Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 26

Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Bandaríkjaforseti segir nauðsynlegt að styrkja stoðir almannatryggingakerfísins Stefnuræðu Clintons víðast hvar veltekið Reuters CLINTON lióf stefnuræðu sína með því að lýsa því yfir að staða Bandaríkjanna væri sterk um þessar mund- ir. Hann þurfti margoft að gera hlé á máli sínu þar sem þingmenn klöppuðu honum óspart lof í lofa. STEFNURÆÐU Bills Clintons Bandaríkjaforseta í fyrrinótt var víða vel tekið og t.d. hrósuðu bæði The New York Times og The Was- hington Post forsetanum í gær fyrir þær hugmyndir sem hann kynnti í ræðunni. Sagði í leiðara fyrrnefnda blaðsins að Clinton hefði á þriðjudag kynnt sína metnaðarfyllstu stefnu- skrá síðan 1993. Pótti Clinton flytja ræðuna fumlaust og af öryggi og ekki að sjá að þessi forseti ætti í nið- urlægjandi og tvísýnni baráttu um að forða sjálfum sér frá því að verða sviptur embætti, fyrstur forseta Bandaríkjanna. En einnig bentu bandarískir fjöl- miðlar á að þriðjudagurinn hefði lík- lega verið einkennandi fyrir forseta- tíð Clintons; fyrir hádegi þurftu lög- menn Clintons að halda uppi vörnum fyrir hann í öldungadeild Banda- ríkjaþings, þar sem meintar lygar hans vegna kynferðislegs sambands hans við Monicu Lewinsky voru á dagskrá, en eftir hádegi lét forsetinn ljós sitt skína í starfi leiðtoga valda- mestu þjóðar í heimi. A einum degi gátu menn því orðið vitni að því besta og því versta sem þessi um- deildi maður stendur fyrir. Vill tryggja framtíð eftirlaunakerfisins í stefnuræðunni vék Clinton hvergi að réttarhöldunum í öldunga- deildinni en hvatti m.a. til aukinna fjárframlaga í vai-narmálum og sagði dómsmálaráðuneytið nú undirbúa skaðabótamál á hendur tóbaksfram- leiðendum vegna kostnaðar ríkisins í tengslum við sjúkdóma sem rekja má til tóbaksneyslu. „Skattgreiðendur eiga ekki að þurfa að greiða fyrir þann kostnað sem hlýst af lungnakrabbameini, lungnaþembu og öðrum reykinga- sjúkdómum. Fyrirtækin sem fram- leiða tóbak ættu að greiða hann,“ sagði Clinton. Lýstu tóbaksframleið- endur í gær mikilli óánægju með þessi ummæli forsetans. Clinton gerði hins vegar almanna- tryggingakerfið að meginefni stefnu- ræðu sinnar og lagði til að á næstu fimmtán árum yrðu 189 þúsund milljarðar ísl. króna lagðir til hliðar af áætluðum tekjuafgangi ríkissjóðs til að fjánnagna eftirlaunakerfið í Bandaríkjunum. Jafnframt yrði hug- að að eflingu heilbrygðistrygginga- kerfisins með svipuðum hætti. Repúblikanar hafa lagt til að í ljósi þess að gert er ráð fyrir tekjuaf- gangi hjá ríkissjóði verði skattar Bandaríkjamanna lækkaðir á næstu árum. Leiðarahöfundar The Was- hington Post og The New York Times hrósuðu forsetanum hins veg- ar í gær fyrir tillögur hans í þessum málum og sögðu repúblikana á villi- götum. Tekjuafgangur af ríkissjóði væri í raun blekking því staðreyndin væri sú að fyrirsjáanlegt væri að rík- ið gæti í nánustu framtíð ekki staðið við skuldbindingar sínar vegna al- mannatrygginga. Því væri nú meðan vel áraði rétti tíminn til að leggja fé til hliðar. Hafa sérfræðingar spáð því að sjóðir ríkisins vegna eftir- launakerfisins verði á þrotum árið 2032 verði ekkert gert til að efla þá. Sagði leiðarahöfundur The New York Times að ræðu Clintons væri ætlað að sýna pólitíska staðfestu hans á þessum erfiðu tímum. Fagn- aði blaðið því að forsetinn hefði sýnt framsýni og djörfung í stefnuræðu sinni í stað þess að leggja fram óraunhæfan „óskalista", eins og ótt- ast hafði verið. Repúblikanar ekki ánægðir Og þótt Clinton viki ekki að mál- sókn á hendur sér ávarpaði hann nýjan forseta fulltrúadeildarinnar, repúblikanann Dennis Hastert, beint við nokkurn fógnuð viðstaddra og hvatti til þess að repúblikanar og demókratar tækju höndum saman við að styrkja innviði bandarísks samfélags. „Bandaríkin njóta góðæris á nýjan leik um þessar mundir," sagði Clint- on. „Framtíðin býður upp á óþrjót- andi möguleika. En við getum ekki nýtt þessa möguleika ef við leyfum sefandi hljómi velmegunar að valda stöðnun, við verðum að halda vöku okkar.