Morgunblaðið - 30.05.1999, Síða 54
54 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Sýtit á Stóra sóiii Þjóðleikhússins:
SJÁLFSTÆTT FÓLK eftir Halldór Kiljan Laxness.
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir.
Fvrri svnina:
BJARTUR — Landnámsmaður íslands
Fös. 4/6 — fös. 11/6. Síðustu sýningar leikársins.
Síðari svning:
ÁSTA SÓLLILJA - Lífsblómið
11. sýn. sun. 30/5 nokkur sæti laus — 12. sýn. sun. 6/6 — fim. 10/6 — sun.
13/6. Síðustu sýningar leikársins.
TÓNLEIKAR TRÍÓS NÍELS HENNING
ÖRSTED PEDERSEN mán. 31/5 kl. 21.00
Gestasýning: KONUNGLEGI DANSKI BALLETTINN mið. 2/6
kl. 20.00 oq fim.W6 M. 20.00. Aðeins þessar tvær sýningar.
TVEIR TVÖFALDIR — Ray Cooney
Lau. 5/6 — lau. 12/6. Síðustu sýningar leikársins.
Stjnt á Litta stíiði kl. 20.00:
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric-Emmanuel Schmitt
Fim. 3/6 — lau. 5/6 — lau. 12/6. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn
í salinn eftir að sýning hefst
Sijnt á SmiðatíerkstteSi kt. 20.30:
MAÐUR í MISLITUM SOKKUM — Arnmundur Backman
í kvöld sun. 30/5. Ath. ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning
hefst Síðustu sýningar á Smíðaverkstæðinu.
Sýnt í Ólafsvík 2/6 kl. 20.30 - í Hnrfsdal 4/6 og 5/6 kl. 20.30 - á Blönduósi 8/6
kl. 20.30 - íÝdölum 9/6 kl. 20.30 - á Egilsstöðum 11/6 og 12/6 kl. 20.30.
Stjnt i Loftkastala:
RENT - Skuld — Jonathan Larson
Rm. 3/6 kl. 20.30 nokkur sæti laus — lau. 5/6 kl. 20.30 nokkur sæti laus
- fös. 11/6 kl. 23.30 - lau. 12/6 kl. 20.30.
Miðasalan er opin mánudaga—þriðjudaga kl. 13—18,
miðvikudaga—sunnudaga kI. 13—20.
Símapantanir frákl. 10 virka daga. Sími 551 1200.
5 LEIKFELAG <
REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHUSIÐ
A SIÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hálfvirði.
Stóra svið kl. 20.00:
Litta kujlUntjfbúðut
eftir Howard Ashman,
tónlist eftir Alan Menken.
Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson.
Þýðing söngtexta: Magnús Þór
Jónsson.
Leikstjóri: Kenn Oldfield.
Tónlistarstjóri: Jón Ólafsson.
Búningan Una Collins.
Leikmynd: Stígur Steinþórsson.
Lýsing: Ögmundur Þór Jóhanriesson.
Hljóð: Jakob Tryggvason/Gunnar
Ámason.
Leikendun Ari Matthíasson, Ás-
bjöm Morthens, Eggert Þorleifsson,
Hera Björk Þórhallsdóttir, Regína
Ósk Óskarsdóttir, Selma Bjöms-
dóttir, Stefán Kari Stefánsson, Val-
ur Freyr Einarsrson og Þómnn Lár-
usdóttir.
Tónlistarmenn: Jón Ólafsson, Kari
Olgeirsson, Jóhann Hjörleifsson,
Jón Elvar Hafsteinsson og Friðrik
Sturiuson.
Frumsýning fös. 4/6, hvrt kort,
2. sýn. lau. 5/6, grá kort,
3. sýn. sun. 6/6, rauð kort,
4. sýn. lau. 12/6, blá kort
Litla svið kl. 21.00:
"5^' lifandi
Óperuleikur um dauðans óvissa
tíma.
Höfundur handrits: Árni Ibsen.
Höfundur tónlistar: Karólína
Eiríksdóttir.
Höfundur myndar: Messíana
Tómasdóttir.
Frimsýn. fim. 3/6, örfá sæti laus,
2. sýn. fös. 4/6,
3. sýn. þri. 8/6,
4. sýn. lau. 12/6.
Miðasalan er opin virka daga frá
kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga
og sunnudaga og fram að sýn-
ingu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000, fax 568 0383.
Súrefiiisvömr
Karin Herzog
Silhouette
Félag íslenskra tónlistarmanna
og íslenska óperan
Einleikstónleikar
í íslensku óperunni
sunnudaginn 30. maí kl. 17.00.
