Morgunblaðið - 25.02.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 21
ÚR VERINU
Uppsagnir í físk-
vinnslu í Hnífsdal
Martel
og Ismar
semja um
Globalstar
NÝLEGA var gengið frá sam-
komulagi milli Martel ehf. og
Ismar sem opnar hinum síðar-
nefndu beinan aðgang að sölu
búnaðar og þjónustu við
Globalstar gervihnattakei-fið.
Samningurinn er sá fyrsti sem
gerður er við endursöluaðila á
Norðurlöndunum en farsíma-
félagið Martel annast í sam-
starfi við Globalstar uppbygg-
ingu og þjónustu við kerfið á
Grænlandi, íslandi, Færeyj-
um og sjávarútveg í Dan-
mörku, Noregi og Norður-Atl-
antshafinu öllu norðan 32.
gráðu.
Endursöluaðilum bjóðast
með Globalstar samningum
m.a. námskeið um uppbygg-
ingu og notkun kei-fisins, kost-
un á auglýsingum, og tæknileg
aðstoð við val á lausnum.
„Ismai' hf., sem er í farar-
broddi fyrirtækja í sölu og
þjónustu á fjarskipta-, sigl-
inga- og fiskleitai’tækjum fyr-
ir skip, mun bjóða útgerðum
og einstaklingum í sjávarút-
vegi Globalstar símabúnað,
annast uppsetningar og ráð-
gjöf. Þar á meðal eru GSM
símar sem eru tvívirkir
GSM/gervihnattasímar sér-
hannaðir fyrir bfla og báta,
fjarskiptatöðvar sem tengjast
við þráðlausa síma eða sím-
stöðvar um borð í stærri skip-
um, kortasímar (tíkallasímar)
o.fl.
Tengjanlegf við Netið
Tækin verða öll tengjanleg
við Netið á GSM hraða sem er
í dag allt að 9,6 kbaud en
einnig er hægt að kalla fram
upplýsingar um staðsetningu
símans (GPS) sem er ný þjón-
usta í farsímakerfum.
Globalstar kerfið sem er í
meirihlutaeigu Loral, Vodafo-
ne, AirTouch, Alcatel, France
Telecom, Qualcomm, Dacom,
Elsacom og fleiri er byggt á
neti 48 lágfleygra gervihnatta
og allt að 60 jarðstöðva víðs-
vegar um heiminn. Kei-fið sem
er GSM samhæft verður opn-
að til notkunar á Islandi seinni
hluta þessa árs og skapar þá
möguleika á símasamskiptum
nánast hvar sem er á svæðinu.
Öryggistæki
Miklar vonir eru bundnar
við að lágt verð fjölbreytts
búnaðar og hagstætt mínútu-
verð muni höfða til notenda í
sjávarútvegi, til björgunar-
sveita, og sem öryggistæki al-
mennings til fjalla eða utan
núverandi þjónustusvæða
GSM símanna. Gert er ráð
fyrir að Globalstar þjónustan,
sem er stafræn með GSM tal-
gæðum, gagnaflutningi og
staðsetningarþjónustu, muni
fljótlega leysa af hólmi eldri
og ófullkomnari kei-fi á borð
við NMT,“ segir í frétt frá
Martel og ísmar.
SúrefíiisYÖrur
Karin Herzog
Kynning
í dag kl. 14—18 í
Apótekinu Suðurströnd
og Hagkaupi, Skeifunni.
FISKVERKUN Ásbergs í Hnífsdal
hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu,
tæplega 30 manns. Vinnslu verður
hætt í lok marz og hefur fólkið
vinnu til þess tíma meðan verið er
að vinna úr fyrirliggjandi hráefni.
Öllum, nema framkvæmdastjóran-
um, hefur verið boðin vinna í Fisk-
verkun Asbergs í Kópavogi og
verða vélar og tæki flutt þangað frá
Hnífsdal.
Aðeins fjórir Islendingar eru í
vinnu hjá fyrirtækinu í Hnífsdal,
flestir starfsmanna eru Pólverjar,
en vafi leikur á því hvort atvinnu-
leyfi útlendinganna gildir í Kópa-
vogi.
Fyrirtækið hefur verið í vinnslu á
grálúðu í neytendapakkningum og
pakkningum fyrir stærri notendur
eins og mötuneyti. Grálúðan hefur
ýmist verið keypt fersk á mörkuð-
um eða fryst af togurum, en Fisk-
verkun Asbergs stundar ekki út-
gerð. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur reksturinn gengið
vel undanfarin ár, þó eitthvað hafi
tekið undan á því síðasta.
Gunnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskverkunar Ás-
bergs í Hnífsdal, vildi ekkert um
uppsagnirnar segja, er Verið ræddi
við hann í gær. Guðfinna Guð-
mundsdóttir, flakari, er trúnaðar-
maður á vinnustaðnum. Hún sagði
þessar uppsagnir hafa borið mjög
brátt að og virtust þær hafa verið
lítið eða ekkert undirbúnar. „Ekk-
ert okkar veit hvað er um að vera
og það er erfitt að trúa fullyrðing-
um um að taprekstur sé á vinnsl-
unni. Svo hefur ekki verið undanfar-
in ár. Eigandinn býður að vísu öll-
um starf í Kópavogi nema fram-
kvæmdastjóranum, en það er ekki
svo einfalt fyrir okkur að fara til
starfa í Kópavogi og auk þess er
ekki víst að atvinnuleyfi útlending-
anna gildi þar,“ segir Guðfinna í
samtali við Verið.
Ekki náðist í eiganda fyrirtækis-
ins, Ásberg Pétursson, í gær.
Nokkrar sviptingar hafa verið í
atvinnumálum í Hnífsdal á undan-
fömum misserum. Nú verður þess-
ari starfsemi hætt, en áður hafði
allri starfsemi Bakka hf. á staðnum
verið hætt og misstu þar margir
vinnuna. Hraðfrystihúsið í Hnífsdal
er nú eini stóri vinnuveitandinn á
staðnum, ekki er ljóst hvað þar ger-
ist, verði af sameiningu íshúsfélags
Isfirðinga, Gunnvarar hf. og Hrað-
frystihússins.
Verslun Skútuvogi 16 • Sfmi 525 3000
Timbursala Súðarvogi 3 -5 • Sími 525 3000
Verslun Fossaleyni 2, Grafarvogi • Sími 586 2000
Grænt númer Húsasmiðjunnar 800 6688