Morgunblaðið - 25.02.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 19
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Kristinn
EIGENDUR Sjálfvals eru þau Einar Skagfjörð og Erla Sveinsdóttir.
Með þeim á myndinni er matreiðslumaðurinn Guðni Kristmundsson.
Nýtt
Veitingastaður opnaður
í Fjarðarkaupum
Spurt og svarað um neytendamál
Nýfallinn snjór
skerpir liti teppanna
NYLEGA var opnaður veitinga-
staður inni í versluninni Fjarðar-
kaupum í Hafnarfirði sem ber heit-
ið Sjálfval - 5 réttir. Það eru hjónin
Einar Skagfjörð og Erla Sveins-
dóttir sem reka staðinn.
„Við höfum komið nálægt svipuð-
um rekstri áður þar sem við höfum
nú í yfir tíu ár rekið Grillið sem sel-
ur í verslanir ýmiskonar salöt og
pastarétti. Upphafið að Grillinu var
pítsugerð og ein tegund af hrásalati.
I dag eru salattegundirnar orðnar
15, 8-10 pastaréttir fyrir salatbari
ásamt grænmetisvinnslu,“ segir
Erla.
Eins og nafn staðarins ber með
sér er boðið upp á að minnsta kosti
fimm heita rétti á veitingastaðnum,
ýmist fisk- og kjötrétti og auk
hefðbundins heimilismatar er þar
gjarnan að finna ítalska rétti og
austurlenska. Þá er boðið upp á
kaffi og heimabakaðar kökur og á
fimmtudögum og fóstudögum er
kaffíhlaðborð.
Þau segja að viðtökurnar hafi
verið góðar. „Við fáum til okkar um
hundrað manns í mat í hádeginu og
það er framar björtustu vonum
svona strax í upphafi. Þetta er að-
allega fólk í vinnu sem hefur verið
að koma til okkar og síðan er það
fjölskyldufólk sem borðar hjá okk-
ur á föstudagskvöldum og kemur í
kaffí.“
Gestir geta bæði borðað á staðn-
um eða tekið matinn með sér.
Hægt er að kaupa tilboð kokksins
hverju sinni en sá réttur kostar 490
krónur. Þeir sem vilja geta keypt
eftir vikt og þá er kílóið selt á 950
krónur. Þá er fólki boðið að velja
sér af hlaðborði fyrir 790 krónur.
Auk heitra rétta sem eru á boðstól-
um er innifalin súpa, salat og
drykkur. Kaffihlaðborðið kostar
590 krónur.
HVERNIG á að hreinsa handofin
austurlensk teppi? Er óæskilegt
að ryksuga þau?
Svar: Við ráðleggjum fólki að
leita sérfræðiaðstoðar ef þarf að
hreinsa teppin en bendum á ýmsar
leiðir hvað varðar almenna um-
hirðu teppanna", segir Sigurður
Sigurðsson hjá Persíu.
„Við bendum okkar viðskiptavin-
um á að viðra handofin ullarteppi
reglulega. Þegar nýfallin þurr
snjór er yfir jörðu er síðan upplagt
að velta ullarteppunum uppúr
snjónum og banka þau. Við það er
eins og litirnir skerpist og teppin
verða fallegri.
Þegar hreinsa á bletti úr
handofnum mottum þarf að fara
gætilega. Best er að reyna að vinna
á blettum með vatni og þurrká það
upp með pappírsþurrku eða
bómullarklút en ekki nudda. Ef
slíkar aðferðir duga ekki þá höfum
við mælt með notkun grænsápu-
blöndu því kemísk efni innihalda
stundum bleikingarefni og eiga til
að upplita teppin."
Ami Svavarsson hjá Skúfi teppa-
hreinsun segist byi-ja á því að ryk-
suga teppin varlega þegar komið er
með þau til hans. Hann notar helst
mjög þunna blöndu af grænsápu við
hreinsunina. Ámi hreinsar teppinn
lóðrétt á vegg. Hann segir ekki gott
að bleyta undirlagið ef um striga-
grind er að ræða og því þarf að fara
varlega í að ýfa teppið þegar sápan
á að vinna á óhreinindum. Að lokum
skolar hann teppin með þunnri
blöndu af edikvatni. Sú blanda segir
hann að skerpi og festi litinn.
Hann segir nauðsynlegt að fara
varlega í að ryksuga teppin. „Oft
þola teppin illa ryksugun og það er
miklu betra ráð að viðra teppin
reglulega og hrista þau þá vel.
- hér eru gæði á ferðinni
Honda á íslandi • Vatnagörðum 24 • Simi 520 I 100
Opið virka daga kl.9-18 og kl. 12-16 á laugardögum
Nýtt ár opnar þér nýjar leiðir. Þá borgar sig að velja sér farartæki sem gerir allar leiðir færar.
Honda CR-V er vel búinn og sprækur sportjeppi á mjög hagstæðu verði sem gerir hann að
hinum ákjósanlegasta ferðafélaga. Á þessu ári skalt þú setja þér háleitari markmið en nokkru
sinni fyrr og ná þeim með nýjum Honda CR-V. i nnn Ur