Morgunblaðið - 30.05.1999, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kjartan Magnússon
LÍFIÐ er viðskipti í Hong Kong, segir Óli Anton Bieltvedt, framkvæmdastjóri Strax, sem er með starfsemi í þremur heimsálfum.
SÓLIN SEST ALDREI
HJÁ STRAX
msxsmmNmiF
Á SUNNUDEGI
►Óli Anton Bieltvedt er fæddur á Akureyri 1962. Hann er
stúdent frá Verzlunarskóla íslands, stundaði síðan nám í við-
skiptafræðum við University of Miami og brautskráðist þaðan
með MBA-gráðu árið 1990. Hann hefur búið í Hong Kong frá
árinu 1995 og sér um rekstur verslunarfyrirtækisins Strax þar.
Hann er kvæntur Irisi Hreinsdóttur og eiga þau tvö börn.
eftir Kjarton Magnússon
SKRIFSTOFA Strax eru á
sautjándu hæð í myndarlegu
háhýsi á Hong Kong-eyju.
Húsið þætti stórt á íslenskan
mælikvarða og er mitt í frumskógi
háhýsa, sem einkennir viðskipta-
hverfið í Hong Kong. Brosmildur og
hressilegur maður býður blaðamanni
inn og er þar kominn Oli Anton Bielt-
vedt, framkvæmdastjóri og annar
aðaleiganda Strax. Vísað er til sætis
á huggulegri skrifstofu Strax á milli
skjalabunka og kassa fullum af vam-
ingi, sem bíða sendingar til Banda-
ríkjanna. Húsnæði er dýrt í Hong
Kong og allt rými er því gjaman nýtt
til hins ýtrasta.
Alþjóðlegt umhverfi
Innan um tölvurj blaðastafla og
vörubirgðir vinnur Oli ásamt dönsk-
um sölumanni, enskum verkfræð-
ingi, tveimur kínverskum aðstoðar-
stúlkum og íslenskum markaðs-
fræðingi, Finni Guðmundssyni. Er
því óhætt að segja að umhverfið sé
alþjóðlegt.
Sumir hafa viðskiptin í blóðinu og
það er óhætt að segja að það gildi
um Óla. Hann hóf ungur að vinna
við íyrirtæki föður síns og alnafna
sem var umsvifamikill í innflutningi
hljómtækja og sjónvarpstækja til
Islands. Seinna hófu þeir feðgar í
sameiningu viðskipti með raf-
magnstæki í Þýskalandi en þau
snemst aðallega um að kaupa og
framleiða vörur í Austurlöndum
fjær og selja þær á Evrópumörkuð-
um.
Óli hefur búið erlendis síðan hann
lauk námi og komið víða við og er
þar ef til vill komin skýringin á því
af hverju hann veigraði sér ekki við
að setjast að í Hong Kong ásamt
fjölskyldu sinni fyrir fjórum árum
og freista gæfunnar. I hinni fjar-
lægu heimsborg ákvað hann að
stunda viðskipti á því sviði sem
hann þekkti vel til á, þ.e.a.s. í við-
skiptum með rafmagnstæki af ýms-
um gerðum. Þetta var árið 1995.
„I fyrstu gekk allt vel. Ég hafði
réttu samböndin og gat því keypt
vörur á góðu verði í Asíu og selt
þær á evrópskum mörkuðum. Þá
gerðist það að Evrópusambandið
ákvað að setja háa refsitolla á ýmis
raftæki, t.d. sjónvarpstæki, fram-
leidd í Kína. Með þessu lokaðist hjá
mér hugmynd mín um viðskipti frá
Kína til Evrópu, en hún var upphaf-
lega ástæðan sem dró mig til Hong
Kong, og setti það heldur betur
strik í reikninginn. Við Iris vorum
nýkomin til Hong Kong með lítið
bam og tiltölulega lítið fjármagn
sem fljótt gekk á enda Hong Kong
ein af dýrustu borgum heims. Við
gátum samt ekki hugsað okkur að
fara frá Hong Kong, við vorum ekki
tilbúin að gefast upp, og ég fór því
að líta í kringum mig eftir öðrum
möguleikum."
Ótrúlegur uppgangur
í farsímaiðnaði
Á þessum tíma var að hefjast
hinn ótrúlegi uppgangur í fram-
leiðslu á hvers konar farsímum, sem
enn sér ekki fyrir endann á. Alþjóð-
leg stórfyrirtæki eru leiðandi í þró-
un og framleiðslu á farsímum en til
hliðar við þessa miklu vaxtargrein
hefur sprottið upp ábatasamur
markaður fyrir margvíslega fylgi-
hluti, t.d. rafhlöður, hulstur,
beltisklemmur o.s.frv. Megnið af
þessum fylgihlutum er framleitt í
Asíu. „Með mína þekkingu á raf-
tækjageiranum, sem er í rauninni
næsti bær við þessi símtækjavið-
skipti, ákvað ég að láta reyna á
þetta, enda er Hong Kong hjarta
þessarar framleiðslu."
