Morgunblaðið - 21.01.1999, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.01.1999, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Vegurinn í Ljósavatnsskarði opnaður á ný í gær Enn viðvarandi snj óflóðahætta Morgunblaðið/Kristján Fjárhagsaðstoð lækk- aði um 18% milli ára Húsaleigu- bætur og at- vinna skýra lækkun FJÁRHAGSAÐSTOÐ á vegum Akureyrarbæjar á liðnu ári var 18% lægri en árið á undan eða 20,5 millj- ónir króna. Árið á undan nam upp- hæðin 25 milljónum króna. Valgerður Magnúsdóttir félags- málastjóri sagði að helstu skýringar á því að upphæðin lækkaði milli ára væru minna atvinnuleysi og þá hefði Akureyrarbær tekið upp greiðslu húsaleigubóta á síðasta ári, sem skipti miklu máli. Valgerður sagði að mun færri er- indi hefðu borist á síðasta ári en ár- ið á undan, en þau voru alls 830 á liðnu ári og rúmlega 1.000 þar á undan. Síðustu ár eða frá árinu 1994 hafa að jafnaði borist á milli 1.000 og 1.100 erindi um fjárhagsaðstoð til Akureyrarbæjar. Erindin sem bárust í fyrra eru álíka mörg og þau voru árið 1993 og hafa því ekki verið færri í fímm ár. Færri atvinnulausir vegna góðæris Að stærstum hluta eru það ör- yrkjar og atvinnulaust fólk sem leit- ar eftir aðstoð. Almennt góðæri skilaði sér í minna atvinnuleysi og því þyrftu færri að óska aðstoðar nú. Að jafnaði voru 355 manns á at- vinnuleysisskrá við lok hvers mán- aðar á síðasta ári en árið á undan voru þeir að jafnaði 384. „Ég er hóflega bjartsýn í upphafí þessa árs, en það eru ýmsar aðgerð- ir í gangi sem miða að því að rétta hag hinna verst settu,“ sagði Val- gerður. Fannbarð- ar vélar OLL tiltæk snjómoksturstæki hafa síðustu daga verið keyrð áfram svo til allan sólarhringinn á Akureyri, enda ógrynni af snjó sem ryðja þarf burtu af vegum og bílastæðum. Leiða má getum að því að „þetta par“, vörubíll og ýta eigi ærið verkefni fyrir hönd- um, en stjórnendur þurfa aug- ljóslega að byija á því að berja snjóinn af. ÞJÓÐVEGUR 1 um Ljósavatns- skarð var opnaður fyrir umferð skömmu eftir hádegi í gær en vegin- um var lokað frá Stórutjamaskóla suður að Ki’ossi um miðjan dag á þriðjudag vegna snjóflóðahættu. St- arfsmenn snjóflóðadeildar Veður- stofu íslands, þeir Sigurður Kiernan og Þorsteinn Sæmundsson, fóru frá Akureyri austur í Ljósavatnsskarð strax og vegurinn um Víkurskarð var opnaður í hádeginu í gær. Sigurður og Þorsteinn skoðuðu að- stæður m.a. með sérstökum fjar- lægðarkíki þar sem snjóflóðahættan var talin mest og efth- samráð við vegaeftirlitsmenn og lögreglu frá Húsavík var ákveðið að opna veginn fyrir umferð. Veðurútlit ekki gott Sigurður Kiernan sagði í gær að mikil snjósöfnun ætti sér stað í hlíð- inni ofan við svokallaða Sandvík, þar sem vegurinn liggur úti í Ljósavatn- inu en þar er þekkt snjóflóðasvæði. „Það er veikt lag undir og því getur snjórinn farið af stað. Við töldum því rétt að eftirlit yrði haft með þessum vegarkafla." Sigurður sagði veðurútlit ekki gott en spáð var áframhaldandi úrkomu í gærkvöld og í dag, fímmtudag, og því rétt að fylgjast vel með. Lögregl- an á Húsavík var með vakt í Ljósa- vatnsskarði fram eftir degi í gær en þar var nokkur umferð. Sigurður Brynjólfsson yfirlögregluþjónn sagði seinni partinn í gær að tekin hafi verið ákvörðun um að hafa