Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.03.1999, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Bakvaktir í Grindavík Lögreglumaður segir upp störfum Grindavík - Það vora ekki liðnir margir dagar frá því bakvaktir voru teknar af lögreglunni í Grindavík þangað til fyrsti lögreglumaðurinn í Grindavík sótti um starf annars staðar. Astæður munu vera þessi niðurskurður á bakvöktum. Umræddur lögreglumaður, Bjarni Bjarnason, sagðist vera á leiðinni til Hafnarfjarðar og hæfí þar störf 1. júní. Þá sagðist Bjami vera að ganga frá sölu á húsi sínu þessa dagana. Fréttaritari hafði því samband við sýslumanninn í Keflavík, Jón Eysteinsson, og innti hann eftir við- brögðum. „Eg hef ekki heyrt um að einhverjir lögreglumenn hafí sagt upp eða væru að hugsa um það. Eg hef ekki nokkrar athugasemdir við það. Þeir um það. Vertu sæll,“ sagði sýslumaður. Bæjarstjórn Grindavíkur ályktaði nú á dögunum um málið og eftirfarandi var fært til bókar og samþykkt samhljóða: „Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkir og ítrekar ályktun bæjarráðs frá fundi 3. mars 1999. Jafnframt skorar bæjar- stjórnin á sýslumann að falla frá ákvörðun sinni um skipulagsbreyt- ingarnar." Morgunblaðið/Aðalheiður HJÓNIN Kristjana Ó. Valgeirsdóttir og Svanur Guðmundsson, eig- endur prentsmiðjunnar Svartlistar á Hellu. Svartlist á Hellu flytur Hellu - Prentsmiðjan Svartlist á Hellu hefur flutt starfsemi sína um set, en fyrirtækið hóf starfsemi í nóvember 1996 í þröngu leiguhús- næði á Hellu. Eigendur Svartlistar, hjónin Svan- ur Guðmundsson og Kristjana Ó. Valgeirsdóttir, hafa nú fest kaup á húsnæði sem áður hýsti Skattstofu Suðurlands við Þrúðvang á Hellu. A efri hæð hússins er íbúð þeirra, en prentsmiðjunni hefur verið komið fyrir í björtum og rúmgóðum húsa- kynnum á jarðhæð. Að sögn þeirra hjóna gjörbreytir nýja húsnæðið allri vinnuaðstöðu þeirra, en fyrir- tækið hefur verið í stöðugum vexti frá upphafí. Svartlist prentar alls kyns pappíra og eyðublöð, auk þess sem dagskrárpésinn Búkolla kemur út vikulega, en honum er dreift í Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu. Einnig hafa þau hjón prentað hér- aðsritið Goðastein sl. tvö ár. NEMENDUR settu upp sýningarbása í tilefni af þemavikunni. Morgunblaðið/Silli Skólanemar fjalia um framtíð Húsavíkur Húsavik - Framhaldsskólinn á Húsavík boðaði að lokinni þemaviku skólans til ráðstefnu með yfirskrift- inni „Húsavík í framtíð - horfínn heimur eða höfuðstaður?" Magnús Halldórsson nemi setti ráðstefnuna og skýrði frá undir- búningi hennar. Nemendum var skipt í tólf hópa sem störfuðu sjálf- stætt og voru einn eða tveir fram- sögumenn fyrir hvern hóp. Fram- koma framsögumanna var óþvinguð og skipuleg og ekki mun- ur á framsögn ungmennanna og á ráðstefnum sem hinir eldri hafa boðað til. í framsögu var víða kom- ið við og bent á ýmislegt sem betur mætti fara og ekki væri ánægju- legt fyrir ungmennin að taka við svo og ýmis verkefni sem þau ætl- uðu sér að vinna til að gera Húsa- vík að betri bæ, eins og þau orðuðu það. Byggðaþróunina töldu þau ekki hagstæða þar sem þróunin væri sú að Húsvíkingum fjölgaði lítið nú síð- ustu árin og að í þjónustugreinum væri fjölgun en aftur á móti í fram- leiðslunni fækkun, það töldu þau ekki hagstætt. Vildu auka fram- leiðslu sjávarafurða og þau virtust hafa áhuga íyrir sameiningu sveit- arfélaga í sýslunni. Miklir möguleikar í orkumálum I orkumálum töldu nemendumir Húsavík hafa mikla möguleika og færðu fram ýmis rök máli sínu til stuðnings og töldu að óvíða væri í næsta nágrenni þéttbýlisstaðar jafn miklar orkulindir og í nágrenni Húsavíkur. Þeim varð tíðrætt um atvinnu- málin, röktu þróun þeirra frá því að Húsavík varð verslunarstaður 1614 og Húsvíkingar versluðu aðallega við