Morgunblaðið - 18.03.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 31
LISTIR
FINNUR Bjarnason og Gerrit Schuil.
Ljóðatón-
leikar í
Hafnar-
kirkju
FINNUR Bjarnason, barítón-
söngvari, og Gerrit Scliuil, píanó-
leikari, halda ljóðatónleika í
Hafnarkirkju í Hornafirði á
morgun, fimmtudag, kl. 20.30.
Flutt verða sönglög eftir
Schumann, lög sem búa yfir róm-
antískri fegurð og fágun, segir í
fréttatilkynningu. Schumann var
uppi á fyrri hluta 19. aldar og
sýndi í söngvunum frumleika
sem menn höfðu ekki kynnst áð-
ur þar sem rödd hljóðfærisins
öðlaðist fullt sjálfstæði við hlið
söngraddarinnar.
Finnur Bjarnason hóf söngnám
hjá John Speight við Tónskóla
Sigursveins í Reykjavík, en hélt
til náms við Guildhall School of
Music and Drama í London,
haustið 1995 og lauk þaðan námi
vorið 1998. Finnur hefur komið
víða fram sem einsöngvari á tón-
leikum hér á landi og erlendis.
Gerrit Schuil nam píanóleik við
Vor
TÓJVLIST
S a I ii r i n n
KÓRTÓNLEIKAR
Samkór Kópavogs undir stjórn Dag-
rúnar Hjartardóttur flutti alþýðlega
tónlist. Einsöngvari; Svana Kristín
Ingólfsdóttir. Píanóleikari; Claudio
Rizzi. Þriðjudagurinn 16. mars 1999.
SAMKÓR Kópavogs hélt vortón-
leika sína í Salnum sl. þriðjudags-
kvöld, en slíkir tónleikar eru upp-
gjör þeirrar vinnu, sem kórfólk og
stjórnandi hafa innt af hendi í
skammdeginu. Fyrstu tvö við-
fangsefnin voru lög eftir Tryggva
Baldvinsson, þar fyrra, Ekta-
makinn elskulegi, við texta eftir
Hallgn'm Pétursson og það síðara,
Krummi, við texta eftir Davíð Stef-
ánsson. Lagið við Ektamaka Hall-
gn'ms er sérkennilega hoggið, ekki
söngvænt lag og Krummi Davíðs
ákaflega litlaust. Einsöngur Svönu
Kristínar í miðhluta þess var eins
konar tilraun til að bæta úr litleysi
lagsins. Þetta kom nokkuð á óvart,
því Tryggvi hefur sýnt sig að vera
gott tónskáld.
Það var aðeins meiri þokki yfir
lagi Ingibjargar Bergþórsdóttur,
Sofðu, svanur á heiði og í lagi Val-
Tónlistarháskólann í Rotterdam.
Hann hefur haldið tónleika í flest-
um löndum Evrópu og í Banda-
ríkjunum og komið fram á alþjóð-
leguin tónlistarhátíðum. Hann
hefur tekið virkan þátt í íslensku
geirs Guðjónssonar, Vikivaka, í
raddsetningu kórstjórans, enda var
söngur kórsins nokkuð vel hljóm-
andi. Sömuleiðis var hið skemmti-
lega lag, Vorboðinn eftir Johann
Steurlein, ágætlega sungið. Radd-
legur veikleiki kórsins kom nokkuð
fram í tveimur völsum eftir Josef
Strauss (bróður Jóhanns), en þar
átti píanistinn skemmtilegan leik,
en þó sérstaklega í laginu Til eru
fræ eftir fiðlusnillinginn Pablo de
Sarasate. Tvö næturljóð, það fyrra
eftir hinn fræga tónfræðing Padre
Martini og það seinna eftir píanó-
leikarann og tónskáldið góða,
Chopin, eru dæmi um alþýðlega
umritun klassískra tónverka. Lag
Martinis er ástarljóð og lag Chop-
ins er tekið úr píanóæfingu op. 10
nr. 3 í E-dúr, en það voru félagarn-
ir í MA-karlakvartettinum með Jón
frá Ljárskógum sem einsöngvara,
er upphaflega stóðu fyrir þessari
umritun.
Amigos para sempre eftir
Andrew Lloyd Webber var ágæt-
lega sungið og úr My fair Lady eftir
austurrísk/ameríska tónskáldið
Frederick Loewe, I could have
danced all night, söng Svava Kristín
við undirleik Rizzi. Ekki átti þetta
fræga lag alls kostar vel við rödd
Svövu, var heldur á of lágu tónsviði.
tónlistarlífi frá 1993, bæði sem pí-
anóleikari og hljómsveitarsljóri.
