Morgunblaðið - 25.02.1999, Page 12

Morgunblaðið - 25.02.1999, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nauðsynlegt að bæta og samræma löggjöf um happdrætti Sjálfstæðum aðila verði falin sljórnsýsla happdrættismála Vafasamt er talið að að dómsmála- ráðuneytið sé í stakk búið til að sinna eftirliti með happ- drættum sem, að mati nefndar um framtíðarskipan happdrættismála, njóta ekki jafnræðis að því er varðar leyf- isgjöld og skatta. Tekjur happdrætta á einu ári milljónir kr. 1.873,9 Reikningtímabil DAS: 1.5.96-30.4.97 Reikningtimabil SlBS: 1.5.96-30.4.97 Reikningtímabil Isl getrauna: 1.7.96-30.6.97 Reikningtímabil ísl. getspár: 1.7.96-30.6.97 Reikningtímabil Isl. söfn.kassa: 1.1.97-31.12.97 Reíkningtímabil HHI: 1.1.97-31.12.97 Tekjur umfram gjöld - Hreinar rekstrartekjur 1.094,0 1.148,3 864,6 DAS SÍBS íslenskar íslensk íslenskir Happdrætti getraunir getspá söfn.kassar Háskólans Skipting hreinna rekstrartekna af happdrættum — Isl. getspá ísl. getraunir 7% Happdrætti Háskólans Isl. söfn.- kassar L DAS 4% SIBS 5% NEFND um framtíðarskipan happ- drættismála telur að margt megi betur fara í skipan slíkrar starfsemi hér á landi og íslendingar búi við ófullkomna og ósamstæða löggjöf um happdrættismálefni. Telur nefndin að löggjöfm og ákvæði hennar stangist að hluta til á og nauðsynlegt sé að bæta úr, þannig að til verði skýr lagagrundvöllur um þessa umfangsmiklu starfsemi. Þá leggur nefndin til að sjálfstæðum aðila verði falin stjómsýsla happ- drættismála. Dómsmálaráðherra skipaði nefndina í febrúar 1998 til þess að semja frumdrög að mótun framtíð- arstefnu í happdrættismálum. Fór hún meðal annars yfír gildandi lög- gjöf um happdrættisrekstur hér á landi og ársskýrslur happdrættis- fyrirtækja. Nefndin telur afar brýnt að tekin verði afstaða til þess hvaða megin- sjónarmið skuli liggja til grundvall- ar happdrættisstarfsemi í landinu. Hún leggur til þrjár leiðir til heild- arendurskipulagningar happdrætta en tekur ekki afstöðu til þess hver þeirra sé heppilegust. Leiðirnar þrjár eru: að öll happdrætti verði ríkisrekin, einkarekin, eða ýmist ríkis- eða einkarekin. Eftirliti almennt ábótavant Nefndin telur að helstu annmark- ar á núverandi fyrirkomulagi séu að lög um happdrætti séu komin til ára sinna, löggjöfin sé ósamstæð og ákvæði hennar stangist að sumu leyti á, lagaramma vanti um sum happdrætti og margskonar skylda starfsemi. Einnig telur hún að nokk- ur vafí kunni að leika á með hvaða hætti gildandi lagareglum verður beitt um happdrætti á Netinu. Að mati nefndarinnar er eftirliti almennt ábótavant en hafa beri í huga að happdrætti sé margþætt og viðkvæm starfsemi. Ný tækni hafí rutt sér til rúms varðandi söluað- ferðir, útdrátt og fleira. Telur hún vafasamt að dómsmálaráðuneytið sé í stakk búið til að sinna eftirlitinu sem skyldi. Að mati nefndarinnar njóta happ- drættin ekki jafnræðis að því er Andlát HELGA JÓNÍNA MAGNÚSDÓTTIR HELGA Jónína Magn- úsdóttir frá Blikastöð- um lést miðvikudaginn 24. febrúar, 92 ára að aldri. Hún var fædd að Vesturhópshólum í V- Húnavatnssýslu 18. september 1906. For- eldrar hennar voru Þorlákur Magnús Þor- láksson, bóndi þar, síð- ar að Blikastöðum í Mosfellssveit, og fyrri kona hans, Marsibii SiguiTÓs Jónsdóttir. Helga var braut- skráð frá Kvennaskól- anum í Reykjavík 1924. Stundaði verslunarnám við Köbmandsskolen í Kaupmannahöfn 1930-1931, starf- aði sem skrifstofustúlka hjá Mjólk- urfélagi Reykjavíkur, Mjólkursam- lagi Kjalarnesþings og Mjólkurstöð- inni í Reykjavík 1931—41 og var Húsfreyja að Blikastöðum í Mos- fellssveit frá 1942. Helga sat í stjórn Ungmennafé- lagsins Aftureldingar í Mosfells- sveit nokkur ár, var formaður Kvenfélagasambands Gullbringu- og Kjósarsýslu 1948-1964, í vara- stjóm Kvenfélagasambands fslands 1953, síðan í aðalstjóm þess og for- maður 1963-1971 og í aðalstjórn Kvenfélagasambands Norðurlanda sama tíma. í skóla- nefnd