Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 64. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ofgahópur hótar að hefna morðs Belfast. Reuters. Meðlimir framkvæmdastjórnar ESB vilja að ný stjórn verði mynduð án tafar Segjast ekki taka fleiri HNATTFLUGSTILRAUNIN Reuters KOSOVO-Albanar við jarðsetningu fjögurra íbúa þorpsins Grajkovac í gær. Þeir fundust látnir í nálægum skógi fyrir þremur dögum. Ekkert lát var á átökum serbneskra öryggissveita og albanskra aðskilnaðar- sinna í gær og um 7.000 manns flúðu þorp í suðurhluta héraðsins vegna árása Serba. Sáttasemjarar segja Serba neita að semja París. Reuters. SÁTTASE MJARAR Tengslahóps- ins svokallaða í viðræðunum um frið í Kosovo sögðu í gær að Serbar hefðu neitað að semja um að koma áætlun um sjálfstjórn héraðsins í framkvæmd og ekkert benti til þess að viðræðurnar bæru árangur. Bandaríkjamenn sögðust hafa mikl- ar áhyggjur af liðsflutningum Júgó- slavíuhers til Kosovo og sökuðu Serba um að undirbúa stríð við Atl- antshafsbandalagið. Aðalsáttasemjarinn í viðræðunum í París, bandaríski sendiherrann Chris Hill, sagði að fulltrúar Kosovo- Albana myndu undirrita sjálfstjóm- aráætlunina áður en viðræðunum lyki. „Ég vil ekki spá því hvaða dag en það verður mjög bráðlega." Hill kvaðst hins vegar ekki telja að Serbar myndu samþykkja áætl- unina. Rússneski sáttasemjarinn Borís Majorskí sagði þó að reynt yrði til þrautar að leysa deiluna. Milan Milutinovic, forseti Serbíu, sakaði sáttasemjarana um að reyna að knýja fram lausn á deilunni um framtíð Kosovo „með svikum“. Sáttasemjarar Tengslahópsins afhentu fulltrúum Júgóslavíu skrif- legt svar við kröfum Serba um 20 breytingar á áætluninni um sjálf- stjórn Kosovo. í svarinu var öllum efnislegum breytingum hafnað og aðeins léð máls á nokkrum „tækni- legum lagfæringum“. Að sögn serbneskra og vestrænna heimild- armanna héldu Serbar kröfum sín- um til streitu. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið sakaði stjórnvöld í Belgrad um að hafa sent 30-39.000 hermenn til Kosovo og staða nálægt héraðinu til að „búa sig undir stríð“. James Steinberg, aðstoðarþjóðaröryggis- ráðgjafi Bandaríkjanna, sagði liðs- flutningana mikið áhyggjuefni. Drápin í Racak „glæpur gegn mannkyninu" Finnski meinafræðingurinn Hel- ena Ranta kynnti í gær skýrslu um drápin á 40 albönskum íbúum þorpsins Racak í janúar og lýsti þeim sem „glæpi gegn mannkyn- inu“. Hún neitaði hins vegar að full- yrða nokkuð um hvort serbneskir lögreglumenn hefðu verið að verki. William Walker, yfii-maður al- þjóðlegu eftirlitssveitanna í Kosovo, lýsti drápunum sem fjöldamorði þegar lík Albananna fundust. Dráp- in urðu til . þess að Atlantshafs- bandalagið hótaði árásum á serbnesk skotmörk og friðarviðræð- urnar hófust. EIN af skæraliðahreyfingum mót- mælenda á Norður-írlandi stefndi friðaramleitunum í frekari hættu í gærkvöldi með því að hóta að hefna morðs á fyrrverandi skæruliða, Frankie Curry, sem var sleppt úr fangelsi á mánudag. Curry var skotinn til bana í Belfast í gær. Skæruliðahreyfmgin Verðir Rauðu handarinnar, sem myrti þekktan kaþólskan lögfræðing á mánudag, kenndi öðram öfgahópi mótmælenda, Sjálfboðaliðasveit Ul- ster (UVF), um tilræðið. Hreyfingin kvaðst ætla að hefna Curry með árásum á nokkra forystumenn UVF. pólitískar ákvarðanir Brussel. Reuters. FULLTRÚARNIR tuttugu í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB), sem sagði öll af sér á mánudagskvöld, sögðust í gær ekki ætla að taka fleiri pólitískar ákvarðanir og hvöttu til þess að ný fram- kvæmdastjórn yrði mynduð eins fljótt og auðið væri. Stjórnarmennirn- ir, sem eiga að starfa áfram til bráðabirgða, sögðu í yfirlýsingu að þeir hefðu ekki hug á að gegna embættum sínum lengur en nauðsynlegt væri. Þeir hvöttu til þess að eftirmenn sínir yrðu skipaðir sem fyrst og sögðust hafa ákveðið að gegna skyldustörfum sínum „á takmarkaðan hátt“ og takast aðeins á við brýnustu úrlausnarefni. Meðlimir framkvæmdastjórnar- innar bentu þó á að stofnsáttmáli Evrópusambandsins kvæði á um að þeir yrðu að gegna störfum sínum þar til ný stjórn yrði mynduð. Deilt um hvenær tilnefna eigi eftirmann Santers Ráðamenn í aðildarríkjum Evr- ópusambandsins héldu áfram til- raunum sínum til að ná samkomu- lagi um lausn vandans. Nokkrir þeirra hvöttu til þess að eftirmaður Jacques Santers, forseta fram- kvæmdastjórnarinnar, yrði til- nefndur á leiðtogafundi ESB-ríkj- anna í Berlín á miðvikudag. Pierre Moscovici, Evrópumálaráðherra Frakklands, sagði hins vegar að ekki væri ráðlegt að taka ákvörðun í málinu þá þar sem leiðtogarnir myndu eiga fullt í fangi með að leysa ágreining ríkjanna um upp- stokkun á fjármálum sambandsins og umbætur á landbúnaðarstyrkja- kerfinu. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands og starfandi formaður ráðherraráðs ESB, hélt áfram ferð sinni milli höfuðborga ESB-ríkj- anna tfi að tryggja að afsögn fram- kvæmdastjórnarinnar kæmi ekki í veg fyrir að árangur næðist í hinum erfiðu úrlausnarefnum leiðtoga- fundarins. Talsmaður þýsku stjórnarinnar sagði að Schröder vildi að eftirmað- ur Santers yrði tilnefndur fyrir leið- togafund ESB í Köln 4. júní, en Þjóðverjar láta af formennsku í ráð- herraráðinu í lok þess mánaðar. Hugsanlegt væri að efnt vrði til aukaleiðtogafundar um málið fyi'ir þann tíma. Tekur Prodi við af Santers? Romano Prodi, fyrrverandi for- sætisráðherra Ítalíu, virtist í gær vera iíklegastur til að verða fyrir valinu sem eftirmaður Santers, en nokkrir aðrir hafa verið nefndir, svo sem Javier Solana, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, og Antonio Guterres, forsætisráðherra Portúgals. ■ Þjóðverjar reyna/22 Verkfall í Færeyjum Þórshöfn. Morgunblaðið. VIÐTÆKT verkfall hefur skollið á í Færeyjum þar sem stærsta stéttar- félag landsins, Starfsmannafélagið, og færeyska landstjórnin hafa ekki náð samkomulagi í launadeilu sinni. Allar opinberar skrifstofur eru lokaðar vegna verkfallsins og starf- semi landstjórnarinnar hefur því lamast. Ferjur í eigu ríkisins sigla ekki lengur milli eyjanna og útvarp- ið hefur hætt útsendingum, þannig að Færeyingar geta ekki hlýtt á fréttir um samningaviðræðurnar. Sáttasemjarar hafa lagt fram miðlunartillögu um að launin verði hækkuð um 2% á næsta ári en Karsten Hansen fjármálaráðherra hefur hafnað henni á þeirri for- sendu að launahækkunin geti rask- að efnahagslegum stöðugleika í Færeyjum. Starfsmannafélagið krefst þess hins vegar að launin verði hækkuð um meira en 2% og bendir á að lög- þingið hefur ákveðið að hækka laun þingmanna um 50%. Eiga aðeins Atlants- hafið eftir Genf. Reuters. BELGFARIÐ Breitling Orbiter var komið yfir Karíbahaf í gær- kvöldi og belgfararnir þurfa nú aðeins að komast yfir Atlantshaf- ið til að verða fyrstir til að fljúga f loftbelg umhverfís jörðina án viðkomu á leiðinni. Talsmenn stjórnstöðvar belg- farsins í Genf sögðust þó hafa áhyggjur af því að talsvert hefði gengið á eldsneytisbirgðir þess síðasta sólarhringinn. Belgfai’- arnir virtust einnig að niðurlot- um komnir þegar rætt var við þá fyrr um daginn enda hafa þeir lent í ýmsum erfiðleikum síðustu daga. Hitakerfi farsins bilaði og kalt hefur verið í háloftunum sem reynir á þrek belgfaranna. Belgfararnir, Svisslendingur- inn Bertrand Piccard og Bret- Heimild: Breitling Orbiter-3 inn Brian Jones, voru í gær- kvöldi yfir Mexíkóflóa og ef allt fer að óskum svífa þeir yfir marklínuna í Máritaníu klukkan 18 að íslenskum tíma á laugar- dag. Svissneska belgfarið Breitling Orbiter-3 var í gær komið yfir Karibahaf og hafði lagt rúmlega 33.000 kílómetra að baki. Belgfarið átti aðeins eftir um fjórðung leiðarinnar umhverfis hnöttinn. Hæð: 11.000 metrar Hraði: 72 km/klst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.