Morgunblaðið - 30.05.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 27
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FÉLAGARNIR Þorbjörn Njálsson, Alfreð Þórðarson og Birgir Finnsson, eigendur fyrir-
tækisins Lux Inflecta.
sem Giza sækir á er metinn í hundruðum
milljarða króna og slíkur markaður rúmar
marga. Markaðurinn hefur virkilega þörf fyr-
ir nýstárleg verkfæri vegna nýrra krafna.
Með lækkun verðs vélbúnaðar verður dreifð
vinnsla mikilvægari og alltaf eykst krafan um
styttri hönnunartíma."
Alfreð segir að ýmsir aðilar hafi lýst áhuga
á að leggja fram fé til fyrirtækisins, eftir að
úrslit Nýsköpunar ‘99 lágu fyrir. „Við sendum
eintak af viðskiptaáætlun okkar til Nýsköp-
unarsjóðs og stjórn sjóðsins samþykkti hluta-
fjárframlag á föstudag. Stuðningur sjóðsins
skiptir okkur mjög miklu máli og verður
áreiðanlega öðrum fjárfestum hvatning, þótt
nú þegar séu nokkrir aðilar áhugasamir, bæði
hér á landi og erlendis.“
Bæta hver annan upp
„Islenski markaðurinn er mjög lítill og þess
vegna horfum við fyrst og fremst til útlanda,"
segir Þorbjörn. „Það skiptir í raun engu máli
hvar í heiminum unnið er að þróunarvinnunni
og við þurfum engin flutningaskip eða vöru-
bíla til að koma þessari vöru á framfæri er-
lendis. Það getur þó vel hugsast að við flytjum
okkur út. Tölvuheimurinn er alþjóðlegur."
Alfreð tekur undir að þróunarvinnan geti
farið fram hér á landi, en sala og markaðssókn
þurfi af eðlilegum ástæðum að hafa höfuð-
stöðvar erlendis.
Þrátt fyrir að Alfreð sé verkfræðingur,
Birgir tölvunarfræðingur og Þorbjöm kerfis-
fræðingur hafa félagamir allir svipaða reynslu
í forritun. „Við bætum hver annan upp,“ segja
þeir. ,Áhugasvið okkar eru misjöfn og þannig
náum við að spanna víðara svið en ella.“
Skilningsríkar fjölskyldur
Þeir hlakka greinilega til að koma fyrirtæk-
inu á rekspöl. „Það fylgir því alltaf ákveðin
stöðnun að vera lengi í sama starfi og nú fáum
við tækifæri til að skapa, gera það sem okkur
langar til,“ segir Þorbjöm.
Birgir segir að þetta verði enginn leikur og
þeir þurfi að leggja hart að sér hér eftir sem
hingað til. „Við eigum allir skilningsríkar fjöl-
skyldur," segir hann og visar sjálfur til sam-
býliskonu og þriggja barna á aldrinum 14
mánaða til 10 ára.
Alfreð, kvæntur og faðir 6 ára telpu, tekur
undir þetta og ekki dregur Þorbjörn, kvæntur
og faðir 3 og 5 ára bama, þar úr. „Konumar
okkar hafa sýnt okkur ótrúlegt umburðar-
lyndi,“ segja þeir. „Við vitum að margir eiga
sér drauma um að verða sjálfs sín herrar og
við hvetjum þá til að láta þá drauma rætast,
en ekki láta aðra draga úr sér kjarkinn. Við
heyrðum margar úrtöluraddir, fólk taldi fá-
nýtt að eyða tímanum í þetta. En við trúðum á
sjálfa okkur. Auðvitað þurfa menn að geta
hlustað á uppbyggilega gagnrýni. Það gerðum
við og héldum svo áfram.“
Mörkinni 3, sími 588 0640
casa@islandia.is
Hönnufiurr10J^^
vJfm
Sólheimum 35, sími 533 3634.
AJIan sólarhringinn.
Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig
með nærveru sinni, hlýhug, gjöfum og vinar-
kveðjum á 90 ára afmœli mínu.
Kœr kveðja,
Guðbjörg Guðsteinsdóttir
Nesjavöllum, Grafningi.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við fráfall prófessors
GUNNARS GUÐMUNDSSONAR, dr. med.
Sigurrós Unnur Sigurbergsdóttir,
Guðmundur Gunnarsson, Margrét María Þórðardóttir,
Oddný Gunnarsdóttir, Ásgeir Smári Einarsson,
Gunnar Steinn Gunnarsson, Berit Solvang,
Einar Örn Gunnarsson
og bamabörn.
enridrtdi tölvusumar
fyrir hressa krakka
Framtíðarböm bjóða öllum bömum á skólaaldri upp á frábær tölvunámskeið í sumar þar sem nemendur læra að nýta sér fjölbreytta
möguleika tölvutækninnar. Námskeiðin standa frá 7.6.- 9.7. og 3.8.- 20.8. Litlir aldursskiptir hópar og nokkrir sérhópaz fyrir stelpur
7-11 ára. Bömin fá hressingu á staðnum. Kennt verður 4 daga í viku og farið í skemmtiferð 1 dag (Barnaríki eða Darklight).
Það er Símanum Intemet mikill heiður að fá að
taka þátt í menntun imga fólksins með stuðningi
sínum við Framtíðarböm.
»Námskeiðin eru með qo% Landsbankaafslætti
1. Sögu- 0% teiknimyndagerð
(vikunámskeið frá kl. 9-12 eða 13-16)
Nemendur fæddiz '91, '92 og '93
Unnið er í vönduðum teikni-, sögugerðar- og margmiðlunarforritum
þar sem sköpunar- og frásagnargleði bama fær útrás við teiknun,
málun, ritun og talsetningu. Nemendur læra markvisst að nýta sér
ýmsa möguleika tölvutækninnar og þjálfast í tölvuumgengni.
2. Ritvinnsta og margmiðtun
(vikunámskeið frá kl. 912 eða 13-16)
Hópur 1: Nemendur fæddir '88, '89 og '90
Hópur 2: Nemendur fæddir '85, '86 og '87
Nemendur vinna að hefti um ýmsar tækninýjungar á
20.öldinni og þeir útbúa einnig kynningarefni fyrir
ferðaskrifstofu. Nemendur setja saman texta, myndir,
hljóð, tónlist, hreyfimyndir og videó. Nemendur nota
stafræna myndavél, hljóðsetja efni og nota Intemetið
við upplýsingaöflun.
3. Margmiðlun: og forritua
(vikunámskeið frá kl. 9-12 eða 13-16)
Nemendur fæddir '88, '89 og '90
Nemendur nota nýja útgáfu af Lógó-forritinu til að hanna
margmiðlunarefni. Nemendur setja saman í eina heild texta, hljóð,
tónlist, myndir, hreyfimyndir og videó. Kennd verða nokkur
imdirstöðuatriði í forritun auk þess sem unnið er með margmiðlun
í skemmtilegu og skapandi umhverfi.
4. Tölvusamskipti og vefsíðugerð
(2]a vikna námskeið frá kl. 9-12 eða 13-16)
Nemendur fæddir '85, '86 og '87
Nemendur læra um tölvupóst, Intemetið, leit á vefnum, kjmnast
HTML-málinu og læra síðan að nota vefsíðugerðarforritið Microsoft
Frontpage. Nemendur hanna síðan vefsíður fyrir ímyndað fýrirtæki,
setja inn á hana ýmsar upplýsingar, nota myndviimsluforrit til að
hanna merki og hreyfimyndir o.m.fl.
Skráningarsíminn er 553 33^2
Talcmailcað framboð. Opið vitka daga kl. 13 -17
FRAMTÍÐARBÖRN
Grensásvegi 13
sími 553 3322
S í MIN N i nterneT*