Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 67
JOLABRIDS
llinsjón Guðniundur Páll
Arnarson
„ÞETTA er síðasta umferðin
í kvöld. Ég minni á að spila-
mennska fellur niður næsta
miðvikudag - ég ítreka, ekk-
ert verður spilað á Þorláks-
messu; en á milli jóla og
nýárs...“
Fjögurra kvölda hrað-
sveitakeppni lauk hjá Brids-
féiagi Reykjavíkur á mið-
vikudaginn fyrir rúmri viku
og það er Sveinn Rúnar Ei-
ríksson keppnisstjóri sem er
að reyna að ná athygli spil-
ara undir lok kvöldsins.
Sveinn þekkir sitt heimafólk
og telur því vissara að til-
kynna spilalausan miðviku-
dag, svo enginn fari fýluferð
á Þorláksmessunni.
Hraðsveitakeppni er ann-
ars frekar hægfara keppni,
þrátt fyrir naftiið. En „hrað-
inn“ kemur til af því að að-
eins eru spiluð fáein spil
gegn hverri sveit. Það kallar
á tíðar skiptingar milli borða
og mikla skriffinnsku, sem
hægir á spilamennskunni. En
fátt er svo með öllu illt. Fyrir
bragðið fá menn góðan tíma
á milli umferða til að spjalla
saman og rökræða áhuga-
verð spil. Og þau voru nokk-
ur þennan miðvikudag, eins
og endranær. I ljósi þess að
messufall var hjá BR í gær-
kvöldi, verða hér rifjuð upp
fimm áhugaverð spil frá síð-
asta hraðsveitakvöldi. Les-
andinn er látinn venna suð-
ursætið og glíma fyrst við
vandann, eins og hann horfði
við keppendum.
Látlaus bútur
Norður
A Á109
¥ K74
♦ K74
* G1052
Suður
A KG742
¥ Á52
♦ 32
A 873
Vestur Norður Austur Suður
. . - Pass
1 tígull Pass 1 hjarta 1 spaði
Dobl 2 spaðar Pass Pass
Pass
AV spila Precsion með 13-
15 punkta grandi. Tígulopnun
vesturs er því oftast byggð á
ójafnri skiptingu, en ef skipt-
ingin er jöfn eru punktarnir
11-12. Doblið á spaðainná-
komunni er svonefnt stuðn-
ingsdobi, sem sýnir nákvæm-
lega þrílit í hjarta. Utspil
vesturs er hjartagosi.
Hvernig viltu spila?
Ef tígulásinn er réttur, fær
vörnin fimm slagi á hliðarlit-
ina, svo meginverkefnið
verður að finna trompdrottn-
inguna. En það liggur ekkert
á að hreyfa trompið, og raun-
ar er sjálfsagt að -fresta því í
lengstu lög og reyna að afla
upplýsinga um hina litina
fyrst. Þú tekur því fyrsta
slaginn heima og spilar strax
tígli. Vestur horfir skamma
stund á tígultvistinn, en
drepur svo með ás og spilar
aftur hjarta.
Hvernig heldurðu áfram?
Þú drepur, tekur tígulkóng
og trompar tígul. Austur
fylgir með níu og gosa. Nú
spilarðu hjarta. Austur tekur
þann slag og spilar litlu laufi.
Vestur tekur tvo slagi á KD í
laufi og spilar þvi þriðja yfir
á ás félaga síns. Svo kemur
hjarta, sem þú trompar
heima og vestur hendir tígul-
tíu. Nú eru aðeins þrjú spil
eftir á hendi: KG7 í trompi á
móti Á109.
Hvernig hyggstu spila
spaðanum?
Vestur hefur sýnt hjarta-
gosa, tígulás og laufhjón. Sem
eru 10 punktar. Það er ljóst
að vestur er með jafna skipt-
ingu, þannig að hann á 11-12
punkta, eða eina drottningu
til viðbótar. Það gæti verið
trompdrottningin, en hitt er
líklegra að vestur eigi drottn-
inguna í tígli. Þá ályktun má
draga af því að vestur rauk
strax upp með tígulásinn, sem
hann hefði ekki verið eins fús
að gera með ÁlOxx.
Norður
AÁ109
¥ K74
♦ K74
♦ G1052
Vestur Austur
A 85 A D63
¥ G106 V D983
♦ ÁD1085 ♦ G96
* KD4 * Á96
Suður
A KG742
¥ Á52
♦ 32
♦ 873
Að þessu athuguðu
spilarðu spaða á ásinn og
svínar gosanum í bakaleið-
inni. Vel gert!
Afdrifaríkt útspil
Þú ert með þessi aðgerða-
litlu spil í suður:
Suður
♦ K754
¥ G95
♦ 2
♦ KD653
Það er enginn á hættu og
andstæðingarnir feta sig
hægt og rólega upp í fjögur
hjörtu:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 hjarta Pass
1 grand Pass 2 tíglar* Pass
2 hjörtu Pass 3 tíglar Pass
4 hjörtu Pass Pass Pass
Mótherjarnir spila Stand-
ard með sérviskulegu kröfu-
grandi. Endursögn austurs á
tveimur tíglum er tvíræð;
annaðhvort veik opnun með
sex-spila hjartalit ellegar
sterk opnun með nákvæm-
lega fimmlit í hjarta og fjórlit
til hliðar. Þegar austur segir
næst þrjá tígla, segist hann
Messufall á
Porláksmessu
eiga sterk spil með 5-4 í
hjarta og tígli.
