Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
Heildarsala ISL - England
1993-1998, milljónir sterlingspunda
45,7
HHB BBB) WMB Wi SSBi WBm
1993 1994 1995 1996 1997 1998
HEILDARSALA Iceland Seafood
Ltd., dótturfélags íslenskra sjávar-
afurða hf. á Bretlandi, nam á síðasta
ári tæpum 5,3 milljörðum króna,
samanborið við 4,3 milljarða króna
á árinu á undan, sem er um 22%
hækkun á milli ára. Jón Þór Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri félagsins
Iceland Seafood Ltd., segir að um
sé að ræða söluaukningu í flestum
tegundum.
Um þriðjungur sölu Iceland
Seafood Ltd. fer til stórmarkaða og
verslunarkeðja á Bretlandi, en Jón
Þór segir einnig mikið selt til fram-
leiðenda í Bretlandi sem framleiði
afurðir fyrir verslunarkeðjurnar.
Stór hluti af sölu skrifstofunnar
endi því hjá verslunarkeðjunum.
„Sala beint inn á verslunarkeðjum-
ar jókst um 65% á milli ára og nam
um 1.5 milljörðum á liðnu ári. Þessi
aukning skýrist einkum af sölu á
pakkaðri rækju fyrir verslunarkeðj-
urnar og við höfum náð þar sterkri
stöðu.“
Jón Þór segir ljóst að framboð af
rækju frá Islandi muni minnka á ár-
inu sem nú er nýhafíð. Við sam-
drættinum verði hins vegar brugð-
ist með hráefni annars staðar frá.
„Til dæmis höfum við þegar samið
um sölu á afurðum fyrir rækjuverk-
smiðju í Kanada sem Básafell og
Fiskiðjusamlag Húsavíkur eru a
reisa í samvinnu við kanadískan að-
ila. Ég á von á að þessi samvinna
muni skila góðum árangri og hafa
verskunarkeðjur þegar sýnt málinu
mikinn áhuga.“
Dregið úr neyslu á bolfíski
Neysla sjávarafurða á Bretlandi
hefur aukist lítillega á síðustu árum.
I fyrra varð hinsvegar verulegur
samdráttur í neyslunni, einkum
Sala ISL - England 1998
eftir tegundum
vegna skorts á bolfiski, þ.m.t.
þorski og ýsu. Jón Þór segir verð
hafa rokið upp og verslunarkeðjur
ekki getað boðið þessar vörur á
samkeppnishæfum verðum við
kjúklinga og svínakjöt. „Það leiðh-
til neysluminnkunar þótt ekki séu
enn komnar um það endanlegar töl-
ur fyrir sfðasta ár. í ljósi þessa er-
um við sérstaklega ánægð með
aukningu á sölu okkar á síðasta ári.
Sala á þorski jókst til að mynda hjá
okkur á síðasta ári en við höfum
meðal annars tekið þó nokkuð af
hráefni frá Noregi og Færeyjum.
Innkaup frá öðrum löndum en ís-
landi hafa verið að aukast en engu
að síður komu um 88% allra okkar
innkaupa á síðasta ári frá Islandi.
Ég tel að innkaup frá öðrum lönd-
um en íslandi styrki markaðsstöðu
íslenskra sjávarafurða og framleið-
endur samtakanna á Islandi á
markaðnum, því það skapar meiri
stöðugleika í framboði okkar á sjáv-
arafurðum."
Góð markaðsstaða
„Við eimm mjög ánægð með
rekstur söluskrifstofunnar á síðasta
ári. Við höfum náð góðri stöðu á
markaðnum á Bretlandi. Mér er
kunnugt um að á meðan við erum
með söluaukningu hefur öðrum fyr-
irtækjum ekki gengið eins vel á
þessum markaði. Við stefnum að því
á næsta ári að ná stöðugleika í söl-
unni og efla samband okkar við
stóra viðskiptavini, svo sem versl-
unarkeðjur og framleiðendur. Verð
hefur verið í jafnvægi að undan-
förnu og ég sé ekki fyrir mér að þau
muni lækka alveg á næstunni. Okk-
ar styrkur felst einkum í sölu inn á
verslunarkeðjurnar og við munum
halda þeirri uppbyggingu áfram.“
ÁRUM saman virtust
þeir bundnir órjúfanleg-
um böndum, mennirnir
tveir sem sömdu um af-
nám kynþáttaaðskilnað-
arins í Suður-Afríku,
Nelson Mandela, núver-
andi forseti lýðveldisins,
og F.W. de Klerk, fyrir-
rennari hans í embætti.
