Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 49
+ Hilmar Þor-
björnsson fædd-
ist í Reykjavík 23.
október 1934. Hann
lést á heimili sínu
29. janúar síðastlið-
inn og fór útför
hans fram frá Bú-
staðakirkju 11.
febrúar.
Kveðja frá Ármenn-
ingum
Fallinn er frá fyrir
aldur fram Hilmar Þor-
bjömsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn, sá frækni íþrótta-
maður á árum áður. Hann var félagi
í Glímufélaginu Armanni og glæsi-
legur keppnismaður félagsins um
árabil. Frábærum árangi’i hans hef-
ur ekki verið skákað enn í sumum
greinum, þótt liðin séu yfir fjörutíu
ár frá því Hilmar var að verki.
Hiimar Þorbjörnsson var af sinni
kynslóð meðalmaður á hæð, snöfur-
mannlegur á velli og bjartur yfirlit-
um. Hann fór til æfinga og keppni
af fullri einurð og kappi og sem af-
reksmanna er siður taldi hann sig
eiga þar sess fremstan. Árangur
hans varð líka með þeim hætti að
halda ber á lofti fremur
en gert hefur verið
enda fótfráasti maður
þjóðarinnar og enn
þann dag í dag hefur
tímans tönn ekki tekist
að afmá spor hans í öll-
umgreinum.
A tímabili átti Hilm-
ar Þorbjörnsson Is-
landsmet í þremur
greinum samtímis, í
100 metra, 200 metra
og 300 metra hlaupum.
Tvö íslandsmet hans
standa í dag og eru í
100 metra hlaupi, 10.3
sek. sett 1957 með þáverandi tíma-
tökutækni, og í 4 x 400 metra boð-
hlaupi en Hilmar var í sveit Ar-
menninga 1958 er hljóp á íslands-
meti (3 mín.19,4 sek.) Aðrir í þeirri
boðhlaupssveit voru Dagbjartur
Stígsson, Guðmundur Lárusson og
Þórir Þorsteinsson. Þrátt fyrir
hinn gífurlega aðstöðumun til bóta
og þróun tækni við iðkun og keppni
í íþróttum standa þessi afrek enn-
þá á einföldum kvarða tímaeining-
ar og leiða hugann að því, hvað
slíkum og þvíiíkum mönnum hefði
orðið megnugt við númtíma að-
stæður.
En Hilmar Þorbjömsson keppti
ekki eingöngu á heimavelli heldur
gerði garðinn frægan víða um lönd.
Hann tók þátt í landskeppni og al-
þjóðamótum og atti kappi við bestu
hlaupara annarra þjóða. Ætla má,
að hásalir á ferli hvers íþróttamanns
séu að vinna til þátttöku á Ólympíu-
leikum. Það gerði Hilmar svo sann-
arlega og tvívegis kpppti hann þar,
fyrst í Melbourne í Ástralíu 1956 og
síðan í Rómaborg á Ítalíu árið 1960.
Segir það nokkuð um afreksmann-
inn Hilmar Þorbjömsson.
Eftir að formlegri keppni í al-
þjóðamótum Iauk kom Hilmar oft til
liðs við frjálsíþróttamenn félagsins
og tók þátt í sveita- og stigakeppni
fyrir hönd þess. Hilmar tók einnig
þátt í félagsstarfi frjálsíþrótta-
manna og sat í stjórn frjálsíþrótta-
deildar félagsins í nokkur ár. Hann
beitti sér á aðalfundum Glímufélags-
ins Armanns og var liðtækur í öðra
starfi félagsins.
Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd
aðalstjórnar Glímufélagsins Ár-
manns og annarra Ármenninga
þakka afreksmanninum og drengn-
um Ijúfa, Hilmari Þorbjömssyni,
fyrir samfylgd og félagsfestu um
áratuga skeið og hafa með atgervi
sinu vai-pað ljóma á nafn Glímufé-
lagsins Ármanns um ókomna tíð.
Fjölskyldu hans og ástvinum em
fluttar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd aðalstjómar Glímufé-
lagsins Ármanns,
Hörður Gunnarsson.
HILMAR
ÞORBJÖRNSSON
OSKAR
ÞÓRÐAR-
SON
+ Óskar Þórðarson var fædd-
ur á ísafirði 2. maí 1915.
Hann lést á Landspítalanum 12.
janúar síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Fossvogskapellu
22. janúar.
Ég vil með þessum fáu orðum
minnast frænda míns, Óskars Þórð-
arsonar, sem lést í byrjun þessa árs,
og þakka honum allar samvera-
stundirnar og stuðninginn sem hann
veitti mér í gegnum tíðina. Einnig vil
ég þakka Ingunni og börnum þeirra
Óskars fyrir hjálpsemina og vinátt-
una sem þau sýndu mér og móður
minni, Lovísu Björnsdóttur, sem lést
á síðasta ári.
