Morgunblaðið - 30.05.1999, Side 10
10 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Náttúruvernd ríkisins
NORÐARLEGA á vegstæðinu. Það sér til Breiðaflarðar og framundan eru Rauða- og Gráakúla. Framundan er einnig Bjarnarhafnarfjall.
AFORM UM VEG A SNÆFELLSNESI VALDA DEILUM
S AMGONGUBOT EÐA NATT-
URUSPJOLL A VATNAHEIÐI?
AÐUR en við lítum á um-
sagnir í frummatsskýrsl-
unni og athugasemda-
lista Náttúravemdar rík-
isins skulum við kanna hvemig
Vatnaheiði er lýst í Árbók Ferðafé-
lags Islands, „Snæfellsnes norðan
fjalla“ frá árinu 1986: „Um fjalla-
skarð þetta, sem ýmist var nefnt
Vatnaheiði, Vatnsskarð, Vatnamýri
eða Vatnsheiði, var lengi alfarar-
leið úr Hraunsfírði suður í Mikla-
holtshrepp og Staðarsveit. Þetta er
breiðasta og lægsta skarðið í Snæ-
fellsnesfjallgarði og á fyrstu ára-
tugum flugferða hér á landi lá um
það aðalflugleiðin til Vestfjarða frá
Reykjavík. Þama eru allmikil heið-
arlönd, að mestu blásnir sandar
austan til, en gróðursæl afréttar-
lönd vestan til, sem era notuð af
bændum beggja vegna fjallgarðs-
ins. Tvö stór og góð silungsvötn
setja mjög svip á landslagið þama,
Hraunsfjarðarvatn (207m), sem
nefnt er Hjarðarvatn í Eyrbyggja
sögu, og Baulárvallavatn (191m)
nokkra sunnar. Þau hafa bæði af-
rennsli suður af, Vatnaá rennur úr
Hraunsfjarðarvatni suður í Baulár-
vallavatn og þaðan rennur Straum-
fjarðará niður Dufgusdal til sjávar
á sunnanverðu Snæfellsnesi.“
Frummatsskýrsla á umhverfísáhrifum vegar númer 56 yfír
Vatnaheiði á Snæfellsnesi hefur verið lögð fram og samkvæmt
venjubundnu ferli slíkra mála hefur Náttúruvernd ríkisins sent
Skipulagsstofnun ríkisins umsögn sína um matið. VSÓ Ráðg;jöf
vann frummatið fyrir Vegagerðina í mars á þessu ári. Athuga-
semdir Náttúruverndar ríkisins benda til þess að þetta mál verði
talsvert til umræðu á næstunni. Guðmundur Guðjónsson glugg-
aði í frummatið og athugasemdir Náttúruverndar, o^ ræddi við
ýmsa aðila sem tengjast svæðinu á ýmsan hátt.
Fjórði fjallvegurinn
Fyrir eru þrír fjallvegir yfir
Snæfellsnes, Fróðárheiði, Kerling-
arskarð og Heydalsvegur. Þeir
henta afar misvel fyrir byggðarlög-
in eins og gefur að skilja, en allir
eiga þeir til að lokast í vetrarveðr-
um og raunar er lítt treystandi á
Fróðárheiði að vetri til. Þá era að-
eins tveir eftir og hefur Kerlingar-
skarð löngum haft á sér orð fyrir
illviðri og vart líður sá vetur að
ekki þurfí að koma fólki þar til að-
stoðar. Því er fjórði fjallvegurinn
yfir nesið kominn í umræðuna.
Vegagerðin áformar nú að leggja
16,5 kílómetra langan veg um
Vatnaheiði. Um er að ræða 6,5
metra breiðan veg í vegflokki C2.
Aformað er að hefja framkvæmdir
í byrjun næsta árs og skal vega-
gerð vera lokið að fullu árið 2002.
Aætlað er að verkið allt muni kosta
um 460 milljónir króna og er mark-
miðið með nýju vegstæði að bæta
samgöngur og auka umferðarör-
yggi. Framkvæmdin samræmist
stefnu sveitarstjóma á Vesturlandi
varðandi uppbyggingu vegakerfis-
ins, sem talin er eitt brýnasta
hagsmunamál byggðarlaganna á
Snæfellsnesi.
