Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 23
LISTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarssson
Leikarar og listrænir stjórnendur Sölku Völku
í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Salka Valka í Hafnarfírði
Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður
og Háðvör og leikfélagið Annað svið
hafa hafið æfingar á Sölku Völku eft-
ir Halldór Laxness í leikgerð og leik-
stjórn Hilmars Jónssonar. Frumsýn-
ing er fyrirhuguð í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu í haust.
„Salka Valka gerist í íslensku sjáv-
arplássi og er um margt bundin
stéttarátökum á framanverðri öldinni
en það eru manneskjurnar og örlög
þeirra sem gera söguna sígilda. Sag-
an speglar mannlífíð og lífsbaráttuna
tengda hafinu, segir frá Sölku Völku
sem kemur fyrst með einstæðri móð-
ur sinni til Oseyrar við Axiarfjörð,
fer að vinna fyrir sér í saltfiskverkun
ung að árum kaupir svo bát og berst
fyrir sjálfstæði sínu sem útgerðar-
maður,“ segir í fréttatilkynningu frá
aðstandendum sýningarinnar.
I helstu hlutverkum verða leikar-
amir María Ellingsen, Benedikt Erl-
ingsson, Gunnar Helgason, Magnea
Björk Valdimarsdóttir, Þrúður Vil-
hjálmsdóttir og Jón St. Kristjánsson.
Leikmynd gerir Finnur Arnar Am-
arson, Margrét Omólfsdóttir semur
tónlist, Björn Bergsteinn Guðmunds-
son hannar lýsingu, Þómnn María
Jónsdóttir gerir búninga og Ásta
Hafþórsdóttir sér um förðun.
Morgunblaðið/Davíð
GRADUALEKÓR Langholtskirkju ásamt stjórnandanum
Jóni Stefánssyni.
Gradualekór Lang-
holtskirkju
GRADUALEKÓR Langholts-
kirkju heldur tónleika í Lang-
holtskirkju á morgun, mánudag
kl. 20. Undirleikari kórsins er
Lára Bryndís Eggertsdóttir og
einsöngvarar úr röðum kórfélaga
koma fram. Efnisskráin mun
bera keim af Kanadaferð kórsins
í sumar og verða íslensk og
kanadfsk verk áberandi, m.a.
ættjarðarlög, þjóðlagaútseningar
eftir Jón Ásgeirsson og „Saluta-
tio Marie“ eftir Jón Nordal. Frá
Kanada mun m.a. hljóma verk
þar sem sungið er á indianamáli
og kórinn skapar frum-
skógastemmningu með ýmsum
dýra- og fuglahljóðum.
Á komandi sumri hefur kórinn
þegið boð um að koma fram á
„Niagara Falls International
Music Festival" í Kanada. f
tengslum við ferðina verður
einnig farið til Nýja íslands og
haldnir þar tónleikar í Gimli, Ár-
borg og Winnipeg.
Árið 1995 gaf kórinn út geisla-
plötuna „Eg bið að heilsa". Hann
söng einnig með Sinfóníuhljóm-
sveit Islands á geislaplötu sem
Chandos fyrirtækið gaf út með
verkum eftir Jón Leifs. Árið 1996
kom út jólaplata og árið 1997
platan „Gradualekór Langholts-
kirkju".
Síðustu tónleikar fyrir lokun
Gradualekór Langholtskirkju
hefur margsinnis komið fram
með Sinfóníuhljómsveit íslands
og sungið m.a. á „Evróputónleik-
um útvarpsstöðva".
Tónleikamir á mánudag verða
sfðustu tónleikar sem haldnir
verða í Langholtskirkju fyrir lok-
un hennar 1. júm', en þá hefjast
framkvæmdir við uppsetningu
kórglugga úr steindu gleri sem
listamaðurinn Sigríður Ásgeirs-
dóttir hefúr gert. Að því verki
loknu hefst uppsetning á nýju org-
eli, en það verður seinast í júm'.
Vel sóttir
tónleikar í
Reykholts-
kirkju
Grund. Morgunblaðið.
KARLAKÓRINN Söngbræður í
Borgarfirði ásamt Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu
hélt tónleika í Reykholtskirkju á
dögunum. Tónleikarnir voru vel sótt-
ir því á fjórða hundrað gesta komu í
Reykholtskirkju og nutu þess sem
flutt var.
Dagskráin var fjölbreytt; kórinn
hóf tónleikana með að syngja fjögur
lög og tók þá Diddú við með fimm
lög. Þá sungu þau saman Sigrún
Hjáímtýsdóttir og Snorri Hjálmars-
son dúetta úr Kátu ekkjunni og Zar-
das-furstynjunni.
Spaðafjarkinn, sem er kvartett
með félögum úr Söngbræðrum, þeim
Halldóri Sigurðssyni, Snorra Krist-
leifssyni, Jóni Kristleifssyni og Guð-
mundi Péturssyni sungu tvö lög
saman. Því næst Karlakórinn fimm
lög og síðan Diddú þrjú og að lokum
sungu kórinn og Diddú saman tvö
lög, La vergene degli Angeli eftir
Guiseppe Verdi og Islandslag eftir
Björgvin Guðmundsson.
Félagar í Karlakómum eru fjöru-
tíu og þrír. Stjórnandi hans er Jerzy
Tosek Warszawlak. Undirleikari er
Zsuzanna Budai. Undirleikari hjá
Spaðakvartettinum var Svavar Sig-
urðsson, en kynnir kvöldsins var sr.
Brynjólfur Gíslason.
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
^jyæða flísar
^jyæða parket
^jyóð verð
jjjfóð þjó
nusta
Gerðu útsknftina
ógleymánlega
LJOSMYNDASTOFAN
MYNDÁS
Árný llerbertsdóttir
Aðalstræti 33 ^00 ísafjörður
SímiWU.561
LJÓSMYNDASTOFA PÁLS
Páll A. Pálsson
Skipaqötu 8 600 Akureyri
Sími6623466
LJÓSMYNDARINN
Finnboqi Marinósson
Gunnar Kristinn llilmarsson
í Mjóddinni 109 Reykjavík
Sími 557 9550
LJ0SMYNDAST0FAN
NÝMYND
Sólveiq Þóröardóttir
Hafnarqötu 90
230 Reykjanesbær
Sími 4211016
LJÓSMYNDASTOFA
0DD6EIRS
Oddqeir Karlsson
Borqarveqi 8
270 Reykjanesbær
Sínii 4216SS6
NÍNA LJÓSMYNDARl
Nina Björk lllöðversdóttir
Grettisqötu 46 101 Reykjavík
Siini S514477
LJÓSMYNDASTOFAN
SVIPMYNDIR
Iríður Fqqerlsdóttir
llveríisqötu 18 101 Reykjavík
Simi552 2690
LJÓSMYNDASTOFA
PFTIIRS
PéturInqi Björnsson
Oldustíq 7
550 Sauðárkrókur
Sími 453 6363
Kodak
FfciiKiíiii I
Ltillu KoiLiliJaginann sjn nni lilsltiijlannyiulalöhuiici
og li yggðu l>aiinig at) miiiiiiiigin vcrði óglcymanleg.
Þií scrð clílii c/lir því.
t PARKER
SONNET