Morgunblaðið - 25.02.1999, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Sextán látnir og 29 saknað eftir snjóflóðið á austurríska Alpaþorpið Galtiir
Sex manns sakn-
að til viðbótar eft-
ir nýtt snjóflóð
Landeck. Reuters.
STAÐFESTUR fjöldi látinna eftir
snjóflóðið sem féll á austurríska
skíðabæinn Galtiir á þriðjudag var í
gær kominn í 16 manns og var 29
enn saknað. Síðdegis í gær féli nýtt
snjóflóð, sem sagt var 200 m breitt
og 10 m þykkt, á fjögur hús á milli
bæjanna Galtiir og Ischgl og mun
sex manns sem í þeim dvaldi vera
saknað. Þremur var bjargað
ómeiddum, að sögn lögreglustjór-
ans á staðnum, en ein kona sem
grafín var út fönninni var látin.
Wendelin Weingartner, héraðs-
stjóri Tíról, tilkynnti nýjustu töl-
umar yfir látna og týnda í beinni út-
sendingu í austurríska sjónvarpinu.
Aðspurður, hvort satt væri að eng-
inn hefði fundizt á lífi eftir að sér-
þjálfað leitar- og björgunarlið kom
til Galtúr snemma í gær, sagði
Weingartner að það væri því miður
reyndin. „En við vonumst þrátt fýr-
ir það til að einhver kunni að vera á
lífi í rústum húsanna," sagði hann.
Austumískir fjölmiðlar greindu
frá því að börn væru meðai hinna
látnu sem og þeirra sem enn er
saknað. Lögreglan sagði fólkið sem
saknað er vera frá Þýzkalandi,
Hollandi og Danmörku.
Weingartner hafði áður skýrt frá
því að 17 manns sem lentu í fyrra
snjóflóðinu væru slasaðir, þar af sjö
eða átta alvarlega.
Bandaríkjaher sendi 10 herþyrlur
frá herflugvelli í Giebelstadt í
Þýzkalandi á vettvang í því skyni að
hjálpa til við björgunarstörf. Þýzkar
herþyrlur voru líka á leiðinni.
Ekki var fullljóst um miðjan dag í
gær hvort allir sem í Galtúr og nær-
liggjandi vetrarorlofsstöðum dveldu
yrðu fluttir á brott. Um 700 manns
eru heimilisfastir í Galtúr og talið er
að um 3.000 ferðamenn hafi verið
þar þegar samgöngur til staðarins
lömuðust vegna hinnar fádæma
miklu snjókomu sem kyngt hefur
yfir svæðið að undanfömu.
Snjóflóðið á þriðjudag féll um kl.
fjögur síðdegis, eða kl. þrjú að ís-
lenzkum tíma. Það var um 5 m
þykkt og plægði í gegn um þorpið af
gífurlegum krafti. „Þetta var ekki
snjór, þetta var eins og steypa,“
sagði hollenzkur ferðamaður í sjón-
varpsviðtali.
Viktor Klima, kanzlari Austurrik-
is, flaug til Landeck í Tíról þaðan
sem björgunaraðgerðum var stjórn-
að. Hann sagði snjóflóðavarnir í
Austurríki vera með því bezta sem
þekktist en enginn hefði getað
hindrað harmleikinn í Galtúr.
Ástandið áfram slæmt í Sviss
og Frakklandi
í Sviss hækkaði staðfest tala lát-
inna í snjóflóðum síðustu daga í níu
í gær, þegar lík fjallabónda í Uri-
sýslu var grafið úr rústum býlis
hans. Svissneska lögi'eglan greindi
frá því að leit stæði enn yfir að
þremur frösnkum ferðamönnum,
sem saknað er eftir snjóflóðið á
skíðabæinn Evolene í Wallis-sýslu á
sunnudag. Þar fórust að minnsta
kosti sjö.
Franska lögreglan sagði annan
fjallgöngumannanna tveggja, sem
bjargað var slösuðum úr Pýrenea-
fjöllum, hafa látizt á sjúkrahúsi fá-
einum tímum eftir að hann komst
undir læknishendur. Maðurinn, sem
var 26 ára, var í dái þegar hann
fannst. Konan sem var með honum
er 33 ára og var mikið kalin en er
talin munu ná sér.
Dramatísk tilraun til að finna
með þyrlu þrjá aðra fjallaferða-
menn, sem hafa hírzt í snjóhúsi í
3.000 m hæð í frönsku Ölpunum í
meira en viku, brást hins vegar í
gær.
Snjóbyljir hafa dunið hver á fæt-
ur öðrum á Vestur-Evrópu allan
þennan mánuð, hlaðið upp meira
fannfergi en elztu menn muna í Ölp-
unum og valdið óvenjulegri snjó-
flóðahrinu. Mannslífin nálgast nú
sjötta tuginn, sem þetta vetrarríki
hefur kostað, þar af um 20 í Frakk-
landi.
v
Reuters
I AUSTURRISKA vetrarorlofsbænuni Galtiir var í gær haldið áfram
Ieit að fólki sem saknað er eftir snjóflóðið á þriðjudag. Annað snjóflóð
féll á fjögur hús nærri bænum í gær.
