Morgunblaðið - 25.02.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 25.02.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 4$ I I I Vatnsmýrin og* flugvöllurinn í FRAMHALDI af umfjöllun Morgun- blaðsins föstudaginn 19. febrúar um byggð í Vatnsmýrinni og gerð flugvallar á landfyll- ingum í Skerjafirði, í viðtali Hjálmars Jóns- sonar við Olaf K. Niel- sen fuglafræðing, vill undirritaður koma eft- irfarandi á fx-amfæri. Flugvöllur í Skerjafirði Margar hugmyndir hafa litið dagsins ljós um uppfyllingar með- fram og við sti'endur Reykjavíkur. Hvað varðar uppfyll- ingar úti í Skex-jafirði fyrir flugvöll hafa ýmsar útfærslur sést. Þetta er gömul hugmynd að setja völlinn á grynningarnar við Löngusker og Hólma og má minna á að verk- fræðingarnir Steingrímur Her- mannsson og Guðmundur G. Þór- arinsson lögðu fram þingsályktun- artillögu um slíkan flutning 1975. Þó svo flugvöllurinn hafi í flestum þessum tillögum verið töiuvei-t frá landi hafa þær margar gert ráð fyrir svo og svo miklum fyllingum við sti'öndina þar sem flugvallar- vegurinn kemur að landi. Þær teikningar sem í gangi hafa verið í fjölmiðlum til þessa sýna slíkar fyllingar og það er því ekki nema von að menn ræði um málið á þeim nótum sem gert er í viðtali Morg- unblaðsins við Ólaf K. Nielsen. Þær tillögur sem undirritaður, í samstai'fi við Islenska aðalverk- taka, hefur verið að kynna nú und- anfarið enx frábnxgðnar þessum eldri útfærslum. Ef þær myndii- sem fylgja með prentast vel má sjá legu flugvallarins úti í Skei'jafii'ði. I tillögu okkar er ströndin látin al- veg ósnoi'tin nema þar sem flug- vallarvegui'inn liggur frá strönd- inni, á 15 til 20 metra kafla. Upp- fyllingar gerðar með þessum hætti munu því ekki „gjörbreyta fuglalífi á svæðinu" eins og skilja má í um- fjöllun blaðsins að verði raunin. Flugvöllurinn ekki gi'iðland fugla Þá bendir Örn Sig- urðsson ai’kitekt í samtali við Morgun- blaðið 20. febi'úar á að með tilkomu flugvall- ar úti í Skerjafirði yrði til ný 8 kílómeti'a strandlengja sem myndi gagnast vel öllu fuglalífi á svæð- inu og í'æðir um að hún þurfi að vera aflíðandi fyrir fuglana o.s.frv. Hér þarf ýmis- legt að árétta og leið- rétta. Örn Sigurðsson er ekki talsmaður okkar og er ekki á okkar vegum, hann er á vegum „Samtaka um betri byggð“. Útlínur flugvallarins verða mynd- aðar með hefðbundnum grjótgarði Flugvallarmál Flugmenn geta andað alveg rólega, segir Friðrik Hansen Guð- mundsson, flugvöllur sem við myndum byggja úti í Skerjafírði er ekki hugsaður sem griðland fyrir fugla. en fyllt verður milli garðanna með sjávarefni. Með tilkomu flugvall- ai-ins verður því ekki til ný 8 km strönd eins og menn leggja skiln- ing í hugtakið strönd, heldur 8 km brimvai'nargarður. Flugmenn geta andað alveg rólega, flugvöll- ur sem við myndum byggja úti í Skerjafii'ði er ekki hugsaður sem griðland fyi'ir fugla. Fuglar og rekstur flugvalla fer illa saman. Fuglar stofna öryggi flugfarþega í hættu og valda tjóni á flugvélum og víða ei'u gerðar ráðstafanir til að reka fugla bui-t frá flugvöllum. Á Reykjavíkui’flugvelli eru menn til dæmis byrjaðir að skjóta gæs- irnar sem halda til í Vatnsmýrinni á haustin. Flugvöllur í Skei’jafirði verður ekki byggður þannig að hann laði að sér fugla og í kring- um hann á ekki að verða til fjöl- skrúðugt fuglalíf. Nauthólsvíkin vatnaparadís? Ef gerður yrði flugvöllur í Skei’jafirði í anda þeiri-a tillagna sem við höfum lagt firam mun um helmingur skerjanna við Löngu- sker og Hólma fara undir malar- og grjótfyllingar. Þetta eru hins vegar ekki einu skei’in á Skei’ja- firðinum og jákvæð áhrif flugvall- ai’ins yi’ðu mikil á sjólag fyrir inn- an völlinn, þ.e. í Fossvoginum og í Nauthólsvíkinni. Það sem staðið hefur Fossvoginum fyrir þrifum og hann því ekki