Morgunblaðið - 25.02.1999, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
>
>
Itölsk
tónlist-
arhátíð
hafín
►FRANSKA ofurfyrirsæt-
an Laetitia Casta er kynnir
á San Remo tónlistarhátíð-
inni á Italiu sem hófst sl.
þriðjudag-. Hátíðin er ein-
göngu ætluð ftölskum
söngvurum og hér sést
ítalinn Fabio Fazio kyssa
hönd Laetitiu við setningu
hátíðarinnar.
Stevie heiðraður
fyrir mannúðarstörf
►SÖNGVARINN vinsæli Stevie Wonder tók lagið er hann var
heiðraður sem MusiCare-einstaklingur ársins fyrir störf sín í
þágu mannkyns. Verðlaunin voru veitt við kvöldverð Banda-
rísku tónlistarakademíunnar, sem er hluti af Grammy-verð-
launahátiðinni. Stevie mætti til athafnarinnar, sem haldin var sl.
mánudag, með eiginkonu sinni Lulu Hardaway og elstu dóttur
sinni Aishu.
15 - Charlie Big Potato Skrnk flitansío
25 - It's Over Now Neve
Kvikmyndaði
sjálfan sig á 20
stefnumótum
MYLES Berkowitz hefur ekki
átt sjö dagana sæla sem leikari,
leikstjóri, handritshöfundur eða
jafnvel sem þjónn. Að auki hef-
ur ástarlíf hans verið álika líf-
legt og vúlkanans Spock úr
Star Trek.
Þegar Myles vaknaði upp við
þá hörmulegu staðreynd að líf
sitt væri misheppnað fékk hann
hugmynd. Því ekki að sameina
tvo misheppnuðustu þætti lífs
síns, ástir og kvikmyndaferil,
og gera úr því kvikmynd?
Myles, sem hefur verið hafn-
að margoft, bæði af konum og
kvikmyndafrömuðum, ákvað að
fara á 20 stefnumót, taka þau
upp á myndband og gera úr því
kvikmynd. Hér átti ekki að vera
um neina Holywoodmynd að
ræða heldur kaldhæðnislega
sögu ungs manns sem á lítilli
velgengni að fagna.
En allt fór á annan veg en My-
les hafði ráðgert. Umboðsmaður
Myles fékk framleiðandann Elie
Samaha til að styrlya gerð
myndariimar en það þýddi að
breyta þurfti handritinu. Elie
vildi kynli'f, bijóstagóðar konur
og mikið af nektaratriðum á
meðan Myles vildi draga upp
raunsæja mynd af ástarlífi sínu.
HÉR sjást Myles Berkowitz og Elísabet
Wagner í einu atriði myndarinnar „Tuttugu
stefnumót“ sem Myles leikstýrir. Myndin
fjallar um leit manns að ástinni.
Þegar Myles sýndi
Elie það sem hann
hafði tekið upp sagði
hinn síðamefndi
furðu lostinn að það
gæti ekki verið að
neinn væri svona
klaufskur við hitt
kynið en stefnumótin
vora hvert öðra
verra. Tvær kvenn-
anna kærðu haim
þegar þær komust að
því að stefnumótið
hefði verið kvikmynd-
að. Öðrum tókst að
gera hann að algeru
fífli. En ein þeirra
átti eftir að breyta lífi
Myles verulega.
„Ég hitti drauma-
konuna og ætlaði í
byrjun aðeins að búa
til gamanmynd um stefnumót
en allt í einu var ég fariim að
kvikmynda rómantíska gaman-
sögu sem er auk þess raunveru-
leg,“ sagði Myles. „Svo ótrúlega
vildi til að Elísabet samþykkti
að fara út með mér og enn
ótrúlegra var að hún kunni vel
við mig og á augabragði urðum
við ástfangin og það besta er að
þetta er allt til á myndbandi!“
Myndin verður tekin til sýn-
inga í kvikmyndahúsum vestan-
hafs 26. febrúar og enn gleði-
legra er að Myles og unnusta
hans Elísabet munu gifta sig í
október næstkomandi. „Ég var
viss um að útkoman úr þessu
öllu saman yrði skemmtileg en
ég bjóst aldrei við þessu. Þetta
er nokkurs konar Hollywood-
endir.“
Ný heimildarmynd
Sýningar
í febrúar og mars
Aoa!sams)£ffsaðili Landsbanki Islands
DIVING
Rui Horta
FLAT SPACE MOVING
Rui Horta
KÆRA LÓLÓ
Hllf Svavarsdöttir
DV um Space Moving
Spennandi áhorf frá
upphafi tit enda."
Morgunblaðið um Diving
J
Fæðubótarefni
frá Davina
powef
Gæða prótein-
amínósýrur
Króm 1600 ug
Kreatin 100 gr-500 gr
L-carnitine 500 mg
ofl. ofl.
Kynning og ráðgjöf í Ingólfsapóteki, Kringlunni
föstudag 26/2 kl. 13-17 og laugardag 27/2 kl. 13-16.
Umboðsaðili: CETUS, Skipholt 50c, Reykjavík
MYNDBÖND
N áttúran
og Disney
Bambi
(Bambi)
Tciknimyiiil
Framleiðsla: Walt Disney. Leikstjórn:
David Hand. Handrit: Perce Pearce.
Tónlist: Frank Churchill og Edward
Plumb. 70 min. Bandarísk. Sam
myndbönd, febrúar 1999. Öllum
leyfð.
NÚ HEFUR „Bambi“, eitt af
frægustu og fyrstu meistaraverk-
um Disney-fyrirtækisins, verið gef-
ið út á myndbandi með íslensku
tali. Myndin ber
augljós elli-
merld, því hún
er mjög ólík því
fastmótaða
formi sem
teiknimyndfr í
fullri lengd hafa
lengst af fylgt.
Sagan er til-
tölulega raunsæisleg frásögn af
hjartarkálfí sem fæðist fallegan
vordag, vex úr grasi, kynnist
hörðum heimi, eldist og þroskast,
uns hann stendur sjálfur í sporum
fóðurins. Þetta er ekki ævintýri
eins og flestar aðrar teiknimyndir,
þótt dýrin í skóginum tali manna-
mál. Það er sláandi að sjá hug-
myndafræðileg heljarstökk sem
vestræn menning hefur tekið síð-
an 1942, því boðskapur myndar-
innar er ótrúlega gamaldags og
úreltur. Myndin er eigi að síður
afskaplega falleg og eftirminnileg,
enda mörg atriði hennar fræg fyr-
ir að sitja lengi fyrir hugskots-
sjónum áhorfenda.
Guðmundur Ásgeirsson