Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 84
ISM Netfínity
<o> NÝHERJI
Það besta
úr báðum heimum!
unix ocj NT = hp
OPIN KERFIHF
Hnwurrr
PACKARD
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
SH tvöfaldar
sölu á nflar-
karfa á árinu
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna
hefur selt 3-4.000 tonn af nílarkarfa á
þessu ári sem er hátt í tvöfóld sala
síðasta árs þegar fyrirtækið seldi um
2.000 tonn.
SH hóf fyiir tveimur árum sam-
starf um sölu og framleiðsluráðgjöf
við fyrirtækið Alpha Group og hefur
fyrirtækið selt afurðir fyrirtækisins
frá Úganda og Tansaníu. SH hefur
bæði selt ferskar og frosnar nílark-
f,- ^arfaafurðir og hefur stærstur hluti
sölunnar farið í gegnum söluskrifstof-
ur fyrirtækisins í Asíu og Evrópu.
Söluskrifstofur SH í Belgíu og Ham-
borg hafa annast sölu á ferskum níl-
arkarfaafurðum sem flogið er reglu-
lega með frá Afríku. Heildarsala á
ferskum nílarkarfaafurðum árið 1997
var tæplega 1.400 tonn. Samkvæmt
upplýsingum Vilhjálms Jens Árna-
sonar hjá SH eru nú seld um 40 tonn
á viku af ferskum nílarkarfa til Evr-
ópu en sala datt niðm- fyrrihluta árs
vegna banns sem sett var á innflutn-
„irg nílarkarfa til Evrópu. Banninu
var aflétt í júlí og hefur SH síðan ann-
ast sölu á u.þ.b. 900 tonnum af fersk-
um nílarkarfaflökum til Evrópu. Áð-
urnefnt bann kom ekki rnður á heild-
arsölu SH því að í kjölfar þess jókst
sala á frystum afurðum sem fór upp í
2.300 tonn á þessu ári.
Söluskrifstofa SH í Tókýó hóf við-
skipti með nílarkarfa seinnipart árs
1997 og fór salan hægt af stað. Fyrsta
árið voru seldar afurðir frá einum
framleiðanda, en síðan hefur salan
aukist verulega og hafðist ekki undan
að framleiða afurðir svo nú framleiða
reglulega um fjögur hús fyrir sölu-
skrifsfofuna í Tókýó. Gert er ráð fyrir
að sala á þessu ári verði um 1.300
tonn, að sögn Vilhjálms. Stærstur
hluti sölunnar fer til Japans og er
söluskrifstofa SH í Tókýó nú orðin
annar stærsti seljandi nílarkarfa á
Japansmarkaði. „Sterkt vörumerki,
góð markaðsstaða og sterk gæðaí-
mynd eru þættir sem ráðið hafa
miklu um það hversu vel hefur tekist
til að koma sér í gildandi stöðu á
þessum markaði í sölu á þessari afurð
við hliðina á hefðbundnum afurðum
fyrirtækisins. Nú er unnið að því að
vinna nýja markaði fyrir nílarkarfann
og hefur vel tekist í sölu til Ástralíu,
en langt er síðan SH hefur stundað
jafn umfangsmikil viðskipti þar,“ seg-
ii- Vilhjálmur.
Eins og fyrr segir hefur SH selt
3-4.000 tonn af nílarkarfa á þessu ári.
Til að draga fram hversu mikilvæg
þessi afurð er nú orðin í sölu fyrir-
tækisins má geta þess að um er að
ræða svipað magn og fyrfrtækið selur
af ufsa en kílóverð á nílarkarfa er
nokkuð svipað og kílóverð á ufsa.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólí Húsdýragarðinum
DÝRIN í Húsdýragarðinum með jólaljósum og þau fá sér-
halda einnig upp á jólin. Um- stakan hátíðarmat. Selirnir virð-
hverfi þeirra er fallega skreytt ast hinir ánægðustu í lauginni
©Leendert
GLEÐILEC JjOL!
MORGUNBLAÐIÐ kemur næst
út þriðjudaginn 29. desember.
Samvinna lögreglu í Þýskalandi og fslandi skilar árangri
Fjórir í haldi ytra
vegna fíkniefna
FJÓRIR íslendingar eru nú í haldi
hjá þýsku lögreglunni vegna fíkni-
efnamála. Kona var handtekin í
Hamborg í fyrradag, tveir menn í
Lúxemborg í gær og snemma í
mánuðinum var maður tekinn með
fíkniefni í lest. Tvær síðarnefndu
handtökumar eru ávöxtur sam-
starfs íslensku og þýsku lögregl-
unnar.
Tveir íslendingar um þrítugt
voru teknir í gær í Lúxemborg.
Höfðu þeir ætlað með flugvél til
landsins í gær en hætt við og náði
þýska lögreglan þá að handtaka þá.
Þeir eru grunaðir um aðild að um-
fangsmiklu fíkniefnamáli og hafa
einnig áður verið viðriðnir slík mál
hérlendis.