Sigrún Eðvaldsdóttir, fíðla
James Lisney, píanó
Á efnisskrá eru verk efiir J.S. Bach,
Debussy, Stravinsky og Busoni
IasMmu
sun. 6/6 kl. 14 nokkur sæti laus
sun. 13/5 kl. 14
Ósóttar pantanir setdar fyrir sýningu
fim. 3/6 kl. 20.30 nokkur sæti laus,
lau. 5/6 kl. 20.30 nokkur sæti laus,
fös. 11/6 kl. 23.30,
lau. 12/6 kl. 20.30.
Miöasala i s. 552 3000. Opiö virka daga kl.
10 — 18 og fram aö sýningu sýningardaga
Miðapantanir allan sólarhringinn.
30 30 30
Mteuta opln Irá 12-18 oplranaA syitngu
lýrinevdasa. (flö irá 11 lyi* hádetfMKhúalll
HNETAN - drepfyndin geimsápa kl. 20.30.
sun 30/5 uppselt, lau 5/6
HÁDEGISLEl KHÚS - kl. 1200
Nýtt, 1000 eyjasósa mið 9/6
TÓNLEIKARÖÐ IÐNÓ kl. 20.00
Caput flytur Örsögur eftir Hafliða
þri 1/6, mið 2/6
TILBOÐ TIL LEIKHÚSGESTA!
20% afsláttur af mat fyrir leikhúsgesti í Iðnó.
Borðapantanir í síma 562 9700.
Fréttir á Netinu ^mbl.is /\l-LTAf= G/TTH\&K£> A/Ý7~7
FÓLK í FRÉTTUM
Ótti og andstyggð í Las Vegas
Ofurstarnir
af Kentucky
Johnny Depp fer á
kostum í hlutverki
Hunters S. Thompsons
---------------------
í Otta og andstyggð í
Las Vegas sem kom út
á myndbandi í síðustu
viku. Pétur Blöndal
talaði við hann
um myndina
og fyrirmyndina.
EG HELD að flugþreytan
sé farin að gera vart við
sig,“ segir Johnny Depp og
grettir sig bakvið sólgler-
augun. „Maður kemur til Cannes og
hefur ekki sofið í tvo daga og líður
bara vel; eins og hálfgerðri ofur-
hetju. Svo skyndilega er eins og
maður sé laminn í höfuðið með
sleggju, þar sem mænan og höfuðið
mætast.“
Blaðamaður er ekki viss hvort
Depp er að rugla saman flugþreytu
og timburmönnum en gerir sér
grein fyrir því að svona liði rithöf-
undinum og „gonzo“-blaðamannin-
um Hunter S. Thompson einmitt í
Cannes. Hann hefði verið með allt á
hreinu fyrsta daginn en smám sam-
an hefði sigið á ógæfuhhðina. Og
það er einmitt Hunter sem Depp
leikur snilldarlega í myndinni Ótta
og andstyggð í Las Vegas eða „Fe-
ar and Loathing in Las Vegas“.
Viðtalið fer fram á hótelinu Du
Cap sem er í grennd við Cannes.
Depp lítur út fyrir að vera nývakn-
aður, er órakaður og í krumpuðum
teinóttum jakkafötum en segist
samt ekki hafa sofið í þeim. „Pau
eru frá Dolee & Gabbana og eiga að
vera svona,“ segir hann. „Þessar
elskur hringdu í mig og sögðu að ég
ætti eftir að líta virkilega vel út í
þeim. Eg vona bara að þetta sé ekki
illyrmislegur hrekkur," heldur hann
áfram og hlær.
Manndómsraunir Thompsons
Myndin Ótti og andstyggð í Las
Vegas er byggð á samnefndri sögu
Hunters S. Thompsons. „Ég las
bókina fyrst þegar ég var 16 til 17
ára og hef lesið hana fjórum til
fimm sinnum síðan þá,“ segir Depp.
„Ég er mikill aðdáandi Hunters og
hef lesið nánast allt sem hann hefur
skrifað."
Hvað veldur þessari hrifningu?
„Hann er einn hæfileikaríkasti
rithöfundur sem komið hefur fram í
Bandaríkjunum og þótt víðar væri
leitað,“ svarar Depp. „Hann hefur
mikið vald á tungumálinu og er fyr-
ir mér alveg óviðjafnanlegur."
Var það þér mikilvægt að hitta
hann fyrir gerð myndarinnar?
„Ég lærði svo mikið af honum að
ég get ómögulega neglt eitthvað
ákveðið niður. Maðurinn hefur svo
mikla athyglisgáfu og er einstakur
mannþekkjari. Hann er mjög fljótur
að sjá kosti og galla í fari fólks og
það tekur hann aðeins örfáar sek-
úndur.“
Hverjir voru þínir kostir og gall-
ar, að hans mati?
„Hann hefur aldrei látið það uppi
en hann gerir ýmislegt til að reyna
fólk, sjá hvemig það bregst við og
hversu langt hann getur gengið.
