Morgunblaðið - 25.02.1999, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.02.1999, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Trefjar ehf. í Hafnarfírði hafa samið um sölu á um 50 trefjaplastbátum Bátur á hálfs mánaðar fresti Mjög mikil sala er á trefjaplastbátum hjá Trefj- um ehf. í Hafnarfírði og er um 18 mánaða bið eft- ir bátum þó skipulagið geri ráð fyrir að bátur sé afhentur á 10 vinnudaga fresti. Steinþór Guð- bjartsson skoðaði verksmiðjuna, kynnti sér fram- leiðsluna og ræddi við Högna Bergþórsson, tæknilegan framkvæmdastjóra fyrirtækisins. TREFJAR ehf. hefur samið um sölu á um 50 trefjaplastbátum á þessu ári og fram yfír mitt næsta ár. Unnið er við átta báta í einu og gengur skipu- lagið út á það að afhenda bát á 10 vinnudaga fresti. Fyrirtækið fram- leiðir þrjár stærðir og er mest selt af 6 tonna bátum og þá einkum innan- lands en 10 og 12 tonna bátar hafa aðallega verið seldir til útlanda. Grunnverð ódýrustu tegundarinnar er frá 10,5 milljónum króna fyrir bát með haffærisskírteini og því ljóst að um mikla veltu er að ræða. Hófst með kaupum á Cleopatra Cruises Fyrirtækið er 22 ára gamalt, en keypti bátagerðina Skel hf. 1979 og hóf framleiðslu trillubáta undn- nafn- inu Skel. 1994 keypti það breska fyr- irtækið Cleopatra Cruises og í fram- haldi hófst framleiðsla á umræddum trefjaplastbátum. „Breska fyrirtækið var þekkt í skemmtibátaiðnaðinum og því var ákveðið að halda nafninu á fískibát- unum sem við höfðum hannað,“ sagði Högni Bergþórsson, tæknilegur framkvæmdastjóri Trefja, í samtali við Verið, en bætti við að auðvelt væri acl breyta bátunum í skemmti- báta. „Á síðasta ári fórum við í um- fangsmikla markaðssetningu í Evr- ópu með sjö Öðrum fyrirtælgum. Að- stoð frá Útflutningsráði og Nýsköp- unarsjóði gerði það mögulegt og metum við stuðninginn mjög mikils. Skipið Vaya Con Dios af gerðinni Cleopatra 33 var á ferðinni frá mars fram í desember en við byrjuðum í Belgíu og þaðan var siglt til Portú- gals þar sem skipið var hluti af þjóð- arbás íslands á Expósýningunni. Þaðan var strandlengja Evrópu þrædd og báturinn sýndur á um það bil 50 stöðum en við tókum einnig þátt í NorFish-sýningunni í Þránd- heimi í Noregi í ágúst. Við fengum Guðmund Kristjánsson, markaðs- stjóra hjá Útflutningsráði, til að sigla skipinu en við skipulögðum ferðina í samráði við DNG Sjóvélar og Borgarplast. Umboðsmenn þeirra í Evrópu sáu um skipulagningu hver á sínu svæði, völdu líklégustu hafn- irnar og sáu um undirbúning sýn- inga. Ferðin fékk mjög mikla um- fjöllun og hafði mikU áhrif sem sést best á sölunni og fyrirspurnunum." Byijaði í Argentínu Högni sagði að innanlands væri mesta salan í 28 feta bátunum en hinar stærðirnar, 33 feta (10 tonna) og 38 feta (12 tonna), hefðu verið kynntar erlendis. „Við höfum kynnt bátana vel í Portúgal og á Bret- landseyjum og finnum að við erum með vöru sem hentar vel í Noregi þó við höfum ekki selt þar ennþá. Þá hafa verið fyrirspurnir frá Suður- Ameríku, Rússlandi og fleiri löndum en salan á Cleopatra bátunum hófst með sölu sex 10 tonna báta til Ar- gentínu 1997. Við smíðuðum þessa báta á 100 dögum og höfum fylgst mjög vel með þeim síðan en íslenskir skipstjórar fóru með til Argentínu og kenndu heimamönnum á bátana. Það er mikilvægt atriði sem við leggjum mikið upp úr alls staðar þar sem við seljum." Ekki ber mikið á fyrirtækinu í Hafnarfírði en húsnæði þess er um 6.000 fermetrar auk um 15.000 fer- metra útisvæðis. Framleiðsla smá- bátanna er viðamest en gerð bað- kara og sturtubotna úr akrýlplasti kemur þar á eftir. „Fyrirtækið fram- leiðir margar vörur og vöxturinn er mikill en unnið er að aukinni deilda- skiptingu því við höfum fullan hug á að hafa eggin áfram í mörgum körf- um. Við viljum ekki að meiri báta- framleiðsla komi niður á annarri framleiðslu. Skipulagningin gengur út á að afhenda bát á 10 vinnudaga fresti en við viljum auka þá fram- leiðslugetu.