Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hugleikur
Nýr einleikur
ítilefni 15
ára afmælis
HUGLEIKUR frumsýnir nýjan ein-
leik, Þrjátíu ár, eftir Sigi'únu Oskars-
dóttur, um miðjan april, en þá mun
leikfélagið fagna 15 ára starfsafmæli
sínu. Þá verður haldið málþing um
leikfélagið og stöðu þess og stefnu
innan Ieiklistai'heimsins.
A 15 ára starfsferli hafa verið sett-
ar upp 16 leiksýningar í fullri lengd
sem allar hafa verið samdar innan
vébanda félagsins auk fjölda smærri
verka af ýmsum toga.
I haust er stefnt að því að setja á
svið nýtt leikrit eftir V. Kára Heiðdal,
Hildi Þórðardóttur og Sigi’íði Láru
Sigurjónsdóttur. Það nefnist Fúll er
fagurgalinn og gerist að mestu í
Reykjavík á seinni hluta 19. aldar.
A sl. sumri var Hugleikur valinn
til þátttöku á leiklistarhátíð í Noregi
og sýndi þar leikritið Sálir Jónanna
ganga aftur undir stjórn Viðars Egg-
ertssonar. í kjölfarið hefur félaginu
verið boðið að sýna verkið á listahá-
tíð í Litháen nú í sumar.
Hugleikur hefur sett upp heimasíðu
á netinu á slóðinni www.voi'tex.is/áh.
---------
Einar Már les
í Gerðarsafni
Málþing
um „Hitt
kynið“
RANNSÓKNASTOFA í kvenna-
fræðum stendur fyi'ir málþingi á
morgun, fóstudag kl. 14-17.30 í há-
tíðasal Háskóla
íslands. Málþing-
ið er haldið í til-
efni 50 ára út-
gáfuafmælis
tímamótaverks-
ins „Hitt kynið“
eftir franska
heimspekinginn
og rithöfundinn
Simone de Simonc
Beauvoir. Beauvoir
A málþinginu
taka fræðimenn úr heimspeki, bók-
menntafræði og mannfi-æði á ýmsum
þáttum kenninga og rita Beauvoii-s.
Tilgangurinn með málþinginu er að
meta við aldarlok framlag Beauvoh'
til heimspeki, kvenna- og kynja-
fræða, bókmennta og kvennabaráttu.
I fréttatilkynningu segir: „Með
rannsókn sinni á stöðu kvenna í
sögulegu og félagslegu ljósi kom
Beauvoii' hinni svokölluðu „annarri
bylgju“ femínismans af stað. Þetta
verk, sem mun líkast til verða
minnst sem eins af byltingarritum
þessarar aldar, hefur engu síður ver-
ið umdeilt. Beauvoir hefur m.a. verið
sökuð um karllegan hugsunarhátt
sem geri lítið úr móðurhlutverkinu.“
Þessi framúrstefnukona aldamó-
takynslóðarinnar fór eigin leiðir í lífi
sínu og verki. Hún lagði meginá-
herslu á frelsi kvenna og að þær
nytu réttar til jafns við karla. Hún
andmælti því að hlutskipti þeirra
sem „hitt kynið“ skerti möguleika og
tækifæri þeirra. Af þeim sökum
gagnrýndi hún hugmyndir um áskip-
aða hlutverkaskiptingu kynjanna
sem byggja á líffræðilegu kyni. Með
hinni fleygu setningu „maðm' fæðist
ekki kona, heldur verður kona“ leit-
aðist hún við að sýna fram á að kyn
væri ekki „líffræðileg örlög“ sem
dæmdu konur til ófrelsis."
------♦♦♦------
UPPLESTUR á vegum Ritlistar-
hóps Kópavogs í kaffistofu Gerðar-
safns, Listasafni Kópavogs, verður í
dag, fimmtudag, kl. 17-18. Einar
Már Guðmundsson rithöfundur, les
úr bók sinni Fótspor á himnum,
ásamt fleiri verkum.
Aðgangur er ókeypis.
Gallerí Ingólfsstræti 8 á alþjóðlegum listamessum í Madríd og Stokkhólmi
Besta leiðin til að ná sambandi
við hinn alþjóðlega listheim
ÞÁTTTAKA á listamessunni Ai'co
‘99 í Madríd í síðastliðnum mánuði
og listamessunni í Stokkhólmi í síð-
ustu viku hefur nú þegar borið um-
talsverðan árangur fyrir Gallerí
Ingólfsstræti 8 og listamenn á þess
snærum, að sögn Eddu Jónsdóttur,
eiganda gallerísins.