Hvert er útspilið?
Það er annaðhvort lauf-
kóngur eða einspilið tígli.
Garozzo hefur sagt að maður
eigi alltaf að koma út með
einspil, en hér er margt sem
mælir gegn því: I fyrsta lagi:
Þetta er hliðarlitur sagnhafa.
í öðru lagi: G9x í trompi gæti
skilað slag á kröftum ef
makker á mannspil. I þriðja
lagi: Það er um annað gott
útspil að velja (laufkóngur).
En orð meistarans vega
þungt og tíguleinspilið er
freistandi:
Norður
♦ ÁG863
¥ 63
♦ K976
*G7
Vestur Austur
* 92 * D10
¥ D42 ¥ ÁK1087
* G543 ♦ ÁD108
* 10842 * Á9
Suður
AK754
¥ G95
♦ 2
* KD653
En hræðilegt í þessu til-
felli. Með tígli út fær sagn-
hafi innkomuna sem hann
þarf til að vinna taplaust úr
tígullitnum og gefur þá að-
eins þrjá svarta slagi. 011 hin
12 spilin á hendinni tryggja
vörninni slag á tígul og fjóra
í allt. - Hver er þessi
Garozzo?
Pínulítil vandvirkni
Norður
* 1052
¥ 10976
* KD7
* ÁKG
Suður
AÁG94
♦ D85432
♦ Á83
♦ -
Þú ert höfundur sagna og
vekur á einu hjarta, og það
tekur ykkur félagana ör-
skamma stund að komast í
fjögur hjörtu. AV blanda sér
ekkert í sagnir og vestur hef-
ur vörnina með spaðakóng.
Hvemig viltu spila?
Þú ert ekki lengi að þessu:
Drepur á spaðaás, ferð inn í
borð á tígul og hendir tveim-
ur spöðum niður í ÁK í laufi.
Spilar svo trompi.
Norður
* 1052
¥ 10976
♦ KD7
* ÁKG
Vestur Austur
* KD87 * 63
¥ - ¥ ÁKG
* 10642 ♦ G95
* D7542 * 109863
Suður
AÁG94
¥ D85432
♦ Á83
*-
Þessar varúðarráðstafanir
reyndust nauðsynlegar, því
austur var með öll trompin
og aðeins tvíspil í spaða.
Otrúlegt, en satt; spilið fór
niður á mörgum borðum.
Líklega hafa þeir sagnhafar
ekki nennt að hafa áhyggjur
af 3-0-legunni í trompi og
spilað strax hjarta heiman-
frá. En fyrirframlíkur á því
að austur eigi ÁKG í trompi
eru 11%, sem er nógu mikið
til að hafa áhyggjur af.
Slemmuákvörðun
Slemma eða ekki slemma?
Sú spuming mun kvelja þig
næstu mínútumar. Þú er
með þessi spil í suður:
Suður
AÁD83
¥ D93
♦ Á8
* G1096
Makker þinn opnar á einu
Standard-laufi og þú svarar á
spaða. Hann stekkur í fjóra
spaða, sem sýnir kerfisbund-
ið 18-19 punkta og tiltölulega
jafna skiptingu (með sama
styrk og skiptingarspil
myndi hann sýna stuttlit á
fjórða þrepi).
Fyrsta spurning: Ætlarðu
að hreyfa þig eitthvað?
Til er þumalfingsursregla
sem segir að það þurfi
minnst 33 punkta á milli
handanna til að reyna hálf-
slemmu. Ef um tromplit er
að ræða, teljast skiptingar-
punktar með. í háspilum eig-
ið þið saman 31-32 og svo átt
þú einn punkt í tíglinum fyrir
tvíspilið, og hugsanlega á
makker líka 1-2 punkta auka-
lega í skiptingunni. Það gæti
verið styrkur í slemmu og þú
ákveður að reyna.
Onnur spurning: Hvaða
leið ferðu?
Þú getur spurt um lykilspil
með fjómm gröndum, hækkað
í fimm spaða eða sýnt fyrir-
stöðuna í tígli, sem er auðvitað
heiðarlegasta sögnin. Og sú
sögn hefur jafnframt þann
kost að fæla vömina frá
tígulútspili, sem gæti verið
gott ef makker á ekki kónginn,
en fimmta laufið eða ljórða
hjartað. Nú, jæja; þú segir
fimm tígla og makker fimm
hjörtu á móti. En þá doblar
austur til útspils. Þú passar til
að vinna tíma og makker
redoblar, sem sýnir ásinn.
Síðasta spuming: Ætlarðu
að hrökkva eða stökkva?
