Morgunblaðið - 25.02.1999, Page 39

Morgunblaðið - 25.02.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 39 UMRÆÐAN Afengisauglýsingar og almannaheill Bjórauglýsingar vöktu töluverða athygli þegar þær fóru að birt- ast í innlendum fjölmiðl- um sl. haust. Fram að því höfðu menn ekki velkst í vafa um að slík- ar auglýsingar væru bannaðar með lögum á íslandi. Skyndilega virtu innlendir bjór- framleiðendur öll bönn að vettugi og sögðu þau brjóta í bága við önnur lög um tjáningarfrelsi og frjálsa samkeppni. Nú er til meðferðar í Hæstarétti mál um það hvort ákvæði áfeng- islaga um auglýsinga- bann standist ákvæði stjómarskrár- innar. A meðan úrskurðar er beðið er ráð að rifja upp hvers vegna mörgum hrýs hugur við afleiðingum þess að leyfa áfengisauglýsingar. Áhrif auglýsinga Allir vita að auglýsingar hafa áhrif og þess vegna verja þeir sem fram- leiða og selja vöru ómældum fjármunum til þeirra. Auglýsingar hafa ekki síst áhrif á böm. Vart talandi herma þau eftir auglýsingum úr útvarpi og sjónvarpi án þess að skilja þær. Börn era einmitt sá hópur sem menn hafa mestar áhyggjur af í sambandi við áfengisauglýsingar. Til eru rannsóknir sem gefa til kynna að slíkar auglýsingar hafi áhrif á hug- myndir barna um áfengi og neyslu þess. Vömnni er komið á framfæri með skrýtlum og glansmyndum og látið líta út íyrir að neysla áfengis sé sjálfsögð og æskileg í daglegu lífi. Þau greina ekki á milli fæðu og nautnalyfs ef áfengi er auglýst rétt eins og mjólk og það getur stuðlað að því að þau byrji að neyta áfengis. Niðurstöður könnunar Rannsóknar- stofnunar uppeldis- og menntamála frá 1997 á neyslumynstri ungs fólks benda til þess að því yngri sem ung- lingar em þegar þeir byrja að neyta áfengis því alvarlegri séu vandamálin sem áfengisneyslunni fylgja þegar fram í sækir. Afengisauglýsingar vora bannaðar með lögum vegna þess að óhófleg áfengisneysla er ekki heilsusamleg og almennt álitið að auglýsingar gætu aukið almenna neyslu þess. Réttur þeirra sem fram- leiða og selja áfengi til að auglýsa vöm á ekki að ganga út yfir al- mannaheill. Framleiðendur bjórs á íslandi telja bann við áfengisauglýsingum skerðingu á manm'étt- indum, nánar tiltekið tjáningarfrelsi og frjálsri samkeppni. Þeir halda því fram að áfeng- isauglýsingar leiði ekki endilega til meiri al- mennrar áfengisneyslu en geti aukið markaðs- hlutdeild einnar tegundar á kostnað annarrar. Auglýsingamar ná hins vegar augum og eyrum miklu fleiri en þeirra sem þegar neyta áfengis, m.a. barna sem em ófær um að meta Auglýsingabann Markaðshyggja og félagsleg ábyrgð, segir Þorgerður Ragnars- dóttir, eru þau sjónar- mið sem tekist er á um. skilaboð þeirra. Verði áfengisauglýs- ingar leyfðar væri rétt að áfengis- framleiðendur öxluðu þá ábyrgð að greiða fyrir viðvömnarmerkingar á áfengi líkt og skylt er að gera við tóbak. Umheimurinn A það hefur verið bent að í upplýs- ingaheimi nútímans sé tilgangslaust að banna áfengisauglýsingar í inn- lendum miðlum því erlendir miðlar sem ná til landsins séu fullir af þeim. Islendingar horfa hins vegar miklu meira á íslenskar sjónvarpsrásir en erlendar, ef marka má fjölmiðlakönn- un Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands sl. haust. Lausleg athugun á auglýsingum í erlendum tímaritum leiddi í ljós að áfengisauglýsingar