
hátíð ljóss og friðar!
Sóknarprestur.
Aðventu-
söfnuðurinn
MIÐNÆTURGUÐSÞJÓNUSTA
er í Loftsalnum, Hólshrauni 3,
Hafnarfirði, kl. 23.30 á aðfanga-
dagskvöld. Alda Ingibergsdóttir,
sópran, syngur einsöng. Allir vel-
komnir. Annan í jólum er guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður er
Björgvin Snorrason. Almenn söng-
stund. Hressing að guðsþjónustu
lokinni. Allir velkomnir.
KIRKJUSTARF
NESKIRKJA.
✓
Islenska
Kristskirkjan
Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 18.
Fögnum komu Frelsarans og lofum
hann. Olaf Engsbráten prédikar.
Helgistund á jólanótt kl. 23. Jesús
er fæddur. Hann kom í þennan heim
þín vegna. Friðrik Schram prédikar.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Olaf Engsbráten prédikar. 27.
des.: Jólahátíð fjölskyldunnar kl. 11.
Böm sýna helgileik, gengið í kring-
um jólatré. Tökum með okkur
smákökur með kaffinu. Almenn
samkoma kl. 20. Við komum saman
til að lofa og tilbiðja Frelsara heims-
ins. Friðrik Schram prédikar. Allir
hjai-tanlega velkomnir.
MECALUX
erhmur
a
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vöruhús sem minni
lagera. Aðeins vönduð vara úr gæðastáli á mjög góðu verði.
Einnig færðu lyftitæki og trillur hjá okkur.
Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma.
Lagerlausnir eru okkar sérgrein
MECALUX
- gæði fyrir gott verð
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SUNDABORG 1 • SlMI 568-3300
Jól '98
Sjón er
sögu ríkari
Öðnivísí blómabdð
blómaverkstæði
INNA
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegín, sími 551 9090
sœtir sófaf*
HÚSGAGNALAGERINN
• Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475 »
LYFJA
óskar landsmönnum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
Opið alla hátlðardagana
sem og alla aðra daga ársins frá
9:00-24:00 í Lágmúla 5
LYFJA
Lyf á lágmarksverði
Setberg Hafnarfirði 10-19 virka daga, 12-18 laugardaga.
Hamraborg Kópavogi 9-18:30 virka daga, 10-14 laugardaga.