Útlitið hefur óneitanlega
dökknað. Ekki er að sjá að
hægt sé að losna við tvö
hjörtu af hendinni heima, svo
þar er tapslagur. Allt annað
verður að vera pottþétt. Með
góðum vilja má teikna upp
hendi á móti sem dugir, en
makker getur þá bara sagt
slemmuna sjálfiir. Þú gefst
upp og segir fimm spaða:
Norður
A G652
¥ ÁG8
♦ K
* ÁKD43
Vestur Austur
A K9 A 1074
¥ 762 ¥ K1054
♦ G7642 ♦ D10953
* 752 * 8
Suður
AÁD83
¥ D93
♦ Á8
* G1096
Vestur Norður Austur Suður
- 1 lauf Pass 1 spaði
Pass 4 spaðar Pass 5 tíglar
Pass 5 hjörtu Dobl Pass
Pass RD Pass 5 spaðar
Pass Pass Pass
Makker virðir ákvörðun
þína og passar líka, enda á
hann svo sem ekkert ósagt.
Þetta reynist vel metið, því
vörnin fær alltaf tvo slagi á
hálitakóngana sína. Lang-
flest NS-pörin sögðu sex
spaða á spilin, sem er eðli-
legt, því slemman er með lík-
um ef ekki er vitað um
hjartakónginn í austur.
Austur kveinkaði sér
nokkuð þegar skorblaðið var
skoðað, því hann vissi auðvit-
að manna best að doblið
hjálpaði andstæðingunum
meira en makker. Zia hefur
reyndar sagt að aldrei eigi að
dobla fyrirstöðusagnir; slík
dobl auðveldi mótherjunum
að meta spilin, auk þess sem
það gefur þeim meira svig-
rúm í sögnum.
Fáránlegt en rökrétt
Norður
A Á
¥ D753
♦ 65
* ÁD9762
Suður
AG74
¥ Á4
♦ ÁKD743
* K5
Vestur Norður Austur Suður
- 1 lauf Pass 2t%iar
2 spaðar 3 lauf Pass 3tíglar
Pass 31\jörtu Pass 4 lauf
Pass 4spaðar Pass 4grönd
Pass 51\)örtu Pass 6grönd
Pass Pass Pass
ast á því að báðir láglitirnir
brotni 3-2. En þá væri betra
að vera í sjö!
Sjáum til. Þú færð út
spaðakóng í innákomulit
vesturs og byrjar á því að
taka kóng og ás 1 laufi. Báðir
fylgja. Það er gott, því nú
áttu ellefu slagi.
Taktu við.
Það sakar ekki að taka
laufslagina strax og kanna
afköstin. Það kemur í ljós að
vestur hefur byrjað með tvö
lauf og hann hendir þremur
spöðum til að byrja með, en
þú hendir tveimur tiglum og
einum spaða. Svo kemur síð-
asta laufið. Þú átt eftir
heima: spaðagosa, Á4 í hjarta
og ÁKD7 í tígli.
Hveiju hendirðu í siðasta
laufið?
Norður
A Á
¥ D753
♦ 65
♦ ÁD9762
Vestur Austur
A KD10832 A 965
¥ K986 ¥ G102
♦ 8 ♦ G1092
♦ 43 * G108
Suður
AG74
¥ Á4
♦ ÁKD743
♦ K6
Það þarf rosalegan kjark
til að henda tígulsjöunni, en
það er eina leiðin til að vinna
spilið!
Eins og sjá má, fellur tíg-
ullinn ekki. Hins vegar má
koma vestri í klípu ef þú held-
ur eftir tveimur hjörtum og
spaðagosa. Þegar þú hefur
tekið þrjá efstu í tígli, verður
staðan þessi:
Norður
A -
¥ D75
♦ -
Þetta er vandasamt spil í
meldingum og þú endar ekki
á réttum stað. Besta hálf-
slemman er sex tíglar, en
grandslemman virðist byggj-
Vestur
A D
¥ K9
♦ -
*-
Austur
A 9
¥ G
♦ G
*-
Suður
A G
¥ Á4
♦ -
*
Vestur er sendur inn á
spaðadrottningu til að spila
frá hjartakónginum.
Enginn fór þessa leið, enda
er spilamennskan dálítið fá-
ránleg. En þó rökrétt, því
spilið vinnst alltaf á þennan
hátt ef vestur á hjartakóng-
inn. Og er það ekki líklegt
eftir innákomuna?
Sveit Sævars Þorbjörns-
sonar vann hraðsveitakeppn-
ina. Hvað gerðu sigurvegar-
arnir í spilunum að ofan?
„Bíddu nú við.“ Sverrir
Ármansson leit yfir spilagjöf-
ina. „Ég kannast ekki við
nein vandamál við okkar
borð. Hins vegar er ég með
nokkur ágæt blaðaspil handa
þér...“
Þau verða að bíða til næstu
jóla.
Opið í dag:
frá 10:00 til 15:00.
Opið laugardaginn 2. íjólum:
frá 10:00 til 23:00.
Opið sunnudaginn 27. Desember:
frá 10:00 til 23:00.
O&ktM Imkmtuum qUhdeqta jóla!