veginn áfram opinn í nótt. „Það hefur engu að síður verið gefín út viðvörun til fólks um að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Vindáttin hefur snúist og það er farið að skafa á ská upp hlíðina og við teljum að við þær aðstæður dragi frekar úr hættu. Við teljum þó að enn sé hér viðvar- andi hætta, þótt hún fari minnkandi í þessari vindátt en veður fer versn- andi,“ sagði Sigurður yfirlögreglu- þjónn. Hann sagði jafnframt viðbúið að Víkurskarðið yrði ófært um leið og snjóruðningstækin færu niður. Sigurður og Þorsteinn ætluðu í sömu ferð að kanna aðstæður í Fnjóskadal, þar sem einnig var yfir- vofandi snjóflóðahætta en gátu það ekki vegna ófærðar utan þjóðvegai- í dalnum. Þeir héldu því suður á bóg- inn í gær en ætluðu m.a. að koma við í Skagafirði og kanna aðstæður við bæinn Kross, þar sem hestar drápust í snjóflóði um helgina. Fyrr í vikunni skoðuðu Sigurður og Þorsteinn aðstæður við bæinn Birkihlíð í Ljósavatnsskarði, þar sem snjóflóð féll um síðustu helgi. Þeir framkvæmdu m.a. mælingar í hlíðinni ofan við bæinn og sagði Sig- urður flóðið hafa verið um 1-1,5 m á dýpt rétt fyrir neðan klettabelti í hlíðinni og dýpt þess hafi verið svip- uð á láréttu. Þá mældist flóðið um 300 metra breitt. Stórt snjóflóð í Dalsmynni Fyrh- rúmum þremur árum féll snjóflóð úr hlíðinni ofan við Birkihlíð og þá gjöreyðilagðist sumarhús sem stóð undir henni. Þorsteinn skoðaði aðstæður á vettvangi þá og taldi hann að snjóflóðið um helgina hafi komið frá svipuðum stað og þá en i fyrra skiptið náði flóðið ekki niður að bænum. Á mánudag fóru Sigurður og Þor- steinn í Dalsmynni í Fnjóskadal, þar sem stórt snjóflóð féll um helgina, skammt frá bænum Þverá, en þeir sáu lítið vegna myrkurs. Sigurður sagði þó að um stórt flóð hafi verið að ræða og brotstálið um 700 m. Snjóflóðið fór yfh’ veginn og Fnjóskána á kafla og upp á stall hin- um megin, skammt frá eyðibýlinu Skuggabjörgum. Félagslega kerfíð í Dalvíkurbyggð Um 50 íbúðir í útleigu UM 50 íbúðir eru nú í útleigu hjá félagslega íbúðakerfinu í Dalvíkurbyggð sem ekki hafa selst og hefur fjölgað um sjö á þessu ári. Skuldir félagslega íbúðakerfisins hafa hækkað frá árinu 1992 úr 38 milljónum króna í 190 milljónir í lok árs 1996, en þá var peningaleg staða neikvæð um 101 milljón ki’óna. I fjárhagsáætlun Dalvíkur- byggðai’ fyrir árið 1999 kemur fram að rekstrartekjur félags- lega íbúðakerfisins eru áætlað- ar 18,2 milljónir ki’óna og rekstrai’gjöld 9,7 milljónir, þannig að tekjur umfram gjöld eru 8,5 milljónh’. Áætlað er að vextir og afborganir verði 11,5 milljónir og fjáfestingar ársins nemi 21,6 milljónum króna. Ráðstöfun umfram tekjur er 4,5 milljónir króna en gert er ráð fyrir 20 milljóna króna lán- töku vegna eignakaupa. Rögnvaldur Skíði Frið- bjömsson, bæjarstjóri í Dalvík- urbyggð, sagði að af 80 milljóna ki’óna lántöku bæjarsjóðs á næsta ári yrðu 20 milljónir króna notaðar vegna félagslega íbúðakerfisins, en það væri sú upphæð sem gera mætti ráð fyrir að þyrfti að nota til að inn- leysa íbúðir sem fólk væri að skila. Fólk væri enn að skila inn íbúðum í gamla félagslega kerf- inu og væri sveitarfélögum skylt samkvæmt lögum að taka við þeim. Morgunblaðið/Kristján STARFSMENN snjóflóðadeildar Veðurstofu Islands, Þorsteinn Sæmundsson, t.v., og Sigurður Kiernan, skoðuðu aðstæður í Ljósavatnsskarði í gær og ræddu við vegaeftirlitsmenn og lögreglu. Hér spá þeir í spil- in með Sigurði Brynjólfssyni yfirlögregluþjóni á Húsavík. Fjárhagsáætlun Dalvfkurbyggðar samþykkt í bæjarstjórn Skatttekjur 357 milljdnir SKATTTEKJUR Dalvíkurbyggðar eru áætlað- ar á þessu ári 357,2 milljónir króna, en útgjöldin eru áætluð samtals 281,2 milljónir króna. