Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 78
MORGUNBLAÐIÐ
* Hinn sanni jólaandi
kaupmennskunnar
Á ÍSLANDI, í Evrópu og víðar í
heiminum hafa jólin og aðdragandi
þeirra þróast í hátíð kaupmanna,
veitingastaðaeigenda og hverra
þeirra sem selja einhvers konar
vörur og þjónustu. Borgir í Evrópu
bítast um hina verslunarglöðu
kúnna sem vita að krítarkortin
þekkja engin landamæri, líkt og
Laugavegurinn og Kringlan bítast
um verslunarglaða Islendinga.
Fyi'ir nokknim árum ákváðu
borgaryfirvöld í Strasbourg í
Frakklandi að lýsa því yfir að borg-
in væri höfuðborg jólanna „eapitale
de Noél“ hvorki meira né minna.
Þar sem Strasbourg var þar með
orðin höfuðborg jólanna í Frakk-
landi og Frakkland er nafli Evrópu,
þá gerðu borgaryfirvöld sér strax
grein fyrir því að Strasbourg væri
höfuðborg jólanna í Evrópu. Það
þyrfti aðeins að tilkynna öðrum íbú-
um álfunnar það. Fyrir hver jól hafa
Jólin eru haldin hátíð-
leg víða um heims-
byggðina. Líklega er
þó stemmningin óvíða
meirí en í Strasbourg.
Steinar Þór Sveinsson
ráfaði í jólaskapi
um opinbera
höfuðborg jólanna.
borgaryfírvöld því lagt mikið upp úr
því að kynna borgina í öðrum lönd-
um Evrópu og einnig lagt í miklar
framkvæmdir í borginni sjálfri til að
tryggja að hún standi undir nafni.
Um fjórum vikum fyrir jól um-
breytist gamli miðbærinn í Strasbo-
urg í ævintýraland jólaljósa,
jólatrjáa og hvers kyns jóla-
skreytinga. Á helstu torgum
borgarinnar er litlum söluhús-
um komið upp í skipulegum
röðum þar sem borgarbúum og
gestum hennar er boðinn til sölu ým-
is vamingur. Borgin tekur stakka-
skiptum og verður glæsileg umgjörð
um hinn víðþekkta jólamarkað í
Strasbourg. Það er líkt og hönd
borgaryfirvalda sé vakandi yfír öllu,
öll smáatriði eru látin falla inn í
þessa umgjörð markaðssetningar
jólanna. Jafnvel sölumennimir sem
selja á svörtum og hingað til hafa
arkað um miðbæinn hlaðnir alls kon-
ar leðurvörum og lyklakippum, sem
þeir reyna að selja vegfarendum,
skipta algerlega um lager og era nú
komnir með kippurnar af jólasveina-
húfum sem fást á sérkjöram.
Markaðssetning borgarinnar sem
höfuðborgar jólanna hefur tekist
vel. Áður var það nágrannaborgin
Freiburg í Þýskalandi sem vai-
ókrýnd höfuðborg jólanna en nú
hefur Strasbourg náð þeim titli af
henni. Fólk kemur víðs vegar að á
jólamarkaðinn í Strasbourg. Á bíla-
stæðum í borginni getur að líta
rútubifreiðir frá Englandi, Þýska-
landi og Ítalíu, merktar jólamarkað-
inum, sem bera þess vitni að nokkur
ferðamannaiðnaður hefur myndast í
kringum markaðssetningu jólanna í
nágrannalöndunum.
Jólamarkaðurinn er draumaland
sælkerans, alls konar sætindi, kök-
ur og gómsætur matur er boðinn
til sölu í aragrúa söluhúsa. Uminn
af herlegheitunum leggur yfir
svæðið og tryggir það að enginn
sem villist inn á jólamarkaðinn yf-
irgefur hann án þess að hafa ein-
hverja fylli í maga sínum. Öllum
krásunum er síðan skolað niður
með „vin chaud“, heitu víni, betur
þekktu sem jólaglöggi á ísalandinu
kalda. I öðrum söluskálum er gest-
um boðinn ýmiss konar varningur
til kaups.
Eftir nokkra athugun sjá glöggir
menn að mikill hluti hins einsleita
Ríát»as1»a kpáin í bærunt
3ja ára »g 24 daga
Cut>*l\bro;
Jólunum verður ekki frestað, hvorki
fyrir Hvítan Rús.sa eða Svartan,
spyqið hara Triðjón flotta.
