Morgunblaðið - 30.05.1999, Side 6

Morgunblaðið - 30.05.1999, Side 6
6 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Mannvirki í hafnarborginni Múrmansk Hvflustaður, endur- vinnsla og ísbrj ótar Um DEKKIÐ valsar kappklæddur maður og reynir að halda á sér hita. Með hettu niður fyrir augu og vopnaður Kalas- hnikov-riffli gætir hermaðurinn fleysins. Af þessu má ekki skilja sem svo að neinum með fullu viti hugnist að ræna skipinu eða varn- ingi þess. Skipið heitir Lepse og varningurinn um borð eru 642 mislöskuð hylki er geyma m.a. úr- aníum kjarnorkueldsneyti úr Lenín-ísbrjótnum. í kjölfar of- hitnunar kjarnakljúfsins í Lenín árið 1966 var kjarnorkueldsneyti ísbrjótsins fjarlægt í skyndi og komið fyrir í Lepse. Vegna hins gríðarlega hita sem myndaðist tútnuðu hylkin út og aflöguðust. í geymsluskipinu hafði verið komið fyrir hólfum sem rúma áttu hylk- in. Er á staðinn var komið gátu verkamenn með engu móti komið öllum hylkjunum fyrir. í ljósi að- stæðna var gripið til skyndilausn- ar. Sleggjur voru nálægar og hylkjunum var barin leið á „rétt- an“ stað - að því er flestir full- yrða. Urganginn er nú ekki hægt að fjarlægja með hefðbundnum leiðum. Lepse, sem var smíðað fyrir heimsstyrjöldina síðari og var ætlað að flytja vörur með norður- strönd Rússlands, er talið geyma jafnmikið magn geislavirkra efna og sá kjarnaofn Tsjérnóbýl-kjarn- orkuversins sem bilaði árið 1986, er staðsett yst í Múrmansk-höfn. Um hálf milljón manna býr í 20 km radíus umhverfis skipið og landamæri Finnlands og Noregs eru í um 200 km fjarlægð. Örygg- isgæsla er ströng og ljósmyndun bönnuð. „Hryllilegasta farartæki veraldar" Opinberlega hefur skipið verið, síðan 1981, tímabundinn geymslu- staður fyrir kjarnorkueldsneyti Atomflot, kjarnorkuísbrjótaflota Múrmansk skipafélagsins. Manna á milli er Lepse hins vegar kallað „hryllilegasta farartæki verald- ar“. Það er ekki að ósekju því um 60-70% af hylkjunum um borð eru skemmd og á þeim tíma sem liðinn er síðan þeim var komið þar fyrir hefur geislavirknin magnast margfalt. Urræði eru fá og dýr. Og ekki er hægt að líta á Lepse sem einangrað fyrirbrigði kjarn- orkubúskapar Rússa. Á Kóla- >• I Múrmansk höfn liggur ryðkláfurinn Lepse við bryggju, hlaðinn kjam- orkuúrgangi. Andri Luthersson kynnti sér þetta „hryllilegasta far- artæki veraldar“. STARFSMENN geymslubygging- ar Múrmansk-skipafélagsins sem hýsir geislavirkan úrgang í fljót- andi formi eru orðnir vanir gesta- komum. Hér beinir einn elsti starfsmaðurinn gestum leiðina að sal þeim er geymir áhöld sem notuð hafa verið við að fjarlægja kjarnakljúfa úr ísbrjótum. skaga eru önnur geymslusvæði yfirfull og oftar en ekki í allhrika- legu ástandi. Fjölþjóðlegt verkefni undir stjórn Norðmanna þar sem að koma t.d. Bandaríkjamenn og Frakkar auk alþjóðlegra stofn- ana, beinist nú að því að koma varningi Lepse úr skipinu og í ör- uggari geymslur og e.t.v. endur- vinnslu á Majak-svæðinu austur í Uralfjöllum. Ráðgert er að færa efnið seint á þessu ári eða í upp- hafi næsta árs, með sérstökum lestarvögnum sem smíðaðir hafa verið og verða hylkin fjarlægð úr skipinu með fjarstýrðum vél- mennum sem enn eru á tilrauna- stigi. Kostnaðurinn er talinn nema um einum milljarði ís- lenskra króna. Áður höfðu hug- myndir Rússa einkum beinst að því að draga Lepse frá höfninni í Múrmansk til Novaja Zemlya þar sem skipinu og varningi þess yrði fundinn varanlegur hvílustaður í sífreranum. Ekki þótti þó ráðlegt að taka þá áhættu þar eð förin sjálf hefði getað stofnað skips- skrokknum í hættu. Hlutar skipsins sjálfs eru einnig taldir vera geislavirkur úr- gangur sem koma verði í örugga geymslu eftir að eldsneytishylkin hafa verið fjarlægð úr skipinu. í ferð blaðamanns að skipinu vakti athygli að mannaferðir í og við skipið eru tíðar og var upplýs- ingafulltrúi Múrmansk skipafé- lagsins því spurður um öryggi þeirra sem skipsins gæta. „Öryggið er tryggt,“ sagði fulltrú- inn og bætti því við að í sérsveit- um þeim sem skipsins gæti hefðu menn starfað í allt að 25 ár, án þess að kenna sér meins. Það kjarnorkueldsneyti sem mest hætta stafar af hafi verið steypt fast um borð í skipinu til að minnka hugsanleg geislavirk áhrif og auk þess verndi skipskrokkur- inn menn fyrir geislun. Innan um fljótandi kjarnorku- úrgang íklæddur