Hann á það til að móðga mig lítil-
lega, t.d. með því að segja hæðnis-
lega: „Svo þú ert kvikmyndastjam-
an?“„ Depp bregður sér í gervi
Hunters þegar hann segir þetta og
JOHNNY Depp var voða fínn í tauinu.
það er eins og Hunter bíómyndar-
innar sé lifandi komin.
Hann heldur áfram: „Við annað
tækifæri voram við að búa okkur
undir tökur. Ég var búinn að raka
af mér allt hárið og var að máta
búninga og prófa nokkrar kollur,
eina með 50 hárum, aðra með 25 og
þá þriðju með 17 hárum. Ég sendi
Hunter myndir af þessu og skrifaði:
„Petta er stefnan sem við eram að
taka en við erum ekki búin að taka
neina ákvörðun ennþá og þú verður
að átta þig á því.“
Hann sendi mér aftur sama bréf-
ið, setti ör við hausinn á mér og
skrifaði: „Kláði?“ Þá skrifaði hann á
myndimar: „Fötin eru alveg út úr
korti. Ef þið ætlið að gera mig að
einhverri teiknimyndafígúru eigið
þið eftir að finna til tevatnsins.“
Ég hugsaði með sjálfum mér að
hann gæti bara farið til fjandans.
Og skrifaði það. Hann kallar mig
Depp ofursta því hann skipaði mig
einu sinni ofurstann af Kentucky.
Svo við erum báðir ofurstar af
Kentucky...“
Hvaðan hefur hann umboð til
þess?
„Ég hef ekki hugmynd um það,“
svarar Depp, „en mér skilst að það
séu til samtök ofursta frá Kentucky
þannig að við erum í góðum félags-
skap. Ég sendi honum sem sagt
bréf með áletruninni: „Doktor.
Farðu til fjandans. Of seint. Ofurst-
inn.“
Hann skrifaði mér aftur: „Mann-
kynssagan mun ekki veita þér af-
lausn illgjami þorparinn þinn.“
Þá skrifaði ég honum langt bréf
þar sem ég útskýrði fyrir honum að
ég væri ekki að reyna að gera hann
að teiknimyndafígúru eða vanvirða
hann: „Ég er ekki lagður upp í
þessa ferð enn sem komið er. Ekki
þrátta við mig. Ég hef nóg með mig
að gera og þú ert að fást við annað.
Við skulum hafa það í huga. Ef þú
heldur að ég sé veikgeðja þá á ég
eftir að koma þér á óvart.“ Þetta
var storkandi bréf og ég fékk allt í
einu svar frá honum sem var í allt
öðrum dúr: „Hresstu þig við; ég var
bara að reyna að hjálpa þér að velja
föt.“ Þannig er hann. Hann var bara
að reyna að stugga við mér og finna
út hversu langt hann kæmist með
mig. Þegar ég lét hann ekki vaða yf-
ir mig, virti hann það við mig og lík-
aði það vel.“
Orrustan töpuð?
Talar hann eins og þú talar í
myndinni?
„Þannig hljómaði það í mín eyru,“
segir Depp.
Hefur hann séð myndina?
„Hann brást mjög vel við; mun
betur en ég bjóst við,“ svarar Depp.
„Ég var dauðskelkaður yfir því
hvernig hann myndi bregðast við.
Því þegar maður sér stóra útgáfu af
sjálfum sér á hvíta tjaldinu þá hlýt-
ur það að koma manni úr jafnvægi.
Því meira sem ég líktist honum því
óþægilegra yrði það fyrir hann. En
hann brást vel við, sagðist hafa
skemmt sér vel og að myndin væri
yndisleg. Hann sagðist hafa vonað
að hún tæki aldrei enda og það sem
var stórkostlegast var að hann
sagði: „Þetta var draugalegur
lúðrablástur á töpuðum vígvelli.“
Eftir að hafa melt þessa spaklegu
setningu um stund spyr blaðamað-
ur: Tapaði hann þá orrustunni?
„Ég er ekki viss um það, en að
mínum dómi er hann enn í fremstu
víglínu."
Af hverju var ekki gerð kvik-
mynd fyrr en 25 árum eftir að bókin
var skrifuð?
„Ég veit það ekki,“ svarar Depp.
„Það hafa verið gerðar margar at-
rennur að sögunni en ætli mönnum
hafi nokkuð tekist að ná utan um
viðfangsefnið. Ég veit að [Dennis]
Hopper var viðriðinn þetta á sínum
tíma og líka Jack Nicholson. Það er
virkilega erfitt að skrifa bókina yfir
í handrit. Jafnvel þótt það sé næst-
um skrifað í söguna sem er út frá
einni og sömu persónunni og því til-
valin fyrir sögumann. En eftir að