Á þessum tíma, síðla árs 1995,
var mikill uppgangur í Suður-Am-
eríku. Óli setti sig í samband við
gamlan félaga frá Bandaríkjunum,
Ingva Tý Tómasson, sem bjó í Mi-
ami. Varð úr að þeir stofnuðu
Strax í sameiningu. Fyrirtækið var
stofnað árið 1996 og hafa þeir fé-
lagar starfað á þessum grunni síð-
an. „Ég stjórna framleiðsluhliðinni
hér í Hong Kong en Ingvi Týr hef-
ur yfirumsjón með markaðssetn-
ingunni frá Miami ásamt Birgi
Erni Birgissyni hagfræðingi,“ seg-
ir Óli.
Meginþátturinn í starfseminni er
framleiðsla á fýlgihlutum fyrir flest-
ar tegundir og gerðir farsíma, í
upphafi með áherslu á vinsælustu
gerðimar fyrir markaðina í Norður-
og Suður-Ámeríku, en nú er einnig
vaxandi áhersla lögð á Evrópu.
Vörusala til Islands er einnig vax-
andi þáttur í starfseminni. „Það er
ótrúlegt hvað hægt er að selja
heim,“ segir Óli. „íslendingurinn
þarf alltaf að hafa það nýjasta og
besta, bæði í farsímum og fylgihlut-
um.“
MiHjarður farsíma árið 2004
Heildarvelta S traxfyri rtæ kj an n a
nam um 230 milljónum króna á síð-
astliðnu ári og var meginhluti henn-
ar vegna vörusölu til Bandaríkjanna
og Suður-Ameríku að sögn Óla.
„Það ríkir að vísu nokkur óvissa
með þróun mála í Suður-Ameríku
og þar eru miklar sveiflur í efna-
hagslífínu, en samt er gífurleg sölu-
aukning á farsímum. Talið er að nú
séu um 300 milljónir farsíma í notk-
un í heiminum en því er spáð af sér-
fræðingum í símaiðnaðinum að þeir
verði um 600 milljónir árið 2001 og
komnir yfir milljarð árið 2004. Það
gefur augaleið að þessi gífurlegi
vöxtur hefur ótal tækifæri í för með
sér og það hyggjumst við nýta okk-
ur.
-Hvemig sérðu fjarskiptamark-
aðinn fyrir þér ef þú skyggnist enn
lengra fram í tímann?
„Ég sé fyrir mér að í nálægri
framtíð muni hver einstaklingur
hafa sinn eigin síma og sitt persónu-
lega númer hvar sem hann er og
hvert sem hann fer.“
Starfsemi í þremur heimsálfum
-Munuð þið áfram leggja svo ríka
áherslu á Ámeríkumarkaðinn?
„Við höfum lagt mikla vinnu í að
ná fótfestu þar en látið aðra mark-
aði, t.d. Evrópu, mæta afgangi á
meðan. Markaðsstarfið í Ameríku
hefur skilað sér svo vel að við
treystum okkur nú jafnframt til að
hefja öfluga sókn inn á Evrópu-
markaðinn. í júlí eða ágúst munum
við opna skrifstofu í Englandi og
þar verða höfuðstöðvar Strax í Evr-
ópu. Þá höfum við litla söluskrif-
stofu á Kýpur, sem Valur Berg-
sveinsson er í forsvari fyrir. Fram-
tíðarhugmyndin er sú að setja upp
útibú í löndum Austur-Evrópu og
Afríku en þessir markaðir eiga eftir
að vaxa gífurlega á næstu árum.
Eftir sem áður mun Hong Kong
armur Strax annast framleiðslu og
vöruþróun."
-Pað er að sjá að Strax hafí starf-
semi svo víða að sólin setjist aldrei í
starfstöðvum þess. Hefur það ekki
viss vandkvæði í fór með sér fyrír
ekki stærra fyrirtæki að dreifast
um allarjarðir ef svo má segja?
„Við erum að byggja upp lítið en
öflugt alþjóðafyrirtæki og þurfum
því að vera með starfsemi á ýmsum
stöðum. Auðvitað eru flest alþjóðleg
fyrirtæki stærri en í smæðinni ligg-
ur jafnframt okkar helsti styrkur.
