Morgunblaðið - 30.05.1999, Síða 11

Morgunblaðið - 30.05.1999, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUN NUDAGUR 30. MAÍ 1999 11 í VOTLENDI Vatnaheiðar, Straumfjarðará t.v. Stikur Vegagerðarinnar greinilegar til hægri við göngufólkið. Náttúruvernd ríkis- ins telur að miðað við þau gögn sem lögð eru fram í frummatsskýrslu hafi ekki verið sýnt fram á svo óyggj- andi sé að vegur yfir Vatnaheiði sé mun betri kostur í veðurfarslegu tilliti en vegur yfir Kerlingarskarð semdum stofnunarinnar eru helstu ástæðumar tíundaðar: - Sam- tökin leggjast alfarið gegn hug- myndum um nýjan veg yfír Vatna- heiði. Hið fyrirhugaða vegarstæði er eitt stærsta ósnortna náttúru- svæði á Snæfellsnesi. Um er að ræða gróskumikið votlendi, sem er að hluta á náttúruminjaskrá, prýtt fágætum og einstaklega fógrum jarðmyndunum (Berserkjahraun og gígamir Grákúla og Rauðkúla). Umrætt svæði er nú vinsælt úti- vistarsvæði. Mikilvægi þess að hlífa náttúra- gæðum sem þessum eykst stöðugt. Slík náttúragæði verða jafnan ekki endurheimt heldur eyðilögð um alla framtíð sé hróflað við þeim með meiriháttar mannvirkjagerð, jarðefnavinnslu og umbroti á landi. Samtökin gagnrýna, að náttúra- og útivistargildi svæðisins er stór- lega vanmetið í frammatsskýrsl- unni. Vegagerð þar stríðir bæði gegn ákvæðum nýrra náttúru- vemdarlaga um sérstaka vemd landslagsgerða, sem eru einkenn- andi fyrir Island, og skuldbinding- um íslands gagnvart sáttmála Sa- meinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni (7. grein) sem sam- þykktur var í Ríó 1992. Þá telur Náttúravernd ríkisins að meintur vegtæknilegur ávinningur sé um- deilanlegur, enda skorti rannsókn- ir þar að lútandi. Náttúravemd ríkisins telur end- urbætur á núverandi leið um Kerl- ingarskarð (Kostur B) mun væn- legri kost. Þó ber að huga að út- færslu þeirrar leiðar. Einkanlega að norðanverðu þar sem sam- gönguvandamálin era. Stofnunin telur óviðunandi að fórna náttúra- gæðum Vatnsheiðar og Berserkja- Fjallvegir á Snæfellsnesi Hellissandur Rjf ' * Ólafsvík Stykkishólmur. Mörgum spurningum er ósvarað VIÐ hjónin erum nú ekki mjög spennt með það að vegstæðið um daiinn verði valið,“ sagði Ástþór Jóhannsson, ábúandi í Dal í Miklaholtshreppi, en Vatnaheiðarvegur mun liggja þvert yfir lendur hans og Katrrn- ar Ævarsdóttur eiginkonu hans. Þau Ástþór og Katrín keyptu jörðina í fyrrasumar og voru vart búin að hreiðra um sig er starfsmenn Vegagerðarinnar hófu störf við lagningu marka- línu vegstæðisins. Ástþór sagðist skilja mjög þörf íbúa á Snæfellsnesi og annara íbúa landsins fyrir veg- og sam- göngubótum, en mörgum spurn- ingum væri þó ósvarað, t.d. varð- andi aðra valkosti heldur en Vatnaheiðarveg. „Varðandi það að Vatnaheiðar- ieiðin sé ódýrari kostur þá er það bara eins og hver annar útreikn- ingur. Huglægt mat á hvers virði ósnert land er í framtíðinni hlýt- ur að vakna nú við aldamótin. Hvernig höfum við Islendingar gengið um landið okkar síðastlið- ið árþúsund. Við upphaf nýs ár- þúsunds eru forsendur allt aðrar. Ég tel að nýr vegur um