Morgunblaðið - 30.05.1999, Side 16
16 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
____________KNATTSPYRNA______
Mótanefndinni ekkert
óviðkomandi
ÞETTA er auðvitað afrakstur
gríðarlegrar vinnu,“ segir Hall-
dór, aðspurður um hvort ekki sé
erfitt verk og tímafrekt að raða sam-
an öllum knattspymuleikjum á land-
inu og koma mótaskránum út í bók-
arformi. „Það hefur ávallt verið
keppikefli knattspyrnusambandins
að mótabókin komi út nokkrum dög-
um fyrir íslandsmótið og sé í aðalat-
riðum eins og mótið muni spilast.
Það hefur alltaf verið styrkleiki sam-
bandsins í innlendu mótahaldi að
geta gengið að þessum upplýsingum
og áætlunum vísum og fyrir vikið
hefur skapast mikil festa.“
Halldór segir að Knattspyrnusam-
bandið njóti þeirrar sérstöðu að hafa
starfsfólk í vinnu til að sinna þessum
málum.
„KSÍ hefur einnig sérstöðu í Evr-
ópu, að því leyti að við sjáum um mót
í yngri flokkum líka. Knattspymu-
samböndin víðast hvar gera það
ekki, heldur láta héraðssamböndin
alfarið um slík mál. Þess vegna verð-
ur starfíð svona umfangsmikið. Lítill
hluti af þessu er keppni í deild og
bikar, en öll heildin með yngri flokk-
um drengja og stúlkna flækir málin
og stækkar verkið.
Hins vegar erum við í þeirri öf-
undsverðu aðstöðu að hafa efni á
starfsfólki til að sinna þessum störf-
um og því er það hlutverk móta-
nefndarinnar að leggja línur og
vinna að heildarskipulagi mótahalds,
en starfsfólkið sér um niðurröðunina
sjálfa. Þrír starfsmenn KSI sinna
mótamálum í víðastri merkingu og
þar kemur til niðurröðun leikja,
dómaramál, agamál og fleiri slíkir
þættir.“
Með Halldóri í mótanefnd eru
Anna Vignir, Atli Þórsson, Ágúst
Ingi Jónsson og Bjöm Friðþjófsson.
Birkir Sveinsson er mótastjóri og
þau Klara Bjartmarz og ómar Garð-
arsson koma einnig að mótamálun-
um auk annars starfsfólks skrifstofu
sambandsins, hvort heldur sem er í
afgreiðslu eða framkvæmdastjóm.
Hvenær hefst niðurröðun leikj-
anna og skipulagning mótahalds?
„Niðurröðunin hefst áður en til-
kynningar um þátttöku berast, en
frestur til þess að tilkynna þátttöku
er 20. janúar. Ávallt tekur nokkra
daga að ganga frá þeim, en um það
leyti er jafnan búið að raða deilda-
keppninni niður í aðalatriðum og
leggja helstu línur í þeim efnum. Þá
tekur við heilmikil vinna í febrúar og
mars og fram til 15. apríl. Á þeim
tíma tilkynna félögin einnig gjarnan
breytingar hjá sér, t.d. þegar þau
draga einstaka flokka sína úr keppni
mannlegt
Boltinn er byrjaður að
--------7------------
rúlla á Islandsmótinu
í knattspyrnu, ekki að-
eins í efstu deildum
karla og kvenna, heldur
einnig í eldri og yngri
flokkunum. Hundruð
eða öllu heldur þúsund-
ir knattspyrnuleikja
fara fram á vegum
Knattspyrnusambands-
ins í sumar og Björn
Ingi Hrafnsson ræddi
við Halldór B. Jónsson,
varaformann þess,
um skipulagið, dómara-
og mótamál.
, , Morgunblaðið/Porkell
ÞAU unnu að Mótabók KSI, sem að venju kom út fyrir fyrsta leik á íslandsmótinu í knattspyrnu. F.v.: Omar Smárason, Birkir Sveins-
son, Klara Bjartmarz og Halldór B. Jónsson, varaformaður KSÍ og formaður mótanefndar.
