Morgunblaðið - 30.05.1999, Page 38

Morgunblaðið - 30.05.1999, Page 38
38 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, SVANA E. SVEINSDÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 20. maí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Pétur Jónsson, Sveinn Kr. Pétursson, Guðrún Iðunn Jónsdóttir, Steinunn Pétursdóttir, Jenný Olga Pétursdóttir, Veigar Már Bóasson, Kristín Pétursdóttir, Antwan Spierings og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA FRIÐRIKSDÓTTIR, Möðruvallastræti 8, Akureyri, sem lést á dvalarheimilinu Kjarnalundi föstu- daginn 14. maí, verður jarðsungin frá Akureyr- arkirkju fimmtudaginn 3. júní, kl. 13.30. Halldór Grétar Guðjónsson, Ulla-Britt Guðjónsson, Björgvin Leonardsson, Guðrún Leonardsdóttir, Birgir Stefánsson, Albert Leonardsson og ömmubörnin öll. + Elskuleg eiginkona og móðir okkar, STEFANÍA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Syðra-Lóni, Furugerði 19, Reykjavík, andaðist þann 25. maí sl. Útförin hefur farið fram. Reynir Ármannsson, Ásta Reynisdóttir, Bergþóra Reynisdóttir, Ármann Reynisson, Halldór Reynisson. + Elskuleg móðir okkar, systir, amma og lang- amma, JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju mánu- daginn 31. maí kl. 13.30. Helga Guðbjörg Guðmundsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Björg Kristjánsdóttir, Hanna María Jónsdóttir, Sigurbergur Steinsson, Magnús Haukur Ásgeirsson, Guðmundur Örn Guðjónsson, Steinþór Guðjónsson, Daníel Guðmundur Hjálmtýsson, Thelma Hrund Sigurbergsdóttir. + Þökkum innilega þá miklu samúð og vinsemd sem okkur var sýnd við andlát og útför okkar hjartkæru AUÐAR RÓSAR INGVADÓTTUR, Suðurhólum 14. Óðinn Snorrason, Ingvi Rafn Óðinsson, Ester Rafnsdóttir, Margrét Sigurpálsdóttir, Jón Sæmundsson, Jón Veigar Þórðarson, Ragnhildur Þórðardóttir, Jóhanna Marfa Ingvadóttir, Sigursteinn Karlsson, Linda Ingvadóttir, Guðmundur Helgason, Ingibjörg Lovísa Jónsdóttir og aðrir fjölskylduvinir. DRÖFN PÉTURSDÓTTIR SNÆLAND + Dröfn Péturs- dóttir Snæland fæddist í Hafnarfirði 10. september 1915. Hún lést á Landspít- alanum 10. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Pétur V. Snæland, f. 19.2. 1883, d. 9.11. 1960 og Kristjana S. Snæland, f. 23.7. 1889, d. 30.9. 1918. Systkini Drafnar: Baldur Snæland, f. 25.2. 1910, d. 11.1. 1996; Iðunn Snæland, f. 15.6. 1912, d. 24.4. 1990; Nanna Snæland, f. 15.6. 1912, d. 1.8. 1992; Pétur V. Snæland, f. 10.1. 1918 sem er einn á lífi ásamt upp- eldissystur Drafnar, Ingibjörgu Guðrúnu Magnúsdóttur, f. 24.4. 1924. Dröfn giftist 19.12. 1936 Magn- úsi G. Marionssyni, málarameist- ara og síðar innheimtumanni, f. 22.8. 1911, d. 17.12. 1993. Börn Drafnar og Magnúsar: 1) Sigurð- ur Eggert Magnússon, og á hann ijögur börn og tvö barnabörn. 2) Kristjana Margrét Magnúsdóttir, gift Ævari Auð- björnssyni og á hún fjögur börn, sjö barnabörn og tvö barnabarnabörn. 3) Sigríður Svanhildur Magnúsdóttir, gift Kristófer Þorleifs- syni og á hún fjögur börn og sex bama- börn. 4) Magnús Guðbergur Magnús- son, d. 1969, var kvæntur Guðnýju Magnúsdóttur og eru synir hans tveir og fimm barnabörn. 