er helst að finna í tímaritum ætluðum fullorðnum með efni um mat, hátísku, hýbýli og klám. Þær er ekki að finna í tímaritum fyrir unglinga, teikni- myndablöðum eða blöðum um bíla, mótorhjól, tölvur, íþróttfr eða útivist. Afengisauglýsingar eru því ekki í þeim tímaritum sem ætla má að höfði helst til unglinga. Þeir sem vilja leyfa áfengisauglýs- ingar segja að bann við áfengis- auglýsingum sé hrein tímaskekkja og byggist á viðhorfum sem séu á hröðu undanhaldi á Vesturlöndum. Innan Evrópusambandsins (ESB) er leyfi- legt að auglýsa áfengi enda eru þar voldug ríki sem teljast meðal helstu vínræktarlanda heims. Skiljanlega vilja þessi ríki selja þjóðarframleiðslu sína, rétt eins og við viljum selja fisk. Samt em ýmis höft á áfengisauglýs- ingum í mörgum þessara landa. Á Spáni er t.d. takmarkað hvenær og hvaða áfengistegundir má auglýsa í útvarpi og sjónvarpi. I Danmörku em engar auglýsingai- í ríkisreknum fjölmiðlum. I löndum utan ESB, t.d. í Noregi, er bannað að auglýsa áfengi og í BandaiTkjunum setja mörg ríki strangar reglur um áfengisauglýs- ingar. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er heildarneysla áfengis minni og um- ferðarslys vegna ölvunaraksturs sjaldgæfari í löndum þar sem áfeng- isauglýsingar era bannaðar eða tak- markaðar en í löndum þar sem engin slík höft eru. Ábyrg vímuvamastefna Markaðshyggja og félagsleg ábyrgð era þau sjónarmið sem tekist er á um þegar aflétting banns við áfengisauglýsingum er til umræðu. Markaðsöflin sækja mjög á og fela gjaman markmið sin í fagurgala um mannréttindi. í ráðuneytum heil- brigðis- og tryggingamála og dóms- og kirkjumála er litið svo á að þar til dómur Hæstaréttar liggur fyrir sé bann við áfengisauglýsingum í fullu gildi. Hver sem niðurstaða dómsins verður væri ráð að innlendir fjölmiðl- ar mörkuðu sér skýra og ábyrga vímuvamastefnu og virtu manngildi meira en von um gróða. Höfundur er framkvæmdasljóri Áfengis- og vímuvarnaráðs. Þorgerður Ragnarsdóttir Stjórnmálamenn ráðskast með eign- ir stéttarfélaga FYRIR Alþingi ligg- ur nú frumvarp til laga þar sem bæta á rétt þeirra sem lenda í þeirri ólánsömu stöðu að eiga rétt á skaðabót- um frá tryggingafélög- unum vegna líkams- tjóns. Hér er á ferðinni mjög þarft mál og sannarlega þarft fram- tak, sem hefði þurft að framkvæma fyrir löngu. Margir hafa tekið eftir því undan- farið, að nánast enginn fær bætur frá trygg- ingafélögum án þess að höfða gegn þeim mál. Þær bætur sem svo hafa fengist em í flestum tilfellum alltof lágar. Það hefur vakið undrun og reiði margi-a, að í frumvarps- drögunum er gert ráð fyrir að ef sá einstaklingur, sem verður fyrir var- anlegu tekjutapi vegna slysa, á rétt Skaðabótalög Er eitthvað að því, spyr Guðmundur Gunnarsson, að ein- staklingur, sem lendir í slysi, geti hugsanlega fengið góðar bætur? á bótum úr lífeyrissjóði eða úr sjúkrasjóði stéttarfélags, þá skerðist réttur hans sem því nemur til skaða- bóta frá tryggingafélagi! Hér er m.