Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 22

Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Rússar fagna áfangasamning,i í Kosovo-friðarviðræðunum Kambouiliet, Belgrad. Reuters, The Daily Telegraph. Segja rússn- eska ráðsnilld hafa sigrað RUSSAR fögnuðu í gaar ákaft áfangasamkomulaginu sem náðist í Kosovo-friðarviðræðunum í Ram- bouillet í Frakklandi í fyrradag. Fulltrúar stjómvalda í Moskvu lýstu þyí yfir að samningurinn markaði sigur fyrir rússneska ráð- snilld og gerðu jafnframt lítið úr sáttasemjurum Bandaríkjanna, sögðu þá smátt og smátt hafa látið sannfærast af rökum Rússa þess efnis að hótanir um loftárásir á Ser- bíu væru til óþurftar. Serbar voru einnig sagðir fagna niðurstöðunni en í þeirra augum tókst Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu og Svartfjallalands, að koma í veg fyrir loftárásir NATO án þess þó að hafa gefið mikið eftir. „Niðurstöður þessara viðræðna eru afar jákvæðar fyrir Milosevic. Hann stóð fastur fyrir og sagði „nei“ við tillögum vesturveldanna en samt þarf hann ekki að þola loftárásir eins og hafði verið hótað,“ sagði heimildarmaður The Daily Telegraph í Belgrad. Fulltrúar Tengslahópsins lögðu áherslu á að vopnahlé yrði að gilda í Kosovo og að deilendur mættu síð- an aftur til viðræðna 15. mars til að leiða samningaviðræðumar til lykta. í máli fréttaskýrenda í gær mátti hins vegar greina efa um að þetta tækist. Samkomulag um ekki neitt? Fréttaskýrendur vom flestir sam- mála um að árangur úr viðræðunum væri heldur rýr. Þrátt fyrir að vest- urveldin hefðu framlengt upphafleg- an frest, sem deilendum hafði verið gefinn til að semja um frið, tókst ekki að ráða málum til lykta og þótt fulltrúar Tengslahópsins svokallaða fullyrtu að áfangasamkomulagi hefði verið náð þykir ljóst að enn á í raun eftir að leysa erfiðustu ágrein- ingsefnin. Serbar neita t.d. enn að sætta sig við erlent herlið í Kosovo, sem vesturveldin vilja að standi vörð um frið, og ólíklegt er talið að Frels- isher Kosovo (UCK, sem gengur undir nafninu KLA á ensku) muni afvopnast eins og þó er gerð krafa um í samkomulaginu. Jafnframt hafa Serbar krafist þess að þótt Kosovo-Albanar hljóti sjálfstjórn þá sé tryggt að Kosovo verði áfram aðeins hérað í Serbíu en ekki fullvalda ríki innan ríkjasam- bands Júgóslavíu. Vilja þeir aukin- heldur að í endanlegu samkomulagi verði útilokaður sá möguleiki að Kosovo hljóti sjálfstæði á næstu ár- um. A sama hátt er óvíst hvort UCK mun sætta sig við að gefa draum sinn um sjálfstæði Kosovo upp á bátinn. Því er spáð að á næstu dögum muni leiðtogar hófsamra Kosovo- Albana og fulltrúar UCK deila hart innbyrðis um samkomulagið. Þeir fyrrnefndu munu sjá það sem skref í átt að sjálfstæði en hinir síðar- nefndu hafa hins vegar ávallt neitað öllum málamiðlunum og gáfu yfir- lýsingar Adems Demacis, eins helsta leiðtoga UCK, í íyrrakvöld ekki til kynna að breyting yrði á af- stöðu þeirra. Jack Straw, innanríkisráðherra Bretlands, segir dómskerfíð hafa brugðist „Stofnanabundið kynþátta- hatur og fagleg vanhæfni44 Lundúnir. The Daily Telegraph. UMDEILD skýrsla um rannsókn Lundúnalögreglunnar á morði Stephens Lawrences, svarts ung- lingspilts sem myrtur var árið 1993, var birt í gær. Skýrslan er mjög gagnrýnin á starfsaðferðir Lund- únalögreglunnar og er fullyrt að innan