Morgunblaðið - 25.02.1999, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 25.02.1999, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 47 + Guðrún Krist- jánsdóttir fædd- ist á Voðmúlastöð- um í Austur-Land- eyjum 5. október 1915. Hún lést á heimili sínu, Kirkju- hvoli á Hvolsvelli, 10. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sigríð- ur Guðmundsdóttir, f. 6.5. 1880, d. 1.10. 1966, og Krislján Böðvarsson, f. 6.8. 1877, d. 14.7. 1921. Guðrún ólst upp á Voðmúlastöðum. Hún var yngst systkina sinna en þau voru 12. Atta komust til fullorðinsára, þijú dóu ung, óskírð: Þórunn, f. 4. júní 1905, d. 21. júní 1905, Guðmundur, f. 4. júní 1905, d. 23. aprfl 1964, Jón, f. 30. maí 1906, d. 26. 9. 1973, Árni Krist- inn, f. 28.4. 1909, Bóel, d. 14. september 1910, Böðvar, f. 29. febrúar 1912, Sveinn Guðleifur, f. 3. mars 1913, Marmundur, f. 14. júní 1914, d. 2. ágúst 1972. Guðrún Kristjánsdóttir lést á Kirkjuhvoli, Dvalaheimili aldraðra, Hvolsvelli, 10. febrúar sl. Hún kaus að flytja þangað, er starfsþrek tók að bila; Landeyjamai- vom hennar æskustöðvar og umhverfíð þar henni mjög kært. Þar átti hún sína æsku og var frændmörg og gjör- kunnug öllu samfélaginu. Hún var að því leytinu komin heim og þar leið henni vel. Fátt er jafn gæfu- og gleðiríkt, er hallar að kveldi ævinn- ar, en að eiga vináttu í samfylgd. Þeirrar ánægju nutum við Guðrún, hvor gagnvart hinni; oft var ekki annað en að taka upp símann og á þann hátt var bilið brúað þótt vík væri milli vina hvað fjarlægð snerti. Þannig þróuðust kynni okkar Guðrúnar, aldrei neitt óviðkomandi hvað viðkom hag hvor annarrar eða fjölskyldna okkar. Kynnin hófust er dóttir okkar hjóna, Ágústa, kynnti einkason Guðrúnar, Jónas, fyrir okkur sem tilvonandi tengdason; þau voru þá saman í tónlistarnámi. Við nánari kynni var Guðrún tíður gestur á heimili okk- ar þegar hún gaf sér tíma frá saumaskap, sem hún stundaði fyrir verslanir og venslafólk. Mér er í minni hve vel hún kunni að meta nýja saumavél, er hún eignaðist og notaði við sín störf. Hún vann einnig margskonar handavinnu, sem hún gaf mér og öðrum og bar vott um listhneigð hennar. Þegar við Guðrún vorum eitt sinn að rifja upp gamla tíma frá okkar íjölmennu æskuheimilum, var okkar sameiginlega minning, sem bar hæst, jólin heima. Það var mikil hátíð þegar húslesturinn var lesinn og gjafirnar voru nýir sokk- ar og sauðskinnsskór og eitt kerti. Margt fleira væri hægt að segja, en það verður ekki gert hér. Mildð var unnið hjá þeim eldri meðan dagur var, en tómstundim- ar líka vel notaðar er þær gáfust; þá vora allir með. Einstök gleði var að safnast að heimilisorgelinu og taka lagið, eða leggja við hest og þeysa úr hlaði í heimsókn til sveit- unganna, eða í samfylgd á manna- mót. En þessar minningar voru að- eins brot af því sem hún upplifði í æsku. Foreldrar Guðránar eignuðust tólf börn; fjögur þeirra létust á unga aldri. Árið 1921 deyr faðirinn úr lungnabólgu eftir stutta legu. Þá er Guðrán yngst, sex ára, en það elsta fimmtán. Móðir hennar sýndi mikla hetjulund við þessar aðstæð- ur; hún hélt áfram búskap að Voð- múlastöðum og byggði upp bæinn með hjálp margra góðra nágranna. Tvær fósturdætur tók hún að sér sem sínar eigin; börnin voru því tíu, er hún hafði á framfæri sínu. Uppeldissystur Guðrúnar eru Sig- ríður Guðjónsdótt- ir, f. 19. október 1925, og Unnur Helga Svava Júlíus- dóttir, f. 8. aprfl 1934. Guðrún giftist Ingimundi Guðjóns- syni. Hófu þau bú- skap á Bergþórs- hvoli en fluttust síð- ar til Selfoss. Þau skildu. Sonur þeirra er Jónas Ingimundarson, pí- anóleikari, f. 30.5. 1944. Kona hans er Ágústa Hauksdóttir, tónlistarkennari, f. 29.6. 1945. Börn þeirra eru: a) Haukur Ingi, guðfræðingur, f. 9.8. 1966. b) Gunnar Leifur, ljósmyndari, f. 16.5. 1971, kvæntur Guðrúnu Blöndal kennara, f. 1.6. 1970 og eiga þau einn son, Kristófer Örn, f. 27.9. 1998. c) Lára Krist- ín, nemi, f. 23.6. 