baðslopp Skammt frá hvílustað kjarn- orkueldsneytis Leníns sáluga við höfnina í Múrmansk er bygging Múrmansk skipafélagsins sem hefur að geyma geislavirkan úr- gang ísbrjótaflota Rússa. Til skamms tíma var þar hægt að endurvinna um 1.200 rúmmetra af geislavirkum úrgangi í fljótandi formi en með aðstoð Norðmanna og Bandaríkjamanna hafa afköst endurvinnslunnar verið aukin í um 5.000 rúmmetra. Ekki er van- þörf á þar sem byggingin hefur alls ekki annað öllu því efni sem til fellur frá hinum sjö kjarn- orkuknúnu ísbrjótum fyrirtækis- ins. Hugmyndir eru nú uppi um það að nota mannvirkið til að end- urvinna hluta þess úrgangs sem fyrir er við kafbátahafnir Norður- flotans - jafnvel þótt afkastageta vinnslunnar sé aðeins dropi í hafið ef tekið er mið af öllum þeim úr- gangi sem nauðsynlegt væri að geyma á öruggum stað. Höfuðmarkmiðið með endur- bótum byggingarinnar er sá að með fullbúinni endurvinnslu geta Rússar gengist formlega undir skilmála Lundúna-sáttmálans sem kveður á um bann við losun geislavirkra efna í sjó. Svipað verkefni hefur verið í undirbún- ingi í Vladivostok-héraði í austur- hluta Rússlands og þar með dyggri aðstoð japanskra stjórn- valda. Kostnaður endurbótanna í Múrmansk er talinn nema um hálfum milljarði ísl. króna og hef- ur norska ríkisstjórnin veitt u.þ.b. einum þriðja hluta fjármagnsins í verkið. Eftir örstuttan blaðamanna- fund með upplýsingafulltrúa og framkvæmdastjóra Múrmansk skipafélagsins var blaðamanni Morgunblaðsins gefinn kostur á að skoða króka og kima bygging- arinnar. Með rússneska geislun- armæla að vopni, íklæddur næfur- þunnum slopp úr baðmull, var ráðist til inngöngu í dimma bygg- inguna. Samferðamaður hafði á orði að þótt erfitt kynni að reyn- ast að finna lyktina af úrgangin- um,_þá mætti e.t.v. heyra í honum Halló krakkar! Afi veröur á Mallorca í lok júní BóUun»r5* (n>ín"eI: _ ioto Samvinnuferðir Landsýn Á verði fyrir þigl .. Morgunblaðið/Andri HÖFNIN í Múrmansk. Horft úr brúnni á Jamal, yngsta kjarn- orkuknúna ísbrjót Rússa, á kjarnorkuísbrjótana Lenín og Arktika, þann elsta og næstelsta. UM BORÐ í Lepse er geymt kjarnorkueldsneyti sem til féll er kjarnakljúfur ísbrjótsins Lenfns bilaði árið 1966. Ef grannt er skoðað sjást tvær rauðar merkingar á byrðingi skipsins. Milli þeirra eru geymslurýmin. brakið. Þau orð rættust sem betur fer ekki. 76.000 hestafla ísbrjótar þjóna japönskum ferðamönnum í ísbrjótaflota Múrmansk skipafélagsins eru alls sjö kjarn- orkuknúnir ísbrjótar auk eins kjarnorkuknúins vöruflutninga- skips, hins eina sinnar tegundar í veröldinni. Rússneska ríkið á skipin en skipafélagið sér um rekstur þeirra og viðhald. Fimm skip ísbrjótaflotans eru ætluð til siglinga um Norður-Ishafið og hin tvö til ísbrots á minna dýpi. Lenín, fyrsti kjarnorknúni ís- brjótur Rússa, var smíðaður fýrir 42 árum og er því rík hefð í Múrmansk fyrir öflugum ísbrjót- um. Líta heimamenn stoltir til flotans. Jamal, nýjasti ísbrjótur flotans búinn tveimur kjarnaofnum sem framleiða 32.000 hestöfl hvor, var tekinn í notkun árið 1993 og hefur Andrei Smimov, skipstjóri Jamals, alls siglt ellefu sinnum á Norðurpólinn, þar af sjö sinnum á Jamal. Að sögn Smirnovs er meg- intilgangur ísbrjótanna að halda skipaleiðum opnum meðfram norðurströnd Rússlands og um heimskautasvæðið. Stærri skipin geti brotið ís sem sé allt að 2,5 metrar á þykkt, án þess að nema staðar. Minni skipin sem rista grynnra séu síðan notuð til þess að halda skipaleiðum á ám opnum. Síðan árið 1990 hefur Múrm- ansk skipafélagið haldið uppi ferðum til Norðurpólsins fyrir út- lendinga með ævintýraþrá. En ævintýraþrá er ekki það eina sem menn þurfa að hafa í farteskinu, nóttin á ódýrasta farrými kostar um 70.000 ísl. krónur og ferðin í heild sinni getur tekið allt upp í mánuð. Að sögn Smirnovs hafa Rússar ekki efni á ferðinni. Flest- ir hafi ferðalangarnir verið Japan- ar. Fyrsti heimamaðurinn sem farið hefur sem ferðamaður til Norðurpólsins á vegum Múrm- ansk skipafélagsins fór ekki fyrr en sl. ár. Nýrússi að sögn túlks- ins. Hvort sem Norðurpólsferðimar eru tímanna tákn eða örþrifaráð skipafélags sem berst í bökkum, er ekki hægt að verjast þeirri hugsun að ísbrjótar Atomflot - stolt Norð- urhafanna - megi muna sinn fífíl fegri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.