Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 56

Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF í DAG Safnaðarstarf ✓ Afalla-, þroska- o g lífskreppur - námskeið fyrir almenning í Langholtskirkju SVALA Sigríður Thomsen, djákni, stýrir námskeiði í safnaðarheimili Langholtskirkju fostudaginn 26. febrúar kl. 18-22 og laugardaginn 27. febrúar kl. 15-19. Par verður fjallað um hinar margvíslegu tilfinn- ingar og viðbrögð við missi í sínum mörgu myndum. Má þar nefna missi vegna dauðsfalla, slysa, veik- inda, skilnaðar, atvinnuleysis- og gjaldþrota. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, hópvinnu, umræðna og slökunar, og er á vegum Reykjavík- urdeildar Rauða kross íslands. Svala Sigríður er leiðbeinandi í sál- rænni skyndihjálp hjá Rauða krossi íslands, auk þess að hafa menntun á sviði sálgæslu. Umíjöllun hennar er liður í fræðslu Langholtskirkju um líðan, viðbrögð og úrræði í áföllum, sorg og sorgarúrvinnslu. Tilgangur- inn með námskeiðinu er að virkja þátttakendur og hjálpa þeim að hjálpa öðrum til sjálfshjálpar. Námskeiðsgjaldi er haldið eins lágu og kostur er og verður aðeins 3.500 krónur. Námsgögn og hand- bók um sálræna skyndihjálp éru innifalin í verðinu. Langholtskirkja býður upp á hressingu. Upplýsingar og skráning á námskeiðið er í Lang- holtskirkju kl. 10-16 þriðjudaga til föstudaga í síma: 520 1300. Allir eru velkomnir. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14-17. Biblíulestur kl. 20.30 í safnaðarheimili Áskirkju. Jóhann- esarbréf lesin og skýrð. Árni Berg- ur Sigurbjörnsson. Bústaðakirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12. Dómkirkjan. Opið hús í safnaðar- heimilinu kl. 14-16. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun, altaris- ganga. Léttur málsverður í safnað- arheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.1 auga stormsins, kyn-ð, íhugun, bæn, lofsöngur og fræðsla. Kl. 19.30 innri íhugun. Kirkjan opn- uð kl. 19.15 til kynningar fyrir þá sem eru að koma í fyrsta skipti. Kl. 20.15 trúarreynsla - fræðsla, kl. 21 Taizé-messea. Langholtskirkja. Opið hús fyrir for- eldra yngri barna kl. 10-12. Passíu- sálmalestur og bænastund kl. 18. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel frá kl. 12. Léttur málsverður að stundinni lokinni. Selfjarnarneskirkja. Starf fyrir 9-10 ára böm kl. 17-18.15. Passíu- sálmalestur kl. 12.30. Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Fræðsluerindi í prófastsdæminu fyrir almenning sem verða í Selja- kirkju í febrúar og marsmánuði á fimmtudögum kl. 20.30 og munu fjalla um: Táknmál kirkjunnar. Sr. Guðmundur Þorsteinsson dómpró- fastur flytur erindið í kvöld sem nefnist: „Skím og ferming". Um- ræður um efnið og kaffi á eftir. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn á föstudögum kl. 10-12. Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12 í umsjá Fjólu Grímsdóttur og Bjargar Geirdal. Leikfimi aldr- aðra kl. 11.15. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Bænarefnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar, einnig má setja bænarefni í bæna- kassa í anddyri kirkjunnar. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11-12 árakl. 17. Grafarvogskirkja. Mömmumorgn- ar kl. 10-12. Áhugaverðir fyrirlestr- ar, létt spjall og kaffi og djús fyrir börnin. Kyrrðarstundir í hádegi kl. 12.10. Léttur hádegisverður. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. St- arf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf eldri borg- ara í dag kl. 14-16 í safnaðarheimil- inu Borgum. Kyrrðar- og bæna- stund í dag kl. 18. Fyrirbænaefnum má koma til prests eða kirkjuvarð- ar. Seljakirkja. Fundur KFUM fyrir 9-12 ára stráka er í dag kl. 17.30. Fræðslukvöld kl. 20.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára börn frá kl. 17-18.30 I safnaðarheimilinu, Linnetsstíg 6. Æskulýðsfundur kl. 20-22. Hafnarfjarðarkirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar- höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára ki. 17-18.30 í Vonarhöfn. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bibl- íulestur kl. 21. Víðistaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára börn kl. 17-18.30. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl. 16-18. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Fræðslustund í Kirkjulundi kl. 17.30-18.30. Elín Sigrún Jónsdóttir hdl., forstöðu- maður Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna, flytur erindi þar sem hún kynnir starfsemi stofnunarinn- ar og fjallar um fjármál heimilanna almennt. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 14.30 helgistund á sjúkrahúsinu, dagstofunni 2. hæð. Kl. 17 TTT- starf 10-12 ára krakka. Leikþáttur- inn æfður. Kl. 20.30 opið hús ung- linga í KFUM & K húsinu. Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 lof- gjörðarsamkoma í umsjá systr- anna. - Gœðavara Gjafavara — matar oy kaffislell. Allir verðflokkar. . Heimsfræqir hönnuóir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. VELVAKAMH Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Mannréttindi - samviskubit ÞEGAR dóttir mín var 10-12 ára var mikili hræðsluáróður um reyk- ingar í gangi í skólanum hennar og ég man hve hrædd hún var um að ég myndi deyja bráðlega. Eg sé ekki tilganginn í því að koma svona ótta inn hjá börnum. I Morgunblaðinu 11. febrúar er auglýsing sem á að vara fólk við skaðsemi reykinga gagnvart ófædd- um börnum, en hún segir líka fólki sem hefur reykt og átt hefur börn með þessi einkenni og þau jafn- vel dáið, að það sé þeirra sök. Hvernig haldið þið að foreldrum líði með það? Að alhæfa svona hluti er mik- ill ábyi’gðarhlutur. For- eldrar reyna alltaf að kenna sér um ef eitthvað er að börnunum þeirra og þarna er komið með stað- festingu á því. En málið er ekki svona einfalt því þó að foreldrar reyki ekki þá koma þessi tilfeUi samt upp. Aðgát skal höfð I nær- veru sálar. Valdið er mikið og það er líka ábyrgð sem fylgir valdi. Það er misjafnt eftir fólki hvernig það notfærii- sér það. Tekur það tillit til allra eða er það bara ein- hver einstefna sem ræður? Reykingafólk - reyklaust fólk. Eiga báðir hóparnir sinn rétt eða bara annar? Sunnudaginn 7. febrúar er grein í Velvakanda þar sem Þorgrímur Þráinsson svai-ar Laufeyju, en ég skrifaði gi'ein miðvikudag- inn 3. febrúar og óskaði eftir svai-i frá Tóbaksvarn- arnefnd eða heiibrigðisráð- heira, en hef ekkert svar fengið. I greininni til Lauf- eyjar skrifar hann: „Fólk skilgreinir mannréttindi augljóslega á ólíka vegu - hættir til að vera með eigin hagsmuni í huga í stað heildarinnar." Eg hélt að skilgreining á mannrétt- indum væri sú að allir hefðu sama rétt, t.d. til vinnu, náms, o.fl. og það væri einstaklingurinn sem skipti máli, óháð því hvort hann reykir, er sjónskert- ur, hraustur eða reyklaus. Einnig skrifar hann: „Eg þekki ekki einn einasta reykingamann sem vill skaða aðra ...