Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tillaga Sighvats Bjðrgvinssonar kynnt í fram-
VERTU ekkert að tárast yfir þessu, Magga mín, þú mátt vera prímadonnan okkar.
Beinþynning kvenna eftir tíðahvörf
Miklar framfar-
ir í forvörn-
um og meðferð
NYLEGA var hald-
in námsstefna um
beinþynningu
kvenna sem ætluð var
fólki í heilbrigðisstéttum.
Þar var m.a. fjallað um
nýja gerð lyfja sem hindra
myndun beinþynningar.
Gunnar Sigurðsson, yfir-
læknir á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, var meðal
fyrirlesara.
„Efni þessarar náms-
stefnu var beinþynning
kvenna og var aðallega
horft til beinþynningar
eftir tíðahvörf. I því sam-
bandi var fjallað um nýja
gerð lyfja sem hindra
framgang beinþynningar
og eru skyld kvenkyns-
hormóninu östrogeni.
Lyfin vernda beinin á
svipaðan hátt og hormónalyfin
gera auk þess sem þau lækka
blóðfitu.“ Gunnar segir að lyfin
hafi á hinn bóginn ekki þær auka-
verkanir sem kvenkynshormón
geta haft á leg og brjóst. „Þessi
lyfjaflokkur er vissulega viðbót
við það sem við höfum upp á að
bjóða til að koma í veg fyrir bein-
þynningu eftir tíðahvörf og henta
vissum hópi kvenna þar sem
hormónagjöf á síður við.“
- Hversu hátt hlutfall kvenna á
við beinþynningu að stríða um og
eftir tíðahvörf?
„Meginhluti kvenna er vel sett-
ur en talið er líklegt að 10-20%
kvenna þurfi á langtímameðferð
að halda, hormónum eða þessum
nýju lyfjum, til vemdar beinþynn-
ingu. Þessar konur hafa fengið
minna beinmagn að erfðum eða
aðrar orsakir liggja að baki bein-
þynningu þegar um miðjan ald-
ur.“
- Hvaða aðrar orsakir en erfðir
eru taldar eiga hlut að máli?
„Næring skiptir máli í þessu
sambandi og á Islandi stöndum
við vel að vígi hvað kalkneyslu
snertir en hún er mikilvæg.
Skortur á D-vítamíni yfir veturinn
hefur frekar valdið áhyggjum hér
á landi en það fáum við úr sólar-
ljósi, lýsi og fjölvítamínum.
Hreyfing skiptir líka máli og
líkamsáreynsla almennt. Þessi
þáttur er einkanlega
mikilvægur á ung-
lingsárum þegar verið
er að taka út beinvöxt
en einnig á efri árum
þegar beintap fer að
ágerast.'
Gunnar Sigurðsson
►Gunnar Sigurðsson er fæddur í
Hafnarfírði árið 1942. Hann lauk
kandidatsprófi í læknisfræði frá
Háskóla íslands árið 1968 og
stundaði síðan framhaldsnám í
Bretlandi og Bandaríkjunum á
sviði efnaskipta og innkirtlasjúk-
dóma frá 1969-1977.
Hann hefur starfað sem yfir-
læknir við lyflækningadeild
Borgarspítala og síðar Sjúkra-
húss Reykjavíkur frá árinu 1982.
Gunnar varð dósent við lækna-
deild Háskóla íslands árið 1980
og prófessor við sömu deild frá
árinu 1995.
Eiginkona hans er Sigríður
Einarsdóttir pianókennari og
eiga þau þrjú börn.
Mikilvægt að
fá næga hreyf'
ingu, kalk
og D-vítamín
Gunnar bendir á að þó unnt sé
að gera ýmislegt til að sporna við
beinþynningu geti síðan sumir
sjúkdómar ýtt undir myndun
hennar eins og sumir efnaskipta-
sjúkdómar og vissir meltingar-
sjúkdómar. „Bólgueyðandi lyf
sem eru notuð við astma og liða-
gigt eru slæm fyrir beinin og þeir
einstaklingar sem taka þau lyf eru
í áhættu."
- Hver eru fyrstu einkenni
beinþynningar?
„Það er nú mergurinn málsins
að beinþynning er einkennalaus
þangað til að beinbrotum kemur.
Þess vegna er mikilvægt að geta
stuðst við beinþéttnimælingar, til
að finna þá einstaklinga sem eru í
hvað mestri hættu á að fá bein-
þynningu."
Gunnar segir að með aukinni
þekkingu almennings á beinþynn-
ingu og ekki síst mikilvægi for-
vama í því sambandi komi vax-
andi hópur kvenna og karla í bein-
þéttnimælingu.
„Námsstefnu sem þessari er
einnig ætlað að vekja athygli heil-
brigðisstarfsfólks á þeim mögu-
leikum sem við höfum upp á að
bjóða í dag eins og beinþéttni-
mælingum og fleiri valkostum í
meðferð."
-Getur eitthvað í sögu ungra
kvenna bent til beinþynningar síð-
ar meir á lífsleiðinni?
„Mestu máli skiptir að kven-
hormónar séu í jafnvægi. Það
endurspeglast í tíðablæðingum.
Ef konur eru reglulega á blæðing-
um eru þær í minni áhættu en
þær konur sem fá tíðateppu til
---------- lengri tíma. Þær kon-
ur sem við það kann-
ast ættu að láta mæla
beinþéttnina og láta
fylgjast með sér. Allar
konur ættu síðan að
—l—huga að því að fá
nægt kalk og D-vítamín og stunda
hreyfingu."
- Geta karlar ekki fengið bein-
þynningu?
„Vissulega en það er þá aðal-
lega eftir miðjan aldur. Þeir verða
ekki fyrir því hraða beintapi sem
konur verða fyrir við tíðahvörf
þegar kvenkynshormóninn lækk-
ar í líkamanum. Það er talað um
að fyrir hvem karl sem brýtur sig
brotni að minnsta kosti tvær til
þrjár konur.
Beinbrot sem verða af völdum
beinþynningar má skipta í þrennt.
Fyrst má nefna framhandleggs-
brot um og eftir tíðahvörf, þá
hryggsúlubrot sem eru algeng
eftir sextugt og mjaðmabrot sem
verða fyrst algeng eftir sjötugt.
Tíðni hryggsúlubrota og mjaðma-
brota er hér, eins og á hinum
Norðurlöndunum, mun hærri en í
flestum öðrum löndum. Við vitum
ekki fyllilega hvers vegna, hvort
þar er um erfðir að ræða, þætti í
umhverfi eða eitthvað í næringu
sem veldur."