1981. Utför Guðrúnar fór fram frá Voðmúlastöðum 20. febrúar. Mér er sagt að þessi kona hafi ver- ið virt og elskuð, alltaf brosmild og blíð og bætandi hvar sem hún fór. Guðrán giftist Ingimundi Guð- jónssyni og hófu þau búskap á Bergþórshvoli en fluttust síðar á Selfoss, þar sem þau bjuggu í nokkur ár. Þau vora nágrannar á æskudögum og fjölmennar fjöl- skyldur þehra tengdar miklum vináttuböndum. Þess naut Guðrán í ríkum mæli, þótt þeim hjónum væri ekki skapað nema að skilja. Sameiginleg var þeirra gæfa og hamingja, sonurinn Jónas. Hann erfði kosti þeirra beggja; tónlistar- hæfileika og ræktarsemi við ætt- fólk sitt, sem þessari stórfjölskyldu er svo eðlislæg. Mér er ógleymanleg samkoma á heimili okkar Hauks, er boðið var til bráðkaups Ágústu og Jónasar. Faðir minn, háaldraður, var á með- al gesta og tók hann þátt í kór- söngnum en það var sungið raddað án nokkurrar samæfingar. Kynnin voru ný fyrir mörgum, en þau hafa enst vel og lengi. Sittu þar sem söngur er í ranni, söngur er ei til hjá vondum manni. Við Haukur þökkum vináttu og kynni við látna heiðurskonu og biðjum vandamönnum hennar blessunar Guðs. Lára Böðvarsdóttir. Gunna frænka mín hefur kvatt. Hún fæddist einn haustdag á Voð- múlastöðum í Landeyjum. Þar rís Eyjafjallajökull hátt yfir sveit í austri, sú hin mikla mynd sem aldrei verður feguiri en á haust- morgnum þegar veður era kyiT. Kannski fæddist Gunna móður- systir mín á slíkum degi. Það sér ekki til hafs frá Voðmúlastöðum en rammur söngur Atlantshafsins, öldunnar á Eyjasandi, berst til eyrna sé grannt eftir hlustað, eink- um á útmánaðakvöldum þegar sól- in slær bjarma á vesturhimin og gyllir sölnað mýrgresi. Við þennan söng undiröldu útmánaðanna hefur Guðrún Kristjánsdóttir frá Voða- múlastöðum verið borin til hinstu hvíldar á fæðingarstað sínum. Ég man ekki fyrr eftir mér en að Gunna var hluti af lífi mínu. Stund- um var hún allt í einu komin, gerði sjaldan boð á undan sér, vatt sér inn í eldhús eða í fjósið og mynntist við móður mína. Þá var hún oft kát, hafði gamanyrði og bros á vöram. Brosin þau breiddu úr sér til augn- anna í glettnislegu bliki. Ég var nýorðinn læs þegar Gunna í einni af heimsóknum sínum færði mér Söguna af Albert Schweitzer. Hann var mikill maður, sagði hún, þú hefur gott af því að lesa um hann. Það vora fleiri stórmenni úr heimi vísinda og lista sem Gunna varð fyrst manna til þess að segja mér frá. Hún hafði skoðanir á þeim öllum og eyddi ekki mörgum orð- um á þá sem hanni þóttu ekki mik- ils virði. En hefði einhver listamað- ur unnið hjarta hennar var aðdáun hennai- einlæg. Aldrei heyri ég Jo- an Sutherland syngja öðravísi en mér detti hún frænka mín í hug. Og varla sé ég heldur málverk efth Kjarval án þess að hún komi upp í huga mér. Horfðu á myndirnar hans, sagði hún, þær era þess virði. Og svo bætti hún við: En hann var ákaflega sérstakur maður. Á mótunartíma unglingsáranna var Gunnu tráað fyrir mér. Vetur- inn sem ég var sextán ára var oft kátt og slegið á létt strengi í litla eldhúsinu hennar á Grettisgötu. Af kímnigáfu átti þessi móðursystir mín meira en margur hugði. Það var létt að vekja henni hlátur. En eins og augu hennar áttu skær bhk af glettni þá gátu þau einnig logað af sorg og særðu stolti, því að lund Guðránar Kristjánsdóttur var stór í sniðum. Hún unni öðram heitar en sjálfri sér, mér býður í gran að hún hafi skilið boðorðið um ná- ungakærleikann á þann veg að sér- hverjum manni bæri að fóma sér fyrir náunga sinn. Því miður hafði vandi þess boðorðs ekki valdið mér heilabrotum þennan vetur sem ég snæddi mitt daglega brauð í eld- húsinu litla á Grettisgötunni. Það hefði verið gaman að ræða inntak þess við Gunnu á meðan hún var enn í fullu fjöri og andi hennar reiðubúinn að takast á við erfiðar spurningar. I eldhúsinu hennai' var sem sé ekki bara gantast og gert að gamni sínu. Glíman við lífið var einatt upp á teningnum og fátt undan dregið. Því var það að fyrir unglinginn var ótrálega auðvelt að leita til hennar með aðsteðjandi vanda. Þegar ég á sautjánda ári tók mína fyrstu afdrifaríku ákvörð- un upp á eigin spýtur studdi Guð- rán móðursystir mín mig af djúp- um skilningi sem ég dáist að. Um leið gerði hún mér á ljúfan hátt en af fullri