Morgunblaðið - 25.02.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 29
LISTIR
LITLI indíáninn Hiawatha var
frumsköpun Charlies fyrir Disney.
Chartie's pra&enmlan
drawinfí of
Bufgf Bunny
FRUMSKISSA Charlies frá 1937 af Kalla
kanínu fyrir Warner Brothers í Hollywood.
Músin Sniffles, sem Charlie teiknaði fyrir
Warner Brothers.
CHARLIE Thorson var snillingur í þeim
„krúttlega“ stfl sem kenndur er við Disney.
BANGSADRENGURINN Punk-
inhead. Ein vinsælasta barna-
bókafígúran í Kanada á 6. ára-
tugnum.
Mjallhvítar og dverganna sjö, Litla
indíánans Hiawatha, Elmers fíls og
Oskarsverðlaunateiknimyndanna
Gamla myllan og Frændinn úr
sveitinni. í tveimur síðastnefndu
myndunum mun Charlie hafa lagt
til persónuhönnun flestra fígúranna
sem þar birtast. Vandinn við að
staðfesta höfundarverk Charlies
stafar af því að hans er hvergi getið
í höfundalista við myndirnar og hef-
ur ekki fengist önnur skýring á því
en sú að Walt Disney hafði þá
stefnu að allt sem gert var í nafni
hans var eign hans.
íslensk fyrirmynd Mjallhvítar
Charlie dró aldrei dul á andúð
sína á Disney-fyrirtækinu og sagðist
til að mynda vera höfundur persónu
Mjallhvítar, fyrirmyndin hafí verið
íslensk stúlka, Kristín Sölvadóttir,
sem dvaldi um tíma í Winnipeg og
Charlie varð heillaður af. Sagan um
hina íslensku fyrirmynd Mjallhvítar
Disneys hefur orðið býsna lífseig í
STEFÁN Þórðarson og Sigríður Stefánsdóttir frá Ásakoti í Biskups-
tungum í Winnipeg 1895. Fremstur drengjanna er Joe, þá Stephen,
Charlie og John.
íslendingabyggðum Kanada og
verður varla endanlega skorið úr
sannleiksgildi sögunnar úr þessu.
Hæpið er þó að telja það fyrir
áhrif Charlies að Disney-stíllinn varð
allsráðandi þegar líða tók á fjórða
áratuginn og aðrir framleiðendur
gáfust upp á að halda í annars konar
stfl; áhorfendur hreinlega höfnuðu
honum. Áhrif Charlies voru fremur
fólgin í því að hann kenndi mörgum í
kringum sig hvernig teikna skyldi
fígúrur í Disney-stílnum, enginn vai’
sagður betri í að teikna krúttlegar
fígúrur en hann og sérstaklega var
til þess tekið hvað honum tókst vel
að teikna tilfinningaþrungin augu.
Hjá Walt Disney var kjörorðið við
sköpun teiknifígúra á þessum
árum Hugsaðu um Krútt!
(Think Cute!) og Krúttleiki
(Cuteness) var leynt og
ljóst stefna Disneys við
gerð teiknimynda á 4. og
5. áratugnum. Charlie
hélt krúttstílnum allt til
loka ferils síns, og þótti
á endanum gamaldags,
önnur stflbrögð urðu of-
aná þegar kom fram á 6.
áratuginn.
Keeko og Punkinhead
Tími Charlies í veröld
teiknimyndanna var í rauninni
mjög stuttur, hann hóf störf hjá
Disney 1934 og sjö árum síðar var
hann hættur í bransanum, það sem
eftir lifði starfsferils hans vann
hann aðallega við myndskreytingar
barnabóka og auglýsingagerð, fyrst
í New York og síðar í Kanada.
Þekktust slíkra bóka og margverð-
launuð var sagan um indíánastrák-
inn Keeko, en frá þessum tíma eru
líka fígúrurnar Umferðarfíllinn El-
mer sem hefur kennt kanadískum
börnum umferðaiTeglurnar í nærri
50 ár og Punkinhead, bangsadreng-
urinn sem varð gríðarlega vinsæll á
sjötta áratugnum í Kanada. Jafn
furðulegt og það nú er var Charlie
Thorson ríkisfangslaus síðustu tutt-
ugu ár ævi sinnar; hann hafði fengið
KRISTIN
Sölvadóttir sem
Charlie sagði
fyrirmyndina
að Mjallhvít.
tímabundinn bandarískan rík-
isborgararétt til að fá atvinnuleyfí
hjá Disney á sínum tíma, og þegar
hann rann út var hann of stoltur til
að sækja um kanadískan ríkisborg-
ararétt að nýju. Þetta olli honum
ómældum vandræðum því fyrir vik-
ið gat hann ekki ferðast á milli
Bandaríkjanna og Kanada, hann
var hreinlega vegabréfslaus.
Charles Thorson lést í Vancouver
í Kanada 7. ágúst 1966 og lét eftir
sig einn son, Stephen, sem býr í
Winnipeg. Á legstein Charlies er
letrað: Charles Gustav Thorson
(Stefansson) 1890-1966. Here lies a
Viking.
Heimild: Cartoon Charlie eftir Gene Walsh.
Great Plains Publications, Winnipeg,
Manitoba, 1998.