Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
v
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 49
KIRKJUSTARF
Til að stuðla að sem árangursrík-
astri dvöl þarf Kjarvalsstofa að
taka þéttingsfast í hendina á gest-
inum við komuna, bjóða hann vel-
kominn og örva til dáða, en í stað
þess kemur hann í galtómt, frum-
stætt og frekar hráslagalegt um-
hverfi. Gesturinn þarf fyrst og
fremst að huga að því að koma sér
fyrir, kaupa ótal hluti, einkum ætli
hann að nota eldhúsið að ráði, en
þar voru ekki einu sinni hillur fyrir
kryddstauka og annað smálegt.
Enginn orðabók er á staðnum né
uppsláttarbækur af neinu tagi, því
síður almennar og nytsamar upp-
lýsingar sem að gagni mega koma
og mikið vægi hafa um nýtingu
dvalarinnar. Þetta er meinlegt
vegna þess hve lítið þarf til, einung-
is vilja, dálitla hugkvæmni og
skipulag. Kostnaður þarf ekki að
vera mikill, en hins vegar þýddi það
mikinn sparnað fyrir gestina og
auðveldaði þeim dvölina. Þá þurfa
menn að snúa sér til símafélagsins,
France Telecom, vilji þeir fá síma
eða fax í samband. I mínu tilviki
var innstungan fyrir faxið ónýt og
þurfti ég að kaupa mann til við-
gerða. Þrátt fyrir að ég teljist
bjartsýnn maður, hafði ég vaðið
fyrir neðan mig í þessum efnum,
sem þýddi aftur á móti að ég var
með yfirvigt á útleið, en það bjarg-
aði dvölinni. Engar leiðbeiningar
eru á staðnum um möguleika á að
koma viðbótarfarangri á sem hag-
kvæmastan hátt heim að dvöl lok-
inni, sem verður þeim óviðráðan-
legri sem viðkomandi eru afkasta-
meh'i í listinni og/eða duglegi-i við
skoðun menningarminja, sem aftur
hefur í för með sér bóka- og tíma-
ritakaup. Maður er allt öðru vanur í
þessum efnum þá maður nýtur
gestrisni útlendra og sámar skilj-
anlega þessi dæmalausi útboruhátt-
ur landans varðandi einu lista-
mannaíbúð íslensku þjóðarinnar á
erlendri grund, og glugga til heims-
menningarinnar. Hér þarf að verða
breyting á, og þeir á listamiðstöð-
inni munu tilbúnir til að gera sitt,
t.d. mála íbúðina, en þá þarf að gefa
þeim tíma til þess. Vona að tilmæli
mín hafi komið því til leiðar að hill-
ur væru settar upp í eldhúsinu
strax eftir að ég fór.
Þrátt fyrir allt naut ég dvalar-
innar í bak og fyrir, var stöðugt á
ferðinni að fiska í hugmyndabank-
ann á daginn, en las fagbækur og
skáldrit á kvöldin, hafði mikið
gagn og mikla nautn af hvoru
tveggja. Hvarf þakklátur á braut.
Safnaðarstarf
Þorrafagnaður
í Neskirkju
HINN árlegi þorrafagnaður Fé-
lagsstarfs eldri borgara í Nes-
kirkju verður haldinn laugardag-
inn 23. janúar kl. 15. Boðið verður
upp á þorramat, súran og nýjan.
Reynir Jónasson organisti spilar á
harmonikku og Inga J. Baekman
söngkona syngur. Litli kórinn mun
einnig syngja nokkur lög. Þátttaka
tilkynnist í síma 511 1560 milli kl.
10 og 12 til föstudags.
Samkoma
í Herkastalanum
í kvöld
SAMKOMUR samkirkjulegu bæna-
vikunnar halda áfram í kvöld,
fimmtudag, og verður í kvöld sam-
koma í Herkastalanum og hefst hún
kl. 20.30.
Ræðumaður í kvöld verður Finn
Eckhoff, sem nýlega hefur tekið við
starfi forstöðumanns Aðventsafnað-
arins.