Mandela og de Klerk
stjórnuðu landinu í sam-
einingu í tvö ár, eftir
fyrstu kosningarnar þar
sem allir kynþættir suð-
ur-afrískra borgara
fengu að njóta kosn-
ingaréttar. 1993 deildu
tvímenningarnir friðar-
verðlaunum Nóbels. En eftir ára-
langa þögn um samband sitt við
Mandela - de Klerk sagði af sér árið
1996, eftir að hafa verið varaforseti
þau tvö ár sem þá voru liðin frá hin-
um sögulegu kosningum 1994 - hef-
ur hann nú opnað frá skjóðunni og
gefur í sjálfsævisögu, sem út kom í
Lundúnum í gær, reiði sinni í garð
Mandelas lausan tauminn.
I gegnum árin mátti fínna all-
nokkrar vísbendingar um að menn-
irnir tveir kynnu í raun ekki sérlega
vel hvor við annan. Árið 1995 náðist
mynd af þeim þar sem þeir voru að
hrópa hvor á annan á bflastæði.
En de Klerk lét í
viðtölum aldrei neitt
uppi um hvað honum
fannst innst inni um
Mandela og sagði
stundum í gamni að
hann yrði að hafa á
einhverjum upplýsing-
um að luma þegar
hann gæfí út endur-
minningar sínar.
Nú eru þær komnar
út, undir titlinum „Síð-
asta langferðin: Nýtt
upphaf‘ (The Last
Trek: A New Beginn-
ing). í þeim er að fínna
ýtarlegar lýsingar á
hinni bitru togstreitu
sem í raun ríkti á miUi þeirra. Átök-
in stóðu um allt mögulegt, frá
stjórnmálum til þess hvort eigin-
kona de Klerks mætti hressa eftir
eigin höfði upp á þau híbýli sem
þeim hjónum var úthlutað eftir
kosningarnar 1994.
Mandela skiifaði endurminningar
sínar þegar árið 1994. Þar er að
finna lýsingar á sumum þeim at-
burðum sem de Klerk fjallar um. En
bókin var gefin út á þeim tíma sem
þeir voru báðir í stjórn og myndir
voru birtar reglulega af þeim takast
bróðurlega í hendur, í nafni tákn-
rænna sátta kynþáttanna. Umfjöll-
unin um de Klerk í þeirri bók var
nokkuð mótuð af þessum aðstæðum.
Samkvæmt frásögn suður-afríska
dagblaðsins The Mail & Guardian,
sem fékk fyrirframeintak af bók de
Klerks í hendur, fór álit de Klerks á
Mandela að dala fljótlega eftir lausn
hans úr fangelsi. Mandela „stóð
ekki undir því að taka þessum tíma-
mótum með tilhlýðilegum hætti“,
skrifar de Klerk um daginn sem
svertingjaleiðtoginn var látinn laus.
Ræða sem hann hélt þennan dag í
Höfðaborg hefði „gi-einilega verið
samin af harðlínuhugmyndafræð-
ingum ANC [Afríska þjóðarráðs-
insj“.
I ræðunni mæltist Mandela til
þess að unz allir kynþættir hefðu
fengið öU lýðréttindi í hendur héldi
Afríska þjóðarráðið áfram þeirri
vopnuðu baráttu, sem Mandela hafði
sjálfur tekið þátt í að hrinda af stað
þremur áratugum íyrr.
Fleira kom til í kringum friðarvið-
ræðurnar sem fylgdu í kjölfarið,
sem spillti áliti de Klerks á ANC-
leiðtoganum.
Að þeir skyldu báðir hafa verið út-
nefndir friðarverðlaunahafar Nóbels
segir de Klerk ekki hafa bætt sam-
band þeirra neitt. „Svo virtist sem
hann væri ósáttur við að verðlaunin
skyldu líka hafa verið veitt mér,“
skrifar hann.