Ég kynntist Óskari fyrst á mínum
unglingsárum á Seylu í Skagafirði,
þar sem hann var tíður gestur. Ósk-
ar var mikill náttúruunnandi og
hestamaður og naut þess mjög að
heimsækja ættingja og vini í Skaga-
firði. Síðar var hann einnig tíður
gestur á heimili okkai' móður minnar
á Sauðárkróki. Frændræknari mann
var vart að finna.
Ég naut gestrisni Óskars og Ing-
unnar í ferðum mínum til Reykjavík-
ur og sérstaka hlýju sýndi Öskar
mér sumarið 1973 þegar ég þurfti að
liggja á sjúkrahúsi vegna veikinda
minna. Heimsótti hann mig upp á
hvern einasta dag, strax að lokinni
sinni vinnu. Alltaf var hann kátur og
hress.
Mér er líka minnisstæð síðasta
heimsókn mín til Óskars og Ingunn-
ar í Aflagrandann sl. sumar. Þá vai’
Óskar enn við ágæta heilsu og ók
mér um alla borg. Ekki gerði ég mér
grein fyrir því þá að ég ætti ekki eft-
ir að sjá hann aftur.
Góðs frænda og vinar er sárt
saknað. Ingunni og börnum þeirra
Óskars og fjölskyldum sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur. Guð blessi
ykkur öll.
Eiður B. Guðvinsson.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við þökkum ykkur öllum
fyrir vináttu og samúð við fráfall
Magnúsar Óskarssonar
Við minnumst þeirrar virðingar sem þið
sýnduð honum í orði og verki.
Ragnheiður Jónsdóttir
Þorbjörn Magnússon
Óskar Magnússon
Hildur Magnúsdóttir
Haukur Magnússon
ogfjölskyldur.
Fjóla B. Guðnadóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STEINGRÍMS SIGURÐSSONAR,
áðurtil heimilis
í Löngumýri 18, Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólkinu á Seli fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTJÁN JÓHANNSSON
frá Syðra-Lágafelli,
Lyngbrekku 5,
Kópavogi,
er lést laugardaginn 20. febrúar, verður jarð-
sunginn frá Digraneskirkju föstudaginn
26. febrúar kl. 15.00.
Svava Sigmundsdóttir,
Jóhann M. Kristjánsson, Unnur Arnardóttir,
Margrét Kristjánsdóttir,
Borghildur J. Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
ARNÓR VALGARÐUR JÓNSSON
frá Mýrarlóni,
fyrrum bifreiðastjóri ísafirði,
sem lést á Landspítalanum fimmtudaginn 18.
febrúar, verður jarðsunginn frá Lögmanns-
hlíðarkirkju, Akureyri, mánudaginn 1. mars nk.
kl. 11.00. Minningarathöfn fer fram frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 26. febrúar kl. 10.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Inga J. Arnórsdóttir,
Jón Viðar Arnórsson,
Steinunn K. Arnórsdóttir,
Sigurður Jónas Arnórsson,
Bjargey Á. Arnórsdóttir,
Ágúst Þórður Arnórsson,
Laufey Ósk Arnórsdóttir,
Sigmundur A. Arnórsson,
Sóley Guðfinna Arnórsdóttir,
Herdís Skarphéðinsdóttir,
Sigrún Briem,
Svanur Auðunsson,
Unna Guðmundsdóttir,
Guðmundur Gunnarson,
Sigríður Guðmundsdóttir,
Þorlákur Ragnarsson,
Gunnar S. Gunnarsson
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓHANN GUÐMUNDSSON
bóndi,
Kolsholtshelli,
Villingaholtshreppi,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Borgarspítala,
að kvöldi föstudagsins 19. febrúar.
Útförin fer fram frá Villingaholtskirkju laugardaginn 27. febrúar kl. 13.30.
Rútuferð frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.00.
Gyða Oddsdóttir,
Halldór S. Jóhannsson, Brynjólfur Þ. Jóhannsson,
Guðrún Ó. Jóhannsdóttir, Dagmar Jóhannsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN AÐALHEIÐUR JÚLÍUSDÓTTIR,
sem lést á heimili sínu, Dalbæ, Dalvík, þriðju-
daginn 16. febrúar sl., verður jarðsungin frá
Dalvíkurkirkju laugardaginn 27. febrúar nk.
kl. 13.30.
Júlíus Snorrason, Aðalbjörg Árnadóttir,
Snorri Snorrason, Anna Björnsdóttir,
María Snorradóttir, Símon Ellertsson,
Ingigerður Snorradóttir, Sturla Kristjánsson,
Valdimar Snorrason, Ágústína Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okk-
ur samúð og hiýhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og bróður,
JÓNS F. ARNDAL
og vottuðu honum virðingu sína.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á 4. hæð B,
Hrafnistu Hafnarfirði, fyrir frábæra umönnun
og hlýhug. Starfsfólk Reykjalundar fær einnig
hjálp. Guð veri með ykkur öilum.
þakkir fyrir ómetanlega
Margrét Jóhannsdóttir,
Hlynur Jónsson Arndal, Auður G. Eyjólfsdóttir,
ívar Jónsson Arndal, Elín Helga Káradóttir,
afabörn og systkini.