“ ... og það geri ég ekki heldur, og ennfremur „... og sjón- deildarhringur þeirra virð- ist ekki ná út fyrir eigin reykjarmökk." Eg þekki heldur ekki neinn reyk- ingamann sem vill vera háður reykingum og veit um mai'ga sem árangurs- laust hafa reynt að hætta en ekki tekist. Ennfremur segir: „Markmið laga um tóbaks- varnir eru að draga úr tó- baksneyslu og þar með því heilsutjóni sem hún veldur og vernda fólk fyrir áhrif- um tóbaksreyks." Mér finnst málefnið gott, en að- ferðin til að ná markmið- inu mjög slæm. Fjórði hver Islendingur reykir, tekjur af sölu tó- baks er 5 mflljarðar á ári. Rúmlega 30 millj. er veitt tH tóbaksverndar. Tóbak er ávanabindandi. Notum fjármunina af sölu tóbaks betui'. Eg hef verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi ekki að fara í mál við ríkið vegna þess að ég er háð reykingum. Ef ekki hefði verið svona auðvelt fyrir mig að nálgast tóbakið á sínum tíma hefði ég trú- lega aldrei byrjað að reykja. Gott væri að Tó- baksvarnarnefnd og heil- brigðisráðherra gætu lesið grein mína frá 3. febrúar og ég fengi skýr svör við báðum greinunum. Stína. Óhagstæð lán I janúai' ‘94 flutti ég í hús og tók 5 millj. kr. lán. Af því láni er ég búin að greiða 2,9 millj. á þessum stutta tíma sem ég hef bú- ið í húsinu. Það er aHtaf verið að tala um að það sé engin verðbólga og vextir séu aðeins 6%. Hvernig stendur þá á því að lánið stendm- í stað, ég skulda jafnmikið nú af þessu láni og fyrir 5 árum síðan? Lántaki. Tapað/fundið Höfuðband úr minka- skinni týndist Á bílastæði í Hjallalandi í Fossvogi týndist um sl. helgi höfuðband úr minka- skinni. Finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 581 4258. Fundarlaun. Lyklakippa í óskilum LYKLAKII’PA fannst við Armúla 27. Á kippunni eru húslyklar og Toyotu-lykill. Upplýsingar hjá húsverði eða i síma 550 6432. íþróttaföt týndust KRINGUM helgina 6. febrúar týndist úr bíl svartur Everlast-nælon- poki með handklæði og rauðum og hvítum Manchester United-bún- ingi, merktum Árni Tómas, líklega í Tjarnar- götu eða við SkautasveUið í Laugardal. Finnandi vin- samlegast látið vita í sima 893-4416 eða 565-6224. Brúnt kvenveski týndist BRÚNT kvenveski týndist í íþróttahúsi Bessastaða- hrepps sl. laugardag. Finnandi hafi samband í síma 565 0836. Gleraugu í óskilum GLERAUGU, svört hálf- gleraugu, sterk, fundust 19. febrúar á gangbraut- inni meðfram Kilnglumýr- arbraut, Álftamýrarmegin. Upplýsingar í síma 552 5887. Gleraugu týndust GLERAUGU með dökkri umgjörð týndust í síðustu viku, líklega á milli Perlunnar og Kringlunnar. Finnandi hafi samband í síma 557 9096. Dýrahald Kettlingur óskar eftir heimili LJÓSBRÚNN högni, eld- fjöragur, 10-11 vikna, ósk- ar eftir góðu heimili. Upp- lýsingar í síma 588 5930. SKÁK llniNjúii Margeii' Pétursson Staðan kom upp á stór- mótinu í Linares sem nú stendur yfir. Michael Ad- ams (2.715), Englandi, hafði hvítt og átti leik gegn Peter Leko (2.690), Ung- verjalandi. 