Ummæli japanskra ráðherra við setningu þingsins
Kreppa og fá merki
um efnahagsbata
Tókýó. Reuters,
HATTSETTIR ráðherrar í Japan
sögðu á þriðjudag, að kreppa ríkti í
landinu og í skýrslu, sem ríkisstjóm-
in hefur birt, segir, að þess sjáist lítil
merki, að nokkuð sé farið að rofa til í
japönsku efnahagslífi, öðru stærsta
hagkerfi í heimi. Keizo Obuchi, for-
sætisráðherra Japans, reynir þó að
bera sig vel og segist viss um, að
nokkur hagvöxtur verði á þessu ári.
Við setningu japanska þingsins á
þriðjudag sögðu þeir Taichi Sakai-
ya, sem fer með efnahagsáætlana-
gerð, og Kiichi Miyazawa fjármála-
ráðherra, að kreppa væri í landinu.
Erfiðleikar væru á fjármálamark-
aði, bankarnir væru að sligast undir
útlánatapi og óttinn við aukið at-
vinnuleysi ykist með degi hverjum.
Þá segir í skýrslu, sem Efnahagsá-
ætlanastofnunin í Japan hefur gefið
út, að góðu fréttirnar af efnahagslíf-
inu séu fáar og tilviljanakenndar og
erfitt að draga af þeim þá ályktun,
að umskipti til hins betra séu
framundan.
f ræðu sinni reyndi Obuchi for-
sætisráðherra þó að bera sig vel og
hann hét því, að hagvöxtur hefði
tekið við af samdrættinum á næsta
fjárlagaári.
Skuldasöfnun fer vaxandi
Miyazawa fjámálaráðheiTa gerði
versnandi stöðu í rfldsfjármálunum
að umtalsefni og varaði við vaxandi
skuldasöfnun en hún hefur aukist
mikið vegna þeirra aðgerða, sem
ríkisstjómin hefur gripið til í efna-
hagsmálunum. Sagt er, að veruleg-
ur ágreiningur sé með honum og
Obuchi forsætisráðherra um þessar
ráðstafanir þótt ekki hafí skorist í
odda með þeim enn.
Mjög hart er hins vegar lagt að
Obuchi, jafnt utanlands sem innan,
að gera allt til að rífa upp efnahags-
lífið og hann hefur sett sér það
markmið, að hagvöxtur á næsta
fjárlagaári, sem hefst 1. apríl, verði
0.5%. Er jafnvel búist við, að hann
beiti sér fyrir enn meiri fjáraustri
úr ríkissjóði verði útlit fyrir, að
þetta markmið ætli ekki nást.
Þessar horfur hafa valdið því, að
markaðurinn hefur hert á kröfum
sínum um ávöxtun ríkisskuldabréfa
en Miyazawa telur útilokað, að
hægt sé að ganga lengra í þeim efn-
um. Segir hann, að nú sé svo komið,
að Japansstjóm verði að fjármagna
37,9% fjárlaganna með skuldabréfa-
útgáfu.
22% aukning hjá
Iceland Seafood
Félagið hefur náð góðri markaðsstöðu
í flestum físktegundum á Bretlandi
Frederik Willem de Klerk gefur út æviminningar sínar
Sambandið við Mandela
var erfíðara en sýndist
De Klerk
Sjómennsku- og vél-
fræðiorðasafn gefið út
Norskur héraðsdómur vekur hörð viðbrögð
Refsing nauðgara lækkuð
því konan var með alnæmi
Strassborg. Morgunblaðið.
IÐNÚ, bókaútgáfa, hefur gefíð út
Sjómennsku- og vélfræðiorðasafn
sem Eysteinn Sigurðsson, Franz
Gíslason og Tryggvi Gunnarsson,
kennarar við Stýrimannaskólann í
Reykjavík og Vélskóla íslands, hafa
tekið saman. Að stofni til er orða-
safnið orðið til við kennslu í áður-
nefndum skólum og er ætlað nem-
endum þessara skóla og einnig
starfandi skipstjómarmönnum og
vélstjórum.