Mikill söngur verður eins og alltaf
á Her. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Kagnarsson
Bridsfélag Kópavogs
Tveggja kvölda „Board a match“
sveitakeppni hófst sl. fimmtudag
og efstu þijú sætin eftir fyrra
kvöldið skipa þessar sveitir:
Sveit Magnúsar Aspelund 43
Sveit Lofts Péturssonar 39
Sveit Ragnars Jónssonar 38
I sveit Magnúsar spila auk hans
Steingi-ímur Jónasson, Jón Steinar
Ingólfsson og Sigurður Ivarsson.
Keppninni lýkur fimmtudaginn
21. janúar og hefst spilamennska
kl: 19:45. Spilað er í Þinghóli,
Hamraborg 11, Kópavogi. Næsta
mót verður aðalsveitakeppni fé-
lagsins sem hefst fimmtudaginn 28.
janúar.
Landsliðskeppni
í opnum flokki
Helgai'nar 5.-7. og 20.-21. febrú-
ar verður keppt um hverjir skipa
Kvennakirkjan
í DAG kl. 17 heldur Harpa Njáls
félagsfræðingur erindi í opnu húsi í
Kvennakirkjunni, Þingholtsstræti
17. Harpa hefur umsjón með inn-
anlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkj-
unnar og nefnir erindi sitt „Hvað
kostar að lifa?“ Lokaritgerð
Hörpu, „Fátækt í velferðarsamfé-
lagi“, hefur vakið verðskuldaða at-
hygli og mun hún rannsaka það
efni enn frekar í framhaldsnámi
sínu. Heitt kaffi og vöfflur eru á
boðstólum og eru allir velkomnir.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17. Biblíulestur kl.
20.30 í safnaðarheimili Áskirkju.
Jóhannesarbréf lesin og skýrð.
Arni Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgnar
kl. 10-12.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðar-
heimilinu á milli kl. 14-16.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, íhugun, altaris-
ganga. Léttur málsverður í safnað-
arheimili eftir stundina. Æskulýðs-
félagið Örk (yngri deild) kl. 20.
Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12
ára börn kl. 17. I auga stormsins,
kyrrð, íhugun, bæn, lofsöngur og
fræðsla. Kl. 19.30 innri íhugun.
Kirkjan opnuð kl. 19.15 til kynn-
ingar fyrir þá sem eru að koma í
landslið íslands á Evrópumótinu í
sveitakeppni á Möltu í júní nk.
Umsóknarfrestur rennur út mánu-
daginn 1. febrúar kl. 17.00. Um-
sóknum með nöfnum tveggja eða
þriggja para skal skila á skrifstofu
BSI sem veitir nánari upplýsingar
um fyrirkomulag keppninnar.
Evrópumót í tvímenningi 1999 -
opinn flokkur og eldri spilarar
Mótin verða spiluð í Varsjá, Pól-
landi 15. til 20. mars. Skráning og
allar upplýsingar á skristofu BSI.
Síðasti skráningardagur er 8. febr-
úar.
Bridsfélag Suðurnesja
Sveitarokk er nafngift keppninn-
ar sem nú stendur yfir hjá félag-
inu. Þegar lokið er 6 umferðum af
11 eru Björn Dúason og Karl Ein-
arsson í forystu með 117 stig eða
tæplega 20 stig úr leik. Spilaðir era
þrír 8 spila leikir á kvöldi.
Röð næstu para:
Karl Hermannss. - Arnór Ragnarss. 114
Karl G. Karlsson - Gunnl. Sævarsson 107
fyrsta skipti. Kl. 20.15 trúarreynsla
- fræðsla, kl. 21 Taizé-messa.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir
foreldra yngri barna kl. 10-12.
Söngstund.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Gunnar Gunnarsson leik-
ur á orgel frá kl. 12. Prestur sr.
Bjarni Karlsson. Léttur málsverð-
ur að stundinni lokinni. Samvera
aldraðra kl. 14. Samvera eldri
borgara í umsjá þjónustuhóps
kirkjunnar. F ermingardrengir
ræða um lífsviðhorf sín við þau
sem eldri era.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn
á föstudögum kl. 10-12.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar
kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdótt-
ur og Bjargar Geirdal. Leikfimi
aldraðra kl. 11.15. Bænai'- og
kyrrðarstund kl. 18. Bænarefnum
má koma til sóknarprests eða
kirkjuvarðar, einnig má setja bæn-
arefni í bænakassa í anddyri kirkj-
unnar.