lögreglunnar sé um „stofn- anabundið kynþáttahatur" að ræða. Jaek Straw, innanríkisráðherra Bretlands, sagði í kjölfar birtingar- innar: „Grundvallarmistök eyði- lögðu rannsóknina sem ekki er hægt að afsaka". Lýsti hann einnig yfir fullum stuðningi við Sir Paul Condon, lögreglustjóra Lundúna- lögreglunnar, sem undanfarið hefur verið undir miklum þrýstingi að segja af sér vegna málsins. Innihald skýrslunnar olli gríðai’legum úlfa- þyt í breskum fjölmiðlum, í kjölfar lögbanns á útgáfu Daily Telegraph á sunnudag, en blaðið hugðist birta útdrátt úr skýrslunni. Hefur Jack Straw legið undir miklu ámæli vegna málsins. I skýrslunni kemst höfundurinn að þeirri niðurstöðu að „kynþátta- Reuters BRESKUR lögreglumaður á vakt fyrir utan Downing-stræti 10. hatur og fagleg vanhæfni" sé meg- inástæðan fyrir bágum vinnubrögð- um lögreglunnar í Lawrence-málinu sem hafi leitt til þess að fimm hvítir menn, sem sterklega eru grunaðir um morðið á Stephen Lawrence, hafi ekki verið dæmdir sekir. Skýrslan, sem beðið hefur verið með eftirvæntingu mælir með um 70 úrbótum á starfsaðferðum lög- reglunnar og breska dómskerfisins svo fyrir kynþáttahatur megi kom- ast. Skýrsluhöfundur leggur til að sérstakar nefndir geti farið fram á brottvikningu lögreglumanna sem gerist sekir um kynþáttahatur. Mælist hann til að ekki verði liðin nein frávik frá reglunni. Sir Paul Condon, lögreglustjóri Lundúnalögreglunnar, bað, á fréttamannfundi í gær, fjölskyldu Stephens Lawrences innilega afsök- unar á mistökum sem lögreglan beri ábyrgð á. Sagðist hann sam- þykkja að „stofnanabundið kyn- þáttahatur" væri innan lögreglunn- ar og að það yrði að uppræta með öllum tiltækum ráðum. Dómur Hæstaréttar Dana um stjórnarskrárbrot þingsins Niðurstöðunni tekið með auðmýkt og virðingu Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. „DOMUR Hæstaréttar er sögulegur og full- komlega skýr og eindrægur fyrir okkur. Eg álít að allir þingmenn eigi að lesa hann mjög vand- lega,“ sagði Poul Nyrup Rasmussen forsætis- ráðherra Dana er hann eftir fjögurra daga um- hugsun rauf þögnina um nýlegan dóm í Hæsta- rétti Dana er gekk gegn lögum, sem þingið setti 1996. Lögunum var beint gegn skólum Tvind- samtakanna, sem eru gagnrýnd fyrir heilaþvott og vafasöm vinnubrögð. Viðbrögð Nyrups eru einkennandi fyrir við- brögð danskra stjómmálamanna við dómunum, en þau hafa einkennst af auðmýkt og virðingu fyrir Hæstarétti. Jafnframt deila menn um hver beri ábyrgðina á að lög, er dæmd voru stríða gegn stjómarskránni, skyldu fara í gegnum þingið. Niðurstaðan er almennt að þingið verði að vera sjálfstæðara gagnvart stjóminni í ákvörðunum sínum og taka ekki skoðanir henn- ar góðar og gildar athugunarlaust. Þó Nyrup væri auðmjúkur í garð Hæstarétt- ar var hann hins vegar gagnrýninn á þá þing- Þmgmenn hvattir til aö fylgja eigin samvisku í stað flokksaga menn, sem í umræðunum undanfama daga hafa reynt að þoka ábyrgðinni af löggjafarsamkund- unni yfir á embættismenn dómsmálaráðuneytis- ins. Nyrup benti eindregið á að embættismenn- irnir væru aðeins ráðunautar og minnti á að þeir hefðu í raun bent á, að hinar umræddu laga- breytingar væm umdeilanlegar. „Stjómin og Þjóðþingið bera skýra ábyrgð, sem ekki er hægt að koma yfir á nokkum embættismann," sagði Nymp. „Við stjómmálamennirnir vissum fullvel hvað við voram að gera.