Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 1
46. TBL. 87. ARG.
FIMMTUDAGUR 25. FEBRUAR 1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Liðsafnaður Serbíuhers
veldur áhyggjum
Pristina, Belgrad. Reuters.
HÁTTSETTUR fulltrúi NATO
kvaðst í gær hafa áhyggjur af mikl-
um liðsflutningum serbneska hers-
ins. Leiddi hann að því líkur að Ser-
bar hygðust leggja til atlögu gegn
UCK, í því augnamiði að „þurrka
út“ andspyrnu Kosovo-Albana gegn
Serbíustjórn, áður en fulltrúar
stríðandi fylkinga hittast aftur 15.
mars í Frakklandi eða strax í kjöl-
far viðræðna, fari þær út um þúfur.
Leiðtogar Kosovo-Albana hafa
ákveðið að setja á fót bráðabirgða-
stjórn í héraðinu í kjölfar friðarvið-
ræðnanna í Rambouillet í Frakk-
landi, þar sem réttur Kosovo til
sjálfstjórnar var viðurkenndur, að
sögn fréttastofu Frelsishers Kosovo
(UCK) í gær. Komust leiðtogar
UCK og hófsamra Kosovo-Albana
að samkomulagi um þetta á þriðju-
dag, að sögn fréttastofunnar, og fer
fulltrúi UCK fyrir stjórninni. Telst
þetta til nokkurra tíðinda enda hafa
samskipti leiðtoga þriggja fylkinga
Kosovo-Albana hingað til einkennst
nokkuð af innbyrðis átökum.
Margir fréttaskýrendur létu í
gær í ljós þá skoðun að niðurstaða
Rambouillet-viðræðnanna þýddi í
raun að Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu
og Svartfjallalands, hefði enn einu
sinni haft vesturveldin að háði og
spotti. Var það mat fréttaskýrenda
að Milosevic hefði ekkert gefíð eft-
ir en samt sem áður tekist að kom-
ast hjá loftárásum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), sem hótað
hafði verið skrifuðu Serbar ekki
upp á samkomulag við Kosovo-Al-
bana.
■ Segja rússneska ráðsnilld/22
18 hafa farist í snjóflóðum í Austurríki sfðastliðna tvo daga
*
Loftárásir á Irak
Tuttug'u enn saknað
Vín, Landcck. Reuters.
Mesta fannfergi í svissnesku og
austurrísku ölpunum í 40 ár
TVEIR létust og fímm manns er
saknað eftir að snjóflóð féll í gær á
fjögur hús í Valzur á milli skíða-
bæjanna Ischgl og Galtiir í Austur-
ríki, en 16 manns fórust í snjóflóði
sem féll á Galtiir í fyrradag. Alls er
20 manna enn saknað eftir snjó-
flóðin tvö í gær og fyrradag. Tals-
maður austurríska hersins sagði
flóðið í Valzur hafa verið 200 metra
breitt og tíu metra djúpt. Ekkert
lát er á snjókomu í Sviss og vestur-
hluta Austurríkis og áætlað að um
60.000 manns séu innlyksa vegna
fannfergis í löndunum tveimur.
Brottflutningur
fólks hafinn
I gærmorgun létti nægilega til í
svissnesku ölpunum til þess að
hægt væri að flytja hundruð
manna með herþyrlum frá af-
skekktum fjallaþorpum, sem hafa
verið einangruð vegna snjóa. í
Austurríki var einnig hægt að
hefja brottflutning ferðamanna
sem orðið hafa innlyksa í skíða-
þorpum í vesturhluta landsins og
var flogið með sálfræðinga inn á
svæðin til þess að veita áfallahjálp
vegna hamfaranna. Tókst að flytja
400 manns á brott frá snjóflóða-
svæðinu áður en veður hamlaði
þyrluflugi á ný.
60.000 manns innlyksa
í Sviss og Austurríki
Þjálfaðir björgunarsveitarmenn
komust til Galtiir í gærmorgun eft-
ir 15 klukkustunda ferð. Leitar-
menn fundu engan á lífi í flóðinu í
gær. Fimmtán manns var enn
saknað í Galtiir í gærkvöldi. Björg-
unarmenn þurfa að grafa sig í
gegnum 5 metra háan snjóskafl til
þess að komast til botns í flóðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni eru flestir þeirra sem enn
eru ófundnir frá Þýskalandi,
Hollandi og Danmörku. Fjöldi
sjálfboðaliða lagði leitarmönnum
lið við björgunarstörfin í Galtur í
gær í örvæntingafullri leit að fólki
á lífi. „Þetta var ekki snjór, heldur
eins og steinsteypa," sagði hol-
lenskur ferðamaður í sjónvarpsvið-
tali.