alvöru ljóst að ábyrgðin var mín. Fyrir þetta er ég framar öðra þakklátur þegar ég minnist Gunnu frænku minnar. Hún reynd- ist vel vaxin þeim vanda að hlúa að viðkvæmum þroska unglingsins. Af innsæi sínu vissi hún hvaðs spírar vora líklegar til að bera ávöxt og blómgast um síðir, hverjar ekki var vert að hirða frekar um. Engum gróðri var þó kippt upp með hörku þannig að af hlytust sár. Þennan fyrsta reykvíska vetur minn eignaðist ég í Guðránu Krist- jánsdóttur vin fyrir lífstíð. Hún var ekki allra, en hún bar hag þeirra sem hún unni mjög fyrir brjósti, meira en sjálfrar sín. Heimurinn fór þess á mis að hún skini eins og sólin sem glitti í bak við augun hennar bláu. En þótt fall sérhvers manns sé kannski falið í draumi hans þá mun þó heimurinn fátæk- ari án draumsins. Andartak dags- ins í dag er auðugra fyrir vonir um morgundaginn sem þá fyrst munu rætast þegar hindrunum dagsins í gær er ratt úr vegi. Þetta vissi Guðrán móðursystir mín að gilti fyrir aðra. Það fékk ég að reyna á ungum aldri. Sem títt er um marga átti hún erfitt með að lifa eftir sama lögmáli fyrir sjálfa sig. I sálu hennar yfirgnæfði djúp- ur bassi undiröldunnar frá Eyja- sandi oft tæran sópran heiðríkj- unnar sem berst frá alhvítum tindi Eyjafjallajökuls. En heiminum gaf hún mannvænlega afkomendur, mér vináttu sína og tryggð. Fyrir það geta báðir verið af hjarta þakklátir, heimurinn og ég. Ég þakka Gunnu frænku minni allar góðar stundir og hlýjan hug í minn garð og minna. Jónasi syni hennar og fjölskyldu hans votta ég samúð mína vegna fráfalls hennar. Systkinum Guðránar og fóstur- systram sendi ég einnig samúðar- kveðjur. Trausti Olafsson. GUÐRÚN KRIS TJÁNSDÓTTIR + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG EINARSDÓTTIR, Hellisgötu 33, Hafnarfirði, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 19. febrúar. Jarðsett verður frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 26. febrúar kl. 13.30. Steingrímur Atlason, Einar Steíngrímsson, Steinunn Halldórsdóttir, Atli Steingrímsson, Erla Ásdís Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, tengdasonur og afi, ANDRÉS ÓLAFSSON garðyrkjubóndi, Laugabóli, Mosfellsbæ, sem lést miðvikudaginn 17. febrúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. febrúar kl. 15.00. Valgerður Valgeirsdóttir, Ásdís Andrésdóttir, Guðjón Guðjónsson, Ólafur Andrésson, Ólafía Andrésdóttir, Sigurður Andrésson, Kolbrún Þorsteinsdóttir, Halldóra Andrésdóttir, Jón Þór Jónsson, Valgeir Sigurjónsson og barnabörn. + Eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengda- móðir og amma, SIGURÞÓRA SIGURÞÓRSDÓTTIR, Rauðafelli 1, Austur-Eyjafjöllum, verður jarðsungin frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 27. febrúar kl. 14.00. Ástþór Tryggvason, Sigurþór Skæringsson, Bergþóra Ástþórsdóttir, Ólafur Steinar Björnsson, Kristín Ástþórsdóttir, Gísli Valdimarsson, Tryggvi Ástþórsson, Ragnheiður Högnadóttir, Sigurþór Ástþórsson og barnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRLAUG ÓLAFSDÓTTIR frá Sólheimum, til heimilis í Víðihlíð, Grindavík, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugar- daginn 27. febrúar klukkan 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Slysavarnafélag íslands. Ólafur R. Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurður Sveinbjörnsson, Guðjón Sigurðsson, Guðrún Einarsdóttir, Sóley Þórlaug Sigurðardóttir, Þorgeir Reynisson, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Magnús Högnason, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ELÍSABET SIGURÐARDÓTTIR frá Bergi við Suðurlandsbraut, Grandavegi 47, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 18. febrúar sl., verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 26. febrúar kl. 15.00. Páll Þorgeirsson, Hekla Pálsdóttir, Þorgeir Pálsson, Björgvin B. B. Schram, Anna Snjólaug Haraldsdóttir, Brynjólfur Páll Schram, Sigrún Þorgeirsdóttir, Arnaldur Geir Schram, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Elísabet Þorgeirsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.