Dufg- usdal einn sér muni ekki gera út- slagið á bústetuþróun til eða frá á Nesinu. Að minnsta kosti ekki úr þessu. Þjóðfélagsþróunin í dag gerir kröfú til fleiri þátta og þá vaknar jafnvel sú spuming hveijir em að hagnast meira á þessum vegi, almenningur, eða þeir sem hafa eingöngu hag af því að koma burtu fiski af svæð- inu? Nú eru tímar að breytast. Ósnortin landsvæði eru orðin verðmæt fyrir það eitt að vera ósnert. I því liggja verðmætin, að mannshöndin er ekki búin að sefja mark sitt á þau um alla ei- lífð. Slíkum svæðum fækkar ört og á sama tíma sækist fólk í auknum mæli eftir að njóta þeirra sem útivistarsvæða. Með lagningu vegar um Dufgusdal er ekki aðeins spillt einu sérstæð- asta dalverpi á sunnanverðu Snæfellsnesi auk annarra sér- stæðra jarðfræðimyndana norð- ar á heiðinni, heldur dregur sú framkvæmd úr verðmætum alls svæðisins. Því með veglagningu hverfur eitt sfðasta aðgengilega svæði Nessins á skilgreindu lág- lendi, sem enn er að mestu ósnert af mannavöldum. Eyði- Iagt um alla framtíð sem útivist- arsvæði, vegna umferðar. Úti- vistarmöguleikar dalsins, svo sem silungsveiði, eða útreiðar verða að engu gerðar vegna legu vegarins með þungri umferð, víðast í aðeins fáeinum arm- lengdum frá efri hluta Straum- fjarðarár. Þá fara undir veginn grösugustu hagarnir í upp- rekstrarlandi sveitarinnar þar sem fé hefur hafst við yfir sum- artímann. Varðandi þau rök, að vetrar- leiðin sé greiðfærari um Vatna- heiði heldur en Kerlingarskarð þá hafa farið fram litlar rann- sóknir á snjóalögum þarna og því óvíst með öllu hvort leiðin upp dalinn sé á nokkurn hátt snjólétt- ari þegar skefur af fjöllunum á báða vegu niður í hlíðarnar undir vegstæðinu nýja. Það verður varla minna heldur en á endur- bættum og uppbyggðum Kerling- arskarðsvegi, enda vísar gróður- far í Dufgusdal til snjóþyngsla á vetrum. Þá er óbærilegt að sjá stærsta og fallegasta hluta lands okkar, eyðilagðan með fyrirhug- uðum framkvæmdum sem að auki setur skorður á allar hugs- anlegar framtíðaráætlanir okkar um hagnýtingu dalsins, sem fyrst og síðast ganga út á að það sem gert verði samrýmist þeim kröf- um sem telst til skynsamlegrar landnýtingar í takt við nútímann. Því viljum við að gamla vegstæð- ið yfir Kerlingarskarð verði end- urunnið í stað þess að ryðja fyrir nýju. Við erum eþss fullviss að íbúarnir á Nesinu og aðrir gestir svæðisins mundu fagna þeim málalokum í framtíðinni, ef sú verður raunin,“ sagði Ástþór. hrauns vegna farartálma sem upp kemur endram og sinnum á mjög takmörkuðum vegkafla að vetrar- lagi.“ Sé litið ögn nánar á samantekt Náttúravemdar ríkisins kemur í ljós að á svæðinu sem um ræðir hafi fundist m.a. tvær sjaldgæfar háplöntutegundir, sóldögg og burkninn skollakambur og athygl- isverða mosaflóra sé einnig að finna í votlendi á jörðinni Dal og þar vaxi m.a. tvær sjaldgæfar teg- undir, flekkulápur og hómosi. Þessar tegundir þola alls ekki að mýrin sé þurrkuð. Þá vitna athuga- semdimar í það álit sérfræðinga Náttúrufræðistofnunai’ að straum- andarvarpið við ofanverða Straum- íjarðará