“ Margir repúblikana tóku undii' það með Clinton að styrkja yrði stoð- ir almannatryggingakerfisins með tekjuafgangi ríkissjóðs en sögðu að Bandaríkjamenn yrðu einnig að fá sína skattalækkun. „Við réttum ekki hag ríkissjóðs af til þess að færa út kvíar ríkisbáknsins," sagði Pete Domenici öldungadeildarþingmaður. Var Clinton m.a. sakaður um að „lofa öllum einhverju“ en að hann hefði ekki sagt hvernig greiða ætti fyrir öll ósköpin. „Þetta var frábær pólitísk ræða en hún var uppfull af óframkvæmanlegum draumum," sagði fulltrúardeildarþingmaðurinn Sonny Callahan. Gagnrýndi fulltrúa- deildarþingmaðurinn Bill Ai-cher harðlega þá hugmynd Clintons að festa hluta fjármagns almannatrygg- ingakerfisins á hlutabréfamörkuðum í því skyni að auka umráðafé sitt. „Nei. Nei. Þúsund sinnum nei,“ sagði Archer. „Ríkisstýrðar fjárfestingar á fjármálamörkuðum ganga þvert gegn hugmyndum um frjáls viðskipti og gefa færi á alls kyns bellibrögð- um, einkavinavæðingu og öðru þess háttar.“ Helstu leiðtogar repúblikana fóru sér hins vegar hægar í sakimar og sagði Dennis Hastert, forseti fulltrúa- deildarinnar, að ræða Clintons hefði verið góð miðað við þá erfiðu stöðu sem forsetinn væri í. Sagði Trent Lott, leiðtogi repúblikana í öldunga- deildinni, að ekki mætti „hafna öllum hugmyndum Clintons fyrirvaralaust" þótt honum sýndist reyndar ekki að tillögur hans í velferðarmálum myndu nægja til að styrkja stoðir al- mannatryggingakerfisins. Á hinn bóginn fógnuðu demókrat- ar langflestir stefnuræðu forsetans og tóku undir með bandarísku stór- blöðunum um að hún sýndi framsýni sem fulltrúar á Bandaríkjaþingi ættu að gera að sinni, einblína á að bæta stöðu Bandaríkjamanna í stað þess að halda áfram á braut sem orð- ið gæti til þess á endanum að velta úr sessi forseta sem, hvað svo sem á hefði gengið, hefði alltaf notið mikOs fylgis meðal þjóðar sinnar. Ruff ræðst á rök- semdir repúblikana Verjendur Clintons Bandaríkjaforseta reyna annars vegar að sýna fram á að málflutningur saksóknara fulltrúa- deildarinnar sé gloppóttur og hins vegar að málið réttlæti undir engum kringum- stæðum að forseta sé vikið úr embætti. CHARLES F.C. Ruff, aðalverjandi Bills Clintons Bandaríkjaforseta, er fyrrum saksóknari í District of Col- umbia og með virtari lögmönnum Washington, þekktur fyrir hógværð og prúðmennsku. Hann er 59 ára gamall og hefur verið bundinn við hjólastól frá því hann veiktist af dul- arfullri lömunarveiki er hann starf- aði við kennslu í Afríku á fyrri hluta sjöunda áratugarins. Ruff þótti sáttfús er hann á síðasta ári reyndi að sannfæra dómsmála- nefndarmenn í fulltrúadeildinni um að ekki væri rétt að samþykkja ákærur á hendur forsetanum. Viður- kenndi hann að þótt forsetinn teldi sig hafa sagt satt og rétt frá er hann mætti fyrir kviðdóm gætu skynsamir menn komist að þeirri niðurstöðu að hann hefði sagt ósatt. Ruff sagði framkomu skjólstæðings síns vera „siðferðilega fráhrindandi“ og að hann rofið „heilagan sáttmála" við fjölskyldu sína og brugðist trausti þjóðarinnar. Það var hins vegar í fulltrúadeild- inni. Þegar Ruff hóf málsvörn forset- ans í öldungadeildinni sýndi hann hins vegar á sér aðra hlið og réðst harkalega á málflutning saksóknara fulltrúadeildarinnar. Röksemdir þeirra byggðust á getgátum og mál- flutningurinn minnti á nornaseið. Hvatti hann öldungadeildarþing- menn til að bjarga þjóðinni frá stjórnarfarslegri kreppu. Þeir yrðu að meta hvort hegðun Clintons, jafn- vel þótt hún væri jafnslæm og sak- sóknararnir