orðið sú vatnaparadís sem marga dreymir um er að í honum er oft svo mikil undiralda. Með tilkomu flugvallar- ins myndi undiraldan í Fossvogin- um hverfa og aðstæður til sigl- inga, sjóskíðaiðkunar og margs konar vatnasports yrði jafnvel betri í Nauthólsvíkinni en á Pollin- um á Akureyri. Við og í skjóli þessa 700 til 800 metra langa veg- ar út að flugvellinum opnast einnig möguleikar á lystibátahöfn. Þá er rétt að nefna að innsigling- axrennan sem liggur alveg við land á Álftanesi verður í engu skert og völlurinn hefur engin áhrif á siglingar skipa til hafnar í Kópavogi. Miðboi’garbyggð í Vatnsmýrinni Hvað vax-ðar ummæli Ólafs K. Nielsen um vatnsbúskap Tjarnar- innar og fuglalíf í nábýli við þétta miðborgarbyggð í Vatnsmýi’inni þarf vissulega að taka tillit til þess sem hann bendir þar á. Þetta er eitt af stóru málunum í þessu mikla dæmi sem við erum að kynna. Ef til kemur og ríki og Friðrik Hansen Guðniundsson UPPDRÁTTUR af hugmynd að flugvelli í Skerjafirði. borg ákveða að fela nýju hlutafé- lagi með breiðri eignaraðild að sjá um að byggja flugvöll í Skerjafirði og láta reisa glæsilega miðborgar- byggð í Vatnsmýrinni, þá mun það verða ein af þeim forsendum sem gengið yrði út frá að ekki yrði hreyft við vatnsstöðu Tjarnarinn- ar og lífríki hennar látið ósnortið. Eins og fram hefur komið mun þetta félag verða umsjónar- og umsýsluaðili með þessum fram- kvæmdum, félagið mun bjóða út allar framkvæmdir, bæði við gerð flugvallar og síðan byggingar- framkvæmdir í Vatnsmýrinni. Efnt verður til samkeppni um skipulag svæðisins en samkvæmt þeim skipulagshugmyndum sem við höfum lagt til grundvallar er gert ráð fyrir að stækka Tjarnar- svæðið með grænu belti sem mun liggja frá Tjörninni að Nauthóls- vík. Á þessu græna svæði yrðu Tjarnir með lækjum á milli. Við viljum fá fuglalífið og endurnar inn í þetta nýja hverfi, það gerir hverfið vistlegra og skemmtilegra. Það sem þetta hverfi hefur upp á að bjóða umfram mörg önnur hverfi hér á höfuðborgarsvæðinu er ekki síst nálægðin við Tjörnina, Öskjuhlíðina og Nauthólsvík. Þessar náttúruperlur stendur ekki til að eyðileggja, þvert á móti. Vatnsbúskapur Tjarnarinnar Væntanlega þarf að grípa til ráðstafana til að viðhalda vatns- stöðu Tjarnarinnar og verður það hluti af þeim miklu jarðvinnufram- kvæmdum sem þarna verður farið ^ í. Hvað nákvæmlega þarf að gera Uggur ekki fyrir á þessari stundu. í versta falli þarf að reka niður stálþil á nokkur hundruð eða kíló- metra kafla og ramma þannig Tjörnina inn. Til að tryggja að- streymi og endurnýjun vatns væri hægt að safna saman regnvatni af þökum og jarðvatni á svæðinu og beina því út í Tjarnirnar á græna beltinu í miðju hverfisins og þaðan rynni vatnið í Tjömina. Þetta er einn möguleiki, en til að leysaf þetta mál verða fengnir færustu sérfræðingar, verkfræðingar og náttúrufræðingar o.fl. Það verður fundin góð lausn og reynt verður að auka fuglalíf á þessu svæði ef eitthvað er. Það vitum við að eignir í hverfi þar sem verða Tjarnir með öndum og öðrum fuglum á, þær eignir munu seljast vel. Hagsmun- ir okkar sem viljum byggja þétta miðborgarbyggð í Vatnsmýrinni og þeirra sem vilja viðhalda h'fríki Tjarnarinnar fara saman. Höfundur er verkfræðingur. 