Morgunblaðið - 21.01.1999, Page 72
KOSTA
með vaxtaþrepum
00 Kl NAMKBVNMNN
www.bi.is
2
jr=3 AS/400
n ý t í s k u DB2
n e t þ j ó n n
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Snjóflóð féllu í Súðavíkurhlíð og við Siglufjörð í gær
23 hús rýmd í Siglufírði
23 ÍBÚÐARHÚS voru íýmd á
Siglufirði seint í gærkvöldi vegna
snjóflóðahættu sem talið var að
myndi skapast í nótt með hvassri
vestan- og norðvestanátt. Mikið
snjóaði í gær á Siglufirði og átti að
hvessa með nóttinni. í fréttatil-
kynningu sem Veðurstofa íslands
sendi frá sér klukkan 22 í gærkvöld,
kom fram að snjóalög væru ótrygg,
og veðurspá óhagstæð. Pví yrði
grannt fylgst með snjóalögum og
veðri.
Almannavarnanefnd Siglufjarðai'
og sýslumaður tóku ákvörðun um
að íýma þrjú svæði bæjarins á fundi
sínum í gærkvöldi. Hús voru rýmd í
syðri hluta bæjarins auk efstu hús-
anna við miðbik bæjarins. Að sögn
Guðgeirs Eyjólfssonar sýslumanns
á Siglufirði fór fólk ýmist í heima-
hús, á gistiheimilið eða á hótelið í
bænum. Það voru samtals 49 íbúar
húsanna sem rýma þurfti, sem urðu
að finna sér næturskjól annars stað-
ar í gærkvöld.
Að sögn Guðgeirs er þetta í
fyrsta sinn í tvö ár sem slík rýming
er framkvæmd. Hætta er á að snjó-
flóð falli úr Strengsgili, Gimbra-
klettum eða Fífladölum. Aimanna-
varnanefnd og sýslumaður reiknuðu
með að meta hættuna á ný snemma
í morgun.
Nokkur lítil snjóflóð féllu um
kvöldmatarleytið í gær milli Dalvík-
ur og Ólafsfjarðar, rétt norðan við'
Sauðanes og fóru tvö yfir veginn.
Veginum var lokað og mun lögi’egl-
an huga að stærð flóðanna nú ár-
degis.
Þrjú snjóflóð
féllu víðar í gær
Snjóflóð féllu síðdegis í gær á
vegina um Óshlíð og Súðavíkurhlíð í
ísafjarðardjúpi og á Siglufjarðai'-
veg. Vegna veðurs og snjóflóða-
hættu ákvað Vegagerðin að opna
hvorki veginn milli Súðavíkur og
Isafjarðar né milli Siglufjarðar og
Fljóta.
Síðdegis í gær féllu snjóflóð í
Súðavíkurhlíð og lokaðist vegurinn
milli Súðavíkur og ísafjarðar. Sam-
kvæmt upplýsingum Vegagerðar-
innar og lögreglu á ísafirði voru
flóðin ekki talin stór en vegna veð-
urs og snjóflóðahættu ákvað Vega-
gerðin að opna ekki veginn í gær.
Lítil snjóflóð, svokallaðar spýjur,
féllu einnig á Óshlíð, yfir veginn
milli ísafjarðar og Bolungarvíkur
en Vegagerðin opnaði veginn þar
um kvöldmatarleytið.
Rétt fyrir klukkan 19 í gærkvöldi
var tilkynnt að snjóflóð hefði runnið
yfir Siglufjarðarveg, á milli bæjar-
ins og Strákaganga. Flóðið var talið
3-4 metra þykkt á veginum. Hríð
var í Siglufirði og ákvað Vegagerðin
að opna ekki veginn í gærkvöldi.
Víkurskarð rutt
VÍKURSKARÐIÐ var ófært fram að hádegi í gær en hér er
siyóruðningstæki að blása burt síðasta haftinu áður vegurinn
opnaðist. I kjölfarið var skiltið sem sést á myndinni fjarlægt.
■ Vegurinn/14
'JOSA/ATNSí'KAJl ði f
VEdNA' Sp,
3NJÓfL(FuHÆTpV
Morgunblaðið/Kristján
Prófkjör Framsóknar
Valgerður
efst á Norð-
urlandi
eystra
VALGERÐUR Sverrisdóttir al-
þingismaður varð í efsta sæti í próf-
kjöri Framsóknarflokksins í Norð-
urlandskjördæmi eystra en Jakob
Björnsson, fyrrverandi bæjarstjóri
á Akureyri, lenti í því fjórða.
Um 2.500 framsóknarmenn og
stuðningsmenn tóku þátt i prófkjör-
inu en atkvæði voru talin í gær-
kvöldi. Valgerður Sverrisdóttir, al-
þingismaður frá Lómatjörn, varð í
fyrsta sæti með 1.343 atkvæði í það
sæti. Daníel Árnason, fram-
kvæmdastjóri á Akureyri, varð í
öðru sæti með 1.493 atkvæði í tvö
efstu sætin og Elsa Friðfinnsdóttir,
lektor á Akureyri, í þriðja sæti með
1.701 atkvæði. Jakob Björnsson
varð í fjórða sæti, fékk 1.844 at-
kvæði. I fimmta sæti varð Axel
Yngvason með 1.090 atkvæði og
Bernhard Steingrímsson í því sjötta
með 1.089 atkvæði.