Því er ekki ætlað að koma í stað
almennra enskra orðabóka heldur
vera þeim til viðbótar. Það hefur að
geyma allvíðtækan orðaforða úr al-
mennu sjómennsku- og fískvinnslu-
máli sem safnað hefur verið víða,
m.a. úr kynningarbæklingum fyrir-
tækja í sjávarútvegi og úr kennslu-
efni Stýrimannaskólans. Það flytur
einnig orðaforða úr vélamáli sem að
mestu er fenginn úr námsefni Vél-
skólans á ensku, svo og öðra ensku
lesefni um vélar. Þá em í því nöfn
allmargra sjávardýra, námsgreina
skólanna, ýmissa fyrirtækja sem
starfa á sviðum tengdum skólunum
og orð tengd siglingatækjum. Líka
er þarna safn orða úr eðlisfræði, raf-
magnsfræði og tölvumáli. Síðast-
nefndu orðin era tekin með vegna
sívaxandi þarfar manna í þessum
stéttum fyrir kunnáttu á tölvur og
vinnu á Interneti.
Við samningu verksins var stuðst
við allar orðabækur sem höfundar
komu höndum yfír, bæði innlendar
og erlendar. Leitað var fanga í öll-
um íslenskum fagorðasöfnum sem
tiltæk vora, og stuðst við nýjustu og
ýtarlegustu enskar orðabækur, bæði
fagorðabækur varðandi skip og vél-
ar og almennar enskar og amerískar
bækur, við þýðingar fagorða á ís-
lensku.
Prentun og _ frágang annaðist
Prentstofa IÐNÚ.
FYRR í mánuðinum var 29 ára
gamall Tyrki dæmdur í héraðsdómi
Osló íyrir að nauðga ungri konu í
október 1997. Konan er af afrísku
bergi brotin og dauðvona vegna
krabbameins og alnæmis.
Þau höfðu hist á dansleik og fékk
maðurinn hana í kjölfarið til að
koma með sér í verslunarhúsnæði í
sinni eigu. Þar nauðgaði hann kon-
unni og lét ekki aftra sér þótt hún
segðist vera með alnæmi. Hlaut
maðurinn tveggja ára fangelsisdóm.
Var maðurinn dæmdur til að greiða
fórnarlambinu sem svarar 700.000
kr. í miskabætur. Með sama dómi
var maðurinn dæmdur fyrir ofbeldi
gegn fyrrverandi kærastu. I dóms-
forsendum er lagt upp úr því að
dæmdi hafí beitt yfirburða líkams-
afli gagnvart veikburða konu sem
var máttfarin vegna sjúkleika síns.
Hins vegar er það einnig virt
dæmda til refsilækkunar að hann
skyldi eftir verknaðinn þurfa að
bíða eftir niðurstöðu um hvort hann
væri HIV- smitaður. Þegar til kom
reyndist svo ekki vera.
Lögmaður konunnar, Þór Garð-
arsson, Islendingur sem hefur mál-
flutningsleyfí í Osló, sagðist í sam-
tali við Aftenposten afar undrandi á
þessari afstöðu dómsins. Þetta
stæðist ekki að lögum og hlyti um-
bjóðandi hans að bregðast við
þessu. Verjandi Tyrkjans vísaði
hins vegar til þess að það væri við-
urkennt sjónarmið í refsirétti að
það ætti að lækka refsingu ef af-
brotamaður yrði sjálfur fyrir áfalli
eða tjóni við að framkvæma brotið.
Nefndi hann sem dæmi ef maður
örkumlaðist við að reyna að aka
annan mann niður, þá væri tekið til-
lit til þess við ákvörðun refsingar.
Tyi'kinn hafí orðið að bíða í hálft ár
eftir niðurstöðu úr HTV-prófi og
það hafí tekið verulega á.
Svein Slettan sérfræðingur í
refsirétti gagnrýnir dóminn harka-
lega í samtali við Aftenposten.
„Dómurinn stríðir gegn réttarvit-
und minni. Þvert á móti ætti að
meta til refsiþyngingar ef einhver
nauðgar alvarlega sjúkri manneskju
og eykur þannig enn á þjáningar
hennar," segir hann.