Samgöngur hafa rofnað í vestur-
hluta Austurríkis, þar sem um
20.000 ferðamenn hafa verið inn-
lyksa í átta daga vegna fannfergis
og snjóflóðahættu. I Sviss hafa um
40.000 manns komist hvergi vegna
veðurhamsins og snjóflóðahætt-
unnar.
49 farist í snjó-
flóðum í febrúar
Staðfest er að 49 manns hafi
farist í snjóflóðum á meginlandi
Evrópu í þessum mánuði. Flóð
hafa einnig fallið í Bæjaralandi í
Þýskalandi og Gotthard-göngin í
Sviss eru enn lokuð vegna snjó-
flóðahættu við þau. Annars staðar í
Evrópu olli mikil úrkoma og
bráðnandi snjóalög flóðum. I Rúm-
eníu fóru járnbrautarteinar og veg-
ir í kaf vegna vatnsflóða á um
20.000 ferkilómetra svæði við
landamæri Ungverjalands.
Almenningi þykir snjóflóða-
varnir hafa skort
Freyr Þórðarson, fréttaritari
Morgunblaðsins í Salzburg, segir ít-
arlega fjallað um snjóflóðin í aust-
urrískum fjölmiðlum. „Það er nokk-
ur hiti í mönnum. Fólki þykir snjó-
flóðavamir hafa skort og er óánægt
með að ekki skuli hafa verið hægt
að spá fyrir um flóðin," segir Freyr.
,A hitt ber að líta að í Galtúr hefui-
snjóflóð ekki fallið í manna minnum
og húsin sem lentu í flóðinu þar eru
öll á svokölluðu grænu svæði, þar
sem óhætt á að vera að byggja."
Einnig segir hann kvartað yfir því
að dregist hafi úr hófi að lýsa yfir
hættu á snjóflóðum og ferðamenn
fái ekki nægar upplýsingar um hina
miklu hættu sem hér sé á ferð.
■ Sextán látnir/24
■ Snjófióðahætta/24
■ Ekki talin hætta/25
Obreyttir
borgarar
sagðir
hafa farist
Bagdad. Reuters.
STJÓRNVÖLD í írak sögðu banda-
rískar orrustuflugvélar hafa gert
loftárásir á svæði fyrir sunnan höf-
uðborgina Bagdad í gær þar sem
engin hemaðarleg
skotmörk væri að
finna. Óbreyttir
borgarar hefðu
farist og særst í
árásunum en ekki
kom fram hversu
margir þeir væru.
Bill Clinton, for-
seti Bandaríkj-
Bin ciinton anna, sagði hins
vegar að skotið
hefði verið á bandarískar herflugvél-
ar á eftirlitsfiugi á flugbannssvæðinu
og þær svarað í sömu mynt. „Það er
auðséð að Irakar reyna að ná tákn-
rænum sigri með því að skjóta niður
eina af vélum okkar,“ sagði forset-
inn. „Líklega í því augnamiði að
hræða okkur frá því að framfylgja
flugbanni Sameinuðu þjóðanna.“
Yfirmaður írösku fréttastofunnar
INA greindi frá því að orrustuflug-
vélar hefðu flogið yfir 33. breidd-
argráðu og gert árás á byggð í 20 km
fjarlægð frá Bagdad: „Flugvélarnar
skutu nýrri tegund flugskeyta sem
ekki hefur verið notuð áður, þremur
skeytum, einu gátum við grandað en
tvö lentu á íbúabyggð með þeim af-
leiðingum að nokkrir óbreyttir borg-
arar fórust og aðrir særðust.“ Ekki
var greint nánar frá atburðum en
þess látið getið að um alvarlega stig-
mögnun loftárása væri að ræða.
♦♦♦
61 fórst í
flugslysi
Peking. Reuters.
FARÞEGAÞOTA frá flugfélaginu
China Southwest Airlines fórst yfir
austurhluta Kína í gær og létust allir
um borð. Líklegt er talið að spreng-
ing hafi orðið í vélinni, en rannsókn á
tildrögum slyssins er ekki lokið.
Flugvélin, af gerðinni Túpolev Tú-
154, fórst um 30 kflómetra frá
áfangastað sínum, sem var hafnar-
borgin Wenzhou. Þangað var hún á
leiðinni frá borginni Chengdu. Um
borð í vélinni voru fimmtíu farþegar
og ellefu manna áhöfn, öll af kín-
versku bergi brotin.
Veður var heiðskírt og engin sjá-
anleg vandræði er vélin fórst síðdeg-
is í gær, að sögn talsmanns flug-
málayfirvalda í Kína.
BJÖRGUNARMENN leituðu árangurslaust að fólki á lífi í snjóflóðinu í GaltUr í gær.
Reuters