Morgunblaðið - 30.05.1999, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 2 }
LISTIR
Sagnfræði hins einstaka
BÆKUR
Einsaga
KRAFTBIRTINGARHLJÓMUR
GUÐDÓMSINS
Dagbók, sjálfsævisaga, bréf og kvæði
Magnúsar Ifj. Magnússonar, skálds-
ins á Þröm. Sigurður Gylfí Magnús-
son tók saman. Sýnisbók íslenskrar
alþýðumenningar. 2. bindi. Ritsljór-
ar: Kári Bjarnason og Sigurður Gylfi
Magnússon. Háskólaútgáfan,
Reykjavík 1998, 423 bis.
KRAFTBIRTINGARHLJÓMUR
guðdómsins geymir valin brot úr
umfangsmiklum persónulegum text-
um sem Magnús Hj. Magnússon
(1873-1916) skildi eftir sig. Bókin
skiptist í fjóra hluta; inngang Sig-
urðar Gylfa Magnússonar sagnfræð-
ings; sjálfsævisögu Magnúsar sem
fjallar um æsku hans; valin skeið úr
dagbókum sem hann hélt öll fullorð-
insárin og loks fáein bréf, alþýðuj
fræði og kveðskapur eftir Magnús. I
ítarlegum inngangi sínum rekur Sig-
urður Gylfi æviferil Magnúsar og
fjallar um textasköpun hans í ljósi
sagnfræði og söguspeki. Megninhluti
bókarinnar, ríflega 270 síður, er
helgaður sýnishomum úr dagbókun-
um. Auk styttri brota hafa verið
valdir fjórir kaflar sem ná óslitið yfir
tiltölulega löng tímabil og gefa þeir
heillega sýn á greinargerð Magnúsar
um umhverfi hans, líf og hugsanir
frá degi til dags. Kaflarnir, sem lýsa
tíðindaríkum tímabilum í lífi Magn-
úsar, fanga vel athygli lesandans
jafnframt því að gefa góða mynd af
samfellu dagbókarritunarinnar.
Utgáfa þessara persónulegu heim-
ilda sætir tíðindum einkum fyrir
tvennar sakir. Annars vegar skiptir
útgáfan máli fyrir bókamenn - en al-
þekkt er að Halldór Laxness sótti
innblástur og fyrirmyndir að per-
sónusköpun Ólafs Kárasonar Ljós-
víkings í dagbækur og sjálfsævisögu
Magnúsar. Pví má ætla að ritið komi
til með að standa sem nokkurskonar
neðanmálsgrein við Heimsljós og
verði ómissandi lesefni í Laxness-
fræðum framtíð-
arinnar.
Hins vegar hef-
ur útgáfa sem
þessi þýðingu íyr-
ir orðræðu sagn-
fræði hér á landi.
Bókin er gefin út
undir formerkjum
aðferðafræði sem
nefnd hefur verið
einsaga. Aðferðir
einsögunnar
greina sig frá að-
ferðum þeirrar
félagssögu sem
einkennt hefur
sagnfræði undan-
farna áratugi og
fæst við íslands-
sögu síðari alda.
Einsagan er upp-
tekin af hinu ein-
staka og sér-
stæða, útmörkum
samfélagsins, í stað þess að leitast
við að gefa yfirsýn yfir samfélags-
þróunina með visan til hins dæmi-
gerða. Eftir sem áður krefst einsag-
an hlutdeildar í hinni almennu sögu.
