Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Mælingum lokið á virkni varnargarðanna á Flateyri Garðar standast mun stærri snjóflóð Eitt örfárra flóða sem fallið hafa á leiðigarð MÆLINGAR á ummerkjum eftir snjóflóðið sem féll á Flateyri í febrúar sl. benda til þess að varn- argarðarnir ofan við byggðina muni standast mun stærra flóð, t.d. flóð sambærilegt því sem féll í október 1995, samkvæmt fyrstu niðurstöðum rannsókna á um- merkjum eftir flóðið, sem unnar hafa verið af starfsmönnum Veð- urstofu Islands og Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. Bent er á að frekari rannsóknir á flóðum úr Skollahvilft muni auka skilning manna á flæði snjó- flóða og gera mögulegt að meta betur virkni garðanna gagnvart enn stærri flóðum. Flóðið sem féll í febrúar er eitt örfárra í heimin- um sem fallið hafa á leiðigarð og gefa mælingar því mikilvægar upplýsingar um virkni slíka mannvirkja. Breytti um stefnu Flóðið virðist hafa fallið sem tvær eða fleiri aðskildar tungur með skömmu millibili en útlínur þess voru mældar með GPS-land- mælingartæki. Ummerki flóðsins sýna að það breytti um stefnu við það að kastast upp í gilbarmana á þremur mismunandi stöðum á ferð sinni niður gilið. Á þessum stöðum virka gilbarmarnir sem náttúrulegir leiðigarðar og gefa þessi ummerki vísbendingar um virkni leiðigarða þegar flóðið er á meiri hraða en það var á þegar það lenti á varnargarðinum. Mikilvægar vísbendingar Mjög lítið er til af beinum mæl- ingum á snjóflóðum sem fallið hafa á leiðigarða eða náttúrulegar fyrirstöður og eru ummerki flóð- anna í Skollahvilft meðal merki- legustu gagna sem til eru í heim- inum af þessu tagi. Þau gefa mik- ilvægar vísbendingar um virkni leiðigarða svo og merkar almenn- ar upplýsingar um flæðieiginleika snjóflóða. Samkvæmt mælingun- um rann flóðið á hörðu hjarnlagi á upptakasvæðinu, sem var undir léttari vindpökkuðum snjó brot- flekans. Mikill hluti af snjónum í flóðinu barst niður í Skolláhvilft af hásléttunni norðan Önundar- fjarðar í skafrenningi í norðlæg- UMMERKI snjóllóðsins í febrúar séð úr gilkjaftinum ofan við bæinn. um áttum dagana áður en flóðið féll. Flóðið var þykkast um 4 m í gil- kjaftinum í um 200 m hæð yfír sjávarmáli en tungan neðan við efsta hluta varnargarðanna var víðast 0,5-1 m. Næst garðinum rann flóðið fram í stríðari streng og þar var þykkt tungunnar 1-1,5 m. Strengurinn meðfram garðin- um var 20-30 m breiður fyrstu 100-200 m, sem flóðið flæddi með- fram garðinum en fór breikkandi niður með honum og varð 70-80 m breiður neðst. Mælingar sýna að stefna meg- instraums flóðsins er nokkuð austar en árið 1995 og er það í samræmi við fyrri reynslu að því stærri sem snjóflóðin eru úr Skollahvilft, því lengra til vesturs leita þau. Ástæðan er stýring gil- kjaftsins í um 200 m hæð yfir sjávarmáli, sem hefur fyrst og fremst áhrif á minni snjóflóð. Stefna stærri flóða ræðst af stefnu gilsins ofan við 200 m hæð yfir sjávarmáli en gilkjafturinn sjálfur hefur lítil áhrif á slík flóð. Bent er á að þetta kunni einnig að skýrast að einhverju leyti af land- mótun í tengslum við efnistöku í garðana en henni var hagað þannig að snjóflóð stefndu síður til vesturs á varnargarðana. Ummerki á Ieiðigarðinum Sjá mátti ummerki flóðsins hátt upp á leiðigarðinum en flóðið flæddi meðfram honum á um 400 m löng- um kafla og um 13 m upp á garðinn þar sem það fór hæst. Þar vantaði um 4 m upp á að efstu ummerki næðu toppi garðsins. Áætlaður hraði flóðsins árið 1999 er metinn um 67% af hraða flóðsins árið 1995. Utreikningar benda tO að sambæri- legt flóð og féll árið 1995 næði um 7 m hærra upp á garðinn en flóðið í febrúar en samkvæmt mælingum vom um 4 m upp á topp garðsins, þar sem febrúarflóðið náði hæst og mun því gefa yfir leiðigarðinn í flóði svipuðu því sem féll árið 1995. Er það í samræmi við hönnunarfor- sendur og fyrri líkanreikninga en gert er ráð fyrir að þvergarðurinn mOli leiðigarðanna stöðvi snjó sem gefur yfir þá. sama stað og aðalbrotlína flóðsins árið 1995. Þessi hluti flóðsins sveigði þegar hann lenti á gilbanninum innanverðum (A), flæddi síðan svolítið á ská yfir gilið og tók þar aðra en meiri aflíðandi beygju þegar flóðið flæddi upp í gilið utanvert (B). Meginflóðið tók stefnu á miðjan varnar- garðinn þegar út úr gilkjaftinum kom, breytti um stefnu þegar það skall á garðinum og flæddi meðfram honum alla leið niður í sjó. Annar fleki brotnaði úr hvilftinni utanverðri og sveigði haim einnig þegar hann skall á innri gilbarminum (C) með svipuðum hætti og meginflóðið gerði ofar í giiinu. Síðari flekinn virðist að mestu hafa stöðvast í þykkum múgum samsíða flóðstefimfnni neðan gilsins. Kortið yfir úthnur flóðsins í febrúar árið 1999 sýnir einnig áætlaðar útlínur vestari hluta þess ef garðarnir hefðu ekki verið til staðar. Sam- kvæmt þvi' hefði flóðið náð niður fyrir efstu hús sem eyðilögðust í flóð- inu árið 1995 en ekki að núverandi byggð. Heilbrigðisráðherra vill nýja þjóðarsáttarsamninga Þjóðarsátt takist um velferðarsamninga FERMINGARTILBOÐ 5.580.