hefðu haldið fram, væri það alvarleg að áframhaldandi seta hans í embætti væri óhugsandi. Hann sagði að ekki væri nægjan- legt að öldungadeildarþingmenn væru algjörlega sannfærðir um að forsetinn væri sekur. Þeir yrðu einnig að vega og meta afleiðingar þess að víkja forseta úr embætti, hvort að málið væri það alvarlegt að í fyrsta skipti í sögu Bandaríkjanna yrði að beita því neyðarúrræði er sett hefði verið í stjórnarski-ána. Minnti á lagaprófessor Minnti Ruff, að sögn New York Times, á köflum á lagaprófessor er messaði yfir nemum er ættu erfitt með að einbeita sér. Repúblikanar höfðu um síðustu helgi bent á að þar sem öldungadeildin hefði í gegnum tíðina vikið nokkrum alríkisdómur- um úr embætti fyrir svipaðar sakir og Clinton væri ekki annað hægt en að beita sömu mælistiku á forsetann. Ruff blés á þessar röksemdir, sem munu hafa fallið í góðan jarðveg meðal margra öldungadeildarþing- manna og sagði þetta vera ósam- bærileg dæmi. Dómarar væru kjörn- ir í embætti ævilangt. Stjórnmála- menn yrðu að sæta dómi kjósenda á fjögurra ára fresti. Ruff réðst einnig á fjölmargar röksemdir saksóknara og reyndi að færa rök fyrir því að málflutningur þeirra stæðist ekki. Til að mynda sýndu ný yfirlit yfir símtöl þeirra Monicu Lewinsky og Betty Currie úr farsímum að Currie hefði hringt í Lewinsky klukkan hálffjögur síðdeg- is daginn sem hún kom og sótti gjaf- ir er forsetinn hafði gefið Lewinsky. Samkvæmt vitnisburði Lewinsky átti Currie að hafa sótt gjafirnar klukkan tvö. Repúblikanar voru hins Reuters CHARLES Ruff, lögmaður Bandaríkjaforseta, á leið í þing- sal ásamt David Kendall, einka- Iögmanni Bills Clintons. vegar fljótir til og sögðu þetta sýna fram á nauðsyn þess að kalla fyrir vitni. Eftir að Ruff lauk máli sínu lýstu margir öldungadeildarþingmenn yfir hrifningu með málflutning hans. Blaðið Washington Post sagði þó ólíklegt að honum hefði tekist að fá marga til að skipta um skoðun, ekki frekar en saksóknararnir í síðustu viku, sem einnig hefur verið hrósað fyrir skeleggan málflutning. Bumpers til varnar Hvíta húsið hefur greint frá því að Dale Bumpers, fyrrum öldunga- deildarþingmaður demókrata frá Arkansas, muni flytja lokaræðuna í málsvöm forsetans. Lögmenn for- setans eru sagðir hafa velt því fyrir sér að fá George Mitchell, fyrrum öldungadeildarþingmann, til að flytja ræðuna. Þeim hafi hins vegar verið ráðið frá því þar sem tengsl hans við repúblikana hafa ekki verið jafngóð og tengsl Bumpers, sem um áramótin lét af þingmennsku eftir 24 ára setu í öldungadeildinni. Hvíta húsið er einnig sagt hafa fallið frá hugmyndum um að láta einhvem fulltrúa demókrata úr dómsmála- nefnd fulltrúadeildarinnar taka þátt í málflutningnum og lýsa þeim aðferð- um er repúblikanar beittu í nefnd- inni. Var hætt við þau áform eftir að öldungadeildarþingmaðurinn Robert Byrd, helsti sérfræðingurinn í hefð- um þingsins, gagnrýndi þau harka- lega. Seligman sögð vera leynivopnið Hins vegar er talið að það muni mælast almennt vel fyrir að láta Nicole Seligman kynna hluta varnar- innar. Myndi það m.a. draga fram þá staðreynd að saksóknararnir þrettán voru allir karlmenn. Seligman er 42 ára gömul og þykir glæsileg kona gædd afburðagáfum. George Steph- anopoulos, fyrrum talsmaður Clint- ons, hefur lýst henni sem „leyni- vopni“ og Brendan Sullivan, fyrrum verjandi Oliver Norths, sagði hana oft koma vitnum í opna skjöldu með því að beita á víxl hörku og kvenleg- um þokka. Seligman tók einmitt þátt í vörn Norths í Iran-Kontra-málinu. Hún er menntuð í Harvard og er fyrrum ritstjóri hins virta lögfræði- tímarits Harvard Review. Undanfar- in ár hefur hún starfað hjá lögfræði- stofunni Williams & Connolly og unnið þar með David Kendall, einka- lögmanni Clintons.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.