Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Tilraunadómstóll fyrir minniháttar afbrot á Manhatt; Dómarar gerðir át fyrir lausn vandai ÞENSLUMERKI í GÓÐÆRINU VAXANDI þensla er mesta vandamálið í efnahagslífinu um þessar mundir að mati Þjóðhagsstofnunar. Leggur hún til, að stjórnvöld slái á eftirspurn til að koma í veg fyr- ir röskun á efnahagslegu jafnvægi og dragi úr vexti þjóð- arútgjalda til að koma á jöfnuði í utanríkisviðskiptum. Þetta mat Þjóðhagsstofnunar fylgir í kjölfar viðvarana Seðlabankans í síðasta mánuði um útlánaþenslu í banka- kerfinu og aðhaldsaðgerða af hálfu bankans. Þá benti sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á það í febrúarbyrj- un, að nægilegt aðhald skorti í ríkisfjármálum og á nauð- syn þess, að tekjuauki ríkissjóðs umfram fjárlög komi fram í auknum tekjuafgangi en verði ekki jafnóðum varið til aukinna ríkisútgjalda. Þjóðhagsstofnun spáir því nú, að verðbólga á árinu 1999 verði 2,5%, sem er umtalsvert meira en verið hefur undan- farin tvö ár, þegar hún var 1,7-1,8%. í sumum viðskipta- löndum okkar er verðbólgan mun minni. Þá gerir stofnunin ráð fyrir, að viðskiptahallinn verði áfram mjög mikill, eða um 28 milljarðar króna í ár. Slíkt leiðir til erlendrar skuldasöfnunar þjóðarbúsins og telur Þjóðhagsstofnun, að í árslok nálgist skuldirnar helming landsframleiðslunnar. Þá gerir stofnunin ráð fyrir, að hagnaður atvinnuveganna lækki úr 3,2% af rekstrartekjum á síðasta ári í 2,5% í ár. Þenslan leiðir hins vegar til þess, að atvinnuleysi minnkar úr 2,8% á síðasta ári í 2% í ár. Þessar tölur sýna ljóslega nauðsyn þess, að stjórnvöld grípi til allra tiltækra ráða til að verja þann stórkostlega efnahagslega ávinning, sem þjóðarbúið hefur orðið aðnjót- andi undanfarin ár. íslendingar njóta nú mesta velmegun- arskeiðs í sögu sinni og horfur eru á, að mati Þjóðhags- stofnunar, að þetta velmegunarskeið haldi áfram fram yfir aldamót, þótt nokkuð dragi úr vaxtarhraðanum. Hagvöxtur í ár verður nokkru minni en Þjóðhagsstofnun hafði áður spáð, eða 4,8%, og kaupmáttur ráðstöfunar- tekna eykst um 5,5%. Það er umtalsvert minna en á síðasta ári, þegar kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 9%, sem er ótrúlega mikill árangur. Þótt dragi úr hagvexti og kaup- máttaraukningu í ár verður efnahagslegur ávinningur þjóðarbúsins og einstaklinganna samt mjög mikill og miklu meiri en í flestum löndum. Viðvaranir Þjóðhagsstofnunar, Seðlabanka og annarra sérfróðra aðila verður þó að taka alvarlega. Það má ekki gerast, að efnahagsleg velsæld landsmanna brenni upp í nýrri verðbólguskriðu. Það er hlutverk ríkisstjórnar og fjármálayfirvalda að sjá til að það gerist ekki. DONSKUKENN SLA RANNSOKN á menntun, reynslu og kennsluaðferðum dönskukennara hefur sýnt, að þessir þættir ásamt við- horfí kennaranna til kennslunnar hafa mikil áhrif á árang- ur nemenda í samræmdum prófum. I rannsókninni, sem Auður Hauksdóttir, lektor í dönsku við Háskóla íslands, er höfundur að, kom fram að mikill skortur er á fagmenntuð- um dönskukennurum í skólum landsins. Einungis 19,3% kennaranna eru með fagmenntun úr Kennaraháskólanum í faginu en 64,3% hafa enga fagmenntun. Aðeins 26,4% kennaranna hafa sótt endurmenntunarnámskeið í dönsku síðastliðin fjögur ár. Rannsóknin sýndi einnig að kennarar hafa afar mismun- andi viðhorf til dönskukennslunnar, svo sem til markmiða hennar, en þar vekur athygli að lítil áhersla er á talmáls- þjálfun og frjálsa ritun en kennarar telja lesskilning og skilning á töluðu máli skipta meira máli fyrir íslendinga en talmál og ritun. Rannsóknin sýndi hins vegar að nemendur þeirra kennara sem leggja áherslu á talmál náðu marktækt