Bjami Tiyt&va,
Oli McGiíiness od mgvar Gareia
í íunheitum samba í allt kvöld
I LEG JÓL
78 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998
FOLK I FRETTUM
vamings hlýtur að eiga uppruna
sinn í sömu verksmiðjunni, hugsa
menn þá til Austur-Evrópu í leit að
uppranalandi. Sorglega lítið ber á
raunveralegu fallegu handverki á
jólamarkaðinum. Flestum virðist þó
standa á sama um það, aðalatriðið
virðist vera að hafa einhverjar minj-
ar með sér heim, fjöldaframleitt eð-
ur ei. Má einnig vera að jólaglöggið
hafí einhver áhrif á glöggskyggni
manna.
Á jólamarkaðinum ríkir hinn
sanni jólaandi kaupmennskunnar.
Matur og drykkir með því era
venjulegast tvöfalt dýrari á jóla-
markaðinum en í búðum steinsnar
frá honum. Mannhafið er ógurlegt.
Oft er ekkert olnbogarými og menn
komast hvorki aftur né fram en
berast í besta falli með straumnum.
Flestum fínnst það þó ekki skaða
enda er það vel í anda jólanna að
þétta fólki saman. Þjóðverjar og
Svisslendingar eru fjölmennastir á
jólamarkaðinum í Strasbourg.
Þjóðverjamir eru yfir sig hrifnir af
öllu því sem fyrir augu ber og
finnst allt snilldarlega hannað,
Svisslendingunum finnst allt ódýrt
og gera kjarakaup í hverju sölu-
húsi.
Þeir einu sem eru ekki hæstá-
nægðir með hinn ágæta jólamarkað
í Strasbourg eru íbúar borgarinnar
sjálfir. Þeir sjá ekki björtu hliðam-
ar á því að komast ekki ferða sinna
um borgina fyrir aðkomufólki, finna
ekki bílastæði þar sem gestimir
hafa hertekið þau öll, sífellt að vera
að vísa fólki veginn og þurfa að
stikla yfir litla læki sem myndast
þegar gestimir skila höfuðborg jól-
anna hinu ágæta jólaglöggi. Sumir
þeirra segja að Strasbourg sé gísl
höfuðborgar jólanna.
Ljósmynd: Vigdís Á. Sigurðardóttir.
BÚINN að tyila sér á jólatréð.
Jólaþrösturinn
FYRIR síðustu jól gerði íslenskur þröstur sig heimakominn
í Laugardalslauginni og varð mikill vinur starfsfólks og
sundiaugargesta. Vigdís Á. Sigurðardóttir starfskona í
sundlauginni segir að þrösturinn hafi komið inn í hús til
þeirra snemma í desember og greinilega kunnað vel við
sig. „Gestirnir voru mjög hrifnir af þrestinum og allir
kepptust við að lauma að honum brauðmolum og stöku
kleinubitum, enda var hann alveg einstaklega gæfur. Hann
var því orðinn feitur og patt-
aralegur og labbaði bara
hérna inn og út. Hann kom
alltaf á hverjum morgni eins
og fastagestirnir,“ segir Vig-
dís.
Þegar jólatréð var sett upp
varð þrösturinn helsta prýðin
á trénu því hann var fljótur
að finna sér þar góða grein og
sat, þar löngum og virti fyrir
sér mannlífið í anddyri sund-
laugarinnar. „Svo fór hann í
gluggana og settist þar og
horfði út yfir sundlaugina.
Hann sat líka stundum í einu
blómi hérna eða spigsporaði uppi á borðum. Hann var eins
og heimalningur héma og mikill vinur okkar allra. Hann
jók mikið á jólastemmninguna héma í lauginni."
En vinurinn góði varð þó ekki til að gleðja gesti og
starfsfólk laugarinnar á nýju ári, því einn daginn milli jóla
og nýárs fann næturvörðurinn þröstinn inni á ganginum og
var hann þá dauður. Svo virðist sem hann hafi komist inn
um dyr sundlaugarmegin í húsinu og verið læstur inni yfir
jólin. „Þetta var voðalega Ieiðinlegt," segir Vigdís og segir
að þrastarins hafi verið sárt saknað.
Þegar Vigdís er spurð hvort sagan hafi endurtekið sig fyr-
ir þessi jól, segir hún að það hafi einn þröstur komið einn
daginn til þeirra en hann hafi ekki gert sig heimakominn eins
og jólaþrösturinn í fyrra. „Hann var alveg sérstakur.“
GOTT að fá sér brauð-
mola í gogginn og spáss-
era um gólfin.
þar sem Iíf
I #%CI
frumsýningarkvöld f
LEIKHDSKJALLARANUM
annan dagjdla
DANSLEIKUR
að lokinni frumsýningu
Borðhald hefst kl 18.00
Opið afmenningi frá miðnælti
Sfmi 551-9636
fax 551-9300
v
’ ri,
Opinber höfuðborg jólanna í Frakklandi