eða reyna að koma inn flokkum sem
þau hafa ekki tilkynnt. Um nokkurra
ára skeið hefur verið reynt að koma
sem mest til móts við óskir félag-
anna í þessum efnum, alveg íram á
síðustu stundu. Þetta á sérstaklega
við yngri flokkana, enda viljum við
að sem flestir taki þátt í knattspym-
unni.“
Að mörgu að hyggja
Halldór er ekki aðeins varafor-
maður Knattspymusambandsins og
formaður mótanefndar þess, heldur
hefur hann einnig formennsku í
dómaranefnd með höndum. Hann er
spurður hvort þetta sé ekki fullmikið
í fang færst: „Það má kannski segja
það. Vissulega fer mikill tími í þetta,
en samt ekki meiri en maður vill
sjálfur eyða. Eg er í þessu af áhuga
og þá verður maður auðvitað að
horfast í augu við þann mikla tíma
sem í þetta fer. Svo er ég þannig
gerður að ég vil skipta mér af öllu
mögulegu og að ýmsu leyti fer ágæt-
lega saman að vera með móta- og
dómaranefndina, hluti af dómara-
málunum er einfaldlega skipulagn-
ing og stjómunarlegs eðlis. Hinn að-
alþátturinn felst svo í fræðslu og ég
kem í nefndina sem reyndur forystu-
maður úr knattspymufélagi - ekki
með dómarabakgrunn - og held að
það geti farið ágætlega saman að
reyndir forystumenn og svo eldri og
reyndir dómarar komi að þessum
málum í sameiningu.“
Störfum dómaranefndar er í aðal-
atriðum hagað eins frá ári til árs.
„Það er umfangsmikil fræðslustarf-
semi fyrir KSÍ-dómarana í gangi á
vormánuðum og endar skömmu fyrir
mót. í þeim hópi eru 36 dómarar,
sem dæma í deildakeppni og bikar
og flokkast niður í A-, B- og C-flokk.
Þessi fræðsla endar alltaf á árlegri
ráðstefnu sem stendur yfír eina
helgi. Þar koma erlendir fyrirlesarar
og innlendir, skrifleg próf og þrek-
próf eru lögð fyrir dómarana og mál-
in rædd á víðum grundveOi. I fram-
haldi af þessu er gögnum síðan kom-
ið til annarra dómara í landinu og
einnig félaganna, sem sjá um að
kynna nýjungar og áhersluatriði fyr-
ir sínum félagsmönnum. Það koma
þannig til ýmsir fundir víða um
land.“
Skilningur aukist
Taka íþróttafélögin þessari
fræðslu vel?
„Já, mjög vel. Að mínu viti hefur
skOningur á dómaramálum aukist
mjög hin síðari ár. Mjög margir
þjálfarar leggja sig fram um að taka
á þessum málum með leikmönnum
sínum fyrir upphaf móts. Þetta teng-
ist gjaman gulum og rauðum spjöld-
um og mér hefur sýnst áberandi
hversu þau félög, sem hafa tekið sér
tak í þessum efnum, hafa uppskorið
færri spjöld og þar með færri leik-
bönn. Það er því ekki spuming í mín-
um huga að það skilar sér að félög og
þjálfarar þeirra leggi leikmönnum
línumar og séu ekki sífeOt að agnú-
ast út í reglur og dómara. Þetta
snýst auðvitað mikið um sjálfsaga og
vissulega getur orðið mikOl hávaði
kringum einstök atvik á leikvellin-
um. Menn spara þá ekki stóru orðin
og láta öllum Olum látum. Sömu
menn hafa oft aðra sögu að segja
nokkrum dögum síðar þegar mesta
gjömingaveðrið er um garð gengið.
Þá em oft allir sammála í málinu.“
Halldór var formaður knatt-
spymudeOdar Fram í hálfan annan
áratug og stýrði félaginu er það vann
fjölmarga titla, bæði í deild og bikar.
Hann segist hafa merkt margs konar
breytingar á knattspyrnunni hér á
landi á þessum áram, bæði hjá leik-
mönnum og dómuram.
„Ég er alveg sannfærður um að
dómarar hafa tekið miklum framfór-
um á undanfornum áram og era
betri en íslenskir starfsbræður
þeirra voru hér á áram áður. Vissu-
lega hafa einstakir dómarar alltaf
verið mjög góðir, en í heildina tel ég
að við eigum sterkari hóp knatt-
spymudómara en áður. Dómarar nú-
tímans fá miklu fleiri tældfæri en
gerðist hér áður fyrr, verkefnin era
fleiri, við ráðum nú við það að senda
dómara í æfingaferðir til útlanda I
mars og aprfl, verkefnin era fleiri á
erlendum vettvangi og allt þetta
skiptir miklu máli að mínu mati. Með
þessu vfl ég aOs ekki kasta rýrð á
bestu dómara okkar fyrr á áram.