betri árangri á samræmdum prófum þrátt fyrir að í þeim sé ekki prófað í talmáli. í þessu samhengi er einnig athygl- isvert að 61,2% dönskukennara nota málfræði- og þýðing- araðferðina en sú aðferð á rætur að rekja til kennslu klass- ísku málanna, einkum latínu, og þykir ekki henta vel til að kenna lifandi mál. Niðurstöður Auðar eru afar hnýsilegar, ekki síst í ljósi þeirrar miklu áherslu sem lögð hefur verið á dönsku- kennslu í grunnskólum landsins síðastliðna áratugi. Ljóst má vera að það þarf að finna leiðir til að fjölga fagmennt- uðum dönskukennurum, bæta menntun þeirra og breyta kennsluaðferðum. Julius Lang starfar við tilraunadómstól á Man- hattan í New York. Dómstóllinn hefur það að markmiði að gera dómsvaldið ábyrgara gagnvart lausn vanda- mála í samfélagi sínu og umhverfi. Að því er unn- ið með því að samþætta starf dómstólsins starfí lögreglu og félagsþjón- ustu á nýstárlegan hátt. Pétur Gunnarsson ræddi við hann. JULIUS Lang var nýlega í heimsókn hér á landi í boði Upplýsingaþjónustu Banda- ríkjanna; heimsótti lagadeild Háskólans og kynnti aðilum í stjórn- sýslunni starfsemi dómstólsins sem heitir Samfélagsdómstóll Manhattan eða Midtown Community Court. Að dómstólnum standa borgarstjórn New York-borgar, ríkisstjórn New York-ríkis og sjálfseignarstofnun, sem hefur almannaþjónustu en ekki hagnaðaivon að markmiði. Julius, sem er lögfræðingur að mennt og fyrrverandi starfsmanna- stjóri húsnæðisnefndar borgarinnar, er starfsmaður þeirrar stofnunar. Dómstóllinn hefur starfað í fímm ár og meðhöndlar árlega um 16.000 mál vegna minniháttar afbrota (misdem- eanor), þar sem refsingin er vægari en 1 árs fangelsi eða 1.000 dala sekt. Þetta eru mál á borð við búðaþjófn- að, ölvun á almannafæri, veggjakrot, skemmdarverk og götuvændi. „Dómstóllinn er tilraunaverkefni. Hann er sjálfstæður angi af saka- dómi borgarinnar. Það, sem varð kveikjan að þessu verkefni, var að fólki á vesturhluta Manhattan, í grepnd við Times Square, var ofboð- ið. í þessu hverfi búa 100.000 manns en um 1 milljón kemur þangað á degi hverjum, ýmist til vinnu eða sem ferðamenn. Svæðið nær yfir þrjú lögregluumdæmi af 24 umdæmum á Manhattan en á þessu svæði voru framin um 43% af þessum smáglæp- um á Manhattan. Vegna þess hve af- brot á borð við búðaþjófnað, götu- vændi, veggjakrot, ölvun á almanna- færi virtust safnast saman þarna var ákveðið að reyna ný úrræði. Eins og ástandið var taldi samfélagið að dómskerfíð virkaði ekki og væri ekki í tengslum við það sem fólk sá að væri að gerast á götunni. JULIUS Lang lögfræðingur við tilraunadómstólinn i Julius segir að Samfélagsdóm- stólnum hafí verið sett þau markmið að flytja dómstólinn út í samfélagið. Undir einu þaki starfa m.a. dómari, lögregla og félagsráðgjafar. Með því að koma dómaranum í nánari tengsl við samfélagið fái hann tilfínningu fyrir vandamálunum, sem þar er við að eiga, og sé gerður ábyrgur fyrir að taka þátt í að leysa þau ásamt lög- reglu, ákæruvaldi, verjendum og stofnunum samfélagsins. Þá verði kerfíð mun skilvirkara í stórboi'ginni þegar dómstóllinn er fluttur nær vettvangi. Með dómstólnum starfar ráðgjaf- arnefnd þar sem fulltrúar samfé- lagsins, dómstólsins og lögreglunn- ar hittast reglulega til að ræða mál- in, hvar vandi brenni á fólki í um- dæminu og hvernig finna megi nýj- ar leiðir til að bæta úr. Dómari ráð- færir sig við fólk á þessum fundum um almenn vandamál umdæmisins og leitar lausna en sækir hins vegar enga utanaðkomandi ráðgjöf varð- andi einstök mál og er ekki undir þrýstingi vegna þeirra. „Það skiptir okkur máli að samfélagið skipti sér af störfum dómstólsins," segir hann. Ráðgjafarstarfsemi Dæma stór mál