Morgunblaðið - 21.01.1999, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 21.01.1999, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Aðeins gálgafrestur? Búist við hrinu kvdtamálaferla BÍÐIÐ þið bara, ég kem aftur, ég kem alltaf aftur. 5 Cu n m UUyp v QqaÍaju d jxÍAÚiulxi£| A - ox|/ (uu^xLAxlux|.AÍc/Jxi£cUun/ j/cd/ i 5. jxuxiuiAy ti£ 2 7. jÁi&swui/i/. Perlan er afbragðs veitingastaður þar sem allt snýst um fólk. Kvöldstund ( Perlunni er öðruvísi. Veitingar eru fyrsta flokks og þjónustan snýst um þig meðan þú snýst um borgina. Til að fullkomna rómantíska stund er svo tilvalið að fá sér snúning á dansgólfinu við Ijúfan söng og undirleik Þóris Baldurssonar, Eddu Borg og Birgis Baldurssonar. x oxj o.p.emxa.n<i i. odxxeÍtamaÍAÆAtfí/ Sturla Birgisson matreiðslumeistari Perlunnar er fulltrúi fyrir íslands hönd í Bocuse d’or ‘99. Samkvæmt skilgreiningu Steingríms Sigurgeirssonar blaðamanns Mbl. er Bocuse d'or óopinber heims- meistarakeppni einstaklinga í matreiðslu. C)J dáiiefiÍA' m c iófaAxi/i/ C cícl (i Ua'i.ÚlcI' íJcafux íittjA.inó Fjórir sérvaldir sjávarréttir, hver öðrum betri. Ond c.-i/oJelca'i jatj X.)c/aá iA/ í iPcaú vnnv - LmíMM/ á á v'u ll.. w >; íí íl & n Þar sem alll snýst umfólk *Kvöldverður og dans Umhverfissamtök Islands Samtök þeirra sem áhuga hafa á umhverfismálum TOFNFUNDUR Umhverfíssamtaka íslands verður hald- inn í dag, fimmtudaginn 21. janúar. Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, er meðal þeiira sem staðið hafa að undirbúningi stofnunar samtakanna. „Samtökin eiga að vera vettvangur þeirra sem vilja vinna að umhverfís- málum og vernda þau lífs- gæði sem felast í náttúru Islands, á láði, lofti og legi. Við viljum einnig vera málsvari þeirrar stefnu að auðlindir Islands til lands og sjávar verði ætíð nýttar af varúð og með sjálfbærum hætti svo sem minnst spillist líf og land, eins og segir í lögum samtakanna. Markmiðið m_eð stofnun Um- hverfissamtaka Islands er að þau séu víðtæk og nái til sem flestra. I lögum samtakanna mun koma fram að einstaklingar ásamt sam- tökum, félögum og fyrirtækjum geta átt aðild að þeim. Við höfum hugsað okkur samtökin sem nokkurs konai- regnhlífarsam- tök.“ Vigdís segir að samtökin vilji styðja það mæta fólk sem vinnur að endurheimt landgæða og það hafi einmitt verið henni hjartans mál svo lengi sem hún man. „Samtökin vilja einnig stuðla að framkvæmd alþjóðasamninga um vemdun umhverfis jarðar, hafa samvinnu við erlend umhverfis- samtök og taka þátt í ráðstefnum um alþjóðleg umhvei-fismál. Eg hef unnið að þessum mál- um um árabil. Það vill svo til að ég hef góð sambönd við virt er- lend umhverfissamtök og mér er ljóst að það er löngu tímabært að stofna svona víðtæk samtök á Is- landi. Okkur hefur á síðari árum aukist þrek og kjarkur til að líta í eigin barm og gera okkur grein fyrir hvað miður fer á heimaslóð- um. Sannleikurinn er sá að um- hverfismál hafa fengið mikið vægi um allan heim og það er að- kallandi að við látum heyra í okk- ur líka á alþjóðavettvangi. Það er mér metnaðarmál að Is- land eigi sína rödd í umræðunni um umhverfismál heimsins, trausta rödd sem vekur aðdáun. Oftast hefur okkur tekist það.“ Vigdís segist vera mikið á ferðinni innan þessa sviðs, hún er formaður í heimsráði sem tekur á siðfræði í vísindum og tækni þar sem orkumál og mál varðandi ferskt vatn eru í brennidepli ásamt upplýsingasamfélaginu. „Ég er oft innt eftir því hvernig þessi mál standa á Islandi og mér þykir vænt um að geta komið núna að þessu starfi í Um- hverfissamtökum íslands." - Hvernig verður starfsemi samtakanna háttað? „Við hyggjumst beita okkur fyrir því að tengja okkur betur við umheiminn og efla umræðuna um umhverfismál hér heima. Þau eru eins og við vitum ekki lengur einkamál þjóða. I því sambandi er af mörgu að taka. Við höfum til dæmis áhuga á að halda ráðstefnu um arðsemi náttúrunnar og fyrr en síðar munum við standa fyrir umræð- um og ráðstefnu um landeyðingu á Islandi.“ ►Vigdís Finnbogadóttir er fædd í Reykjavík árið 1930. Hún var frönskukennari við Menntaskólann í Reykjavík og við Menntaskólann í Hamrahlíð á árunum 1965-1972 og kenndi jafnframt leikbókmenntir við Háskóla íslands og annaðist frönskukennslu í sjónvarpi. Hún var leikhússtjóri Leik- félags Reykjavíkur frá 1972-1980 er hún var kjörin forseti Islands. Því embætti gegndi hún til ársins 1996. Vigdís er formaður heims- ráðs um siðferði í vísindalegri þekkingu og tækni með orku, ferskt vatn og upplýs- ingaþjóðfélagið sem þunga- miðju. Hún er farandsendi- herra UNESCO í tungumálum til varnar hinum smærri á heimsbyggðinni. Vigdís á eina dóttur, Ástríði. Hún undirstrikar að Umhverf- issamtök íslands eigi að vera eins og önnur virt umhverfissamtök í heiminum og leggja lið ályktun- um sem voru gerðar á umhverfis- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Rió árið 1992. „Við verðum liðs- menn framkvæmdaáætlana um sjálfbæra þróun í heiminum og sjálfbæra nýtingu á orkulindum. Við viljum hjálpa til að vekja at- hygli á loftmengun. Margir Is- lendingai- halda eflaust að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af loftmengun. Sannleikurinn er sá að við siglum samsíða öðrum Evrópuþjóðum í þeim málum. Útblástur koltvísýrings er jafn mikill hjá okkur á mann og ann- ars staðar í Evrópu." Vigdís segir að Umhverfissam- tök Islands muni láta sig varða allt sem lýtur að umhverfismál- um og vilji einnig vekja raunsæja um- ræðu og stuðla að því að gert verði mat á réttmæti allra ákvarðana sem teknar eru varðandi umhverfi okkar. - Hverjir eru það, auk þín, sem standa að stofnun þessara sam- taka? „I undirbúningsnefndinni hafa verið Gunnar G. Schram lagapró- fessor, Júlíus Sólnes, prófessor og fyrrverandi umhverfis- ráðherra, Steingi’ímur Her- mannsson, fyrrverandi forsætis- ráðheiTa, og Óskar Magnússon stjórnarformaður Baugs. Stofnfundur samtakanna sem haldinn er í Norræna húsinu hefst klukkan 17 í dag. Auðlindir íslands til lands og sjávar verði ætíð nýttar af varúð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.