Með því að vera með starfsemi víða
er auðveldara fyrir okkur að vera í
milliliðalausu sambandi við fram-
leiðendur og kaupendur sem skiptir
gífurlegu máli. Éinnig þurfa menn
að vera á staðnum til að skilja
markaðinn og komast í tengsl við þá
aðila sem skipta máli. Með lág-
marks yfirbyggingu og notkun nú-
tíma tækni getum við tekið ákvarð-
anir hratt og verið í sambandi við
mannskapinn hvar sem er í heimin-
um.“
Nú vinna átján manns hjá fyrir-
tækinu, sex í Hong Kong, einn á
Kýpur og ellefu á Miami. Með fyr-
irhugaðri útþenslu munum við
væntanlega fjölga starfsmönnum í
sjö til átta hér í Hong Kong og vera
með í lok ársins um fimm starfs-
menn í nýju skrifstofunni í
Englandi. „
Búnir með grunninn
-Hvað stefnið þið á að auka velt-
una mikið á milli ára?
„Við reiknum með að heildar-
velta iyrirtækisins muni rúmlega
þrefaldast frá síðasta ári og verði
um 800-850 milljónir króna í ár.
Þetta kann að hljóma ótrúlega en
sannleikurinn er sá að þetta er
fyrsta árið sem fyrirtækið starfar
af fullum krafti. Það má líkja fyrir-
tæki sem þessu við húsbyggingu.
Fyrst þarf að grafa grunn og klára
kjallarann áður en hæðimar eru
byggðar. Fyrstu tvö árin fóru í að
kanna markaðinn og byggja upp
sambönd og nú er komið að því að
láta reyna á þær hugmyndir, sem
Strax byggist á. Þrátt fyrir mikla
veltuaukningu reynum við að halda
yfirbyggingu í lágmarki og að hafa
ekki fleiri en 25 starfsmenn í lok
ársins.“
-Samkeppnin á farsímamarkaði
er mikil og fer vaxandi. Hvernig
hyggist þið ná viðunandi framlegð á
þessum harða markaði?
„Það er rétt að á þessum mark-
aði er ekki vandinn að ná mikilli
veltu, heldur viðunandi framlegð.
Viðskipti með sjálfa farsímana fara
þó vaxandi hjá okkur. Og með til-
komu skrifstofunnar í Englandi
sjáum við fram á mikla möguleika
á símasölu inn til Hong Kong og
Kína. Kínverjinn vill nefnilega
miklu frekar kaupa farsíma fram-
leidda í Evrópu en þá sem eru
framleiddir í Kína. Okkar sérgrein
er þó framleiðsla og þróun á fylgi-
hlutum. í upphafi seldum við aðal-
lega hefðbundna hluti eins og flest-
ir af okkar keppinautum gera. Nú
leggjum við aukna áherslu að
hanna og þróa ýmsar framandi
vörur eins og t.d. beltisklemmur,
sem við höfum framleitt fyrir risa
eins og Samsung, Mitsubishi og nú
nýverið Qualcomm í Bandaríkjun-
um. Þetta samstarf styrkir stöðu
okkar í bransanum og gerir það að
verkum að við erum ekki bara
„venjulegir" farsímafylgihlutasalar
og framleiðendur. Við erum að
byggja upp orðstír sem gæðafram-
leiðendur á nýjum og áhugaverðum
varningi, sem við teljum að eigi eft-
ir að verða lykillinn að velgengni
okkar í framtíðinni. Þá er það
einnig okkar styrkur að vera með
þá sérstöðu að geta blandað saman
öllum þremur sölukjörnunum í
þessum viðskiptum, þ.e. sölu á
hefðbundnum fýlgihlutum, nýjum
hágæðavörum og svo hinum vax-
andi viðskiptum í „orginal" fylgi-
hlutum og símum. Við munum
einnig leggja mikla áherslu á svo-
kallaðan handfrjálsan búnað þar
sem margar þjóðir munu brátt
banna með lögum akstur með far-
síma í lúkunni."
-Hafíð þið bolmagn einir og sér
til að auka umsvifín og hrinda hug-
myndum ykkar í framkvæmd?
„Smæð fyrirtækisins hefur stund-
um staðið því fyrir þrifum og
nokkrum sinnum höfum við átt í
erfiðleikum með að fjármagna stór-
ar pantanir, þ.e. að brúa bilið á milli
framleiðslu og sölu. Þetta er í sjálfu
sér „gott“ vandamál en vandamál
eigi að síður. Vegna þessa og þar
sem við sjáum fram á mikinn vöxt í
okkar viðskiptum í náinni framtíð
höfum við ákveðið að leita að
áhugasömum fjárfestum. Þrátt fyr-
ir að vera með tvo fjársterka og
áhugasama aðila í Bandaríkjunum,
ákváðum við að athuga þessi mál
heima á Islandi. I framtíðinni er
líka möguleiki að sameinast eða að
tengjast einhverju af þeim stóru
símafyrirtækjum, sem við eigum í
samstarfi við. Ef áætlanir okkar
ganga eftir reiknum við með að
skrá fyrirtækið á bandarískum
hlutabréfamarkaði eftir þrjú til