Mosfellssveitar 1950-1958 og síðar for- maður hennar 1977. Kosin í hreppsnefnd 1954 og endurkosin 1958, var þá varaodd- viti en tók við oddvita- störfum í ágústmánuði. Hún var síðasti oddviti hreppsins sem hafði öll störf á eigin hendi áður en hreppurinn fékk skrifstofu og sveitar- stjóra. Hún var í stjórn Húsmæðrakennara- skóla íslands í nokkur ár. Kosin í Landsdóm af Alþingi 1969 til 6 ára og endurkosin næsta tímabil. Helga var sæmd fálkaorðu 1970 og Stór- riddarakrossi 1976. Hún var einnig sæmd gullmerki Húsmæðrafélaga- sambands Svíþjóðar. Þá var hún heiðursfélagi Kvenfélags Lágafells- sóknar og Kvenfélagasambands ís- lands. Eftirlifandi eiginmaður Helgu er Sigsteinn Pálsson, fæddur 16. febr- úar 1905. Þau hjón, Helga og Sig- steinn, bjuggu á Blikastöðum til ársins 1992. Síðan hafa þau búið á Hlaðhömrum í Mosfellsbæ. Börn þeirra eru tvö, Magnús Sigsteins- son og Kristín Sigsteinsdóttir. varðar leyfisgjöld og skatta. Að auki sé sumum happdrættum ekki gert að skila skýrslum eða reikning- um um reksturinn og heimildir til að kæra úrskurði eftirlitsaðila til æðra stjómvalds séu mismunandi eftir einstökum happdrættum. Gjöld á leyfíshafa og eftirlit verði kostað af þeim Löggjöf um happdrætti og skylda starfsemi þarf að endurnýja og sam- ræma að mati nefndarinnar. „Setja þarf ítarleg heildarlög er taki á sam- eiginlegum atriðum. Markmið ríkis- valdsins þurfa að vera skýr, þannig að fylgt sé einhverri meginlínu," segir í niðurstöðu nefndarinnar. Þá er bent á að taka þurfi afstöðu til þess, hvort og þá að hvaða marki ný heildarlög skuli taka til þeirra happ- drætta og skyldrar starfsemi, sem ekki heyri undir gildandi lög. Einnig þurfi að útfæra einstök happdrætti nánar í reglugerðum og hafa beri í huga að viðhorf til happdrætta og skyldrar starfsemi hafi breyst á síð- ustu ámm. Nefndin leggur til að sjálfstæðum aðila, sem býr yfir nægri fagþekk- ingu, verði falin stjórnsýsla happ- drættismála og skyldrar starfsemi. Skuli sá aðili jafnframt hafa með höndum virkt eftirlit með happ- drættisstarfsemi og ákvarðanir hans verði kæranlegar til dóms- málaráðuneytisins. Einnig leggur hún til að gjöld verði lögð á leyfis- hafa eftir jafnræðissjónarmiðum og eftirlit verði kostað af leyfishöfum. Jafnframt verði aðilum sem starf- rækja happdrætti gert að skila árs- reikningum til eftirlitsaðila í sam- ræmi við lög um ársreikninga. Skattlagning happdrætta? Nefndin telur að skattlagning á happdrætti sé pólitísk ákvörðun, en jafnframt háð því hvaða meginsjón- armið sé lagt til grundvallar happ- drættisstarfsemi almennt, þ.e. ríkis- rekstur, einkarekstur eða bæði rík- is- og einkarekstur. Markmið skatt- lagningar þurfi að vera skýr og gæta beri jafnræðis bæði gagnvart rekstraraðilum og viðskiptavinum happdrætta. Agóði af happdrættisstarfsemi er margvíslegur, að mati nefndarinn- ar, en felst einna helst í því að: Þjóðfélagslegur ábati af happdrætt- um er meiri en kostnaður, unnt er að ná markmiðum um öflun fjár til almannaheilla án opinbers rekstrar en nýta þurfí betur kosti markaðar og samkeppni. Nefndin telur ríkis- rekstur, þar sem tekjur renna beint í ríkissjóð, geta valdið óvissu og sveiflum í úthlutun fjár en á móti komi að tekjur einstakra aðila sveiflist á markaðnum með tækni, tísku og samkeppni. Tilkoma nýrra aðila geti stækkað heildarmarkað- inn en rýri sennilega að einhverju leyti hlut þeirra sem fyrir eru. Andlát GUÐMUNDUR ÓLAFSSON GUÐMUNDUR Ólafs- son heimilislæknir lézt í Landspítalanum í gærmorgun á 55. ald- ursári. Banamein hans var krabbamein. Guðmundur Ólafs- son fæddist á Bíldsfelli í Grafningi 21. nóvem- ber 1944, sonur hjón- anna Ólafs Tómasson- ar, viðskiptafræðings í Reykjavík, og Þóru Guðmundsdóttur hús- móður. Guðmundur varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík árið 1964 og lauk prófi frá læknadeild Háskóla íslands árið 1972. Hann hlaut al- mennt lækningaleyfi vorið 1977 