Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 19
Stórfelldar matar-
sýkingar hafa orðið
í slíkum boðum
MARGAR fermingarveislur eru
framundan og stórfelldustu matar-
sýkingar sem komið hafa upp hér
á landi hafa verið í tengslum við
fermingai'veislur.
Rögnvaldur Ingólfsson sviðs-
stjóri hjá matvælasviði Heilbrigð-
iseftirlits Reykjavíkur segir að full
ástæða sé til að brýna fyrir fólki að
fara varlega með viðkvæm mat-
væli sem eiga að vera á hlaðborð-
um í fermingarveislum.
Geyma matinn í kæli
„Fyrst og fremst þarf fólk að
geyma matvæli í kæli ef um er að
ræða mat sem á að vera á köldu
borði eins og kjöt og smurt brauð.
Víða er maturinn útbúinn með
eins daga fyrirvara og þá þarf að
kæla hann strax og halda honum
við 0-4°C þar til hann er borinn
fram.“
Hitið að suðu sósur
og pottrétti
Oft eru heitar sósur á borðum
og pottréttir sem gjarnan eru
matreiddir daginn áður. Nauð-
synlegt er að hita bæði pottrétt-
ina og sósurnar í gegn upp að
suðu eða að minnsta kosti í 75 °C.
Upphitunin getur tekið töluverð-
an tíma og það þarf að hræra
stöðugt í matnum svo hitunin nái
í gegn.“
- Hvað má matur standa lengi á
borðum í veislu án þess að hætta
sé á fjölgun örvera?
„Heilbrigðiseftiriit Reykjavíkur
hefur miðað við að matur standi
ekki lengur á borðum en í tvær
klukkustundir. Pað þýðir að mat-
urinn sé borinn fram sem mest
jafn óðum en geymdur í kæli eða á
hitaplötu fram að því.“
- Er algengt að matarsýkingar
komi upp í kringum fermingar?
„Einhverjar stórfelldustu matar-
sýkingar sem upp hafa komið hefur
mátt rekja til matvæla á fermingar-
hlaðborðum. I iyi-ra varð til dæmis
mikið óhapp þar sem tvö hundruð
manns í fímm veislum sýktust af
matnum."
-Oft verður mikill matur af-
gangs. Er ekki í lagi að borða hann
daginn eftir?
„Það er óráðlegt að neyta mat-
arins síðar ef hann hefur staðið á
hlaðborði í 2-3 klukkustundir og
náð herbergishita. Þetta á sérstak-
lega við um kalda rétti sem ekki er
hægt að hita að suðu á ný.“
li'yíOiilijiirtíiiui
aðráda!
I Sólblóma er hátt
hlutfall fjölómett-
aðrar fitu og lítið
af mettaðri. Með því
að velja Sólblóma á
brauðið dregur þú úr
hættu á aukinni
blóðfitu (kólesteróli).
Fita í 100 g
NEYTENDUR
Fræðslurit um raflagnir á heimilum
Lekastraumsrofi helsta
öryggistæki rafkerfísins
ÞESSA dagana er verið að dreifa
bæklingi um raflagnir og rafmagns-
öryggi á hvert heimili á landinu.
Með því er verið að vekja fólk til
umhugsunar um þá hættu sem get-
ur fylgt gömlum raflögnum og
hjálpa fólki að meta ástand raf-
lagna og rafbúnaðar með einföldu
krossaprófi.
Birgir Agústsson, deildartækni-
fræðingur hjá rafmagnsöryggis-
deild Löggildingarstofu, segir að
miklar breytingar hafi orðið á regl-
um um raflagnir frá því byrjað var
að nota rafmagn hér á landi. „Það
þarf ekki að vera að gamlar raf-
lagnir séu hættulegar en það getur
verið nauðsynlegt að fá löggilta raf-
verktaka til að gera úttekt á þeim
og fara að tillögum um úrbætur.“
Þegar Birgir er spurður hvenær
fólk eigi að fara að huga að endur-
bótum á raflögnum segir hann að
þumalputtaregla sé að láta kanna
ástand á raflögnum í húsum sem
byggð voru um og fyrir árið 1960
og ekki hafa verið endurnýjaðar.
Birgir segir að ýmis atriði geti
bent til að gera þurfi endurbætur á
raflögnum.
„Þegar öryggi fara að springa oft
og perur duga skammt í ljósastæði
getur það bent til að eitthvað sé
ekki sem skyldi. Þá er mikilvægt að
endurnýja lélegai' rafmagnstöflur
og láta taka út rafmagnið ef leka-
straumsrofinn slær oft út án sýni-
legrar ástæðu. Við höfum líka lagt
mikla áherslu á að benda fólki á að
lekastraumsrofi er mikilvægur og
allir ættu að hafa
hann þótt það sé ekki
í öllum tilfellum
skylda."
- En hvernig er
ástand raflagna al-
mennt hér á landi?
„Ahnennt teljum
við að raflagnir sem
lagðar voru eftir árið
1960 séu í nokkuð
góðu ástandi þó auð-
vitað þurfi fólk að
vera á varðbergi. Það
eru hinsvegar raf-
lagnir frá því fyrir
1960 sem við höfum
meiri áhyggjur af. „
Reglubundið eftirlit?
Er ekkert. opinbert eftirlit með
ástandi raflagna?
„Fram til ársins 1997 báru raf-
veitur ábyrgð á reglubundnum
skoðunum á gömlum húsum og sáu
Ef skipta þarf oft
um perur í einu
Ijósastæði getur
það bent til bil-
unar
um þá framkvæmd
með sínum eftirlits-
mönnum“, segir Sæ-
mundur Vilhjálms-
son, yfíreftirlitsmaður
hjá rafmagnsöryggis-
deild Löggildingar-
stofu. „Núna er þetta
eftirlit á ábyrgð Lög-
gildingarstofu sem
beitir úrtaksskoðun-
um ásamt markvissri
fræðslu til almennings um hættur
af völdum rafmagns. Þessar breyt-
ingar á eftirlitinu eru í takt við það
sem gerist í löndunum í kringum
okkur, þ.e. að draga úr opinberu
eftirliti án þess að það komi niður á
öryggi."
TILBOÐSDAGAK
afsláttur
af öllum
skartgripum.
Guðmundur Andrésson
15-50»
Gullsmíðaverslun
Laugavegi 50, sími 551 3769.
EKKI er gott að hafa
mörg orkufrek raftæki
tengd í eitt og sama
fjöltengið.
Afmœtisdagar í SigurBoganum
yVE^AINl^URENT
Vor- og sumarCitirnir eru Gpmnir
Afmælisgjöf til þín fró Sigurboganum:
Glæsileg handtaska að eigin vali, ef keyptar eru
vörur fró YSL fyrir 6.000 krónur eða meira.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri.
Takmarkað magn.
verða hjó okkur í dag, d morgun
ogó
■nyja
Við kynnum: -nýjarvörur
■ nýjan ilm
Við ítiÖCfcim tiíað sjá þigl
yS*30 G/
o
Laugavegi 80, sími 561 1330