Sem fyrr segir vann VSO Ráð-
gjöf frammat fyrir Vegagerðina og
verða nú helstu niðurstöður mats-
ins raktar:
- Nýr vegur um Vatnaheiði mun
auka umferðaröryggi og bæta sam-
göngur. Utreikningar á umferðar-
öryggi benda til þess að vegur yfir
Vatnaheiði verði a.m.k. 50% öragg-
ari en endurbættur Kerlingar-
skarðsvegur og því umtalsvert ör-
uggari en núverandi vegur. Hönn-
un og lega vegarins mun jafnframt
bæta samgöngur og verður hönn-
unarhraði nýs vegar 90 km/klst.
Auk þess benda athuganir á veður-
fari til þess að það valdi minni
röskun á samgöngum á vegi yfir
Vatnaheiði en á vegi yfir Kerling-
arskarð.
Fyrirhuguð veglína er yfirleitt
vel gróin. Suðurhluti hennar er
nær algróinn en gróðurhulan er
gisnari á norðurhlutanum, sem er
þurrari og meira áveðurs. Vegur-
inn mun eyða þeim gróðri sem fer
undir vegstæðið, en með lagningu
fljótandi vegar verður ekki breyt-
ing á grannvatnsstöðu eða -
streymi. Vegurinn mun ekki út-
rýma sjaldgæfum tegundum, en
hann mun skerða vaxtarsvæði
Skollakambs.
Vandað verður til við frágang
efnistökustaða og þeir aðlagaðir
landslagi, sama á við um vegkanta.
Uppgræðsla með grenndargróðri
verður í samráði við Náttúravernd
ríkisins.
Fuglalíf á íyrirhuguðu vegstæði
er töluvert og þéttleiki mófugla
meiri en á mörgum sambærilegum
svæðum. Á svæðinu er ekki að
finna sjaldgæfa fugla. Búsvæði
fugla sem era á vegstæðinu munu
eyðileggjast en það era búsvæði
fugla sem era algengir á landsvísu
og verður þeim ekki útrýmt á
svæðinu.
Það vilja allir
hér þennan veg
KRISTINN Jónasson, bæj-
arsljóri í Snæfellsbæ,
sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að allar sveitarsljórn-
irnar og allir íbúar á norðan-
verðu Snæfellsnesi vildu fá um-
ræddan veg yfir Vatnaheiði og
sjálfur ætti hann erfitt með að
skilja hvers vegna það færðist
svo í vöxt að lífríkið væri meira
metið en mannskepnan, en hon-
um virtist umræðan í þessu máli
og athugasemdir Náttúruvernd-
ar ríkisins bera keim af því.
„Við sem hér búum vitum að á
Kerlingarskarði er mjög erfiður
kafli, þar getur vindhæð orðið
mikil og það líður ekki sá vetur
að í fréttum megi ekki lesa um
hrakninga fólks á þessum slóð-
um. Með nýjum vegi yfir Vatna-
heiði fáum við veg sem liggur
mun neðar, er snjóléttari og
mikil samgöngubót. Við viljum
að sjálfsögðu taka tillit til um-
hverfisþátta en í þessu tilviki
eiga þarfir mannfóiksins að ráða
og mér þykir með ólíkindum
hvað gert er lítið úr öryggisþátt-
um við þessa vegalagningu í at-
hugasemdum Náttúruverndar
ríkisins. Það liggur við að það sé
móðgun við okkur sem búum
hér norðan á Snæfellsnesi. Þá er
ekki um að ræða að þarna sé
verið að eyðileggja eitt eða
neitt, þvert á móti batnar með
vegalagningunni aðgengi að
nýju útivistarsvæði," sagði
Kristinn.
Aðspurður um aðra valkosti,
t.d. varaáætlun Vegagerðarinnar
að byggja upp gamla veginn á
Kerlingarskarði, sagði Kristinn:
„Ef peningar væru eina sjónar-
miðið í þessu máli þá er dæmið
einfalt. Það er enginn sparnaður
fólginn í því að gera upp veginn
á Kerlingarskarði. Vegurinn þar
er ónýtur. Og það er ekki eins og
þetta sé það eina sem í gangi er.
