Morgunblaðið - 18.03.1999, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1999 59
BREF TIL BLAÐSINS
Heimasíða Jóns
Sigurðssonar
Frá Hallgiími Sveinssyni:
VESTFIRÐINGURINN Jón Sig-
urðsson er af eðlilegum ástæðum
oft nefndur á nafn í þjóðmálaum-
ræðunni. Margir telja þó að fjalla
mætti meira en gert er um þennan
þjóðskörung og lykilhlutvek hans í
Islandssögunni og hvernig hann
hagaði verkum í sjálfstæðisbarátt-
unni við Dani. Hann beitti söguleg-
um rökum vopnlausrar þjóðar, sem
Danir tóku mark á að lokum, en
slíkt mun nánast einsdæmi. Auðvit-
að áttu þeir alls kostar við þennan
drengilega og sjarmerandi mann of-
an af íslandi. En þeir létu hvorki líf-
láta hann, stinga honum í steininn
né senda hann heim til fóðurhús-
anna, þrátt fyrir að oft væri hann
þeim óþægur ljár í þúfu. Þess í stað
báru þeir fyrir honum fulla virðingu
og útveguðu honum vinnu í áratugi,
aðallega við íslensku handritin. Þeir
opnuðu honum skjalasöfn sín til
frjálsra afnota og aldrei var svo lítið
í danska ríkiskassanum að þeir
gætu ekki borgað honum fjármuni
til lifibrauðs!
Þessi einstæða framkoma Dana
er auðvitað saga til næsta bæjar, þó
við Islendingar höfum ekkert verið
að hampa henni of mikið. Þó ætti
það ekki að vera ofverkið okkar að
koma henni á framfæri við ýmsa þá
sem sífellt láta hnefaréttinn ráða.
Þótt stjórn Dana á íslandi hafl ekki
alltaf verið sem viturlegust, að okk-
ar eigin dómi, skiptir það litlu máli í
þessu samhengi. í hörðum heimi,
þar sem frelsisbarátta margra
þjóða er enn í algleymingi og vopnin
sífellt látin skera úr deilumálum,
yi-ði tekið eftir því ef við hrósuðum
Dönum á laglegan hátt á alþjóðleg-
um vettvangi fyrir meðhöndlun
þeirra á hinum íslenska frelsisleið-
toga.
Til að vekja athygli á lærdóms-
ríkum og sérstæðum æviferli Jóns
Sigurðssonar, þó af vanefnum sé,
hefur Vestfirska forlagið á Hrafns-
eyri nú um nokkurt skeið haldið úti
Heimasíðu Jóns Sigurðssonar á ís-
lensku, ensku, dönsku og þýsku á
Netinu eða Veraldai-vefnum sem
sumir kalla. Þar er rakin í stuttu,
samþjöppuðu máli og myndum ferill
Jóns Sigurðssonar og barátta hans
og samstarfsmanna. Er þar meðal
annars lögð mikil áhersla á að draga
fram þá eiginleika í fari Jóns sem
gerðu hann að þeim hiklausa og sér-
stæða forystumanni sem raun_ bar
vitni. Hér skal vitnað í orð Olafs
Thors, en fáir hafa lýst Jóni Sig-
urðssyni betur, eiginleikum hans og
hlutverki. Ólafur lét orð falla m.a. á
þessa leið í ræðu sem hann flutti 17.
júní 1961:
„Sjónarhóll Jóns Sigurðssonar
var svo hár, að hann sá yfir fjöll og
firnindi, í allar áttir og langt fram í
tímann. Honum skildist til fulln-
ustu, að frelsisviðurkenningin ein
nægði ekki íslendingum, svo sem
þá var komið högum þjóðarinnar.
Þess vegna barðist hann á tvennum
vígstöðvum í senn. Ut á við fyi'ir
auknu þjóðfrelsi og á heimavíg-
stöðvum gegn fátækt, deyfð, fá-
fræði og vesaldómi. Hann skildi vel,
að það sem á reið var að manna
þjóðina og mennta hana á öllum
sviðum, vekja metnað hennar og
kenna henni að græða óræktaða
jörð og berjast við óblíða náttúru
eftir nýjum leiðum. I allt þetta réð-
ist hann, öllu þessu stjórnaði hann,
einbeittur og ákveðinn, stefnufast-
ur en varúðarfullur og aldrei ofsa-
fenginn og fyrir það var dagsverk
hans enn risavaxnara, að þessi
mikli persónuleiki laðaði að sér
marga mikilhæfustu menn þjóðar-
innar, sem litu á hann sem ókrýnd-
an konung og fylgdu honum oftast
fast að málum.
Svo mikill er frægðarljómi stjórn-
málamannsins Jóns Sigurðssonar,
að afrek vísindamannsins Jóns Sig-
urðssonar hafa gleymst mörgum.
En samt er það staðreynd, að það
var vísindamaðurinn sem sauð
sverðin sem stjórnmálaforinginn
barðist til sigurs með. Það var í
heimildum sögunnar sem Jón Sig-
urðsson fann rökin fyrir ágæti þjóð-
ar sinnar“.
Barátta Jóns gegn fátækt, deyfð,
fáfræði og vesaldómi, sem Ólafur
bendir m.a. á, leiðir hugann að því,
að þessi makalausi Vestfirðingur
var ekki nein venjuleg sjálfstæðis-
hetja, heldur glæsilegur foi-ystu-
maður og hversdagsmaður í senn,
með báða fætur á jörðinni. Slíkt er
fátítt með sjálfstæðisgarpa. í sögu
þjóðanna og spurning hvort við Is-
lendingar höfum veitt þessu næga
athygli, frekar en mörgum öðrum
þáttum í æviferli Jóns. VI.
Um fímmtán þúsund manns hafa
skoðað heimasíðu Jóns Sigurðsson-
ar frá upphafi á ofangreindum fjór-
um tungumálum og um þetta leyti
eru að jafnaði 10 til 12 manns sem
skoða hana á hverjum degi. Slóðin
er: http: /Avww.snerpa.is/kynn/j/
jonsig. Þess skal getið, að nægilegt
er að slá inn orðin Jon Sigurdsson á
öllum helstu leitai-vélum á Netinu
til að komast strax í samband við
síðuna. Hún er nú í endurskoðun og
verður uppfærð innan skamms.
HALLGRÍMUR SVEINSSON,
staðarhaldari á Hrafnseyri.
Ný verslun opnuð fimmtudaginn 18. mars
Sigurstjarnan
Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
Frá Pakistan:
Handunnin húsgögn,
ekta pelsar, leðurfatnaður,
ullarmottur og ýmsar gjafavörur
Qpið virka daga frá kl. 12-18 og laugard. frákl. 11-14.
Opnunartilboð sunnudaginn 21. mars frá kl. 11-16.
Stjörnuspá á Netinu
^mbl.is