Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 21 ERLENT Mannfall í eyðimörkinni ERITREU STJÓRN sýndu frétta- mönnum í gær lík a.m.k. 300 eþíópískra hermanna, sem þau segja hafa fallið í orrustu nærri Asmara, höfuðborg Eritreu. Sögðu þau herinn hafa eyðilagt alls 57 skriðdreka Eþíópíumanna. Eþíópíusijórn vísar fullyrðingun- um á bug og segir þær áróðurs- bragð. Ríkin berjast um lítið eyði- merkursvæði og hafa sáttatil- raunir engan árangur borið. Hér eru eritreskir hermenn að grafa fallinn félaga sinn á vígvellinum. Reuters frakar vilja fá að taka þátt í pílagrímaferðum til Mekka 18 þúsund Irakar bíða við landamæri Sádí-Arabíu Bagdad. Reuters. STJÓRNVÖLD í írak hunsuðu í gær flugbann Vesturveldanna ann- an daginn í röð þegar þau sendu flugvél fulla af múhameðstrúar- mönnum áleiðis til Sádí-Ai'abíu en þar fer í hönd hámark árlegrar pílagrímahátíðar, haj. Um átján jDÚsund Irakar hafa nú safnast fyr- ir í landamærunum við Sádí-Ai'a- bíu og saka fulltrúar stjórnvalda Sameinuðu þjóðirnar um að seinka áætlunum sínum um fjárhags- stuðning við ferðir pílagríma til Mekka. Rússnesk flugvél af gerðinni Ilyushin-76 lagði upp með 111 píla- gríma frá herflugvelh í suðurhluta Bagdad og sagði Rabaee Mo- hammed Saleh, yfirmaður ríkis- flugfélagsins í írak, að fleiri ferðir væru ráðgerðar á næstu dögum. Hann þakkaði jafnframt stjórn- völdum í Sádí-Arabíu íyrir að hafa leyft fyrstu flugvélinni, sem hafði innanborðs 110 pílagríma, að lenda í Sádí-Arabíu á þriðjudag. Fulltrúi íraskra stjórnvalda sagði í gær að Irakar hefðu beðið nefnd á vegum SÞ um leyfi til að taka út 2000 bandaríkjadali á mann, til að fjármagna ferðir píla- grímanna, af reikningi sem Irakar fá greitt af í samræmi við svokall- aðan „olíu fyrir mat“-samning, en skv. honum mega Irakar selja til- tekinn fjölda olíutunna til að hægt sé að tryggja íbúum landsins mat- væli og lyf. Nefndin hafði hins vegar á á þriðjudag gefið upp á bátinn til- raunir til að finna lausn á því hvernig hægt yi’ði að koma allt að tuttugu og tvö þúsund Irökum í hinar ái-legu haj-pílagrímsflugferð- ir til hinnar heilögu borgar Mekka án þess að brjóta þær reglur sem SÞ hafa sett. Sagði formaður nefndarinnar, Hollendingurinn Peter van Wals- um, að reglur SÞ leyfðu ekki að fé yrði fært inn á reikninga íraka nema í gegnum þriðja aðila. írakar hafna þessum rökum og hafa farið fram á að fá féið milliliðalaust. „Irak heldur sig við fyrri kröfu í þeirri fullvissu að markmiðið með því að blanda þriðja aðila inn í þetta sé einungis það að koma í veg fyrir að Irakar uppfylli skyldu sína sem múslimar, og taki þátt í haj.“ Kaup BskyB á Manchester United Yfírtakan sögð stríða gegn al- mannahagsmunum London. Reuters. GENGI hlutabréfa í bresku fjöl- miðlasamsteypunni BskyB og knattspyrnufélaginu Manchester United féll nokkuð í gær vegna ótta um að samkeppnisyfirvöld hefðu hafnað fyrirhuguðum kaup- um BskyB á Manchester United. Dagblaðið The Daily Telegraph hafði um morguninn sagst hafa áreiðanlegar heimildir íyrir því að breska samkeppnisstofnunin hefði úrskurðað að yfírtaka BskyB á Manchester United væri ekki í þágu almannahagsmuna. Stofnunin er sögð hafa lokið fimm mánaða rannsókn sinni á kauptilboði BskyB í Manchester United og sent skýi'slu sína til Stephen Byers viðskiptaráðherra, sem taka mun endanlega ákvörðun um hvort kaupin verða leyfð. Gengi hlutabréfa í Manchester United hafði fallið um meira en níu prósent á fjármálamörkuðum um miðjan dag í gær og gengi bréfa í BskyB, sem fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch á 40% í, um tvö prósent. Gengi hlutabréfa í öðrum stærstu knattspyrnufélögunum á Bretlandi féll einnig. „Markaður- inn gengur greinilega að því vísu að frétt blaðsins sé rétt enda virð- ist hún styðjast við öruggar heim- ildir,“ sagði Paul Richards, fjár- málasérfræðingur, í samtali við Reuters. Viðskiptaráðuneytið breska vildi ekkert segja um getgáturnar og sagði talsmaður ráðuneytisins að upplýsingar um þetta hefðu enn ekki verið gerðar opinberar. Gert er ráð fyrir að Byers muni tilkynna úrskurð sinn á næstu þremur til fjórum vikum og þótt ekki sé talið líklegt að hann gangi gegn ráðlegg- ingum samkeppnisstofnunar er honum það þó eigi að síður heimilt. Umdeilt kauptilboð Tilboð BskyB í Manchester United vakti á sínum tíma miklar umræður á Bretlandi og héldu margir því fram að of mikil völd hefðu safnast í hendur BskyB, sem nú þegar hefur einkarétt á beinum útsendingum ensku úrvalsdeildar- innar, fengi félagið að festa kaup á þessu ríkasta knattspyrnufélagi í heiminum. Margir áttu einnig bágt með að sætta sig við að Murdoch, sem nú þegar á fjögur af þeim dag- blöðum sem gefin eru út í Bret- landi, næði yfirráðum í því knatt- spymuliði sem hefur yfir að ráða fleiri stuðningsmönnum en önnur félög á Bretlandi. Sagði í The Daily Telegraph að samkeppnisyfirvöld hefðu komist að niðurstöðu sinni þrátt fyrir að fulltrúar beggja fyrirtækja hefðu gert sitt ýtrasta til að fullvissa þau um að yfirráð BskyB yfir Man Utd myndu ekki gefa því ósanngjarna samkeppnisstöðu þegar samið yrði um réttinn til að sjónvarpa knatt- spyrnuleikjum. bækiin?(ífmn er í fullu ?ildi, pakkaður af tilboðum!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.