Samgöngumálin eru í brennid-
epli hérna og allir eni samstiga.
Þannig á t.d. að fara í fram-
kvæmdir á Fróðárheiði í haust.
Menn verða að geta valið um eft-
ir veðurfari hverju sinni.“
Önnur sjónarmið
Aðrir á sama máli
Fleiri eru á sama máli, í um-
sögn í frummatsskýrslu hvetur
t.d. Ólafur Hilmar Sverrisson,
bæjarsljóri í Stykkishólmi, til
vegagerðarinnar og telur slæmar
samgöngur milli norður- og suð-
urstrandar hafa staðið ýmsum
góðum málum á svæðunum fyrir
þrifum, m.a. hefðu aðilar í ferða-
þjónustu orðið af viðskiptum og
íbúar á sunnanverðu svæðinu
væru flæmdir suður á bóginn til
að Ieita eftir þjónustu af ýmsum
toga.
Brynjar Hildibrandsson, odd-
viti Helgafellssveitar, Björg
Ágústsdóttir fyrir hönd hrepps-
nefndar Eyrarsveitar og fulltrú-
ar landeigenda Selvalla taka í
sama streng á sömu forsendum
og tíundaðar eru.
Við Straumfjarðará er mesta
straumandarþéttbýli á Snæfells-
nesi og verður framkvæmdum hag-
að í samráði við Náttúravernd rík-
isins á þann hátt að ekki verði
raskað varpi straumanda við
Straumfjarðará.
Framkvæmdir munu ekki raska
fornminjum.
Fyrirhugaður vegur mun fara
um jaðar svæðis sem er á Náttúru-
minjaskrá, en hann mun ekki raska
þeim jarðfræðiminjum sem taldar
era hafa mest vemdargildi. Vegur-
inn mun skera vikurraðninga, sem
era fyrir ofan Selvallavatn, en
reynt verður að draga sem kostur
er úr raski á þeim.
Landslag í nágrenni fyrirhugaðs
vegstæðis er fallegt og margbreyti-
legt. Vegurinn mun breyta ásýnd
svæðisins, þar sem farið er yfir til-
tölulega óraskað land. Landslags-
heildin mun breytast en landslags-
formin munu halda sér óbreytt
sem áður.
Erfitt er að spá um áhrif á úti-
vist á svæðinu. Margir nýta sér
möguleikana til veiða í Selvalla-
vatni og Baulárvallavatni, auk þess
sem tjaldað er við Selvallavatn.
Vegur um Vatnaheiðina mun auð-
velda aðgang að svæðinu og opna
það frekar fyrir útivist. Fyrirhug-
aðar framkvæmdir munu ekki hafa
áhrif á lífríki straumvatna. Gerðar
verða ráðstafanir til þess að tengja
reiðleiðir milli norðanverðs og
sunnanverðs Snæfellsness og er þá
m.a. gert ráð fyrir að nýta veginn
um Kerlingarskarð sem reið- og
gönguleið."
E
Árni Bragason forstjóri Nátt-
úruvemdar ríkisins sagði í samtali
við Morgunblaðið að málið væri nú
í eðlilegum lögbundnum farvegi,
verkið hefði verið auglýst og
margir látið athugasemdir sínar í
ljós. Næsta skrefið væri að Skipu-
lagsstjóri færi yfir gögn málsins
og sendi frá sér úrskurð. Sá úr-
skurður er kæranlegur til ráð-
herra og væra til dæmi um að ráð-
herra hefði fellt slíkan úrskurð úr
gildi. Það væri því ljóst að enn ætti
þetta mál eftir að vera í umræð-
unni þar sem þó nokkrir aðilar
myndu kæra úrskurðinn hvernig
sem hann félli.
Árni sagði að Náttúruvernd rík-
isins hefði farið yfir gögnin í mál-
inu og sent athugasemdir sínar til
Skipulagsstofnunar. Náttúravernd
ríkisins leggst gegn hugmyndum
um veg yfir Vatnaheiði og í athuga-