Morgunblaðið - 30.05.1999, Page 31

Morgunblaðið - 30.05.1999, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 31 Ég sé fyrir mér að í nálægri framtíð muni hver einstaklingur hafa sinn eigin síma og sitt per- sónulega númer hvar sem hann er og hvert sem hann fer. ÓLI Anton sýnir hér hluta af úrvali farsíma- og fylgihluta sem Strax framleiðir fímm ár. Við erum nú að leggja aukna áherslu á vörusölu á Inter- netinu en þar eru möguleikarnir gífurlegir í framtíðinni. Með því að blanda saman framtíðai’viðskipta- grein, sem farsímageirinn er, og netviðskiptum, teljum við okkur hafa áhugaverðan pakka fyrir fjár- festa.“ Lífið er viðskipti í Hong Kong -Er mikill munur á því að stunda viðskipti í Hong Kong og á Islandi? „Já, það er óhætt að segja það. Lífið er viðskipti í Hong Kong. Hér eru miklir peningar og meiri hraði í öllum sviðum. I Evrópu er maður yfirleitt búinn í vinnunni um kvöld- matarleytið en hér er unnið allan sólarhringinn ef vel á að vera. Yfir- leitt, þegar maður er að klára kvöldmatinn um tíu leytið, byrjar Miami að hringja. Þeir eru þá að komast á morgunskrið og verða að vita stöðu mála í framleiðslu- og af- hendingarmálum. Maður þarf því að leggja harðar að sér í viðskipt- um hér en víða annars staðar. Menn koma jú hingað til að vinna og geta yfirleitt unnið sér inn meiri peninga hér en í Evrópu og jafnvel Bandaríkjunum. Asíubúar vilja helst kynnast útlendingi persónu- lega áður en þeir treysta honum og viðskiptin geta farið fram og það tekur að sjálfsögðu tíma. Þrátt fyr- ir að Hong Kong sé nú komið yfir til Kína hefur lítil sem engin breyt- ing orðið á lífs- eða starfsskilyrð- um.“ Oli segir að það séu að mörgu leyti kjöraðstæður til fyrirtækja- rekstrar í Hong Kong. Hér eru góð- ar samgöngur, virkur fjármála- markaður og þjálfað starfslið og staðsetningin er auðvitað frábær fyrir útflytjendur og framleiðendur. A móti kemur að laun og verð á hús- næði er hærra en víða annars stað- ar í heiminum. Nauðsynjavörur eru einnig nokkuð dýrar hér því þær eru að mestu leyti fluttar inn,“ segir Óli að lokum. Margir offremstu nuddurnm heims nota BIOTONE nuddvörumar. Þú þarft ekki að sœtta þig við að nota annað en það besta. 0 UMBOÐ O G DREIFING A ÍSLANDI: HALUR OG SPRUND chf. Auðbrekku 14 (Húsnæði Yoga Studio) • Kópavogi Sími 544 5560 • Fax 544 5565 Útsölustaðir: Lyfja, Lágmtila 5 • Hringbrautarapotek, Hringbraut 1 19 Vesturbæjarapótek, Melhaga 20-22 • Arbæjarapótek, Hraunbæ 102B

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.