5) Jóhann Marion Magnússon, kvæntur Halldóru Jónu Jónsdótt- ur og á hann íjögur börn og þijú barnabörn. Dröfn stundaði nám í klæð- skeraiðn í Hafnarfirði og fór svo í kjólasaum. Hún vann lengi við saumaskap og afgreiðslustörf í kjólabúðinni Best og síðar við af- greiðslustörf í vefnaðarvöru- verslun Ólafs Jóhannssonar í Hólmgarði. títför Drafnar fór fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ hinn 17. mars síðastliðinn. Ég var svo lánsöm að eiga eina yndislegustu ömmu að. Til rúmlega ellefu ára aldurs bjó ég í Ólafsvík og hitti þá ömmu ag afa þegar ég kom til Reykjavíkur og einnig komu þau oft til okkar á jólunum. Ég stærði mig af því að eiga mýkstu ömmuna (og kallaði hana oft ömmu mjúku). Eitt skipti þegar hún kom í heim- sókn kom vinkona mín til að sjá ömmu mjúku, því hún var með svo mjúka húð og alveg ekta amma. Hún spilaði oft við mig og ég fór líka með henni í spilakassana og var mjög montin yfir því hversu heppin hún var alltaf, hún fór t.d. ekki öðruvísi á bingó en að koma heim með nokkra vinninga. Eitt sumarið fór amma með fjöl- skyldu minni til Svíþjóðar. Þar fór hún á kostum í tívolíinu og vann tvær fullar ferðatöskur af böngsum og dóti. Vonbrigðin urðu mikil þeg- ar töskunum var stolið, en amma gaf mér sætan strumpabangsa sem situr nú á rúminu mínu þar sem amma er farin frá mér. Nú síðustu árin var amma mér miklu meira en bara amma. Ég fór oft til hennar og ég gat sagt henni SVANA E. SVEINSDÓTTIR + Svana E. Sveins- dóttir fæddist í Sandgerði 25. mars 1925. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 20. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sveinn Arnoddsson, verka- maður, f. 4.10. 1895, d. 18.10. 1946, og Kristín Guðmunds- dóttir, f. 17.12. 1885, d. 18.7. 1964. Svana átti tvo bræður, annar var tvíburabróðir henn- ar og fæddist hann andvana, hinn var Jón, sem fórst 4.1. 1960 með mb. Rafnkeli og átti hann þrjú börn. Svana giftist 8. júlí 1944 Pétri Jónssyni, f. 22. september 1919. Foreldrar hans voru Halldóra Nú fínn ég angan löngu bleikra blóma, borgina hrundu sé við himin ljóma, og heyri aftur fagra, forna hljóma, finn um mig yl úr brjósti þínu streyma. Ég man þig enn og mun þér aldrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfraheima. Jósepsdóttir og Jón Kr. Magnússon. Börn þeirra: 1) Sveinn Kr., f. 22.1. 1944, maki Guðrún Iðunn Jónsdóttir, f. 24.7. 1953. Þeirra barn er Gunnar Hrafn, f. 11.6. 1996, sonur Guðrúnar er Hannes Jón, f. 13.11. 1975. 2) Steinunn Hafdís, f. 15.10. 1948. 3) Jenný Olga, f. 13.10. 1951, maki Veigar Már Bóasson, f. 6.8. 1950. Þeirra börn eru Árni Pétur, f. 15.3. 1979, Helgi Már, f. 4.5. 1982, og Steinar Páll, f. 6.2. 1987. 4) Kristín, f. 3.4. 1968, maki Antw- an Spierings, f. 29.9. 1971. títför Svönu var gerð frá Hvalsneskirkju 28. maí. Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jörðu. Brosin þín mig að betri manni gjörðu. Bijóst þitt mér ennþá hvíld og gleði veldur. Þú varst mitt blóm, min borg, mín harpa og eldur. (Davíð Stefánsson.) + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, EIRÍKUR ODDSSON, Hlfðargerði 23, er látinn. Guðmunda K. Þorgeirsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. allt sem mér bjó í brjósti. Hún var einn besti trúnaðarvinur sem ég hef átt. Við sátum oft og drukkum kaffi saman og spjölluðum, en amma hafði þann einstaka hæfileika að spá í bolla eftir kaffidrykkjuna. Hún var þessari einstöku gáfu gædd og var spennan oft mikil þegar hún las úr bollanum. Mjög margir