Þá var maður um þrítugt hand-
tekinn snemma í desember þar sem
hann var á ferð í lest og reyndist
SR-mjöl og útgerðarfélagið Jökull á Raufarhöfn
Grundvöllur sam-
einingar brostínn
JÓN Reynir Magnússon, forstjóri
4*BR-mjöls hf., sem fyrirhugað var að
sameinaðist útgerðarfélaginu Jökli
hf. á Raufarhöfn, segir að grund-
völlurinn fyrir sameiningunni, eins
og hún liggur fyrir í samrunaáætlun
félaganna, hafi brostið við nýgeng-
inn dóm Hæstaréttar í kvótamálinu
svokallaða.
, Jón segir aðspurður að endur-
vJikoða þurfi verðmæti Jökuls í ljósi
dómsins og segist ekki eiga von á
því að samruninn verði samþykktur
á hluthafafundi SR-mjöls 30. des-
ember nk. eins og vonast var til.
„Það hefur skapast mikil óvissa
um þetta eftir dóminn og allt hangii-
í lausu lofti. Þetta þarf að fara í
gegnum annan feril og málið fer á
núllpunkt aftur. Nú þarf að ræða
við menn aftur, því forsendur hafa
breyst. Málið var samþykkt á hlut-
hafafundi Jökuls en ég á ekki von á
að þetta verði samþykkt hjá SR-
mjöli. Úrelding skipa var allstór
upphæð inni í samrunaáætluninni
og samkvæmt dómnum hafa mál
hvað hana varðar breyst. Verðmæti
fyrirtækisins gæti því orðið annað
en ákveðið var fyrir dóminn,“ sagði
Jón.
■ Aftur á/B2
vera með tvö kg af kókaíni í fórum
sínum. Hefur hann áður komið við
sögu hjá lögreglunni hérlendis
vegna fíkniefnamála og hafði þýska
lögreglan verið á eftir honum um
tíma. Bæði þessi mál hafa verið
unnin í samvinnu þýskra og ís-
lenskra lögreglumanna.
Frekari rannsókn stendur yfir
I fyrradag var íslensk kona hand-
tekin á flugvellinum í Hamborg þar
sem í ljós kom að hún hafði fíkniefni
í fórum sínum. Var hún á leið frá
landinu og talið að ferð hennar væri
heitið til íslands með efnið. Ekki
fengust nákvæmar upplýsingar um
málið en lögreglan í Hamborg fann
fíkniefni á konunni þegar hún hugð-
ist fara úr landi sl. þriðjudag.
Reyndist hún vera með um 1.400 g
af amfetamíni og 120 g af kókaíni.
Talið vat- að hugmyndin hefði verið
að koma efninu á markað hérlendis.
Öll málin eru nú til frekari rann-
sóknar hjá þýskum lögregluyfir-
völdum.
Lögregla og tollgæsla hafa jafnan
nokkru meiri viðbúnað á þessum
árstíma vegna fíkniefnaleitar og
hefur lögreglan meðal annars verið
á ferðinni með hund til leitar. Hefur
hundurinn verið látinn þefa og leita
í farangri og frakt hjá flugfélögun-
um og öðrum sem annast flutninga
til og frá landinu.
Tillaga að upp-
fyllingu í Skerjafírði
Nýtt hverfi
rísi við
Skildinganes
HUGMTND að nýju 700 íbúða
hvei-fí á 17 hektara uppfyllingu í
Skerjafirði hefur verið kynnt í
borgarráði. Borgarstjóra líst ágæt-
lega á tillöguna en segir að taka
verði tillit til jarðrasks á ströndinni.
„Öll íbúðarbyggð, sem hægt er að
koma við vestan Elliðaáa, er eftir-
sótt,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Það er Björgun ehf. sem óskað
hefur eftir leyfí fyrir uppfyllingunni
en samkvæmt hugmyndinni sem
kynnt hefur verið í borgarráði er
gert ráð fyrir að byggðin verði
blönduð, á þremur til fimm hæðum,
í fjölbýlis- og raðhúsum. Fyrirtæk-
ið mun hafa umsjón með skipulagi,
gatna-, lagna- og stígagerð auk
hönnunar húsanna til samræming-
ar í hverfinu. Að sögn Sigurðar R.
Helgasonar framkvæmdastjóra er
hugmyndin að lóðimar verði seldar
byggingarhæfar með teikningum.
Borgarstjóri segist reikna með
að þetta nýja hverfi geti orðið eftir-
sótt. „Það mun styrkja byggðina í
Skerjafirði og gera það mögulegt
að vera þar með meiri þjónustu en
nú er,“ sagði Ingibjörg Sólrún.
Borgarráð vísaði hugmyndinni til
borgarskipulags en fáist leyfi borg-
aryfirvalda er gert ráð fyrir að
lóðagerð taki 2-3 ár og að hefja
megi framkvæmdir fyrr eða eftir
1-2 ár.
■ Sækja um/6
Jólafagnað-
ur Verndar
og Hjálp-
ræðishersins
JÓLAFAGNAÐUR Hjálp-
ræðishersins og Verndar
verður haldinn í dag, að-
fangadag, í Herkastalanum,
Kirkjustræti 2 í Reykjavík,
og hefst með borðhaldi kl.
18. Allir þeir, sem ekki hafa
tök á að dveljast hjá vinum
og vandamönnum á að-
fangadagskvöld, eni hjart-
anlega velkomnir á
jólafagnaðinn.