- Verð áður 6.980,- íslensk orðabók fyrir skóla og skrifstofur er 1263 blaðsíður og nákvæmlega eins og nýjasta útgáfa af íslenskri orðabók Menningarsjóðs, en í minna broti. INGIBJÖRG Pálmadóttir heil- brigðisráðherra ætlar að beita sér fyrir þjóðarsátt um gerð velferðar- samninga tO margra ára. Hún seg- ir að örorkubætur hafi hækkað á undanfömum árum en ekki nægj- anlega mikið, að mati ráðuneytis- ins. „Við viljum ná tO þeirra sem mest þurfa á bótum að halda og þurfum að finna þá hópa. Ég tel að það eigi að gera þjóðarsáttarsamn- inga, líkt og gert var 1990 á al- mennum vinnumarkaði, þ.e. vel- ferðarsamning til margra ára. Það þurfa margir að koma að því máli, þ.e. stjómmálaflokkarnir, Óryrlga- bandalagið og Félag eldri borg- ara,“ sagði heilbrigðisráðherra. Heilbrigðisráðherra var spurður að því hvers vegna viðmiðunar- mörk í peningaeign þeirra sem njóta frekari uppbótar í trygginga- kerfinu hafi verið hækkuð og hvers vegna þau hafi verið hækkuð úr 2,5 milljónum króna í 4 milljónir. Einnig var ráðherrann spurður hverju það breytti hvort eign bóta- þega væri fólgin í fasteign eða pen- ingum eða verðbréfum en bætur skerðast ekki séu peningamir bundnir í fasteign. Ráðherrann sagði að bætur væm allar meira eða minna tekju- tengdar og svo hefði verið um langt skeið. Eigi bótaþegi íbúð og hafi ekki tekjur af eigninni skerðist bætur ekki en um leið og bótaþegi hafi tekjur af eigninni skerðist þær. Einnig sé litið svo á að bóta- þegi með lágar tekjur og lágar bætur sem eigi engu að síður fast- eign sem hann búi í, spari ríkissjóði útgjöld í formi húsaleigubóta. Á móti komi reyndar greiðslur vaxta- bóta í sumum tilvikum. Almannatryggingakerfi öryggisnet „Innstæða í banka eða verð- Framlengingar krafíst Mál og menning Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Siðumúla 7 • Sfmi 510 2500 RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI mun í dag leggja fram kröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur um framlengingu á gæsluvarðhaldi Nígeríumannsins sem innleysti falsaðar ávísanir í ís- landsbanka fyrir á tólftu milljón króna fyrir tæpum mánuði. Ekki hafði verið ákveðið af hálfu embættisins í gær hversu langrar framlengingar átti að krefjast, en gæsluvarðhald mannsins rennur út klukkan 16 í dag. Annar Nígeríumaður, sem úr- skurðaður var í gæsluvarðhald í kjöl- far handtöku hins Nígeríumannsins, situr í gæsluvarðhaldi til 1. apríl samkvæmt úrskurði Hæstaréttar á þriðjudag. bréfaeign skerðir einungis svokall- aða frekari uppbót. Þessar bóta- greiðslur eru öryggisnet til að greiða þeim bætur sem verða fyrir sérstökum kostnaði, t.d. lyfja- og lækniskostnaði o.fl. Eigi einstak- lingur fjórar milljónir króna í banka og hjón hugsanlega átta milljónir króna, er ekki hægt að segja að þau geti ekki framfleytt sér og komist ekki af án frekari uppbótar. Almannatryggingakerfið er uppbyggt sem öryggisnet og tU þess að koma til móts við þá sem minnst hafa. Menn geta svo alltaf dedt um hvar mörkin eigi að liggja- Mannanna verk eru ekki öll full- komin og heldur ekki trygginga- kerfið. Við töldum að það væri hægt að tala um að eðlilegur spamaður væri á bilinu 3-4 millj- ónir króna áður en skerðingar bóta kæmu td,“ segir heilbrigðisráð- herra. Ráðherra sagði engin sérstök vísindi liggja á bak við þessa tölu, þ.e. 4 milljónir króna sem eru við- miðunarmörkin, fremur en til dæmis skattleysismörkin, eða þriggja þúsunda króna þakið í lækniskostnaði sem öryrkjar njóta, en eins og kunnugt er fara öryrkjar og aldraðir á afsláttar- kjör vegna læknisþjónustu strax eftir þrjú þúsund króna útgjöld á ári. Hér ráði sanngimissjónarmið fremur en vísindalegur útreikning- ur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.