Morgunblaðið - 30.05.1999, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
hljóta. Þannig að Hrannar B. Arn-
arson hefur í raun ekki verið
hreinsaður af því sem á hann var
borið heldur má segja að staðfest
hafi verið að framferði hans hafi
verið ólögmætt og að kjósendur
hafi gert rétt í því að hafna honum.
Þrátt fyrir það lýsti Hrannar B.
Amarson því yfir að hann hygðist
brátt taka sæti sitt í borgarstjórn
Reykjavíkur líkt og kjósendur
hefðu kosið hann til.
STEINÞÓR JÓNSSON,
Hléskógum 18, Reykjavík.
Meirihluti Reykvíkinga
Frá Steinþóri Jónssyni:
FYRIR rétt rúmlega ári fóru fram
kosningar til borgarstjómar
Reykjavíkur. R-listinn hélt þar
meirhluta sínum þrátt fyrir að tveir
frambjóðendur á framboðslista R-
listans hefðu verið í kastljósi fjöl-
miðla vegna fjármálaóreiðu og
skattamála. En það sem var
óvenjulegt við þessar kosningar var
að tæplega átta þúsund kjósendur
R-lista strikuðu yfir nafn Hrannars
B. Amarsonar. Sjaldan eða aldrei
hafa kjósendur látið svo skýrt í ljós
að einn ákveðinn frambjóðandi ætti
ekki erindi uppá dekk stjórnmál-
anna. Má með sanni segja að
Hrannari B. Arnarsyni hafi verið
gjörsamlega hafnað af kjósendum.
I kjölfar kosninganna lýsti Hrannar
B. Arnarson því yfir að hann myndi
ekki taka sæti í borgarstjóm á
meðan mál hans væra til meðferðar
skattayfirvalda. 7.672 kjósendur
strikuðu yfir nafn Hrannars eða
u.þ.b 22,4 % af þeim 34.251 atkvæð-
um sem R-listanum vora greidd.
Klárlega vildu þeir 28.932 kjósend-
ur sem greiddu D-lista sjálfstæðis-
manna ekkert með Hrannar eða R-
listann að gera og má því með sanni
segja að 36.604 kjósendur hafi
hafnað Hrannari. Era það u.þ.b
58% af þeim sem greiddu atkvæði í
kosningunum sl. vor. Af framan-
greindu má vera ljóst að meirihluti
Reykvíkinga telur að Hrannar B.
Amarson eigi ekkert erindi í borg-
arstjórn Reykjavíkur.
Meðferð skattayfirvalda
Núna á vordögum kom úrskurð-
ur ríkisskattstjóra um málefni
Hrannars B. Arnarsonar. Ekki
taldi embættið að senda bæri mál
Hrannars til ríkissaksóknara til
meðferðar. Sjálfsagt hefur það ver-
ið léttir fyrir Hrannar persónulega
að vera ekki kærður af embætti
ríkissaksóknara. En máli hans var
skotið til úrskurðar yfirskatta-
nefndar. Þar er búist við því að því
ljúki með sektum. Nú er ég ekki
lögfróður maður en það að málinu
muni ljúka með sektum segir mér
að umræddur aðili hafi gerst brot-
legur og sektargreiðsla sé sú refs-
ing sem viðkomandi muni líklega
Kappróðurá
sjómannadaginn
Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðri
á sjómannadeginum í Reykjavík skrái
sig í símum 553 3650 og 5511915.
Sjómannadagsráð
clanski
ballettinn
í Þjóðleikhúsinu
3. og 3. júní
A efnisskrá eru verk eftir Peter
Martin, Alvin Ailey og Bournonville
Dansarar: Mette Bödtehei', Silja Sehandorff,
Peter Bo Bendixen, Christina Olsson,
Mads Blangstrup, Johann Kobborg,
Alexei Ratmansky. Herming Albreohtsen,
Tina Höjlund og Diana Curi.
Miðasala hefst 25. maí. s. 551 1200
Aðeins þessar tvær sýningar.
>«
!
KAUPÞING
Danska sendiráðið
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
QshKosh
B’GOSH
Emblo
Strandgötu 26 sími: 5551055
Leikskólar
Reykjavíkur
Dagvist barna verður
Leikskólar Reykjavíkur
Þann 1. júní breytist nafn Dagvistar barna \ Leikskóla Reykjavíkur. Borgarráð
Reykjavíkur staðfesti nýverið nýja samþykkt fyrir stjórn Dagvistar barna sem
eftir breytingu heitir lelkskólaráð Reykjavíkur. Leikskólaráð fer nú með
málefni Leikskóla Reykjavíkur í umboði borgarráðs með vísan
til laga um leikskóla frá árinu 1994. í lögunum kemur fram
að fyrsta skólastigið í skólakerfinu heitir leikskóli og er fyrir
börn undir skólaskyldualdri.
Vakin er athygli á því að starfsemi stofnunarinnar helst
óbreytt og munu Leikskólar Reykjavíkur áfram stuðla að
uppbyggingu uppeldis og menntunar fyrir yngstu börnin
og veita peim og foreldrum peirra íyrsta flokks pjónustu
á faglegum grunni.
Skrifstofa Leikskóla Reykjavíkur
er til húsa í Hafnarhúsinu,
Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
sími 563 5800
Tölvupóstur leikskólar@rvk.is