Þeir fengu ekki sömu tækifæri og nú
standa tfl boða og það væri hreinlega
lélegt ef við hefðum ekki hærri
gæðastaðal nú en áður miðað við
þetta. Það hefur svo ótalmargt
breyst á síðustu áram, ferðalög era
auðveldari þar sem þau era ódýrari
en áður og nú hafa dómarar miklu
fleiri tækifæri en áður til að fylgjast
með erlendri knattspymu í sjón-
varpi. Margir dómarar „stúdera"
leiki í sjónvarpi og fylgjast með er-
lendum starfsbræðram sínum. Og
læra af því.“
Telurðu að meiri virðing sé borin
fyrir dómuram en áður?
„Ætli það sé ekki svona upp og
niður. Það hefur orðið mikil framför
t.d. í framkvæmd leikja frá því sem
áður var. Aðbúnaður á knattspyrnu-
vöOum er miklu betri en t.d. þegar
ég var forystumaður í félagi og það
hjálpar auðvitað tO. Ástandið hefur
að minnsta kosti ekki versnað. En
virðingin gleymist stundum, þótt ég
telji að undir niðri beri leikmenn,
þjálfarar og dómarar allir virðingu
hver fyrir öðram. Þannig á það líka
að vera. Svo getur allt slíkt gleymst í
æsingi og hita augnabliksins."
Fleiri góðir ieikmenn
HaOdór segir að hið sama megi ef-
laust segja um framþróun leikmanna
- gæði knattspymunnar. „Það er
augljóst að við eigum fleiri góða leik-
menn nú en áður. Fleiri leikmenn ná
árangri en áður og hinn stóri hópur
íslenskra atvinnumanna í útlöndum
er tO vitnis um það. Við eigum 50 tO
70 leikmenn á öllum stigum erlendis,
en í gegnum tíðina höfum við auðvit-
að átt toppleikmenn og það er alltaf
erfitt að gera á þessu samanburð.
Hvað á maður að fara langt aftur í
tímann? - Ríkharður Jónsson, Al-
bert Guðmundsson og Þórólfur Beck
vora frábærir og það sama má segja
um Ásgeir Sigurvinsson, Atla Eð-
valdsson, Amór Guðjohnsen, Pétur ||
Pétursson og Pétur Ormslev, svo ég
nálgist okkur aðeins í tíma. Alltaf
standa upp úr einstakir toppar, en
ég myndi halda að meðalleikmaður í
efstu defld í dag væri sterkari og
hefði verið í framför.“
Hvaða áhrif hafði blóðtakan í
fyrra - straumur leikmanna í at-
vinnumennsku?
„Mjög mikil áhrif. Það fóra svo
margir á sama tíma. Ég tel samt að j
það eigi eftir að skila sér í betri leik- f'
mönnum hérna heima, því þeir ungu
og efnilegu fá kannski fyrr tækifæri
en eOa hefði orðið. Mér finnst samt
að knattspyman hér heima, sérstak-
lega efsta defld, hafi jafnað sig ótrá-
lega fljótt á þessari blóðtöku. Ég
hafði áhyggjur af því íyrir leiktíðina í
íyrra að það myndi taka deildina
fimm ár að jafna sig og ná fyrri
styrk. En mér sýnist engin merki
vera um það núna að deildin sé lak-
ari. Ungir menn hafa fengið tækifæri
og eins hafa liðin mörg hver bragðið
á það ráð að styrkja sig með erlend-
um leikmönnum, sem margir hveijir
era afar snjallir. Hinir mörgu Jú-
góslavar hafa t.d. hækkað gæðastuð-
ul defldarinnar umtalsvert á undan-
fómum áram.“
Halldór telur að mótið í ár hafi
farið vel af stað, þrátt fyrir mikla
erfiðleika. „Tíðin undanfarið hefur
verið slæm, sérstaklega fyrir vellina, |
og það leynir sér ekki. Við ráðum f
ekki við náttúraöflin og getum ekki
dregið það lengur að byrja mótið,
þótt óvissa sé um vallarskilyrði. Ut
með Eyjafirði, á Ólafsfirði og Dalvík,
svo dæmi sé tekið, hefur ríkt mikið
vetrarríki og í raun ótrúlegt að
Ólafsfírðingar gerðu sér lengi vel
vonir um að geta leikið þar í 2. um-
ferðinni. Leiknum gegn KR var síð-
an ekki frestað fyrr en sólarhringur
var til stefnu. Áhugi á knattspymu |
er hins vegar svo mikill hér á landi,
að þegar komið er fram í maí er kall-
að eftir því að mótið byrji. Menn
vflja fá tvo til þrjá leiki hjá sínum lið-
um svo þeir sjái hvar þau standa.“