Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 25

Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Framdi Pol Pot sjálfs- morð? TÍMARIT í Hong Kong hélt því í gær fram að Pol Pot, hinn alræmdi leiðtogi Rauðu kmeranna í Kambódíu sem talinn er hafa á samviskunni dauða milljóna manna á með- an á ógnarstjórn hans stóð á áttunda áratugnum, hefði framið sjálfsmorð, en Pol Pot dó í fyrra. Sagði Far Eastern Economic Review að Pot hefði tekið banvæna blöndu valíums og klórokíns, lyfs sem tekið er gegn malaríu, eftir að hann komst að raun um að fyrrver- andi samstarfsmenn hans væru í þann mund að svíkja hann í hendur Bandaríkja- stjórn. Sagði fréttamaður tímaritsins að heimildir sínar fyrir þessu væru óvefengjan- legar. Flugskeyti til sýnis INDVERJAR hyggjast sýna gervallan flugskeytaflota sinn á þjóðhátíðardegi sínum í næstu viku. Verður þar í fyrsta skipti hægt að líta aug- um ný langdræg flugskeyti, sem Indverjar bættu nýlega í vopnabúr sitt. Minnihluta- hópum hætt- ara við krabbameini SVERTINGJUM, fólki af rómönsku bergi brotið og öðr- um minnihlutahópum í Bandaríkjunum, þ.m.t. hvítum fátæklingum, er hættara við að fá krabbamein en öðrum hópum. Þetta kemur fram í skýrslu heilbrigðisstofnunar sem starfar á vegum ríkisins. Er því t.d. haldið fram að tíðni krabbameins meðal svertingja sé 15% meiri en hjá hvítum mönnum. Margir halda því fram að tíðni krabbameins geti ráðist af mataræði og hreyfíngu og er það t.d. talið skýra háa tíðni hjá fátækum. A hinn bóginn er tekið fram að tengsl þessara þátta og krabbameins hafi ekki verið rannsökuð að fullu og því óvíst að þeir útskýri muninn milli kynþátta. FIMMTUDAGUR 21. JANUAR 1999 Pottaplöntu Nokkur verðdæmi Prímúla Fíkus 1 m StofuaskuSt uman XJrvals gróðurmold Friðarlilja Burkni Verð áður kr.-Töð' Gjafavöruútsala »0-70% afsl 10,- Túlípanar Mikiö úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki. Öfflug hlaupabraut með stillanlegum æfingabekk Rafdrifin hlaupabraut Hraði 0-16 km/klst. Hæöarstilling, neyðarstopp, fullkomið tölvumælaborð auk stillanlegs æfingabekks með handlóðum, 2-4-6 pund. Hægt að leggja saman. Stgr. 159.600, kr. 168.000. Stærðir: L 173 x br. 83 x h. 134 cm. • • Reiðhjóla verslunin — ORNINNP* STOFNAÐ1925 - ÞREKTÆKJADEILD - Skeifan 11, sími 588-9890

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.