Fyrir jólin kom út hljómdiskur
með flutingi þeirra Finns Bjarna-
sonar og Gerrits Schuil á
sönglögum Schumanns.
Söngur kórsins var hressilegur í
Alexander’s ragtime band eftir Irv-
ing Berlin og í bandaríska þjóðlag-
inu My Lord, what a morning var
einsöngur Svövu Kristínar mjög fal-
lega mótaður.
Tvö lög úr Porgy and Bess eftir
Gershwin, Oh, I can’t sit down og I
ain’t got no shame, voru ásamt
Alexander’s ragtime band og Viki-
vaka Valgeirs, hressilegustu og best
sungnu lögin. Syrpan úr Cavelleria
Rusticana var hins vegar ekki í
góðu jafnvægi, sérstaklega kórþátt-
urinn. Syrpan er sett saman úr lög-
unum Voi lo sapete, A casa og
drykkjusöngnum (Brindisi) Viva il
vino. Þessi lög eru um margt radd-
lega nokkuð krefjandi, þó þau séu
skemmtilega gerð tónlist af Pietro
Mascagni. Voi lo sapete var ágæt-
lega sungið af Svövu Kristínu, sem
hefur bjarta, vel þjálfaða og hljóm-
fallega sópranrödd, svo sem einnig
mátti heyra í bandaríska þjóðlaginu
My Lord.
Píanóleikarinn Claudio Rizzi
studdi kórinn vel og lék oft með
miklum glans, allt frá hinu veikasta
til þrumandi styrkleika. Ilagiún
Hjartardóttir er vaxandi kórstjóri
og stýrði sínu fólki oft nokkuð vel í
samhentum og þokkafullum söng.
■Jón Ásgeirsson
í Kópavogi
Alltaf á
uppleið
KVIKMYIVPIR
II íís k ó I uli io
THE REAL BLONDE
★★
Leikstjórn og handrit: Tom Di
Cillo. Aðalhlutverk: Matthew
Modine, Catherine Keener, Daryl
Hannah, Maxwell Caulfield,
Christopher Lloyd og Cathleen
Turner. Lakeshore Entertain-
ment.
JOE er einn af þeim leikur-
um sem vinna sem þjónar og
fer næstum daglega í áheyrnar-
próf í von um að nú muni hann
fá hlutverk, verða virtur leikari
og líf hans breytast til hins
betra.
Hin eina sanna ljóska er létt
og skemmtileg gn'nmynd sem
hlær að skemmtanaiðnaðinum,
þeim frummannalegu lögmál-
um sem þar gilda, vonum fólks
til að ná þar frama og öllum
þeim sönnu „ljóskum“ og öðr-
um klisjutýpum sem þar ráða
ríkjum. Einnig er góðlátlegt
grín gert að okkur öllum sem
alltaf höldum að hamingjan sé
hinum megin við hornið, og að
hún birtist þá í starfsframa eða
öðrum utanaðkomandi þáttum.
Myndin mætti vera tilbreyt-
ingarríkari, það er of mikið gert
út á sömu brandarana, og ekki
alla nýja af nálinni. Þetta er fín-
asta skemmtun, oft einlæg og
raunsæ, og fólk ætti að kíkja
sérstaklega vel eftir mörgum
skemmtilegum smáatriðum sem
koma á óvart.
Hildur Loftsdóttir
London
frá kr. 16.645
í sumar með
Heimsferðum
Heimsferðir bjóða nú beint leiguflug vikulega til London í sumar,
en við höfum stórlækkað verðið fyrir íslenska ferðalanga til
þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Nú getur þú valið um að
kaupa flugsæti eingöngu, flug og bíl eða valið um eitthvert
ágætis hótel Heimsferða í hjarta London. Brottför alla miðviku-
daga í sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér lága verðið.
Verðkr. 16*645 Verðkr. 19.990
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, flugsæti og skattar. Flug og skattur.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Fremstir síðan 1959
Ná eiginn við 2 ám apnœli
20. mars
PAVOurit^
Gæáavara á góðu verði
STOFNAÐ
1997
(Jlfl
Aa>—
I tilefni affwí, tökum við upp glœnýja sendingu íHÚSSINS
og verðum með shemmtileg ajmœkstihoð
með allt að 35% afslcetti.
Komið við og gerið góð haup á laugatdaginn!
Vín Hússins -Ármúla 23 -108 Reykjavík - Sími: 533 3070 - Fax: 533 3071
Mán.-Fös.: 10:00-19:00
Lau. 11:00 -16:00
Víngerðarverslunin Jyín!
PósbsenAu m um
lanAaHt!