Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 32

Morgunblaðið - 21.01.1999, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Ásdís HILMAR Jensson, Andrew D’Angelo, Matthías Hemstock, Eyþór Gunnarsson, Bryndís Halla Gylfadóttir og Óskar Guðjónsson leika fyrir gesti Kaffileikhússins í kvöld. Skipulagt frelsi IKAFFILEIKHÚSINU í Hlaðvarpanum í kvöld verða haldnir tónleikai- undir heitinu Djasskvöld með Andrew D’Angelo. Andrew D’Angelo er gjarnan talinn með helstu saxófón- leikurum hins frjálsa djass, en hann er hingað kominn til að leika inn á plötu með Hilmari Jenssyni og fé- lögum. Á tónleikunum verður flutt tónlist sem gefín verður út síðar á árinu í bland við önnur verk. Á tónleikunum í kvöld verður flutt verkið Kerfill í nýiii gerð, en það var frumflutt fyrir ári með djasskvartett. I kvöld eru hljóð- færaleikarar aftur á móti fleiri og samsetningin merkileg; Hilmar Jensson leikur á rafgítar, Eyþór Gunnarsson á hljómborð, Óskar Guðjónsson á saxófón, Matthías Hemstock á slagverk, Bryndís Halla Gylfadóttir á selló og Andrew D’Angelo á altsaxófón, en D’Angelo er hingað kominn frá New York til að leika á sviði og inn á band með hópnum. Alvanajegt er að þeir Hilmar, Eyþór, Óskar og Matthías leiki djass og framsækna tónlist, en Bryndís Halla hefur aftur á móti ekki leikið djass eða spunatónlist opinberlega áður. Meðal verka sem flutt verða er verkið Kerfíll, sem þessir hljóðfæraleikarar hafa rétt lokið við að hljóðrita. Hilmar Jensson segir að verkið Kerfill hafi orðið til hjá honum fyr- ir ári og þá flutt með kvartett skip- uðum honum, Matthíasi Hemstock, Eyþóri Gunnarssyni og Óskari Guðjónssyni. Þegar síðan kviknaði hugmyndin að útgáfuröðinni Frjálst er í fjallasal á vegum Smekkleysu, sem ætluð var fyrir frjálsan jass og framúrstefnu, þótti honum kjörið að draga verkið fram og vinna í því eitthvað meira. „Ég fór að skoða verkið en áttaði mig fljótt á því að það gengi ekki upp eins og það var. Ég ákvað því að skrifa það upp á nýtt en gekk illa að ná því fram sem ég vildi. Ég fékk Bryndísi Höllu inn í verkefnið sem miðaði því áfram en ekki nógu langt og það var ekki fyrr en ég kom heim frá New York fyrir jól að ég áttaði mig á því að D’Ángelo var einmitt maðurinn sem vantaði til að láta allt ganga upp.“ Hilmar skrifaði því hluta verks- ins upp á nýtt fyrir D’Angelo og sendi út og D’Angelo segist strax hafa fallið fyrir því. „Mér fannst svo mikill Hilmar í því og þekkti það því svo vel þegar ég fór að spá í minn hluta. Ég áttaði mig aftur á móti ekki á því hversu erfitt það væri fyrr en við byrjuðum að æfa það fyrir upptökurnar," segir hann og hlær að tilhugsuninni. „Mér fannst verkið Hilmarslegt, en ekki bara nýr Hilmar heldur næsta kyn- slóð af Hilmari ef svo má segja.“ Skrifaður spuni Kerfill er skrifað verk að mestu leyti en síðan spinna tónlistar- mennimir við verkið frá eigin brjósti. D’Angelo segir að þeir fái I kvöld verður frum- flutt í nýrri gerð skrif- aða spunaverkið Kerfill á tónleikum í Kaffileik- húsinu. Arni Matthías- son tók tali þá Hilmar Jensson, höfund Kerf- ils, og Andrew D’Ang- elo, sem hingað er kominn til að leika í því á sviði og inn á band. ákveðna vegvísa og leiðbeiningar um hvert farartækið eigi að vera en síðan komi þeir sér sjálfir frá A til B. Aðspurður hvort ekki sé skammt í óreiðuna þegar verið er að spila frjálst segir D’Angelo að erfitt sé að svara því, mat manna á óreiðu sé svo mismunandi. „Lík- lega finnst Bryndísi Höllu það sem við erum að gera algjör óreiða, eða fannst það líklega þegar við vorum að byi'ja á verkinu, og kannski fannst eða finnst Eyþóri það líka. Við Hilmar, Matthías og Óskar höfum aftur á móti verið að leika slíka tónlist svo lengi að óreiðu- þröskuldurinn er orðinn ansi hár hjá okkur.