Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 55 MINNINGAR BJARNVEIG JAKOBSDÓTTIR + Bjarnveig Jak- obsdóttir fædd- ist í Unaðsdal á Snætjallaströnd 8. desember 1914. Hún lést í Sunnu- hlíð í Kópavogi 6. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Símonía Sigurðardóttir og Jakob Sigurjón Kol- beinsson frá Unaðs- dal. Bjarnveig var elsta barn þeirra hjóna. Systkini hennar eru: María Jonný, Sigurborg, Asa sem dó barnung, Guðbjörg Guðrún sem er látin, Guðjóna sem er látin, Kolbeinn og Sigurður. Bjarnveig var gift Kristjáni Helga Friðbjörnssyni frá Stein- ólfsstöðum í Yeiðileysufirði í JökuHjörðum. Börn þeirra Elskulega amma mín er látin. Hún er eflaust hvfldinni fegin enda langt og strangt lífsstarf að baki. Fólk af hennar kynslóð lifði við erfiðari kjör og meira vinnuálag en við yngra fólkið getum gert okkur í hugarlund. Hún ólst upp á Skarði á Snæfjallaströnd í hópi stórrar og hörkuduglegrar fjölskyldu þar sem vart var hægt að hugsa sér erfiðari aðstæður til lífsframfæris. Lengs af bjuggu amma og afi á ísafirði en fluttu síðan í Kópavog. Á ísafirði var amma með stórt heimili og gestagangur mikfll enda frænd- garðurinn stór. Eftir að þau komu í Kópavoginn vann hún mikið utan heimflis, þar af um margra ára skeið á Læknavaktinni. Síðustu árin var líkamleg heilsa orðin léleg og kunni amma því illa að vera að stórum hluta upp á aðra komin. Hún var vel gefin, skörp, hörkudugleg, stjómsöm, hafði skoð- un á hlutunum og fór sínu fram. Hún lá ekki á skoðunum sínum, sagði það sem í brjósti bjó og af- greiddi þannig málin. Andleg heilsa og skarpleiki var í fullkomnu lagi allt fram á síðustu daga. Það var sama hvað um var rætt, alltaf var hún amma fyllilega með á nótunum. Hún fylgdist vel með þjóðmálaum- ræðunni og bókmenntum og hafði yndi af lestri ljóða. Þá var hún mjög áhugasöm um andleg málefni. Amma var að eigin sögn rík kona, ekki í þeim skilningi að hún ætti út- troðnar bankabækur, heldur fannst henni mest um vert að eiga stóran og góðan hóp barna, barnabarna, barnabarnabarna og tengdabarna. Henni þótti sérlega vænt um þenn- an hóp og allar heimsóknir, stuttar sem langar, glöddu hana mikið. Þá fékk hún alla tíð meira út úr því að rétta öðrum hjálparhönd en safna í eigin sjóði. Ömmu á ég margt að þakka. Ég var elsta barnabarnið og náði þannig óskiptri athygli áður en hóp- urinn fór að stækka. Á menntaskóla- árunum og fyrstu háskólaárin bjó ég hjá ömmu á Hlíðarveginum en afi lést þegar ég var á fyrsta mennta- skólaárinu. Samkomulag okkar var alla tíð sérstaklega gott og aldrei kom til þess að við rifumst eða í odda skærist þessa sex vetur sem ég bjó hjá henni. Á margan hátt vorum við lík í skapi og skoðunum og höfð- um gaman af því að takast á um hlutina. Síðustu skilaboð ömmu voru þau að jarðarförin skyldi haldin í kyrr- þey og engar minningargreinar. Ég er þó sannfærður um að hún fyrir- gefur mér þessi stuttu kveðjuorð og læt ég því staðar numið. Elsku amma. Að lokum kveð ég þig með söknuði og þakklæti fyrir samfylgdina. Guð blessi þig, amma mín. Kristján Bjarnar Olafsson. Það er erfitt fyrir litla sál að skilja þegar einhver deyr sem manni er kær. hjóna eru: Ólafur, Henrý Þór, Páll Hafstein og Ragn- ar. Þá ólu þau upp systurdóttur Bjarn- veigar, Símoníu El- len Þórarinsdóttur. Bjarnveig ólst upp á Skarði á Snæfjallaströnd og fór snemma að vinna fyrir sér. Hún gekk í gagnfræða- skóla og húsmæðra- skóla á fsafirði og hóf þar búskap með Kristjáni Helga, málarameistara. Árið 1958 fluttust þau í Kópavog og bjuggu þar til æviloka. Kristján Helgi lést 23.12. 1972. Bjarn- veig var síðar sambýliskona Haraldar Stígssonar frá Horni. Utför Bjarnveigar fór fram í kyrrþey. Ég kynntist þér fyrst fyrir nokkrum árum þegar þú dvaldir á heimili ömmu minnar í Kópavogi. Þá var ég ósköp veik og var mikið á spítala, en þegar ég kom með mömmu minni í heimsókn þá stóðu dyrnar hjá þér ávallt opnar fyrir mér. Þá var gott að fá að kúra hjá þér, þar sem þú last heilu ævintýrin fyrir mig, kenndir mér að telja og söngst fyrir mig, jafnframt sem þú aldrei gleymdir að biðja fyrir mér í bænum þínum. Þegar mamma sagði mér að þú værir dáin, horfði ég hissa á hana og sagði: „Nú eru allir hryggir en Badda er farin upp til Guðs og englanna með teppið sitt og þar líð- ur henni vel.