---------------
Norðurland vestra
_ Páll og
Arni í efstu
sætum
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra varð í efsta sæti í prófkjöri
Framsóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra og Árni
Gunnarsson, fyrrverandi aðstoðar-
maður hans, í öðru sæti.
í prófkjörinu greiddu 2.290 at-
kvæði. Páll Pétursson fékk 1.705 at-
kvæði í fyrsta sæti. Ámi Gunnars-
son frá Flatatungu varð annar, fékk
943 atkvæði í tvö efstu sætin. Helsti
keppinautur hans, Herdís Á. Sæ-
mundardóttir, formaður byggða-
ráðs í Skagafirði, fékk 750 atkvæði í
það sæti. Framsóknarflokkurinn á
nú tvo þingmenn í kjördæminu.
Herdís varð í þriðja sæti með 955
atkvæði og Birkir Jón Jónsson frá
Siglufirði fjórði með 1429 atkvæði.
Talningu atkvæða í önnur sæti
var ekki lokið þegar Morgunblaðið
hafði síðast fréttir frá talningarstað.
Körfuknattleikur
1,4 millj. kr.
í félagaskipti
VARLA hefur liðið sú vika í vetur að
ekki hafi einhver erlendur
körfuknattleiksmaður hér á landi
verið sendur heim og annar komið í
staðinn. Þetta hefur haft slæm áhrif
á íþróttina og eins komið mjög við
pyngju félaganna. Dæmi er um að
félag hafi fengið fjóra leikmenn á
tímabilinu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa 45 erlendir körfubolta-
menn komið til landsins það sem af
er tímabilinu, sem er þó aðeins rétt
hálfnað. Gjald vegna félagaskipta
hvers leikmanns er 30 þúsund krón-
ur. Félögin hafa því greitt samtals
um 1,4 milljónir fyrir félagaskipti í
vetur vegna erlendu leikmannanna.
■ Félögin... / C1
■ Brottfallið... / C4
VSÓ-ráðgjöf á Akureyri veitir stærsta sjávarútvegsfyrirtæki í Kína ráðgjöf
Kemur að byggingu stærsta
fiskvinnsluhúss í heimi
VSÓ-ráðgjöf á Akureyri hefur í samvinnu við
Marel hf. og Istak hf. unnið að frumhönnun á
stórri fiskvinnslu í Kína. Miðað er við að fyrir-
tækið geti framleitt 60 þúsund tonn af afurðum á
ári. Gangi áform eigenda fyrirtækisins eftir verð-
ur þetta trúlega stærsta fiskvinnsluhús í heimi.
Magnús Magnússon, framkvæmdastjóri VSÓ-
ráðgjafar á Akureyri, sagði að VSÓ-ráðgjöf hefði
ásamt samstarfsaðilum skilað inn frumhönnun á
fiskvinnsluhúsinu seint á síðasta ári. Eigendur
kínverska fyrirtækisins, sem er meðal stærstu
sjávarútvegsfyrirtækja í Kína, hefðu komið hing-
að til lands í kjölfarið til að skoða íslensk fisk-
vinnslufyrirtæki.
„Við erum að leggja til nýjar lausnir sem eru
Starfsemin byggist á
frosnum Alaska-ufsa
nokkuð framandi í Kína. Þær eru kannski fram-
andi hér líka vegna þess að við þurfum að taka
tillit til lágs launakostnaðar í Kína. Eigendurntr
óskuðu eftir að VSÓ-ráðgjöf á Akureyri héldi
áfram að vinna með þeim sem ráðgjafar. Staðan
er þannig núna að þeir hafa keypt land undir
verksmiðjuna í Kína og ætla að byggja þar fisk-
vinnslufyrirtæki. Málið er þó enn á frumstigi.
Þeir eru að skoða áætlanir og önnur gögn um
málið og munu í framhaldi af þvi ákveða næstu
skref,“ sagði Magnús.
Magnús sagði að áætlanir kínverska íyiirtæk-
isins byggðust á því að vinna frosinn Alaska-ufsa,
sem kemur frá þeirra eigin skipum, en einnig
skipum frá Rússlandi, Japan, Bandaríkjunum og
Kóreu. Afurðirnar yrðu seldar í Kína og víðar.
Magnús sagði að þetta fyrirtæki hefði m.a. keypt
fisk frá Islandi og selt fisk til íslensku fiskrétta-
verksmiðjanna í Bandaríkjunum og Bretlandi.
VSÓ-ráðgjöf á Akureyri hefur einbeitt sér að
verkefnum erlendis. Það hefur undanfarið m.a.
unnið að verkefnum á Grænlandi bæði fyrir
grænlensk fyrirtæki og grænlensku heimastjóm-
ina. Núna er fyrirtækið m.a. að vinna að verkefni
sem miðar að ráðgjöf um veiðar og vinnslu á
loðnu við Vestur-Grænland.