“ Þegar gengið er um framleiðslu- svæðið má m.a. sjá lítinn sex-æring. „Þetta er hálfgert gæluverkefni hjá okkur,“ sagði Högni. „Við seljum þessa báta til Afríku og þeir eru al- gjör bylting fyrir heimamenn. Þeir HÖGNI Bergþórsson í sal fyrirtækisins þar sem framleiðsla bátanna fer fram. Morsunblaðlð/'Golli Morgunblaðið/Golli CLEOPATRA-báturinn Birta Dís VE 35 í Hafnarfjarðarhöfn. í lúkarnum er svefnrými fyrir þrjá fullvaxna karlmenn auk eldunaraðstöðu. eru á eintrjáningum, trjábolum sem eru holaðir að innan, en þetta eru eins og togarar í þeirra augum.“ Hittir í mark Högni sagðist telja að ekki væri völ á betri smábáti í þessum flokki. „Salan sýnir að Cleopatra 28 er það sem markaðurinn vill en vai'la er gerður stálbátur í þessum stærðar- flokki. Þetta er nýr bátur sem hittir í mark en þegar komið er í 10 tonna bát er um kvótabáta að ræða og er sá markaður miklu minni fyrir okkur hér heima. Það er líka ástæðan fyrir því að við erum á fullu erlendis. Sveiflurnar á markaðnum innan- lands eru svo miklar að ekki er hægt að byggja á honum. Hérna er þetta þannig að menn eru yfirleitt að end- urnýja gamlan bát og fá stærri og hraðskreiðari bát í staðinn en er- lendis eru menn í mörgum tilvikum bara að fá sér nýjan bát.“ Þó stefnt sé að því að afhenda bát á 10 vinnudaga fresti sagði Högni að heildarframleiðslutími báts væri mun lengri eða um þrír mánuðir. „Samsvarandi tími vegna Cleopatra 38 er um fjórir mánuðir." Hann sagði að eftirspurnin kæmi ekki á óvart. „Við finnum það erlend- is að við enim með góða vöru sem uppfyllir þa fír sjómanna betur. Bát- urinn gengm' hraf í., ber mikinn afla miðað við stærð og virðist henta markaðnum mjög vel. Við höfum selt þessa báta búna fyrir línu og hand- færi í samstarfi við DNG, en slíkar veiðar eru mjög í tísku því um er að ræða umhverfisvænar veiðar. Víða fá menn með svona báta að veiða alls staðar ólíkt tog- eða netaveiðum þar sem algengt er að lokað sé fyrir slík- ar veiðar á stórum svæðum. Sjó- hæfni, kraftur og hraði eru einkunn- arorð Cleopatra báta og þau segja meira en mörg orð.“ Hampiðjutrolhn reynast vel við Alaska og Nýja-Sj*áland GÓÐUR árangur hefur náðst með tvær gerðir trolla frá Hampiðjunni við veiðar í öðrum heimsálfum að undanfórnu. Craig Jensen, skipstjóri á togaranum Doninator, aflaði 5.000 tonna af alaskaufsa í Gloriu 928 á tveimur mánuðum og John Linton hefur notað Champion-troll frá Hampiðjunni með góðum árangri við búraveiðar við Nýja-Sjáland. Þessar upplýsingar koma fram í nýjasta fréttabréfi Hampiðjunnar, Pokahorn- inu, sem nú er að koma út. „Við notuðum Champion-trollið al- veg frá byrjun í þessum túr,“ segir John Linton, skipstjóri á Amaltal Ex- plorer, í samtali við Pokahornið. „Við notuðum það bæði á nokkuð sléttum botni og á hólafískirí, við veiðar á búra og „oreo dory“. Trollið fiskaði vel og alveg til samræmis við það sem Aflaði 5.000 tonna á tveimur mánuðum við sáum á höfuðlínusónarnum. Champion-trollið er eins og límt við botninn sem skilar sér vel þegar dregið er á mishæðóttum botni. Við þurftum ekki að nota togspilin eins mikið til að stjórna opnuninni á troll- inu. Það kom jafnvel fyrir að ég keyrði höfuðlínuhæð niður í einn metra þegar trollið skreið upp úr lægð án þess að festa og ekki þurfti að bæta neitt um borð. I stuttu máli er ég mjög ánægður með trollið. Það stendur alveg fyrir sínu, veiðarfærakostnaður hefur minnkað og auðvelt er að bæta, þannig að tafir eru í lágmarki,“ segir Linton. Craig Jensen er skipstjóri á Dom- inator, 38 metra skuttogara. Hann leggur upp hjá Trident Seafood á Akutan í Alaska. Vertíðin sl. haust var talin léleg. Miðað við þær aðstæð- ur gekk mjög vel hjá Craig en hann fiskaði um 5 þúsund tonn á tæpum tveimur mánuðum og var skipið eitt það aflahæsta í sínum flokki. Líklega hefur hann verið um 40 daga á sjó. Craig Jensen segir í samtali við Pokahornið að fyrir það fyrsta líki strákunum virkilega vel við trollið. „Þetta er einfalt og gott troll. Lítið ánetjast í það og auðvelt er að vinna með það. Ef einhver fiskur var á slóð- inni þá tók trollið hann. Þetta er besta troll sem ég hef notað þegar lóðar við botn,“ segir Jensen. AMALTAL Explorer með gott hal á dekkinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.