Myndlistannennimir Ragna Ró-
bertsdóttir og Finnbogi Pétm’sson
fóra með Eddu á messuna í Ma-
dríd, sem var haldin 11.-16. febrú-
ar, en hún er að sögn Eddu aðall-
istamessa Suður-Evrópu. „Um það
bil 40% galleríanna sem taka þátt
era spænsk og 60% alþjóðleg. Við
tókum þátt í þeim hluta messunnar
þar sem vora tuttugu ung gallerí,
sem öll þóttu mjög áhugaverð. For-
stjóri messunnar kynnti okkur fyr-
ir mörgum leiðandi kröftum innan
hins alþjóðlega listaheims og hann
vill endilega fá okkur til að koma
aftur á næsta ári. Þá voru mörg at-
hyglisverð gallerí í Madríd sem
sýndu okkur áhuga og margir nýir
möguleikar sem komu upp á borð-
ið,“ segir hún.
Sýningar í Finnlandi, Svíþjóð,
USA, Mexíkó og Frakklandi
„Við erum búin að fá ýmis sýn-
ingartilboð," heldur Edda áfram,
„fyrsta sýningin er eftir mánuð í
Galleri Artek í Finnlandi, en þar
sýna þau Ragna, Finnbogi og Kri-
stján Guðmundsson. Þá hefur
Finnboga og Rögnu verið boðið að
sýna í Galleri Stefan Anderson í
Umeá í Svíþjóð ásamt Tony Cragg
og Marijke van Warmerdam. Kri-
stjáni og Finnboga hefur einnig
verið boðið að sýna í listamiðstöð-
inni Seté í Frakklandi. Ragna og
Ki'istján hafa ennfremur fengið
boð um að sýna í galleríi í New
York í nóvember nk. og í virtu
gallerí í Mexíkóboi-g árið 2000. Þá
taka þau þátt í sýningu í Galleri
Sturm í Stuttgart sem hefst í nóv-
ember og stendur fram í janúar
2000 - og það er ýmislegt fleira í
gangi,“ segir Edda og bætir við að
eigendur tískuhúss sem opnað
verður í Madríd í september nk.
séu að velta fyrir sér kaupum á
stóra verki eftir þau Rögnu og
Finnboga.
Að sögn Eddu er þetta í fyrsta
sinn sem íslenskt gallerí tekur þátt
í alþjóðlegri listamessu. „Galleríin
hafa hingað til bara verið að hugsa
um íslenskan markað, en ég vil
horfa lengra og líka lengra fram í
tímann," segir hún.
Listamessan í Stokkhólmi fór
fram dagana 11.-14. mars og þar
sýndu þau Ragna Róbertsdóttir,
Finnbogi Pétursson, Kristján Guð-
mundsson og Roni Hom. „Þar tóku
þátt 46 alþjóðleg gallerí og um 60
sænsk,“ segir Edda og bætir við að
nú þegar hafi heilmargir möguleik-
ar boðist í framhaldi af þátttökunni
þar. „I fyrsta lagi seldi ég töluvert,
m.a. eftir Kristján Guðmundsson,
RAGNA Róbertsdóttir tekur nið-
ur verk sitt, Lava Landscape, að
lokinni listamessunni í Madríd.
og í öðru lagi komu ýmis tilboð sem
eru meira til langs tíma. Rögnu
bauðst t.d. að halda einkasýningu í
nýju safni í Horsens í Danmörku
árið 2000.“
Það kostar peninga
að skapa möguleika
„Ástæðan íyrir því að ég tek þátt
í þessu er sú að ég held að þetta sé
besta leiðin fyrir gallerí í svona
litlu landi til að ná sambandi við
hinn alþjóðlega listheim. Þarna er
rætt um hlutina, þarna hittast
menn og maður nær sambandi við
safnstjóra og annað fólk sem kem-
ur ekki hingað. Og það er það sem
mér finnst spennandi," segir Edda.
„Annars finnst mér bestu mess-
urnar vera þær í Basel og Berlín,
og ég kem til með að sækjast eftir
að fara á þær, en til þess þarf bara
svo mikla peninga og ef ekki koma
til styrkii' þá gengur það ekki,“
segir Edda, sem hyggst leita eftir
styrkjum hjá menntamálaráðu-
neyti og víðar til þess að fjár-
magna þátttöku þar. „Ef maður
ætlar að koma íslenskum lista-
mönnum á framfæri erlendis, þá
þarf fjármagn. Það kostar peninga
að skapa möguleika. Þarna úti sá
maður að menntamálaráðuneytin
og borgirnar eru að bjóða fólki til
að fylgjast með messunum. T.d.
voru þarna gallerí með gesti frá
sínum borgum, sem var boðið til
að kynna þá fyrir listamönnunum
og því sem var að gerast. Bæði í
Stokkhólmi og í Madríd var t.d.
málþing fyrir safnstjóra og safn-
ara. Á messuna í Stokkhólmi var
t.d. boðið einum safnara frá Is-
landi, Pétri Arasyni. Pétur er í
raun eini nútímalistasafnarinn á
Islandi, hann á mjög stórt safn
eftir alþjóðlega listamenn, og sá
eini sem hefur verið í alþjóðlegum
tengslum," segir Edda.