og starfaði víða um land sem læknir, var m.a. héraðslæknir á Selfossi, á Eyrarbakka og jafnframt fangelsis- læknir á Litla-Hrauni um tíma. Hann var aðstoðarlæknir á St. Jós- efsspítala, skurðdeild, og síðar á barnadeild. Þá vann hann einnig á Borgarspítala og Víf- ilsstaðaspítala. Um skeið vann hann á Akureyri. Lengst af starfaði hann að heim- ilislækningum í Reykjavík. Guðmundur hélt til sérnáms í Svíþjóð og starfaði þá við St. Lars sjúkrahúsið í Lundi og varð síðar aðtoðaryfir- læknir þar. Þá vann hann einnig á Vást- erviks-sjúki-ahúsinu og varð aðstoð- aryfirlæknir þar 1980. Guðmundur var einnig aðstoðarhéraðslæknir á námsárum í Selfosshérði og Eski- fjarðarhéraði. Guðmundur Ólafsson eignaðist þrjá syni í fyrra hjónabandi. Eftir- lifandi eiginkona hans er Birna Vil- hjálmsdóttir. Opinber heimsókn * forseta Is- lands til Póllands FORSETI íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hefur þegið boð forseta Póllands, Aleksander Kwa- sniewski, um að koma í opinbera heimsókn til Póllands dagana 10.-13. mars nk. í fylgdarliði for- seta íslands verða Dalla Ólafsdóttir, dóttir hans, Halldór Asgrímsson ut- anríkisráðherra og eiginkona hans, Sigurjóna Sigurðardóttir, ráðuneyt- isstjóri utanríkisráðuneytisins, for- setaritari, sendiheira íslands í Pól- landi og fleiri embættismenn. Boð til forseta íslands um opin- bera heimsókn til Póllands kom í tengslum við umsókn landsins að aðild að Atlantshafsbandalaginu og nýja sýn þess á breyttum tímum í Evrópu. Aðild Póllands að NATO mun taka gildi á meðan á heimsókn- inni stendur, 12. mars, og í aprfl munu fulltrúar beggja landanna taka þátt í leiðtogafundi Atlants- hafsbandalagsins í Washington. Pólland hefur einnig sótt um aðild að Evrópusambandinu og yrðu þar með aðili að Evrópska efnahags- svæðinu. I heimsókninni munu fara fram viðræður forsetanna og sameigin- legur fréttamannafundur þeirra. Þá mun forseti íslands eiga viðræður við forsætisráðhen-a Póllands og einnig við forseta fulltrúadeildar og öldungadeildar þingsins. Einnig verður efnt til fundar um viðskipti landanna í pólska verslunarráðinu. Utanríkisráðuneytið og Útflunings- ráð bjóða til viðskiptaráðstefnu og móttöku fyrir viðskiptaaðila. Viðskipti Islands og Póllands hafa verið talsverð um árabil. I heimsókn forseta íslands nú verður sérstök áhersla lögð á að kynna ís- lenska lýsið og af því tilefni mun fyrirtækið Lýsi hf. efna til ráð- stefnu með þátttöku fjölda pólskra lyfsala og annarra aðila í heilbrigð- isþjónustu í Póllandi þar sem fjallað verður um hollustu og eiginleika lýsisins. Einnig mun Lýsi hf. taka þátt í vörusýningu sem forseti ís- lands mun heimsækja. í heimsókninni verður einnig lögð áhersla á menningartengsl land- anna og verður sérstaklega minnst framlags hins merka pólska hljóm- sveitarstjóra Bohdan Wodiezko til íslensks tónlistarlífs en hann stjórn- aði Sinfóníuhljómsveit íslands um árabil og hafði margvísleg áhrif á þróun nútímatónlistar á íslandi, segir í fréttatilkynningu. Forseti ís- lands mun einnig heimsækja sýn- ingu um líf og verk Halldórs Kiljans Laxness sem nú er í Varsjá og skoða höggmynd Bertels Thorvald- sens sem er í borginni. -------------- Prófkjör Samfylkingar á Vesturlandi Fjórir í framboði FJÓRIR bjóða sig fram í prófkjör Samfylkingar á Vesturlandi sem fram fer 6. mars. Þetta eru Gísli S. Einarsson alþingismaður og Hólm- fríður Sveinsdóttir stjórnmálafræð- ingur, sem bjóða sig fram fyrir hönd Alþýðuflokksins, Jóhann Ar- sælsson, fyrrverandi alþingismaður, sem býður sig fram fýrir hönd Al- þýðubandalagsins, og Dóra Líndal Hjartardóttir tónmenntakennari, en hún er í framboði fyrir Kvenna- listann. Kjósendur eiga að merkja við einn til þrjá frambjóðendur. Aðeins má merkja við einn frá hverjum flokki. Þetta prófkjör er síðasta prófkjör sem haldið verður fyrir al- þingiskosningarnar í vor.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.