spádómar ömmu hafa ræst. Þetta voru orðnir fastir liðir að skreppa í kaffibolla til ömmu. Amma var mjög hress og lífsglöð kona, hló og gantaðist með mér eins og hún væri jafnaldri minn. Hún studdi mig alltaf í ákvörðunum mín- um og mér leið einstaklega vel í ná- vist hennar. Síðasta sumar bjó ég í London og skrifaði henni alltaf bréf og sagði henni frá öllu sem ég var að gera og hringdi líka í hana til að heyra í henni. Henni fannst mjög skondið þegar hún fékk pakka frá útlöndum einn daginn, því að í honum reynd- ist vera kaffibolli sem búið var að drekka úr. Hún vissi líka hvaðan hann kom, ekki frá neinni annarri en mér. Stuttu seinna hringdi ég spennt og hún spáði í gegnum sím- ann, alltaf kom á óvart þegar hún hitti naglann beint á höfuðið. Amma var mjög tilfinningamikil og hjartnæm manneskja. Henni fannst við eiga það sameiginlegt að vera mjög viðkvæmar og með stórt hjarta, eins og hún orðaði það. En þess vegna náðum við svo vel sam- an, þrátt fyrir 60 ára aldursmun vorum við mjög góðar vinkonur. Amma saumaði mikið og fannst gaman að dansa. Hún var oft hrók- ur alls fagnaðar hér heima, t.d. í skötuveislu, þar sem hún hló smit- andi hlátri og sagði skemmtilegar sögur. Allar okkar samverustundir geymi ég að eilífu í hjarta mínu. I byrjun þessa árs brotnaði amma mjög illa og var lögð inn á spítala. Ég hélt þá að amma kæmi heim eftir að brotin myndu gróa en eitt leiddi af öðru og heilsu hennar hi’akaði mjög ört. Allur líkaminn fór að gefa sig og einn daginn rann það upp fyrir mér að amma átti ekki aft- urkvæmt af spítalanum og ég vildi Með þessu fallega kvæði vil ég kveðja móður mína sem nú er kvödd hinstu kveðju. Þegar ég minnist hennar þá sækja á huga minn minningar frá æskuárunum í Keflavík. Mamma hafði alltaf frá svo mörgu skemmtOegu að segja, hún hafði gaman af því að vera inn- an um fólk, var glaðlynd og mikil félagsvera. A þeim árum sem við systkinin vorum að alast upp var tíðarandinn annar en hann er í dag. Mæðurnar voru í flestum tilfellum heimavinnandi og þannig var það á okkar heimili. Mamma var þessi kjölfesta í uppeldinu, hún saumaði á okkur fötin hvort sem var á okk- ur eða dúkkumar, hún bakaði mik- ið og vildi alltaf eiga nóg til að bjóða með kaffinu. Allir sem þekktu Svönu vita að hún lagði mikið upp úr því að hafa heimilið hreint og hlutina í röð og reglu og var það ríkur þáttur í uppeldinu að hafa okkur systkinin sem snyrti- legust. Hún lagði mikið upp úr því að vera sjálf vel til höfð, fannst sér- staklega gaman að klæða sig upp á, enda fannst mér mamma alltaf vera afar glæsileg kona. Mamma og pabbi komu oft nú á seinni árum og dvöldu á heimili mínu. Þau kynntust þannig vel drengjunum mínum sem nú kveðja ömmu sína með söknuði. Þeim þótti afar vænt um hana og á milli þeirra voru einstaklega miklir kær- leikar. Mikið á ég eftir að sakna hennar mömmu minnar, hún fór svo snögglega að það á eftir að taka mig langan tíma að átta mig á því. Það að heyra ekki lengur hressandi málróminn og finna ekki glaðværðina sem umkringdi hana alla tíð á eftir að mynda tómarúm sem erfitt verður að sætta sig við. Ég vil fyrir hönd fjölskyldunnar þakka hjúkrunarfólkinu á deild B7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sem hlúði að mömmu síðustu klukku-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.