“ Með síðustu góðverkum Böddu til mín var að finna handa mér ynd- islega stúlku sem passar mig þegar mamma mín er að vinna. Það má með sanni segja að allt sem kom frá þér til mín var gott. Ég kveð hér barngóða öðlings- konu sem í hógværð veitti sam- ferðamönnum birtu og yl. Hún á vissulega „góða heimvon". Þegar við mamma lítum til baka er okkur ljóst hve mikil forréttindi það eru að hafa fengið að kynnast Böddu. Hún snart hjörtu margra sem munu í dag lúta höfði í virð- ingu og þökk fyrir að hafa átt hana að. Þín litla vinkona, Vigdís. Hún amma er dáin. Fréttin um að Badda amma væri dáin barst okkur snemma morguns laugardaginn 6. mars. Södd lífdaga og glöð með að fá að fara á stað þar sem hún var viss um að biði sín nýtt líf. Amma var ein af þeim sem las mikið um hvað biði sín hinum megin móðunn- ar og ég held að hún hafi trúað því að þar væri nýtt líf mun ánægju- legra en það sem hún lifði í lokin. Ömmu virtist líða best þegar hún hafði sem mest að gera, hún vann lengi á læknavaktinni og þau okkar sem þangað komu fundu að þar var hún ánægð. Á meðan amma bjó á Hlíðarveginum voru ávallt pönnu- kökur með sykri á boðstólum og jafnvel kleinur og ástarpungar, ferð út í sjoppu til að kaupa smá nammi fylgdi jafnvel í kaupbæti. Það er svo skrýtið að það eina sem við getum verið viss um í lífínu er að við höfum fæðst og að við munum deyja en samt kemur dauðinn okkur alltaf jafn mikið á óvart. Við komum öll til með að sakna Böddu ömmu en minningin um hana mun lifa með okkur um ókomin ár. Unnur, Kristján, Bjarnveig, Unnur Lea, Viktor og Örn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELSA H0JGAARD EINARSDÓTTIR, Hamrahlíð 32, Vopnafirði, sem lést fimmtudaginn 11. mars, verður jarðsungin frá Vopnafjarðar- kirkju laugardaginn 20. mars kl. 14.00. Páll Jónsson, Einar Einarsson, Einar Sigurjónsson, Aðalbjörg Sigurjónsdóttir, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, sonar, föður, bróður, afa og langafa, STEFÁNS KARLS JÓNSSONAR, Skarðshlíð 26E, Akureyrt. Regína Jónsdóttir, Helga Stefánsdóttir, Kelga María Stefánsdóttir, Ásmundur Guðjónsson, Regína Hákonardóttir, Gunnar Sveinarsson, Ingibjörg Hákonardóttir, Óli Rúnar Ólafsson, systur, barnabörn og barnabarnabarn. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför SVEINS FRÍMANNS ÁGÚSTS BÆRINGSSONAR, áður Hólmgarði 39, Reykjavfk. Birgir Sveinsson og synir, Helga Bæringsdóttir, Elísabet Brynjólfsdóttir, Reynir Ásmundsson. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR STEFÁNSSON frá Kúskerpi, verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju laugardaginn 20. mars kl. 14.00. Jarðsett verður í Höskuldsstaðakirkjugarði. Guðlaug Sigurðardóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON frá Viðey, Vestmannaeyjum, Árskógum 8, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmanna- eyjum, föstudaginn 19. mars kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Ragnheiður Björgvinsdóttir, Gunnar St. Jónsson, Guðmundur Ó. Björgvinsson, Björg Valgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkær bróðir okkar, JÓN SIGURÐSSON HANSSON, Aðalstræti 8, isafirði, sem andaðist á heimili sínu sunnudaginn 7. mars sl., verður jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 20. mars nk., kl. 14.00. Guðrún Hansdóttir, Ólafur Hansson, Bjarni Hansson. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR JÚLÍÖNU JÓNSDÓTTUR frá Broddadalsá, síðast til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakár þakkir til starfsfólks Hrafnistu, deild E, fyrir góða umönnun. Svava Brynjólfsdóttir, Kristinn Á. Guðjónsson, Viggó Brynjólfsson, Ardís Arelíusdóttir, Kristjana Brynjólfsdóttir, Gunnar D. Sæmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður minnar, tengda- móður og ömmu, SIGURVEIGAR JÓHÖNNU ÁRNADÓTTUR, Hellulandi 1, Reykjavík. Finnbogi Finnbogason, Sigríður Hanna Kristinsdóttir og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GRÓA JÓHANNSDÓTTIR, Galtarholti, Borgarhreppi, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstu- daginn 19. mars kl. 10.30. Lillý S. Guðmundsdóttir, Sigurður Bjarnason, Ómar Guðmundsson, Hrafnhildur Karlsdóttir, Birgir Guðmundsson, María Gísladóttir, Svanhildur Guðmundsdóttir, Grétar Óskarsson, barnabörn, barnabarnabörn og systkini. * i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.