ö.o. verið að hegna þeim sem sýna þá fyrirhyggju að vilja vera í stéttarfélagi. Um er að ræða uppsöfnuð laun hans, sem eru geymd í lífeyrissjóði og sjúkrasjóði. Þetta hefur m.a. verið varið af frum- varpsflytjendum með því að einstak- lingurinn geti hugsanlega fengið of- borgað. Þ.e. að þær skaðabætur sem hann fær frá tryggingafélaginu að viðbættum örorkubót- um frá lífeyrissjóði og bótum úr sjúkrasjóði geti orðið hærri en viðkomandi hafði í laun. Hagsmuna hvers er hér verið að gæta? Er eitt- hvað að því að einstak- lingur, sem lendir í slysi, geti hugsanlega • fengið góðar bætur? Það er svo einkenni- legt að það er aftur á móti talið í lagi af frum- varpsflytjendum, að standi viðkomandi utan stéttarfélags og hafi keypt sér aukatrygg- ingu, þá á ekki að draga þær bætur frá, jafnvel þó svo viðkomandi geti jafnvel feng- ið miklu meira en hann hafði í laun þegar hann var að vinna. Nú bregður svo við að nokkrir lögmenn, sem reyndar era þekktir fyrir margt annað en að vera þjakaðir af elsku til stéttarfélag- anna, hamast nú við að gefa út yfir- lýsingar um að það sé frumhlaup hjá stéttarfélögunum að mótmæla þessu. Þeir benda á að viðkomandi eigi einungis rétt á greiðslum úr þessum sjóðum stéttarfélaganna, ef þær greiðslur sem koma frá at- vinnurekanda eða úr tryggingakerf- inu eru lægri en launin voru. Hvað kemur það málinu við? Hvað kemur það öðrum við en þeim sem era í viðkomandi stéttarfélagi hvort og þá hversu mikið sá einstaklingur, sem kýs að vera í stéttarfélagi, fær úr; sjóðum þess? Það eru peningar sem' einstaklingurinn á. Ef það er að mati framvarpsflytjenda ekkert sem forkólfar stéttarfélaganna eru að verja og málið er bara framhlaup af þeirra hálfu, hvers vegna þurfa þessi ákvæði þá að vera í lögunum? Það blasir við að markmið fram- varpssemjenda og -flytjenda er að gera veru í stéttarfélagi tortryggi- lega. Markmiðið er að tryggja að það sé öragglega enginn hagur af því fyrir einstaklinginn. Höfundur er formaður Rafiðnaðar- sambands íslands. Guðmundur Gunnarsson Speaaaadi aámskeið fyrir böra framtíðarianar Ný námskeið hefjast 1. mars nk. og enn er hægt að bæta við nemendum. Skráning fer fram í síma 553 3322. Opið dagleg® fcá SdnMe&ii 9-17 ©g 27. fekiffi fcá MmMom 10-15. Á Akureyri fer skráning fram í síma 4613328. Hringdu strax í dag og gefðu baminu forskot á framtíðina. / Tilboð 4-680kIÓ nur a Þiánudi. Námskeið Framtíðarbarna, mars - maí 1999 Nemendur leggja sitt af mörkum til að bæta lífsskilyrði á jörðu. Þeir nota töflureikni til að fylgjast með fjölgun dýrategunda í útrýmingarhættu, búa til litrík línurit sem sýna hve mikinn mat og orku fólk notar og spá um heilbrigði vistkerfis jarðarinnar í framtiðinni. Hugbúnaðuryngri nemenda: Cruncher (töflureiknir) og Kid Pix Studio. Hugbúnaður eldri nemenda: Microsoft Excel (töflureiknir), Microsoft Word og Intemet Explorer (vefskoðari). 2. Ákvörðunarstaöir Til að skrá ævintýraferðir sínar til spennandi ákvörðunarstaða á borð við virk eldfjöll, brennheitar eyðimerkur, gegnblauta regnskóga, hyldýpismyrkur úthafsins og fjarlægar plánetur, setja bömin saman fræðslukynningar og heimildarkvikmyndir. Hugbúnaðuryngri nemenda: Kid Pix Studio (myndvinnsla og margmiðlun) og Storybook Weaver (sögugerð ög margmiðiun). Hugbúnaður eldri nemenda: Microsoft Powerpoint (margmiðlunarforrit) og lntemet Explorer (vefskoðari). G Hringdu strax í dag. Síminn er 553 3322 ) * Tllboðsverð gildir fyrir alla klúbbfélaga Landsbanka íslands og áskrifendur Simans Intemet. Miðað er við 3 mánaða námskeið. SÍHINNinternet FRAMTÍDARBÖRN sími 553 3322

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.