Fræðimenn sem ástunda einsögu
vilja meina að rannsóknir á ævislóð-
um sem lágu utan meðalvegarins
opni fyrir mikilvæga sýn á samfélag-
ið, sýn sem hulin er hefðbundinni fé-
lagssögu. I inngangi sínum tekst
Sigurður Gylfi m.a. á við tengslin
milli sérstæðrar lífsbaráttu
sveitarómagans, lausamannsins,
barnakennarans, þurrabúðarmanns-
ins, tukthúslimsins og skáldsins
Magnúsar Hj. Magnússonar og
þeirrar almennu samfélagsmyndar
sem dregin hefur verið upp af söga
aldamótaáranna síðustu. Hann
kemst að eftirfarandi niðurstöðu:
„Maðurinn sem bindur ekki bagga
sína sömu hnútum og samferða-
mennirnir reynir meira á formgerð
samfélagsins en hinn sem læðist með
veggjum og er því líklegri til að
varpa ljósi á raunverulegt gangvirki
þess“ (bls. 91). Sigurður Gylfi er
jafnframt upptekinn af þeirri sér-
kennilegu skírskotun sem líf Magn-
úsar hefur til persónu Ljósvíkings-
ins. Samspil dagbókarinnar og texta
Laxness verður honum tilefni til að
velta upp sambandi sagnfræði við
raunveruleika fortíðarinnar og því
hvort sögulegur skáldskapur sé ef til
vill betur til þess fallinn að koma for-
tíðinni til skila við nútímann. Þannig
geti listræn sköpun skáldsins á
stundum opnað fyrir gleggri skilning
á tíðaranda og kringumstæðum held-
ur en vísindalegar aðferðir sagn-
fræðingsins,
Tilkall Sigurðar Gylfa til sagn-
fræðilegs sannleika fyrir hönd hins
einstaka og fyrir hönd skáldskapar-
ins er áleitið söguspekilegt vandamál
fyrir iðkendur sagnfræði. Vandinn
snýr ekki eingöngu að því hvernig
sagnfræðin getur gefið sem sannasta
heilstæða mynd af fortíðinni, heldur
líka að því hvers eðlis sannleikurinn
er. Eru kannski til margir ósam-
stæðir sannleikar sem eru frekar
háðir orðræðu þess sem starir í sög-
una heldur en fortíðinni sjálfri?
Hvað sem líður afstöðu manna
gagnvart sannleikshugtakinu veitir
dagbók Magnúsar óvenju beinan að-
gang að hugarheimi alþýðumanns
sem bjó við kringumstæður sem
virka harla framandi í samhengi til-
veru flestra núlifandi Islendinga.
Fyrir þær sakir eru dagbækurnar
allrar athygli verðar. Ég hygg líka að
bókin muni nýtast þeim sem rann-
saka alþýðumenningu tímabilsins,
ekki síst nemendum í sagnfræði sem
sjaldnast hafa mikið tóm til að liggja
yfir handrituðum heimildum. Leiðir
það hugann að aðgengi að þessum
mikilsverða brunni um sögu þjóðar-
innar sem handrituð söfn eru. Bóka-
útgáfa sem þessi getur aldrei orðið
annað en lítið sýnishom af þeim víð-
feðmu persónulegu og opinberu
handrituðu gögnum um fyrri tíð sem
leynast þar sem fáir af þeim vita. Því
er það brýnt að farið verði af alvöru
að huga að tölvuvæðingu slíkra
gagna, þannig að þau yrðu í ríkara
mæli aðgengileg fræðimönnum og al-
menningi, t.a.m. á vettvangi Netsins.
Ólafur Rastrick
Sigurður Gylfí
Magnússon
Magnús Hj.
Magnússon
^UPMANNAHÖFN
' Flug og bíll í viku fró kr. 38.660
Ammm
Flug og bíll í viku frá kr, 36,630
r
afcSELSssfc
r
4
jg og bíll
ONDON
r
Flugogbíllí lödaga *)410A
frákr. iOt /V
SGOW
Flug og bill i viku
Hkr 33.680
r
/?ARÍS
r Cl.,n
^ALTIMORE/
^OSTON
Flug og bíll í viku
Wkr' 42.310
INNEAPOLIS
Flug og bíll í viku
Wkr- 42.310
Flug og bíll í viku ITILBOÐ
Wk" 36,580
til 10/6 og ll.til 30.
september
y^ARCELONA
Flug og bíll í viku frá kr. 35,500
^ÍXEMBORG
7>
\
USSELDORF
Flug og bíll í viku
Wkr 31.030
til 10/6 og ll.til 30.
september
XEMBORG
Flug og bíll í viku frá kr. 32,250
Flug og bill í viku frá kr. jOiUJv
^WuNCHEN .....
Flug og bíll i viku frá kr. V JiVVV
Öll verðin miðuð við 4 fullorðna í bíl. Barnaafslátturer veittur af þessum verðum
Fáðu nánari upplýsingar hjá okkur í síma
552 3200
i H cþnn/ S&M
\ b'skifúföli!
i
FERBASKRIFSTOFA
L REYKJAVÍKIJR
Aðalstræti 9 - sími 552-3200
það er hagkvæmt
Kcroribletta
»00*™*
2rr>g
. 30 stk.
NffiWnrt'
mh«Iiitof »*»
NICORETTE
Hjálpar þér að ná takmarkinu!
_D LYFJA
Setberqi - Hafnarfirði • Hamraborg, Kópavogi
Lágmúla, Reykjavik*Húsavíkurapótek, Húsavík
Árnes Apótek, Selfossi
Tilboðið gildir aðeins 31. maí meðan birgðir endast