I
• •
Um 100.000 manns innilokaðir í fjallaþorpum í svissnesku Olpunum
„Snjóflóða-
hætta á aðal-
götunni“
-segir Guðrún Berner-Vernharðsdóttir
í bænum Göschenen
úr Goms-dal í gær. Fólkið fékk
læknisaðstoð og áfallahjálp þegar
það lenti í þorpinu Fierz.
Ferðamenn voru einnig fluttir
með þyrlum frá Grindelwald. „Það
mætti halda að ég byggi við flug-
völl,“ sagði Anna Bima Fuhrer-
Michelsen, sem býr á friðsömum
stað við Interlaken á láglendinu fýr-
ir neðan Grindelwald. „Þyrltu' eru
stöðugt á ferð. Þeir sem vilja kom-
ast frá Grindelwald verða að fylgj-
ast með fréttum af ferðum í staðar-
útvarpinu. Fólk hefur fengið númer
og er flutt niður eftir þegar röðin
kemur að því. Eg heyrði til dæmis
áðan að númer 51 til 100 ættu að
vera tilbúin eftir hádegi. En það
getur breyst ef veðrið versnar og
þyrlumar geta ekki flogið.“
Aka á eigin ábyrgð
Flestir stærri vegir, sem eru lok-
aðir, eru enn færir en snjóflóða-
hættan við þá þykir of mikil til að
hafa þá opna fyrir almenna umferð.
ÞAÐ létti nægilega til í svissnesku
Ölpunum fyrripartinn í gær til að
unnt væri að flytja um 4.000 manns
með þyrlum úr fjallaþorpum sem
hafa verið einangruð í lengri eða
skemmri tíma. Fjöldi fjallvega í öll-
um hlutum landsins er ófær og leið-
ir til þekktra ferðamannastaða eins
og Davos, Kloster, Grindelwald,
Adelboden og Zermatt eru lokaðar
vegna snjóflóðahættu. Alls sitja um
100.000 manns föst í fjöllunum.
Leitarmenn fundu í gær níunda
fórnarlamb snjóflóðsins sem féll við
bæinn Evolene í kantónunni Wallis
á sunudag. Eins er enn leitað. Lík
bónda sem fórst þegar snjóflóð lenti
á húsi hans í kantónunni Uri á
mánudag fannst einnig í gær. Hann
hafði borist 300 metra með flóðinu.
Ráðamenn í Goms-dal í kantón-
unni Wallis lýstu yfir neyðarásatndi
í gær. Þorpin þar eru nú vatns- og
rafmagnslaus. Sex þyrlur, þar af
þrjár af gerðinni Super Puma, voru
til dæmis notaðar til að flytja 1304
Sr 1 jf?
m i v i L1 LL
Morgunblaðið/Guðrún Berner-Vernharðsdóttir.
FRÁ Göschenen en þar mældist snjóhæðin 2,22 metrar í gær.
Vöruflutningabílum hefur til dæmis
verið hleypt upp í Grindelwald og
Adelboden með matvæli. Bílstjór-
arnir fara þó á eigin ábyrgð. Þeir
aka með snjóflóðatæki um hálsinn
svo að það sé auðveldara að finna þá
ef þeir lenda í snjóflóði. Tækin gefa
frá sér og lesa hljóðmerki og eru
mikið notuð í Ölpunum. En vöru-
flutningabílstjórar hafa ekki notað
þau hingað til.
Það er engin snjóflóðahætta þar
sem Anna Birna býr. „Ég hef meiri
áhyggjur af því þegar allur þessi
snjór bráðnar. Það verður ekkert
grín. Þá má búast við flóðbylgju í
læknum sem rennur í gegnum bæ-
inn.“
„Rosaleg vindhviða og hávaði“
Snjóflóðahættan er meiri í
Göschenen, norðan við Gotthard-
göngin, þar sem Guði'ún Berner-
Vemharðsdóttir býr. Hún segist þó
ekki vera hrædd. „Bærinn okkar er
öruggur," sagði hún.
Guðrún var að tala við tengda-
móður sína í símann þegar snjóflóð
féll við bæinn fyrr í þessari viku.
„Þrýstingurinn var gífurlegur,“
sagði hún. „Það varð koldimmt eitt
augnablik og símasambandið rofn-
aði. Það kom rosaleg vindhviða og
mikill hávaði. Snjórinn flæddi sem
betur fer yfir óbyggt svæði og eng-
um varð meint af. Það var búist við
þessu snjóflóði og miklu fargi af
okkur létt eftir að það féll.“
„Sjáum ekki annað en snjó“
Hraðbrautin upp til Göschenen
hefur verið lokuð undanfarna daga.
Hún er ein af helstu umferðaræðun-
um milli Norðui'- og Suður-Evrópu
„Aðalgatan í gegnum þorpið er
einnig lokuð,“ sagði Guðrún. „Börn-
in hafa verið í fríi vegna snjóflóð-