4 BETRA UTLIT AUKIN VELLÍDAN SNYRTISTOFAN Gueklain Óðinsgata 1 • Sími: 562 3220 Fákafeni 9 Reykjavík Sími 568 2866 Ríkisreknir fjölmiðlar eru tímaskekkja í DAG finnst flestum eðlilegt að einstaklingar starfræki útvarps- og sjónvarpsstöðvar. Það er þó ekki langt síðan umræða fór fram um það hvort einstakling- um væri í raun treystandi fyrir þessum rekstri og afnema bæri einkaleyfi Ríkisútvarps- ins til útvarpsrekstm-s. Urðu snarpar umræður um máhð á Alþingi og mörg orð látin falla, sem fæstir vilja kannast við lengur. Þótt flestum finnist eðlilegt að einstakling- ar sinni þessari þjónustu við lands- menn nú eru rfldsreknir ljósvaka- miðlar fyrirferðramiklir á markaðn- um. Undanfarið hefur verið þó nokkur umræða um að minnka þessi umsvif ríkisins og hafa menn viðrað nokkur sjónarmið því til stuðnings. Ljóst er að þeim, sem aðhyllast rík- isrekna fjölmiðla, fer fækkandi og rök þein’a verða ávallt léttvægari eftir því sem tíminn líður og tæknin tekur stórstígari framförum. Það fyi’sta sem menn nefna er ör- yggishlutverk Ríkisútvarpsins. Öryggishlutverkið felst fyrst og fremst í því dreifikerfi sem Ríkisút- vai’pið hefur komið upp um land allt. Þetta dreifikerfi verður enn til staðar þó það verði í höndum fjálsra fjöl- miðla. Einnig er dreifi- kerfi margra fjölmiðla orðið það víðfemt að það nær til þorra lands- manna og sú skylda hvílir á þeim að sinna öryggishlutverki ef á þarf að halda. Tækni- framfarir á sviði fjar- skiptamála hafa einnig dregið úr mikilvægi út- varpssendinga á hættutímum og hægt er að miðla upplýsingum með öðrum leiðum á öruggari hátt en áð- ur. Annað sem menn nefna er menn- ingarhlutverk Ríkisútvapsins. Ég held að ríkisrekin menning sé ekki góð menning. Menningin er hvergi frjórri en í frjálsu samfélagi, sem er laus við alla miðstýringu. Það hefur líka sýnt sig með tilkomu frelsis í út- varps- og sjónvarpssendingum. Hverjum hefði dottið í hug að hægt væri að velja á milli sígildrar, klass- Ríkisrekstur Frjálsu fjölmiðlarnir, segir Björgvin Guð- mundsson, þurfa að lúta lögmálum markaðarins. ískrar, kristilegrar, léttrar eða rokk- aðrar útvarpsstöðva svo fátt eitt sé nefnt? Svo býður frjálst sjónvarp okkur uppá kvikmyndir allan sólar- hringinn, íþróttarás, kristilega rás, afþreyingarefni svo ekki séu nefnd- ar erlendu stöðvarnar með sitt fjöl- breytta úrval. Menningin býr í ein- staklingunum og þeir eiga að fá frelsi frá stjórnmálamönnum til að skapa það sem aðrir vilja sjá og heyra. Ónnur rök, sem menn tína til, er að með ríkisreknum fjölmiðlum sé lýðræðisleg umfjöllun tryggð. Ef við lítum í kringum okkur og horfum á raunveruleikann eins og hann er fellur þessi röksemd um sjálfa sig. Frjálsu fjölmiðlamir þurfa að lúta lögmálum markaðarins. Ef þeir eiga að seljast og ná eyrum og augum fólksins í landinu verða þeir að Björgvin Guðmundsson ávinna sér traust þess. Enginm-^ nennti lengur að lesa snepla stjórn- málaflokkanna, Alþýðublaðið og Þjóðviljann, sem urðu á endanum að leggja upp laupana. DV gat ekki haft Össur Skarphéðinsson lengm’ sem ritstjóra blaðs, sem auglýsti sig frjálst og óháð. Það gerði blaðið ótrúverðugt og það átti undir högg að sækja á fjölmiðlamarkaðnum. Frjálsir fjölmiðlar eru forsenda lýð- ræðislegrar umfjöllunar og ríkið verður að hverfa af þeim markaði svo einstaklingar fái aukið svigi’úm til athafna. Ríkisfjölmiðlar búa ekki við aga markaðarins. Þeir eru reknir með nauðungargjöldum hvort sem mönn- um líkar betur eða verr. Með lygum/ - og jafnvel ofbeldi, ganga innhemtu- menn Ríkisútvarpsins inn á heimili borgaranna og klófesta þá í net inn- heimtukerfis ríkisins til að standa undir rekstri stofnunarinnai’. Hinn máttlausi skattgreiðandi þarf að punga út meira en þúsund milljón- um króna í flutning Ríkissjónvarps- ins upp í Efstaleiti. Þá er ótalinn sá kostnaður sem fólst í þeirri bygg- ingu, sem kalla má risavaxinn leg- stein Ríkisútvarpsins. Gefum ein- staklingum frelsi og svigrúm til að athafna sig á fjölmiðlamarkaðnum. Gefum borgurum frelsi til að kaupa*- sér viðtæki án þess að eiga það á hættu að þau verði innsigluð af inn- heimtumönnum ríkisins. Gefum neytendum frelsi til að borga til þeirra fjölmiðla sem þeir kjósa. Rík- isreknir fjölmiðlar eru tímaskekkja. Höfundur situr í stjórn HcimdallarifL FUS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.