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 1999 sem samþykkt var á fundi bæjar- stjórnar í vikunni. Nokkru meiri vinna var við gerð fjárhagsáætlunarinnar nú að sögn Rögn- valdar Skíða Friðbjörnssonar bæjarstjóra enda sameinuðust þrjú sveitarfélög, Dalvík, Árskógs- hreppur og Svarfaðardalshreppur, í eitt um mitt síðasta ár. Sveitarfélagið er þannig orðið mun stæn-a en þegar síðast var lögð fram fjárhagsá- ætlun. Útsvar verður 12,04% eða í hámarki og fast- eignagjöld og fráveitugjöld eru þau sömu og voru á síðasta ári. Skatttekjur bæjarsjóðs skiptast þannig að 257 milljónir króna koma vegna útsvars, fasteigna- skattur gefur 41,6 milijónir króna í tekjur og framlag úr jöfnunarsjóði er áætlað 58,6 milljónir króna. Almenn rekstrargjöld eru áætluð 367 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að tekjur málaflokka nemi um 70 milljónum króna. Til fjárfestinga og greiðslu afborgana og vaxta skilar reksturinn samkvæmt áætluninni tæplega 17% skatttekna eða um 60 milljónum króna. Kostnaður við rekstur málaflokka er 83,1% sem hlutfall af skatttekjum. Mest til fræðslu- og félagsmála Þeir málaflokkar sem mest taka til sín eru fræðslumálin, sem kosta bæjarsjóð 148,8 millj- ónir króna, og félagsþjónustan með útgjöld upp á 41,3 milljónir króna. Þriðji stærsti málaflokk- urinn er yfirstjórn bæjarins, sem kostar 31,7 milljónir króna, en kostnaður við yfirstjórn lækkar um 8,7 milljónir frá því sem var við end- urskoðaða fjárhagsáætlun fyrir síðasta ár. Lægri útgjöld koma bæði til af hagræðingu vegna sameiginlegrar yfírstjórnar sveitarfélags- ins og einnig kostnaðar sem til féll í fyrra vegna sameiningarinnar. Á árinu er áformað að taka ný langtímalán að upphæð 80 milljónir króna og sagði bæjarstjóri að af þeirri upphæð yrði 48 milljónum króna var- ið til að greiða niður samningsbundnar skuldir til lengri tíma þannig að skuldir bæjarsjóðs myndu aukast um 32 milljónir. Uppbygging í Ungó Bæjarsjóður hefur til ráðstöfunar 141 milljón króna til framkvæmda og fer bróðurpartur upp- hæðarinnar til skólabyggingar á Dalvík. Á fundi bæjarstjórnar var samþykkt tillaga um að verja 2 milljónum króna í rekstur leikhússins Ungó en Rögnvaldur sagði að í framhaldi af því þyrfti að ráðast í kostnaðarsamar endurbætur á húsinu, sem væri nú gamalt og þreytt. „Um 83% skatttekna fara í rekstur mála- flokka, en hlutfallið hefur farið hækkandi milli ára, þannig að Ijóst er að gæta þarf aðhalds í rekstri og fjárfestingum," sagði Rögnvaldur. Hann nefndi að 71% alls rekstrarkostnaðar sveitarfélagsins færi í laun. Að megninu til er nú einnig farið að greiða mótframlög í lífeyrissjóð þannig að eftirlaunaskuldbindingar sem ekki hafa verið gjaldfærðar eru nú farnar að birtast í rekstrarreikningum sveitarfélaganna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.