og smá sama daginn Venjulegir dómstólar starfa þannig að sömu dómarar geta verið að fjalla sama daginn um stórmál á borð við morð og nauðganir og Smámálin vildu oft detta nrailli þils og veggjar smærri afbrot á borð við ölvun á almannafæri. I því andrúmslofti duttu smámálin á milli þils og veggjar. Dómarar voru oft og einatt að láta þann tíma, sem leið frá handtöku þar til menn komu fyrir dóm, nægja sem refsingu, þ.e. 31-33 klst. Samfélaginu virtist sem ekkert hefði gerst og smærri afbrotin hefðu engar afleiðingar fyrir þann seka. Hann var handtekinn og honum var sleppt. Þess vegna var ákveðið að byrja upp á nýtt og reyna að finna skynsamlegri aðferðir." Við dómstólinn er einnig rekin ráðgjafarstofa þar sem fólki gefst kostur á að setja niður deilur án af- skipta dómara, sent er út fréttabréf um starfíð og í réttarsalnum er öll- um staðreyndum, sem máli skipta, varpað upp á sjónvarpsskjá fyrir áhorfendur. Julius segir þetta gert til að gera sam- félaginu kleift að fylgjast með störfum dómstólsins en í venjulegum réttarsal í borginni sé það sem fram fer óskiljanlegt öðrum en inga og vinna störf á borð við það að eyða veggjakroti. Þegar Julius er spurður hvort ver- ið sé að auka við skömm dæmdra sakborninga, með því að hafa þá sýnilega á almannafæri í sérstökum klæðnaði, segist hann aldrei hafa heyi’t kvartað undan því í New York, en hins vegar hafi margir haft orð á þessu við hann hérlendis og annars staðar erlendis. Hann segist aldrei hafa heyrt um að þeir sem sinna samfélagsþjónustu í borginni hafi orðið fyrir aðkasti. „Fólk er að vinna við mikilvæg og vinsæl verkefni til þess að bæta umhverfi sitt og ég hef aldrei heyrt að neinn hafí orðið fyrir aðkasti vegna þess.“ Hann segir að að baki hugmynd- inni um dómstólinn búi sú hugmynd að ráðast gegn svokölluðum lífs- gæðaglæpum, þ.e. hinum minni af- brotum á borð við þau sem ofan eru talin. „Þetta eru þeir glæpir sem hafa áhrif á líf flestra og geta sent þau skilaboð út í umhverfíð að óreiða og stjórnleysi séu umborin af við- komandi samfélagi. Fólk vill ekki búa, starfa eða dvelja í slíku um- hverfí. Glæpir af þessu tagi geta því haft efnahagsleg áhrif og stuðlað að því að eyðileggja heil hverfí.“ Nýjar leiðir í refsingu Einn þátturinn í því að leggja áherslu á nýjar leiðir í refsingu er að fólk er dæmt til að gangast reglulega undir lyfjapróf, sem starfsmenn dómstólsins annast, og er refsingin endurskoðuð ef niðurstöður prófsins gefa tilefni til. Þarna virðist sem farið sé að ganga á svig við hefð- bundnar hugmyndir um þrígreiningu ríkisvaldsins. Er ekki dómstóllinn farinn verksvið fram- Aukin ! lagsþji er ný refsii innvígðum. Eitt markmið starfsins er að prófa nýjar leiðir í refsingum. Niðurstaðan er sú að oftast er beitt samfélags- þjónustu. Sú leið er valin tvöfalt oft- ar en við hefðbundna dómstóla og al- gengast er að fólk sé dæmt til að sinna slíkri þjónustu í 1-15 daga. Fangelsi er þeitt ef þörf krefur. Dómstóllinn stendur nú fyrir 12 verkefnum á sviði samfélagsþjón- ustu, þar af eru sex unnin á al- mannafæri þar sem hinir dæmdu eru klæddir í bláa auðkennda samfest- ínn a kvæmdavaldsins og farinn að sinna skilorðseftirliti og slíku? „Ein leiðin er að líta þannig á mál- ið,“ segir Julius, „en önnur leið er að spyrja hvernig best sé að nota vald dómara til að leysa vandamálið, sem við er að etja. Ein leiðin er að nota þetta vald bara til að afgreiða mál og ákvarða frelsisskerðingu en önnur leið er að líta á dómstól sem einstak- an stað þar sem margt fólk, sem á við vandamál að stríða, kemur sam- an undir einu þaki. Það koma að meðaltali 65 manns á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.