“ „Reyndar hefur óreiðu- þröskuldurinn hækkað almennt hjá fólki,“ heldur Hilmar áfram. „Tón- listaráhugafólk, og þá sérstaklega ungt fólk, hefur mun meiri áhuga á að heyra eitthvað nýtt og framand- legt núorðið og við finnum fyrir áhuga á því sem við erum að gera úr ólíklegustu áttum.“ Frelsi innan ákveðins ramma Spuni hjá djasstónlistarmanni er að miklu leyti saminn fyrirfram, þ.e. snjallir spunamenn eiga í fór- um sínum þrautreynd stef og æfð- ar hugmyndir sem þeir síðan flétta saman í spunakafla og velta til og frá. Aftur á móti kann klassískur tónlistarmaður ekki eða illa slíkan spuna, eða er yfirleitt ekki undir hann búinn. Þeii’ félagar Hilmar og D’Angelo taka undir þetta en D’Angelo segir að einmitt fyinr þær sakir sé gaman að heyra spuna Bryndísar Höllu á sellóið og í raun eigi hún líklega auðveldara með frjálsan spuna en Eyþór Gunnarsson; það sé minna mál fyr- ir hana að gleyma sjálfri sér í spunanum. Hilmar segir að menn hafi mjög deilt um það í gegnum árin hversu langt er hægt að ganga í frjálsum spuna, hvort yfirleitt sé hægt að tala um frjálsan spuna þegar í hlut eiga þjálfaðir og sprenglærðir tón- listarmenn. Kerfill snúist reyndar ekki um frelsið, heldur frelsi innan ákveðins ramma, að samþætta frelsi og fyrirfram ákveðna skrif- aða kafla. Það er þó meira en segja að láta slíkt ganga upp og Hilmar segir að þegar hann hafi hlustað á upptökur af fyrstu æfingunni hafi honum þótt sem hann hafi aldrei hlustað á neitt hræðilegra um æv- ina og D’Angelo skýtur inn að Hilmar hafi tárast þegar hann hlustaði á upptökurnar. „Þegar ég hlustaði síðan á fyrstu upptökulot- una,“ heldur Hilmar áfram, „var aftur á móti allt annað uppi á ten- ingnum og mér fannst sem okkur væri að takast ætlunarverkið." Verkið heitir Kerfill eins og get- ið er og Hilmar segir að með því sé hann að vísa í gerð þess en ekki í jurtina; hann byggi það upp með ákveðið kerfí í huga og það sé sam- svörun innan þess, en ekki síst sé nafnið eins konar skens á hann sjálfan. Kerfill verður fluttur á tón- leikum í Kaffileikhúsinu í Hlað- varpanum í kvöld og er á dagskrá seinni hluta tónleikanna. Fyrri hlutinn er óákveðinn, að sögn þeirra félaga, hann verður leikinn af fingrum fram. Mannhatur KviKtnMin; Regnboginn THE BRANDON TEENA STORY Leikstjórar: Gréta Ólafsdóttir og Susan Muska. Bless Bless Productions 1998. BRANDON Teena er tvítugur strákur sem flytur til Falls City í Nebraska. Hann kann að koma rétt fram við ungar stúlkur sem eru mjög hrifnar af honum. Þegar upp kemst að Brandon er í raun stelpa, nauðga tveir vinir hennar henni á jólakvöldi, drepa hana síðar ásamt ungri móður og vini, til að Brandon geti ekki borið vitni gegn þeim. Þessi heimildarmynd er um það sem kallast „hate crime“ í Banda- ríkjunum; þegar fólk er drepið fyrir það sem það stendur fyrir. Saga þessarar ungu stúlku sem fann sig ekki kynferðislega og er drepin fyi-fr það, lýsir þessu fyrirbæri mjög vel og hvernig samfélagið bregst oft rangt við þvi, oft eru fórnarlömbin öðruvísi en fólk gerist flest. Gréta og Susan byggja aðallega á frásögnum vina Brandons, yfirvalds; ins og svo morðingjanna tveggja. í nálgun sinni við efnið leita þær víða fanga oggefa þannig alhliða mynd af málinu. Ég bjóst við að myndin fjall- aði meira um Brandon Teena sem hugsanlegan kynskipting, og það slæma viðmót sem fólk með svipað eðli þarf að mæta. Myndin fjallar hins vegar um mannhatur almennt, mannhatara og hvernig sumir geta virkilega álitið sig æðri öðrum mannverum. Þeir sem ætla að sjá The Brandon Teena Story kl. 17 í dag, sem er eina sýning myndarinn- ar, ættu að vera viðbúnir að verða reiðir undir viðtölunum við þessar óskiljanlega dofnu mannfýlur. Hildur Loftsdóttir VINIR OG RIDDARAR KVIKMYJVDIR Regnboginn SÁ VOLDUGI „THE MIGHTY“ ★*★ Leikstjóri: Peter Chelsom. Handrit: Charles Leavitt. Kvikmyndatöku- stjóri: John De Borman. Tónlist: Trevor Jones. Aðalhlutverk: Kieran Culkin, Eldon Hansen, Sharon Stone, Gena Rowlands, Harry Dean Stanton, Gillian Anderson, Meat Loaf. Bandarikin. 