“ Ymsar hugmyndir hafa komið fram um það hvemig eigi að bregðast við niðurstöðum dóms- ins. Nyrap sagði hins vegar að dómurinn sýndi að kerfið væri gott eins og það væri. Hæstirétt- ur væri sjálfstæður gagnvart löggjafarvaldi og framkvæmdavaldi og sýndi með dómi sínum að hann væri fyllilega fær um að standa við það sjálfstæði. Dómurinn brýning til þingmanna Dómurinn hefur einnig þótt mikil brýning til þingmanna um að halda sjálfstæði sínu gagn- vart stjórninni og taka ekki allt gott og gilt sem þaðan komi, heldur með gagnrýnu hugarfari. Minnt hefur verið á að þingið hafi sjálfstæðu hlutverki að gegna, sem brýnt sé að það taki al- varlega. I áðurnefndu máli vora það einungis fáir þingmenn, sem tóku sjálfstæða og gagnrýna af- stöðu, meðan flestir fylgdu flokkslínunum og þeirri almennu andúð, sem er í Danmörku á Tvind-samtökunum. Málið þykir því einnig áminning um, að þótt flokkarnir leggi í mörgum málum þrýsting á þingmenn sína, eigi þeir fyrst og fremst að fylgja eigin samvisku og skoðun- um, ekki flokksaga. 14 falla í óeirðum í Indónesíu TALIÐ er að 14 manns hafi fallið í óeirðum í Indónesíu í gær á milli hópa kristinna manna og múslíma. Hermenn skutu á mannfjöldann, sem barðist með sveðjum, bensín- sprengjum og bogum og örv- um. Senda þurfti hersveitir til borgarinnar Ambon til þess að stilla til friðar. í Jakarta gi’ipu stúdentar til mótmælaaðgerða gegn stjórnvöldum eftir tveggja mánaða hlé. Oku 800 námsmenn um höfuðborgina í jeppum og langferðabifreiðum og kröfðust þess að B.J. Ha- bibie forseti segði af sér og skipaði bráðabirgðastjórn þar til gengið verður til kosninga í landinu 7. júní nk. Nýr ráðherra yfír írönsku leyniþjón- ustuna ÍRANSKA þingið hefur stað- fest tilnefningu Mohammads Khatami forseta um nýjan ráð- herra leyniþjónustumála. Áður en gengið var til atkvæða sagði Khatami að leyniþjónustan ætti að þjóna lýðræðinu og frelsinu, en ekki taka sér dómsvald og jafnvel vald böð- ulsins. Hinn nýi ráðherra, Ali Yunesi, hefur heitið því að færa starfsemi leyniþjónust- unnar til nútímalegra horfs í takt við stefnu forsetans, sem boðar lýðræðislegri stjómar- hætti í Iran. Talebanar hitta bin Lad- en að máli FULLTRÚAR stjórnar tale- bana í Afganistan hittu Osama bin Laden, sem er eftirlýstur fyrir sprengjutilræði við bandarísk sendiráð í A-Afríku, að máli nýverið að því er dag- blaðið al-Hayat greindi frá. Fundurinn er talinn merki um betri samskipti bin Ladens og talebana en stirt hefur verið á milli þeirra að undanförnu. Dagblaðið USA Today greindi frá því í gær að leyni- þjónustu Bandaríkjanna hefði tekist frá því í september sl. að koma í veg fyrir a.m.k. sjö til- ræði sem bin Laden og menn hans hefðu undirbúið gegn stofnunum í eigu Bandaríkj- anna á erlendri grandu. Ræður frá réttarhöldum yfír Rauðu kmerunum HUN Sen, forsætisráðherra Kambódíu, ítrekaði í gær þá skoðun sína að ekki skyldi draga höfuðpaura Rauðu kmeranna fyrir dómstóla vegna glæpa er framdir vora í stjórnartíð þeirra, þ.s. slík réttarhöld gætu stofnað friði og stöðugleika í landinu í hættu. Hun Sen er staddur í Japan að beiðast alþjóðlegrar fjárhagsaðstoðar, en stjórnir ýmissa landa vilja ekki aðstoða Kambódíu nema forystumenn Rauðu kmeranna verði dregnir fyrir rétt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.