20. Rxh6+! - gxh6 21. Rg4! (Svartur hefur líklega aðeins reiknað með 21. Dxf6 - Bg7 en þá tapar hvítur) 21. - Rxg4 22. Dxg4+ - Kh7 23. Df5+ - Kg8 24. Df6 - Kh7 25. Dh8+ - Kg6 26. h5+ og svartur gafst upp því hann er óverj- andi mát. Mótið í Linares hef- ur farið býsna rólega af stað. I þremur fyrstu umferðunum hafa aðeins tvær skák- ir unnist en tíu lyktað með jafntefli. Ka- sparov vann Ivantsjúk í annam umferð, en gerði jafntefli við An- and í þeirri þriðju. Staðan: 1.-2. Kasparov og Adams 2 v., 3.-6. Svidler, Topalov, An- and og Krmanik 1 !4 v., 7.-8. fvantsjúk og Leko 1 v. Hvítur leikur og vinnur Víkveiji skrifar... ATHYGLISVERÐ grein birtist í Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum um gömlu kirkj- una á Stöðvarfirði sem hefur verið afhelguð og þjónar nú sem sumar- bústaður fyrir eigendur og gistiað- staða fyrir ferðamenn. Ekki er ólík- legt að ýmsum, sem eiga minningar tengdar stað og kirkju, finnist illa komið fyrir gömlu kirkjunni þeirra. Skrifari er ekki á þeirri skoðun og finnst þessi nýting gott dæmi um „verndun með notkun“ eins og tal- að er um meðal húsfriðunarfólks. Reyndar hefur verið fróðlegt að fylgjast að undanförnu með krafti í uppbyggingu ferðaþjónustu á Austurlandi og samvinnu sveitarfé- laga, einstaklinga og fyrirtækja um skipulagningu og markaðsmál. Stofnuð hafa verið samtök aðila í þessari ört vaxandi atvinnugrein og virðast þau fara vel af stað. Ekki veitir Áustfirðingum af öllum vaxtarbroddum sem þeir geta fengið inn í atvinnulífið og sannar- lega á ferðaþjónusta að geta blómstrað í þessum fallega og veð- ursæla fjórðungi. TÆKNI og tímar breytast og í umræðu um ný hlutverk gam- alla bygginga hefur skrifari heyrt talað um að nýta gamlar vita- byggingar, sem hætt er að nota til að leiðbeina sjófarendum, sem án- ingarstaði eða söfn fyrir ferða- fólk. Áður var minnst á kirkjuna á Stöðvarfirði og í þessu sambandi má nefna að gamla kirkjan í Grindavík er notuð sem barna- heimili. Einhvem tímann heyrði skrifari talað um að gera mætti öðruvísi og eftirminnilegan veitingastað í Hegningarhúsinu við Skólavörðu- stíg. Það hús er reyndar enn í notkun, en að því hlýtur að koma að það svari ekki kröfum tímans um fangelsi. Möguleikar í þessum efnum virðast óþrjótandi og svo eitt sé tekið til viðbótar þá má spyrja hverjum hefði dottið það í hug á síðari hluta átjándu aldar að í nýja tukthúsinu, sem þá var verið að ljúka við að byggja, yrði einhvern tímann aðsetur forsætisráðherra Islands. ALLT of algengt er að seint sé svarað í síma hjá ýmsum opin- beram stofnunum og stórfyrir- tækjum. Slíkt getur vissulega kom- ið fyrir á bestu bæjum, en er sem betur fer yfirleitt eitthvað til- fallandi. Undanfarið hefur skrifari ítrekað heyrt kvartað yfir erfiðleik- um við að ná sambandi á annatíma á virkum dögum við upplýsinga- síma Landssímans. Reyndar hefur hann lent í því sjálfur að hringir út þegar leitað er aðstoðar stúlkn- anna í 118, sem þó eru hver annarri liprari þegar samband næst. Á mánudag þurfti einn af kunn- ingjum Víkverja að fá upplýsingar um símanúmer og það var ekki fyrr en í þriðju tilraun að hann náði sambandi. Það rétt hvarflaði að kunningjanum hvort stúlkurnar á hinum enda línunnar vissu erindið því hann vantaði upplýsingar um símanúmer í þjónustuveri Tals! Það leiðir aftur hugann að því hvers vegna í ósköpunum ekki er hægt að hafa öll símanúmer á Is- landi í einni skrá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.