1998. ÞJÓÐSAGAN um Artúr kon- ung spilar stóra rullu í þessu óvenjulega nærfærna bandaríska melódrama um vináttu tveggja drengja sem hvor með sínum hætti á erfitt uppdráttar í samfé- lagi ungdómsins. Annar er lítil písl sem þjáist af sjaldgæfum beinsjúkdómi en hinn, tröll að burðum, er álitinn af öllum hinn mesti heimskingi. Báðum er strítt út í eitt þar til þeir sameina krafta sína og líkt og riddarar Ar- túrs kon- ungs drýgja hetjudáðir. Sá voldugi eða „The Mighty" er þroskasaga stóra stráksins en hann er sögu- maður myndarinnar og lærir á getu sína og krafta íýrir tilstilli vinar síns litla. Sjúklingurinn er bráðklái' í kollinum og sér tvíeyk- inu fyrir gáfunum en sá stóri sér um kraftana og gætir þess að ekk- ert komi fyr- ir þá og það þróast með þeim sterk vinátta; þeir líta á sig sem riddara hringborðsins. Myndin fjallar fyi-st og fremst um þessa vináttu og leikstjóran- um, Peter Chelsom, tekst að gera hana að mestu væmnislausa. Hún er miklu fremur raunsönn og hef- ur yfir sér ósvikinn ævintýrablæ æskuáranna með innskoti Ártúrs- þjóðsögunnar, eitthvað göfugt og heillandi, auk þess sem grimmdar- leg fortíðin bankar upp á í lífi stóra stráksins þegar fóður hans er sleppt úr fangelsi. Strákarnir, Kieran Culkin og Eldon Hansen, fara sérstaklega vel með hlutverk sín og það gera aðrir leikarar einnig: Sharon Sto- ne er áhyggjufull móðir sjúk- lingsins, Gena Rowlands og Harry Dean Stanton eru amma og afi stóra stráksins og Gillian Anderson úr Ráðgátum er frá- bær sem dragmella í slagtogi með engum öðrum en Meat Loaf, dísin sem þeir bjarga frá drekan- um. Arnaldur Indriðason llllllllMMMMMIIlHll KVIKMYNDAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK 15 - 23janúar1999 ■ ■■■■■nririMiiiirm Skemmtigildi ofbeldismynda Raunsæisbíó frá Iran KllKMYJVDIR R i! g n b o g i n n GRÁTT GAMAN „FUNNY GAMES“ ★★ AUSTURRÍSKA sakamála- myndin Grátt gaman eftir Michael Hanke er skoðun á því í smáatriðum hvað gerist þegar tveir gersamlega samviskulausir morðingjar banka uppá hjá þriggja manna fjölskyldu í sumarleyfi og taka að murka úr henni líftóruna. Þetta er sérstak- lega óþægileg ofbeldismynd sem kvelur áhorfandann miskunnar- laust. En hún er jafnframt að reyna að vera einskonar yfirlýsing um öf- ugsnúið skemmtigildi ofbeldis- mynda með því að annar morðihgj- anna talar til áhorfenda í salnum og morðingjai-nir ræða sín á milli um kvikmyndina. Af hverju hættið þið þessu ekki? spyr fómarlambið. Þá yrði engin kvikmynd, er svarið eða eitthvað á þá leið. Sumsé, ekkert gaman lengur. Það er umdeilanlegt hvemig til tekst. Leikstjórinn Hanke gengur mjög langt í ofbeld- isverkunum undir þessu yfirskini en kannski er það rétt hjá honum. Kannski eigum við það bara skilið. Arnaldur Indriðason KVIKMYIVDIR II (“ ir II h o » i n n SALAM CINEMA ★★ Leikstjórn og handrit: Mohsen Mak- hmalbaf. Aðalhlutverk: Azadeh Zan- geneh, Maryam Keyhan og Feyzolah Ghashghai. MKL 1994. LEIKSTJÓRINN Makhmalbaf leikur hér sjálfan sig, þar sem hann prófar leikhæfileika áhuga- leikara fyrir nýja kvikmynd sína. Salam Cinema er sérstök kvik- mynd sem gerist að mestu leyti í einum sal þar sem áhugaleikar- arnir era myndaðir. Myndin er með eindæmum raunsæ, og spurn- ing hvort hér sé um að ræða áhugaleikara að leika áhugaleik- ara eða ekkert að leika. Leikstjór- inn varpar fram spumingum svo hann og leikararnir velta því fyrir sér hvað leikari er. Stelpumai’ tvær sem mest koma fram era heillandi og myndin býr yfir mörg- um góðum augnablikum, en það er ekki hægt að segja að hún sé spennandi eða varpi nýju ljósi á eitt né neitt. Hildur Loftsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.