gæti raskast við aukna umferð um svæðið. Varðandi votlendið segir eftir- farandi í bréfi Náttúravemdar rík- isins: - I frummatsskýrslunni kemur m.a. fram að gert er ráð fyr- ir að lagður verði fljótandi vegur yfir votlendissvæðin á Vatnaheiði. Votlendinu í nágrenni vegar verði því ekki raskað né votlendisjarð- vegi undir veginum. Náttúravemd ríkisins telur að forðast eigi að leggja vegi yfir óraskað votlendi enda hefur gengið mjög á mýrlendi á þessari öld vegna framræslu. Nauðsynlegt er að vernda það sem eftir er ósnert, m.a. vegna fuglalífs. Þá er röskun á votlendi ekki í sam- ræmi við stefnu yfirvalda en í riti umhverfisráðuneytis, „Sjálfbær þróun í íslensku samfé- lagi - Framkvæmdaáætlun til aldamóta", segir m.a. um ástand umhverfismála á íslandi: „Fá óspillt votlendissvæði á láglendi era eftir á íslandi og nauðsynlegt er að varðveita þau og önnur inn- lend vistkerfi gegn röskun og end- urheimta þau eftir því sem kostur er.“ Síðar stendur þetta: - Að mati Náttúruvemdar ríkisins er fyrir- huguð lagning vegar yfir votlendi á Vatnaheiði í ósamræmi við stefnu yfirvalda hvað varðar verndun vot- lendis. Jafnframt er slík vegarlagn- ing í ósamræmi við nýsamþykkt lög nr. 44/1999 um náttúravemd sem taka gildi l.júlí nk. en sam- kvæmt 37. grein þeirra laga skulu mýrar og flóar, 3 hektarar að stærð eða stærri, njóta sérstakrar vemdar og skal forðast röskun þeirra eins og kostur er. Þá má benda á að í greinargerð Náttúra- fræðistofnunar íslands kemur fram að votlendið á Mýram og Vesturlandi er gróskumikið og teg- undaauðugt og hefur mikið gildi á landsvísu og era mýramar á Vatnaheiðarleið hluti af því. Sam- kvæmt frammatsskýrslu er fyrir- hugað að leggja fljótandi veg yfir mýrlendið. Náttúravemd ríkisins bendir á að hér á landi hafa ekki farið fram rannsóknir á áhrifum slíkrar vegalagningar á votlendi, t.d. hvort breytingar verði á gróðri í nágrenni vegarins. Því era í raun engin gögn fyrir hendi sem styðja þær fullyrðingar að lagning fljót- andi vegar hafi ekki neikvæð áhrif á vatnsbúskap og gróður í vot- lendi.“ Og varðandi veðurfar segir m.a.: - Náttúravemd ríkisins telur að miðað við þau gögn sem lögð era fram í frummatsskýrslu hafi ekki verið sýnt fram á svo óyggjandi sé að vegur yfir Vatnaheiði sé mun betri kostur í veðurfarslegu tilliti en vegur yfir Kerlingarskarð. í því sambandi má einnig benda á að veðurmælingar á Vatnaheiði hafa staðið mjög stutt yfir en fyrsta veð- urstöðin var sett upp á Vatnaheið- arleið 18,desember 1998. Kemur fram í frammatsskýrslu að athygli veki hve mikill munur er á tíðni ófærðar eftir áram og sýni það mikilvægi þess að hafa sem flest ár til grandvallar við könnun á veður- fari af þessu tagi. Þá vekur Nátt- úravernd ríkisins athygli á að gróður á Vatnaheiði bendir ein- dregið til þess að um snjóþungt svæði sé að ræða og er það í sam- ræmi við heimildir um mikla snjó- söfnun í Dufgusdal. Þrátt fyrir þessar vísbendingar hafa ekki farið fram mælingai- á snjóalögum á svæðinu.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.