Akureyri og fyrsta iðngreinin var söðlasmíði. Þau höfðu ýmsa framtíðarsýn í atvinnumálum og virtust geta horft björtum augum til framtíðarinnar. Aðrir málaflokkar sem nemend- umir ræddu vom ferðaþjónusta, fé- lags- og heilbrigðismál, íþróttir og útivist, unglingamenning og skóla- mál. Að loknum framsöguerindum voru pallborðsumræður þar sem nokkrir þingmannaframbjóðendur kjördæmisins og bæjarfulltrúar sátu fyrir svörum, en yfír þá um- ræðu færðist þekktur tónn og karp. Nemendur höfðu komið fyrir sýn- ingarbásum í fordyri samkomusal- arins, þar sem miklar og fróðlegar upplýsingar var að sjá. Mál sitt skýrðu nemendumir með skyggnum og töluritum og var þessi ráðstefna Framhaldsskólanum til sóma. y-v': Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar IÞRÓTTAMAÐUR ársins 1998, Hjörtur Ragnarsson, og efnilegasti íþróttamaður ársins 1998, Júlíana Karls- dóttir, taka við verðlaunagripum og viðurkenningarskjölum úr hendi forseta Kiwanisklúbbsins Korra, Guð- bjöms Asgeirssonar, með aðstoð formanns Víkings, Elfu Ármannsdóttur. íþróttamaður ársins kjörinn í Ólafsvík Ólafsvík - Á aðalfundi Ungmenna- félagsins Víkings í Ólafsvík mið- vikudaginn 10. mars sl. var Hjört- ur Ragnarsson kjörinn íþróttamað- ur ársins 1998. Hann hefur verið einn af þjálfurum félagsins og virkur í allri iþróttastarfsemi þess. Efnilegasti íþróttamaður ársins 1998 var kjörinn Júlíana Karls- dóttir, en hún hefur auk fijálsí- þróttaiðkana látið til sín taka í röðum blakliðsins, og sýnt mikla framför og góða ástundun. Bæði hlutu þau að launum verð- launagripi, en íþróttamaður ársins varðveitir jafnframt farandbikar. Allir em þessir gripir og viðurkenn- ingarskjöl gefin af Kiwanisklúbbn- um Korra, en forseti klúbbsins, Guðbjöm Ásgeirsson afhenti þau. Kiwanismenn hafa lengi stutt vel við íþróttastarfsemina í Ólafsvík. Víkingarnir æfðu af kappi á síð- asta ári og tóku þátt í mörgum mótum, auk annars félagsstarfs og tilfallandi verkefna. Ungmennafé- Iagar binda miklar vonir við til- komu hins nýja íþróttahúss í Ólafs- vík, en byggingin er nú í útboði. Nýja stjórn Umf. Víkings skipa: Elfa Ármannsdóttir formaður, Hafsteinn Kristinsson ritari og Sigríður Þórarinsdóttir gjaldkeri. Regnhlífarsamtök í umhverfismálum Ólafsvík - Um þrjátíu manna hópur úr Snæfellsbæ hefur stofnað regn- hlífarsamtök í umhverfismálum. St- arfsvettvangur samtakanna er Snæfellsbær og er þeim ætlað að gera alhliða átak í náttúru- og um- hverfisverndarmálum og virkja þá aðila sem áhuga hafa á þessum mál- um, öllum íbúum Snæfellsbæjar til hagsbóta. Framfarafélag Snæfellsbæjar, umhverfís- og náttúruverndarnefnd bæjarins og svokallaður „hugar- flugshópur“ gengust fyrir þessari félagsstofnun, en félagið hlaut nafn- ið „Umhverfissamtökin Saxi“. Af hópi stofnfélaganna má ráða að félagið býr yfír miklum mannauði, en meðal fundarmanna voru tveir garðyrkjumenn, nýút- skrifaður umhverfísfræðingur úr háskólanum í Ási í Noregi auk fleiri vel menntaðra einstaklinga og full- trúum öflugra félagasamtaka. Af umræðum mátti ráða að rofa- börð og malamámur mega nú fara að vara sig, en framtíðarverkefnin verða meðal annars fólgin í skóg- rækt og skjólbeltagerð, gangstíga- lagningum og fleiri fegrunaraðgerð- um, auk þess sem sjónmengun eins og gömlum bflhræjum yerður sagt stríð á hendur. Formennsku í stjóm þessara nýju samtaka gegnir Haf- steinn Hafliðason, garðyrkjustjóri Snæfellbæjar, en með honum í stjóm em Ragnhildur Blöndal og Sævar Hansson. Fram til 15. april nk. er bæði ein- staklingum og félagasamtökum frjálst að gerast stofnfélagar sam- takanna. Morgunblaðið/Friðrik J. Hjartar NÝKJÖRIN stjórn Regnhlífarsamtakanna: Hafsteinn Hafliðason for- maður, Ragnhildur Blöndal og Sævar Hansson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.