Fella- og Hólakirkja. Staif fyrir
11-12 ára kl. 16.
Grafarvogskirkja.Mömmumorgn-
ar kl. 10-12. Ahugaverðir fyrir-
lestrar, létt spjall og kaffí og djús
fyrir börnin. Kyrrðarstundir í há-
degi kl. 12.10. Fyrirbænir og altar-
isganga, léttur hádegisverður.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar.
Gunnar Guðbjörnss. - Garðar Garðarss 92
Sigfús Ingvarss. - Sigríður Eyjólfsd. 92
Hafsteinn Ögmundss. - Gísli Isleifss. 92
Fimm umferðum er ólokið og
verða þrjár spilaðar nk. mánudags-
kvöld í félagsheimilinu við Sand-
gerðisveg.
Bridsfélag
Norðurlands eystra
Svæðamót Norðurlands eystra
verður haldið á Hótel Húsavík
laugardaginn 23. og sunnudaginn
24. janúar.
Mótið gefur fjóram efstu sveit-
unum rétt til þess að spila í und-
ankeppni íslandsmótsins í sveita-
keppni 1999.
Spilamennska byi’jar kl. 10 á
laugardeginum og er áætlað að all-
ir spili við alla og fer spilafjöldi eft-
ir þátttöku.
Keppnisgjald er 10.000 kr. á
sveit.
Skráning er hjá Björgvini Leifs,
s. 464-2076, Stefáni Vilhjálms, s.
462-2468 og Sveini Aðalgeirs, s.
464-2026. Skráning þarf að berast
Starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 14-16 í safnaðarheim-
ilinu Borgum. Kyrrðar- og bænar-
stund í dag kl. 18. Fyrirbænarefn-
um má koma til prests eða kirkju-
varðar.
Fríkirkjan í Hafnarflrði. Opið hús
fyrir 10-12 ára böm frá kl.
17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linn-
etstíg 6. Æskulýðsfundur kl. 20-22.
Hafnarfjarðarkirkja.
Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar-
höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára kl.
17-18.30 íVonarhöfn.
Vídalínskirkja. Bænar- og kyrrð-
arstund kl. 22. Kaffi eftir athöfn.
Biblíulestur kl. 21.
Víðistaðakirkja. Foreldramorgunn
milli kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12
ára börn kl. 17-18.30.
Keflavíkurkirkja. Fermingarand-
irbúningur kl. 14.30-15.55 í Kirkju-
lundi.
Akraneskirkja. Fyrirbænarstund
kl. 18.30.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Kl. 17 TTT-starfið hefst að nýju.
Afsakið ranga tilkynningu sem
send var út í síðustu viku. Verið
velkomin í ný ævintýri. Kl. 20.30
opið hús í unglingastarfinu í
KFUM & K húsinu. Nýir félagar
velkomnir.
Landsmót framundan.
fyrir kl. 20 fimmtudaginn 21. janú-
ar.
Bridsfélag Hreyfils
Jón Sigtryggsson og Skafti
Björnsson sigraðu eftir hörku-
keppni í barometernum, sem lauk
sl. mánudagskvöld. Þeir fengu 1720
stig en meðalskor var 1500 og
mælist skorin 57,3%.
Röð næstu para varð annars
þessi:
Flosi Ólafsson - Sigurður Ólafsson 1703
Heimir Tryggvas. - Árni M. Björnss. 1682
Gísli Tryggvason - Leifur Kristjánss. 1655
Sig. Steingrímss. - Óskar Sigurðsson 1637
Ragnar Björnsson - Daníel Halldórss. 1616
Hlynur Vigfússon - Ómar Óskarsson 1616
Næsta keppni félagsins er Bo-
ard-A-Match sveitakeppni. Spilað
er á mánudagskvöldum í Hreyfils-
húsinu.
mbl.is
Sængurföt Latexdýnur Yfirdýnur
Heilsukoddar Undirdívan
Svefnherbergishúsgögn
Springdýnur Eggjabakkadýnur
Rafmagnsrúmbotnar
VERSLUNIN
LYSIADÚN'
■• SNÆLAND
Skútuvogi 11 • Sími 568 5588 ^